Morgunblaðið - 17.03.1955, Side 6

Morgunblaðið - 17.03.1955, Side 6
0 MORGVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. marz 1955 Þjóðleg skóldmennt og söngSist á íslnndi HÁSKÓLINN í Erlanger í, Þýzkalandi bauð Hallgrími Helgasyni að halda fyrirlestur um ofangreint efni þann 23. febrúar. — Blöðin minnast kvöldsins ítar- lega. Fara hér á eftir ummæli hínna helztu. Erlanger tageblatt (Alþýðulist Sþrottin af rótum hetjuljósins) segir m. a.: „Fyrirlestur íslenzka tónvísindamannsms, dr. Hall- gríms Helgasonar, um þjóðlega skáldmennt og sönglist á íslandi, opnaði áheyrendum, sem í ánægjulega stórum hóp voru sam an komnir í orgelsal kirkjutón- listarstofnunar háskólans, innsýn í nær ókunnan en ótrúlega að- laðandi heim. Kvöld þetta var áhrifamikið, ekki aðeins vegna margra hljómandi dæma úr al- þýðumúsik og listmúsík, heldur miklu fremur vegna þeirrar stað- reyndar, að á þessari stóru eyju norður við heimskautsbaug eru gömul söngleg og skáldleg list- form ekki aðeins rykfallnir safn- gripir eins og hjá okkur, heldur lifa þau áfram meðal fólksins. Eldur og ís einkenna landslag íslands, sem fyrst var numið af frelsisunnandi víkingum á 9. öld. Norðgermönsk menning og ó- skráðar bókmenntir stóðu í mikl um blóma um þessar mundir, er meginlandið laust að mestu kristn um áhrifum. Á eylandinu öðluð- ust þessar geymdir ný heimkynni, þar sem þær hafa varðveitzt og vaxið óhindrað fram til þessa dags. Þjóðleg sönglist fslands á því að baki sér óslitna þróun, allt frá tímabili Edduljóðanna, gegn- um blómaskeið rímnakveðskap- arins og fram á 19. öld. í sinni upprunalegustu mynd er laglín- an forneskjuleg, blandin þrá- látum endurtekningum, líkast einskonar „lítaníu“. Við hátíðleg tækifæri voru hetjuljóðin sungin tvírödduð: fimmundin bættist við aðalröddina. „Hinn harði og kröft ugi kvinthljómur er mesta eftir- læti íslandinga. í fornsögum sín- um dá þeir hreina og sterka liti, og í söng sínum taka þeir þéttan, fullan hljóm fram yfir sætlega sönglínu", sagði fyrirlesarinn. Nokkur dæmi upptekin á segul- band staðfestu þessa umsögn. Fyrst á 19. öld koma með róman- tísku stefnunni tónkyn nútímans og þríundabygging til sögunnar. Jafnhliða þeim þrífst hinn forni listsmekkur áfram, setur mót sitt á margvíslega nýsköpun þjóðar- innar og forðast refilstigu list- páfakenninga og listrænna sér- trúarflokka.“ ERLANGER NACHRICHTEN (Þúsund ára arfleifð, er fyrir sögnin) lætur svo um mælt: „Sá einn, er hefir nána þekkingu á sögulegri og landfræðilegri sér- stöðu íslands, getur til fulls skil- ið hlutverk landsins", svo fórust dr. Hallgrími Helgasyni orð í upphafi erindis síns um ljóðlist og söngiðkun á íslandi um tíu alda skeið. Til kvölds þessa efndu kirkju- tónlistarstofnun og tónvísinda- stofnun háskólans ásamt rann- sóknarstofnun germanskra mál- vísinda. Þátttaka hinna fjölmörgu áheyrenda sýndi ljóslega, að þetta litla land við útjaðar Norðvestur- evrópu, sem er svo ríkt að menn- ingargeymdum og fornum „leynd ardómum", býr yfir sterku að- dráttarafli. Fyrirlesarinn benti á, að þýzk- ir málvísindamenn voru meðal þeirra fyrstu, er luku upp fjár- sjóðum íslenzkrar arfleifðar og undirstrikuðu gildi þeirra fyrir samgermanska menningu, t. d. Jaeob Grimm, sem Grimmsæfin- týrin eru kennd við. Af miklum lærdómi rakti dr. H. Helgason þró'un ljóðs og lags í hinum fræði- lega hluta erindis síns. Á sérstæð- an hátt og nær án framandi áhrifa hefir á íslandi haldizt ó- breytt tunga sú, fornvesturnor- ræn, er víkingarnir fluttu með sér til landsins á landnámsöld, 874—930. Hér liggur rótin að miklum auð fornra ljóða og tóna. „ísland er sú ljóssins lind, sem mesta birtu hefir breitt yfir gjör- valla Germaníu“, segir Friedrich Stroh, ordinaríus fyrir málvísindi við háskólann í Erlangen. Sérstaka eftirtekt meðal áheyr enda vöktu dæmi, sem fyrirles- arinn með hljómplötu, segulbandi og eigin rödd fléttaði inn í er- indi sitt. Hið kraftmikla, forn- lega tóneðli þessarar þjóðlistar heillar hvern og einn, sem í fyrsta sinni heyrir hana, t. d. ævafornu Eddu-lög, dansa, rímnalög og nýrri þjóðlög, sem dr. H. Helga- son sjálfur hefir skráð í afskekkt- um landshlutum. Mikinn fögnuð vöktu nokkrir gamlir tvísöngvar, er fyrirlesar- inn ásamt tónlistarstjóra háskól- i ans, próf. Georg Kempff, höfðu sungið á segulband. Hér andaði harka víkingaaldarinnar og jarð- föst gleði hins tærasta, sjálfstæð- asta samhljóms.“ j ERLANGER V OLKSBLATT (undir fyrirsögninni: ísland án erlendra orða) segir svo frá: „Dr. Hallgrímur Helgason frá Reykja- vík skýrði síðasta miðvikudag frá þróun alþýðlegs skáldskapar og söngmenntar á íslandi. í víð- faðma yfirsýn kynnti hann gest- ! um í tvo tíma samfleytt hinn sér- kennilega og mörgum Vestur- evrópubúum alveg óþekkta heim gamallar norðgerðmanskrar menningar. Dr. H. Helgason fór fyrst nokkr um orðum um sögu landsins og lýsti út frá henni þjóðarskáld- skap og sönghefð: Víkingar voru fyrstu landnámsmenn á leið sinni í vestur, er þeir nokkru síðar fundu Grænland og Vínland. Þúsundir frelsisleitandi Norð- manna fluttu milli 874 og 930 til íslands, til þess að losna undan oki hins norska stórkonungs Har- alds hárfagra. Landnámsmenn- irnir héldu tryggð við fornar venjur og trú, iðkuðu ljóð um hetjur og goð í hinum nýju heim- kynnum. Þannig varðveittist frá einni kynslóð til annarrar forn- norræn menning ómenguð meðal íslendinga, ljóðlist og sagnalist, sem enginn annar germanskur þjóðstofn frá þessum tímum hefir fram að bera. Málverndartilfinningin er enn svo rík í fari íslendingsins, að hann forðast eftir fremsta megni að taka útlend orð upp í mál sitt. Þannig eru nútíma hugtök eins og „telefon“ og „radio-speaker“ táknuð með gömlum orðum úr Eddu: sími og þulur. Dr. H. Helgason greindi ítar- lega frá innihaldi og gildi Eddu kvæðanna, sem gefa svo óvenju góða hugmynd um trú og heims- skoðun hinna fornu íslendinga. Frásagnir af guðunum, kappaljóð og almenn lífsspeki er aðalefni þeirra, flutt með einskonar „meðalrödd“, vox media, sem liggur milli venjulegrar talradd- ar og söngraddar. Nokkur lög við þessi kvæði hafa geymzt. Bein mótsetning við braghætti Eddu eru skáldakvæðin (820— 1220). Hér skiptir mestu list í leik orða: vandkveðið form, mál- skraut og torrætt mál er yndi fornskáldanna. Þau fjarlægjast málfar alþýðuifnar. Hálfsöngur Eddu-kvæðanna verður hjá skáld un.um æ meir að hreinum flutn- ingi talkvæðis. Ró og staðfesta í stíl einkenn- ir fornsögurnar, þessa gömlu ís- lenzku frásagnarlist, sem er einn hinn veigamesti skerfur landsins til germanskrar menningar. Á sannfærilegri undirstöðu bárust Framh. á bla. 12 Ásta Kr. Árnadóttir Norman D. 4. febr. 1955 ASTA MÁLARI, en svo var hún jafnan kölluð hér, var fædd 3. júlí 1883 í Narfakoti í Gullbringusýslu. Foreldrar henn- ar voru Árni Gíslason bóndi og barnakennari og kona hans Sig- ríður Magnúsdóttir. Ásta var næstelst af 10 systkinum, og þeg- ar hún var 17 ára andaðist faðir hennar, en þá var hún farin að heiman til að vinna fyrir sér í vistum og við saumaskap, en það var svo til sú eina atvinna, er konur áttu þá kost á. Ekki mun þó Ástu hafa fund- izt að sú leið lægi til fjár eða frama, því að í marzmán. 1904 eða liðlega tvítug gerðist hún málaranemi hjá Jóni Reykdal, en eftir tæpt ár fer hún til N. S. Bertelsen málara og vann hjá honum fyrir allgóðu kaupi, eftir því sem þá gerðist og gat nú hjálpað móður sinni og yngri systkinum. Hún hafði fljótt sterka löngun til að fara utan til að fullnuma sig í iðn sinni, en féleysi haml- aði því. En haustið 1906 bauðst henni ókeypis far til Kaupmannahafnar gegn því að annast veikt barn á leiðinni. Þurfti hún þá ekki lengi að hugsa sig um að taka þessu boði. Ekki átti hún neitt víst þegar til hafnar kæmi, og ekki kunni hún dönsku, nema það sem hún hafði heyrt til meistara síns, en sjálf hafði hún alltaf talað íslenzku við hann. Samt lánaðist henni að fá ódýran verustað og komast á málara og teikniskóla, tók sveins- próf um vorið og hlaut verðlaun, broncemedaliu, eina af 15, sem veittar voru, en 64 tóku prófið. Var Ásta fyrsta konan, er lauk málaraprófi í Danmörku. Þá fékk hún einnig loforð um að komast á teikniskóla um haustið, en í þann skóla hafði aldrei áður konu verið veittur inngangur. Hún fékk undir eins atvinnu, m. a. við að mála far- Minningarorð Á Grundarstig 2 er nýkomið í miklu úrvali: Kjólaefni, kápuefni, — greiðslusloppaefni, glugga- tjaldaefni þykk og þunn..— Áklæði, rúmteppi, kr. 207,00 dívanteppi, veggteppi kr. 36 til 70,40. Blúndur, milli- verk. Herra-, kven- og barna nærföt. Herraskyrtur kr. 78,15. ísaumaðar kvenblúss- ur kr. 41,00. Blúndudúkar, hvítir og mislitir kaffidúk- ar frá kr. 27,60. Kven- hanzkar kr. 22,75. Púðaver kr. 16,00. Kvensokkar frá kr. 9 parið. Flauel kr. 33,15 m. — Auk þessa fást marg- ar vörur enn undir hálf- virði, miðað við eldra verð. Verzlun Óla fs Jóhannessonar Grundarstíg 2. Sími 4974. Hjólbarðar nýkomnir: — 500x16 525x16 550x16 650x16 700x16 670x15 700x15 760x15 700x20 . 750x20 825x20 900x20 Garðar Gíslason M. Sími 1506. þegarúm skipsins „Kong Helge“ og þegar það skip fór til íslands fékk hún að fljóta með. Heima vann hún svo allt sumarið og gat. nú borgað skuldirnar frá vetrin- um áður. Um haustið hélt hún til Hafnar aftur á skólann, og fékk dálitla upphæð af styrlc iðnaðarmanna, svo að hún gat með sparsemi komizt af yfir vet- urinn. Vorið 1908 var lítið um at- vinnu í Danmörku, og vinir Ástu ráðlögðu henni að fara nú heim, en hún vildi læra meira, og enn lagði hún upp með tvær hendur tómar og nú til Hamborgar. Þýzku kunni hún ekki, en komst þó að vinnu með full- komnu kaupi. f Þýzkalandi tók hún meistarapróf í iðn sinni og var hún fyrsta konan þar í landi, og sennilega í öllum heiminum, sem það gerði. Var mikið skrifað í þýzk blöð um þessa tápmiklu íslenzku stúlku og birtar myndir af henni. Þessi blaðaskrif áttu eftir að hafa örlagarík áhrif á ævi hennar síðar. Árið 1910 kom Ásta svo heim og tók til óspilltra málanna við iðn sína. Hún hafði alltaf nóg að gera, því að menn fundu að það var óhætt að treysta henni og nemendur sóttust eftir að komast til hennar. Meðal þeirra var Katrín Fjeldsted, sem enn í dag er eini kvenmálarameistarinn á Islandi, þær máluðu m. a. nýja skólahúsið á Hólum. Stundum var ekki laust við að hrópað væri til þeirra neðan af götunni, þeg- ar þær voru að mála húsþök í Reykjavík, en allt var það græzkulaust. Einn vel þekktur borgari hér í Reykjavík sagði við Ástu þegar hann mætti henni á götu: „Og þú málar og málar, og ert þó kvenmaður11. Kannski hef- ur einhverjum þótt nóg um, þeg- ar henni var falið að mála Al- þingishúsið. Árið 1913 gekk Ásta í Kven- réttindafélag íslands og það sýnir hvaða traust konur báru til henn- ar að á þeim fundi ritar hún fundargerð og á næsta fundi er hún kosin ritari félagsins fyrir það ár. Ég kynntist frú Ástu dálítið meðan hún dvaldi hér heima 4 nokkra mánuði ásamt seinni manni sínum árið 1953. Þá sagði hún mér m. a. hvernig það at- vikaðist að hún fór til Ameríku. Eins og áður er getið var skrifað um hana í þýzk blöð þeg- ar hún tók meistaraprófið. Með- al þeirra, sem lásu þetta var ungur Svisslendingur, Jakob Thöni áð nafni. Hann hafði á- huga á íslenzkum fræðum og hugsar að nú geti hann komizt í samband við ísland með því að skrifa þessari ungu stúlku, og upp frá því skrifuðust þau á. Oft hafði hann ráðgert að koma til að hitta hana en ekkert varð af því. Svo flytst hann til Was- hingtonfylkis í Bandaríkjunum og því var útséð um að hann kæmi til íslands. Nú skrifar hann áð hún verði að koma til að hitta sig. Útþráin er enn rík hjá Ástu og fyrrihluta vetrar 1920 fór hún til Ameríku en ætlaði sér þá ekki að ílendast þar. Um miðjan desember hittust þau og giftu sig á gamlársdag. „Og svo var ég í Paradís í þrjú ár,“ sagði hún og brosti angur- vært. Þegar maður hennar and- aðist snögglega eftir þriggja ára hjónaband höfðu þau eignazt eina dóttur og hjá þeim var líka sonur hennar. Þá kom sér vel að geta tekið upp aftur sína fyrri atvinnu. Tveimur árum siðar gekk hún að eiga seinni mann sinn, Jóhann Norman, ættaðan úr Skagafirði. Hann var þá ekkjumaður og átti sjö börn af fyrra hjónabandi. Þau eignuðust tvö börn, svo að alls urðu börn- in ellefu. Þá kom sér líka stund- um vel að húsmóðurin gat brugð- ið fyrir sig penslinum. 1934 brakk hús þeirra hjóna og allir innanstokksmunir, en með aðstoð barna sinna og tengdabarna byggðu þau strax upp aftur. Fyrsta veturinn vannst ekki tími til að klæða húsið að innan en Ásta strengdi þá striga á veggina og málaði myndir á hann. Tókst það svo vel að þau hálfsáu eftir að verða að taka það niður aftur. | Lengi hafði hana langað til að fást við listmálun, en það var ekki fyr en hún var komin á sjötugsaldur og börnin farin að sjá fyrir sér sjálf, að hún gat leyft sér að ganga á listaskóla, og fór nú að mála landslags- myndir. Seinustu árin lagði hún aðallega stund á að mála and- litsmyndir og fékk mikið hrós fyrir þetta hvorutveggja. Nær þrjátíu ár lifði hún í ástríku og hamingjusömu hjónabandi með seinni manni sínum í Pont Ro- berts í yndisfögru landslagi á strönd Kyrrahafsins, en þó átti ísland alltaf hug hennar og hjarta. Þegar hún var hér heima seinast, sagði hún stundum: „Ég hef séð margar fallegar borgir, en Reykjavík er yndislegust af þeim öllum.“ Hún hafði mælt svo fyrir að aska hennar fengi að hvíla í íslenzkri mold,. og nú er hún komin heim. Héðan að heiman eru sendar innilegustu samúðarkveðjur til | harmþrungins eiginmanns og annara ástvina. Ásta Árnadóttir var hamingju- söm kona. Æfi hennar er lýsandi fordæmi um það hvernig sigrast ! verður á efnahagsörðugleikum þegar táp og dugnaður er fyrir hendi. Blessuð sé minning henn- r. — Sigríður Jónsd. Magnússon. IMýjar dragtir Garðastræti 2. Sími 4578. Hengilásar Smekklásar Skúffuskrár Skápsskrár Smekkláslyklar QeaZiMMent afvuitla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.