Morgunblaðið - 17.03.1955, Qupperneq 4
MORGVNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. marz 1955
I dag er 76. dagur ársins.
17. marz.
ÁrdegisflæSi kl. 11,34.
Síðdegisflæði kl. 00,00.
| [x] Helgafell 59553187 — VI
— 2.
I.O.O.F. 5 == 1363178% = Kvkm.
RMR — Föstud. 18. 3. 20. —
— Fr. — Hvb.
i • Brúðkaup •
í dag verða gefin saman í
ajónaband af séra Jakobi Jónssyni
■ángfrú Sjöfn Sigurjónsdóttir,
fekeggjagötu 9 og Árni Jónsson,
iöngvari.
1 dag verða gefin saman í hjóna
band í kaþólsku kirkjunni í Rvík,
ungfrú Unnur Sigurgeirsdóttir,
Langholtsvegi 58 og Kaymond J.
La Croix frá Vermont, U.S.A.
I gær voru gefin saman í hjóna
band Jóhanna Zimsen, Bjarkarg.
6 og Hilmar Þórhallsson, skrif-
gtofumaður, Bergstaðastræti 59.
ÍJeimili þeirra er að Kleifarv. 13.
Nýlega hafa verið gefin saman
f hjónaband í Rvík ungfrú Jóna
Þorsteinsdóttir, símamær frá Sauð
lauksdal í Patreksfirði og Sigur-
jóri Einarsson, guðfræðinemi, frá
Bíldudal.
• Hiðnaefni •
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Lucie Einars-
*on, Virkielyst 4, Holstebro, Dan-
Triörk og Sólberg Jónsson frá Bol-
ungavík.
• Afraæli •
60 ára varð 3. þ.m. Jóhannes Sig
prðsson skipstjóri, Auðnum, Akra-
tiesi. — Jóhannes or borinn og
barnfæddur Akurnesingur, fædd-
ur á sjávarbakkanum og hefur
Stundað sjó frá barnæsku. 15 ára
fór hann á skútu og var þar 1%
ár. Næstu 4 árin var hann for-
maður, ýmist á fjögurra manna
förum eða sexæringum. Þá gerðist
hann skipstjóri á vélbát ög var
það óslitið í þrjátíu ár. Jóhannes
var aflasæll og lánsmaður í skip-
stjórnarstarfi sínu. — Nú vinnur
hann í landi, en á þó lítinn trillu-
hát, seni itann stundar hrognkelsa
Veiðar á og handfæraveiðar þegar
svo ber undir. — Kvæntur er Jó-
hannes Guðmundu Sigurðardóttur,
og hafa þau eignast fimm börn,
einn sonur er dáinn, en tvær af
fjórum dæturm eru giftar.
r
• Skipafréttir •
Ltmskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss fer frá Hamborg 19.
jþ.m. til Siglufjarðar. Dettifoss fór
frá New York 16. þ.m. til Rvíkur.
Fjallfoss fer frá Hamborg 18. þ.
m. tií Rotterdam, Hull og Rvíkur.
Dagbóh
Framsóknarvistin í Keflavik
TÍMINN feitletrar í fyrradag þau miklu tíðindi að flokksmenn
hans í Keflavík hafi nýlega efnt þar til framsóknarvistar og
hafi aðsókn orðið svo mikil, að þurft hefði að kveðja lögregluna
a vettvang. — Virðist vegur Framsóknar fara vaxandi á þessu
sviði að sama skapi og hann minnkar á þjóðmálasviðinu.
Flest er það, sem að fári verður
Framsóknarmönnum þessa lands.
Orðstír Hermanns að engu gerður
með öllu í langhundum gamals manns.
Og hressi upp á íslands Brunabót
beinum hagsmunum SÍS í mót.
í Keflavik flokksins frami er meiri,
þar framsóknarvistin dafnar bezt.
Sækja þar oft þann fögnuð fleiri
en fá þar rúmast, sem af því sést,
að lögreglan ekkert aðgert fær
er einstöku sinnum í brýnu slær.
LÁSI
Goðafoss kom til New York 11.
þ. m. frá Keflavík. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn 15. þ.m. til Rvík-
ur. Lagarfoss fór frá Hafnarfirði
í gærdag til Akraness og Kefla-
víkur og þaðan í kvöld til Rotter-
dam og Ventspils. Reykjafoss fer
frá Hull í dag til Islands. Selfoss
fór frá ísafirði í gærdag til Flat-
I eyrar. Tröllafoss fór frá New Yor
I York 7. þ.m., væntanlegur til Rvík
ur í dag. Tungufoss fór frá Hels-
ingfors 15. þ.m. til Rotterdam og
Reykjavíkur. Katla fór væntan-
lega frá Gautaborg í gærdag til
Leith og Reykjavíkur.
Skipadeild S. í. S.:
Hvassafell fór frá Stettin 13. þ.
m. áleiðis til Fáskrúðsfjarðar. —
Arnarfell fór frá St. Vincent 7.
þ. m. áleiðis til Islands. Jökulfell
lestar á Vestfjarðarhöfnum. Dís-
arfell fór frá Hamborg 13. þ.m.,
áleiðis til Islands. Litlafell er á
Akurteyri. Helgafell fór frá Rvík
í gær til Akureyrar. Smeralda er
væntanleg til Reykjavíkur í dag.
Elfrida er væntanleg til Akureyr-
ar 21. marz. Troja er í Borgar-
nesi. —
• Flugferðir •
Millilandaflug: Sólfaxi fer til
Prestvíkur og Kaupmannahafnar
kl.. 21,30 í kvöld. — Innanlands-
flug: 1 dag eru ráðgerðar flugferð
ir til Akureyrar, Egisstaða, Kópa-
skers og Vestmannaeyja. — Á
morgun er áætlað að fljúga til Ak-
Giæsileg húseign til sölu
Nýlegt steinhús 110 ferm., kjallari, hæð og rishæð. —- Á
* hæðinni eru 4 herbergi, eldhús og bað. — í rishæð 2
- herbergi o. fl. — í kjallara 3 herbergi, eldhús, bað, þvotta-
hús og geymslur.
Góður bílskúr fylgir og ræktuð og girt lóð.
Nýja fasteignasalan
Bankastiæti 7, Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e. h. 81546.
ureyrar, Fagurhólsmýrar, Hólma-
víkur, Hornafjarðar, Isafjarðar,
Kirkjubæjarklausturs og Vest-
mannaeyja. —
Loftleiðir h.f.:
Hekla er væntanleg til Rvíkur
'kl. 19,00 í dag frá Hamborg, Kaup
mannahöfn og Stafangri. Flugvél-
in fer áleiðis til New York kl. 21.
« Blöð og timarit •
Haukur, heimilisblað, marz-bl.,
er kominn út. Efni m. a.: Flóttinn
eftir Mendés-France. — Ást, sem
ekki gat kulnað (smásaga). —
Úr heimi kvikmyndanna (Gina
Lollobrigida). — Litla stúlkan
við hliðið (dægurlag). — Frægir
menn og frægar konur. — Lista-
mannaþátturinn (Herdís Þorvalds
dóttir). — Gamanþáttur. — Barna
saga. — Krossgáta o. fl.
Kvöldbænir
í Hallgrímskirkju
í kvöld kl. 8,30. (Fólk er minnt
á að taka með sér sálmabækur).
AUir velkomnir.
Félag íslenzkra
hjúkrunarkvenna
Fyrirhugaða árshóf félagsins
verðúr frestað um óákveðinn tíma.
Kvenstúdentafél. íslands
heldur skemmtifund í Þjóðleik-
húskjallaranum, annað kvöld kl.
8,30. Fjölbreytt skemmtiskrá.
Sólheimadrengurinn
Afh. Mbl.: — Birna kr. 50,00.
Til aðstandenda þeirra er
fórust með „Agli rauða“
Afh. Mbl.: — N. N. kr. 50,00.
Þjóðleikhúsið
Sýning sú á gamanleiknum
,.Fædd í gær“, sem fara átti fram
í Þjóðleikhúsinu í gærkvöld, féll
niður vegna skyndilegra veikinda-
forfalla eins aðalleikarans, ungfrú
Þóru Friðriksdóttur. Varð ekki við
komið að afboða sýninguna í tæka
tíð, vegna þess, hve stuttur tími
var fyrir hendi. Biður þjóðleikhús-
ið þá velvirðingar, sem orðið hafa
fyrir óþægindum af þessum sök-
um.
Saumafundur Vorboðans
í Hafnarfirði
verður á föstudagskvöld í Sjálf
stæðishúsinu og hefst hann kl. 8.
Bréfavinir
Lítill, sænskur drengur, 10 ára
Brandt, Epidemivágen 6, Ljusdal,
Sverige, langar til þess að kom-
ast í bréfasamband við pilt eða
stúlku á sínum aldri í Reykjavík.
Hann hefur áhuga á frímerkja-
söfnun og langar til þess að fræð-
ast um Reykjavík og Island.
Orðsending frá Bræðrafél.
Óháða fríkirkjusafnaðarins
Allir þeir, sem sáfnað hafa eða
ætla að gefa muni á hlutaveltuna,
eru vinsamlegast beðnir að koma
þeim í Skátaheimilið eftir hádegi
á laugardag 19. þ.m. eða láta vita
í sima 1273.
Minningarspjöld S.L.F.
— Styrktarfélags lamaðra og
fatlaðra — fást í Bókum og rit-
föngum, Austurstræti 1, Bóka-
verzlun Braga Brynjólfssonar,
Hafnarstræti 22, Hafliðabúð.
Njálsgötu 1, og verzluninni Roða,
Laugavegi 74.
Málfundafélagið Óðinn
Stjórn félagsins er til viðtals
við félagsmenn í skrifstofu félags-
ins á fösludagskvöldum frá kl.
8—10. — Sími 7W4.
Styrktarsjóður munaðar-
tausra barna. — Sími 7967
Bæjarbókasafnið
Lesstofan er opin alla virka daga
frá kl. 10—12 árdegis og kl. 1—10
síðdegis, nema laugardaga kl. 10
— 12 árdegis og kl. 1—7 síðdegis.
Sunnudaga frá kl. 2—7 síðdegis.
Útlánadeildin er opin alla virka
daga frá kl. 2—10, nema laugar-
Inj.ynph! CKNTHi H'Hi.SX í %,17& ,
' Wf-
daga kl. 2—7 og sunnudaga kl.
5—7.
r -
• Utvarp •
Fimmtudagur, 17. marz:
8,00 Morgunútvarp. 9,10 Veður-
fregnir. 12,00—13,15 Hádegisút-
varp. 15,30 Miðdegisútvarp. 16,30
Veðurfregnir. — 18,00 Dönsku-
kennsla; I. fl. 18,25 Veðurfregnir.
18,30 Enskukennsla; II. fl. 18,55
Framburðarkennsla í dönsku og
esperanto. 19,15 Þingfréttir. Tón-
leikar. 19,30 Lesin dagskrá næstu
viku. 19,40 Auglýsingar. — 20,00
F.réttir. 20,30 Daglegt mál (Árni
Böðvarsson cand. mag.). 20,35
Kvöldvaka: a) Magnús Finnboga-
son frá Reynisdal flytur síðari
hluta frásagnar sinnar af sjóslys-
um í Mýrdai eftir miðja síðustu
öld. b) Islenzk tónlist: Lög eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson (plöt-
ur). c) Frú Aðalbjörg Sigurðar-
dóttir flytur frásögu eftir Evu
Hjálmarsdóttur frá Stakkahlíð:
„Gunna í Korgi“. d) fflvar Kvar-
an leikari flytur efni úr ýmsum
áttum. 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. 22,10 Passiusálmur (30). 22,20
Upplestur: Hugrún les fimmort
kvæði. 22,30 Tónleikar (plötur).
23,10 Dagskrárlok.
Sýningar á 'Dimmali
N.K. SUNNUDAG mun Þjóðleik-
húsið taka aftur upp barnasýn-
ingar á hinum vinsæla Dimma-
limm-balletti, sem hætt var sýn-
ingum á fyrir jólin.
Hafði ætlunin verið að taka
upp sýningar aftur eftir nýárið
en af því gat ekki orðið sökum
þess, að óperurnar tóku þá upp
svo mikinn tíma. Síðar kom svo
inflúenzufaraldurinn til og mörg
barnanna sem dönsuðu veiktust,
þannig að bíða varð enn með sýn-
ingarnar.
ÆVFNTVRIÐ UM ÚLFINN
OG PÉTUR
En nú er sem sé ekkert í veg-
inum lengur og verður fvrsta
sýningin kl. 3 á sunnudaginn.
Auk ballettsins verður flutt ævin
týrið um Úlfinn og Pétur með
tónlist eftir Prókóffiév, en Lárus
Pálsson leikari mun lesa ævin-
týrið. Mun sýningin standa yfir
í um það bil eina og hálfa klukku
stund.
r r
Anna Brandsdóttir og Guðný
Friðsteinsdótíir í hlutverki;
Bimmalimm og svansins.
Munið ódýru íslenzku hœkurnar
# hókaverzlunum ísafoldar, Eymund-
son, Braga, Máls og menningar
Listmunauppboð í Listamannaskálanum á morgun kl. 5. — Opið í dag kl. 2-
-7 oglO—4 á morgun.
Listmunauppboð Sigurðar Benediktssonar