Morgunblaðið - 30.03.1955, Page 1
16 síður
42. árgangur
74. tbl. — Miðvikudagur 30 marz 1955
Prentsmiðja Morgunblaðsins
FrambúðarSausn húsnæðisvandamálanna í frv. ríkissfjórnarinnar
Sfofnað verði allsherjar veðlánakerfi sem tryggi
heilhrlgða lánastarfsemi til íbúðarhúsabygginga
Vciti 100 þús. kr. kámarkslán á ibiið
3 milljdn krónn frnmlog ríkis
órlegn til útrýmingnr heilsu-
spillnndi húsnæði
Borgarastyrjöld í Vietnam
— barizt á götum Saigon
Hermenn sértrúarflokkanna gera áras
á höll forsœtisráðherrans og aðal-
lögreglustöð borgarinncr
Saigon, 29. marz. — Einkaskeyti frá Reuter.
SKÖMMU fyrir miðnætti í gær tóku herflokkar sértrúarflokk-
anna í Suður-Vietnam að varpa sprengjum í nágrenni hallar
Ngo Dinh Diem, forsætisráðherra, í höfuðborginni Saigon. Tals-
maður hermálaráðuneytisins upplýsti, að engar sprengjur hefðu
lent á sjálfri höllinni. Samtímis hófust bardagar á götum bæjarins
og beittu hermennirnir einkum véibyssum.
• 9 ÞÚS GEGN 12 ÞÚS.
Vegfarendur flýðu, sem fætur
toguðu og leituðu hælis hvar,
sem það var að finna. Skothríðin
hófst, er æsingar þær, sem leitt
hafa af deilunum milli forsætis-
ráðherrans og sértrúarflokkanna,
höfðu náð hámarki.
Sértrúarflokkarnir, sem hafa 9
þús. manns undir vopnum, höfðu
þegar umkringt Saigon, er telur
1,5 millj. ;búa. Forsætisráðherr-
ann hefur dregið saman 12 þús.
manna lið í borginni.
• KÍNVERSKA HVERFIÐ
VARÐ VERST ÚTI
Skothríðin á götum bæjarins
stóð í hálfa klukkustund og var
mjög hörð, einkum í kínverska
bæjarhlutanum, þar sem hand-
sprengjur sprungu og vélbyssur
og sperngjukastarar spúðu eldi.
íbúar hverfisins tóku að flýja inn
í hverfi E /rópumanna í Saigon.
Mörg hús hafa algjörlega eyði
lagzt í skothríðinni og fjöldi
mann særzi og beðið bana. Herir
sértrúarflokkanna hófu árás á
aðallögreglustöð boorgarinnar, en
hermenn forsætisráðherrans voru
þegar sendir til liðs við lögreglu-
mennina.
Hinn kaþólski forsætisráðherra
hefir þegar lýst yfir því, að hann
vilji láta hcri stjórnarinnar hefj-
ast þegar handa um að rjúfa um-
sátur sértrúarflokkanna um borg
ina. En honum hefur reynzt mjög
erfitt að viðhalda einingu innan
stjórnar sinnar. 8 ráðherrar úr
flokki sértrúarmanna hafa þeg-
ar sent inn lausnarbeiðni sína,
en forsætisráðherrann hefir neit-
að að verða við beiðni þeirra.
• BAO DAI HEFUR HUG
HUG A AD SNÚA HEIM
Forráðamenn sértrúarflokk-
anna, Cao Dai, Cao Hao og Dinh
Xuyen koaiu saman til fundar
í dag og sendu Bao Dai, keisara
Suður-Vietnam, skeyti og kveð-
ast reiðubúnir til að taka á sig
ábyrgðina af því að mynda
stjóru.
Biðja þeir Bao Dai, sem dvelur
á Riviera-ströndinni í Frakk-
landi, að veita þeim stuðning
við að mynda lýðræðislega stjórn
á nýjum grundvelli. Líklegt þyk
ir, að Bao Dai muni leita ráða
Frakka og Bandaríkjamanna, áð
ur en hann tekur nokkra ákvörð-
un. Vjnir hans í Saigon segja,
að hann hafi haft í huga í margar
vikur að snúa aftur heim til Sai-
gon.
LONDON 29. marz. — Winston
Churchill forsætisráðherra lýsti
yfir því 1 neðri deild brezka
þingsins í dag, að hann teldi
heppilegra að æðstu menn stór-
veldanna ættu með sér fund frem
ur en að stofnað yrði til full-
trúaafundar lægra settra embætt
ismanna ríkjanna.
Raab fer
til Moskvu
VÍNARBORG, 29. marz. — For-
sætisráðherra Austurríkis, Júlíus
Raab fer 11. apríl til Moskvu tii
að ganga þar endanlega frá frið-
arsamningum við Ráðstjórnina.
Ákveðið var á fundi austurrísku
stjórnarinnar í dag, að Raab
skyldi þiggja boð Molotovs, utan-
ríkisráðherra Rússa, um að koma
til Moskvu svo skjótt sem auðið
væri til að ræða friðarsamning-
ana.
Þrír ráðherrar úr samsteypu-
stjórn Raabs munu fylgja for-
sætisráðherranum til Moskvu. —
Varaforsætisráðherrann, Adolf
Schaerf úr jafnaðarmannaflokkn
um, utanríkisráðherrann Leopold
Figl úr kaþólska flokknum og
vara utanríkisráðherrann, Kreis-
ky úr jafnaðarmannaflokknum.
Báðir flokkarnir í samsteypu-
stjórninni hvöttu Raab. til að
þekkjast boð Molotovs.
Or. juris. Einar Arnúrsson látinn
FHNAR ARNÓRSSON fyrrverandi ráðherra, hæstaréttardómari
i og prófessor, varð bráðkvaddur um hádegið í gær, rúmlega
75 ára að aldri. Hafði hann gengið að störfum sínum undanfarna
daga og m. a. sinnt málflutningsstörfum í Hæstarétti. Með Einari
Arnórssyni er til moldar genginn einn merkasti lögfræðingur og
fræðimaður þessa lands.
ÆVIATRIÐI
Einar Arnórsson var fæddur
24. febrúar árið 1880 á Minna-
Mosfelli í Grímsnesi. Hann varð
stúdent árið 1901 og hóf þá nám
í norrænni málfræði. Hvarf hann
frá því skömmu síðar og hóf lög-
fræðinám. Lauk hann kandidats-
prófi við Kaupmannahafnarhá-
Einar Arnórsson.
skóla árið 1906. Árið 1908 gerðist
hann síðan kennari við Laga-
skólann í Reykjavík. Þegar Há-
skóli íslands var stofnaður árið
1911 varð hann prófessor í lög-
um. Hann var tvívegis rektor
Háskólans, árin 1917—1918 og
1929—1930. Hæstaréttardómari
var hann frá 1932—1945.
TÓK MIKINN ÞÁTT í
STJÓRNMÁLUM
Dr. Einar Arnórsson tók mik-
inn þátt í stjórnmálabaráttu
þjóðar sinnar. Hann var ráðherra
íslands árin 1915—1917 og aftur
árin 1942—1944 í ráðuneyti dr.
Björns Þórðarsonar. Þingmaður
Árnesinga var hann árin 1914—
1919 og Reykvíkinga frá 1931
—1932. Hann átti sæti í sam-
bandslaganefndinni 1918 og enn-
fremur í dansk-íslenzku ráðgjafa-
nefndinni. Átti hann sæti í henni
til ársins 1934.
Einn veigamesti þátturinn í
lífsstarfi Einars Arnórssonar voru
ritstörf hans. Hann var um skeið
stjórnmálaritstjóri Morgunblaðs-
ins. Ennfremur var hann um ára-
bil ritstjóri Skírnis. Mikill fjöldi
fræðirita um lögfræði liggur eft-
ir hann. Um ættfræði og önnur
þjóðleg efni hefur hann einnig
skrifað fjölda rita og ritgerða.
Mun ekki ofmælt að hann hafi
verið einn afkastamesti fræði-
maður Islendinga.
Einar Arnórsson var kjörinn
dr. juris. honoris causa við Há-
skóla íslands árið 1936.
FRUMVARP ríkisstjórnarinnar um húsnæðismálin
var lagt fram á Alþingi í gær. En eins og kunnugt
er, hefur það verið samið á grundvelli málaefnasamn-
ings núverandi stjórnarflokka, en í honum sagði m. a.
á þessa leið:
„Tryggt verði aukið fjármagn til íbúðabygginga í
kaupstöðum, kauptúnum og þorpum, lögð áherzla á
það að greiða fyrir byggingu íbúðarhúsa, sem nú eru
í smíðum og lagður grundvöllur að því að leysa þetta
vandamál til frambúðar.“
Til þess að ná þessum tilgangi eru þetta megin-
atriði frumvarpsins sem hér segir:
1) Setja skal á stofn húsnæðismálastjórn. Verkefni
hennar er að beita sér fyrir umbótiun í byggingarmál-
um og hafa yfirumsjón með lánsfjáröflun og lánveit-
ingum til íbúðarbygginga í landinu.
2) Komið skal á fót almennu veðlánakerfi til íbúða-
bygginga undir yfirstjóm húsnæðismálastjórnar og
veðdeildar Landsbankans.
3) Gert er ráð fyrir að útlán til íbúðabygginga á
árunum 1955 og 1956 geti orðið samtals um 100 mill-
jónir króna. í því er það m. a. innifalið að vissuin
hluta sparifjár í bönkunum verði veitt til íbúðalána.
4) Veðdeild Landsbanka íslands skal vera heimilt
að gefa út bankavaxtabréf, samtals allt að 200 millj.
kr. Þar af má gefa út vísitölutryggð bankavaxtabréf
fyrir allt að 40 millj. kr. Bankinn tryggi sölu banka-
vaxtabréfa að upphæð 44 millj. kr.
5) Veðdeildin hefur heimild til að taka erlend lán
til íbúðabygginga.
6) Hámarkslán á íbúð sé 100 þús. kr. Almennar út-
lánsreglur veðlánakerfisins skulu vera þær að 50 þús.
kr. séu að jafnaði Iánaðar út á 1. veðrétt og 20 þús.
kr. út á 2. veðrétt. Þau veitast aðéins til byggingar
íbúða. Er heimilt að þau komi til uíí)cr^uíiur í hlut-
falli við það hversu langt er komið byggingu hús-
næðis.
7) Húsnæðismálastjórn skal af hálfu ríkisvaldsins
vera aðili að ráðstöfunum til útrým ngar heilsuspill-
andi íbúðum. Ríkissjóður skal leggja fram allt að
3 millj. kr. á ári til útrýmingar heilsuspillandi hús-
næði móti jafnháu framlagi frá viðkomandi bæjar-
og sveitarfélögum.
FYRRI BRAÐABIRGÐA
ÚRBÆTUR
Á undanförnum árum hefur
lánsfjárskorturinn til íbúðabygg-
I inga og skipulagsleysi þeirra
j mála verið stöðugt vandamál. Við
og við hafa verið gerðar ákvarð-
I anir þings og stjórnar um úrbæt-
, ur í bili með sérstökum framlög-
um, þegar svo hefur staðið á.
Má í því sambandi minna á
framlög af gengishagnaði til
íbúðalána, þegar gengisbreyting-
in varð árið 1950. Ennfremur
framlög af rekstrarafgangi rík-
isins 1951 í sama skyni. Einnig
hafa núverandi og fyrrverandi
ríkisstjórn stofnað Lánadeild
smáíbúða og aflað henni fjár að
upphæð kr. 40.000.000.00, sem
þegar er útlánað.
Þá ákvað ríkisstjórnin að láta
athuga sem vandlegast með hverj
i um hætti yrði tryggt nægilegt
fjármagn til íbúðabygginga og á
hvaða grundvelli mögulegt væri
að leysa húsnæðisvandamálið til
frambúðar.
HUSNÆÐISNEFND SKIPUÐ
í þessu skyni skipaði ríkis-
stjórnin 5 manna nefnd hinn 25.
júní 1954. í nefndina voru þessir
menn skipaðir: Benjamín Ei-
ríksson bankastjóri, formaður
nefndarinnar, Björn Björnsson
hagfræðingur, Hannes Jónsson
félagsfræðingur, Hilmar Stefáns-
son bankastjóri og Jóhahn Haf-
stein bankastióri. Hinn 14 janúar
1955 var bætt í nefndina tveim
fulltrúum frá Landsbanka ís-
lands, þeim Gunnari Viðar banka
stjóra og Jóhannesi Nordal hag-
fræðingi.
Nefnd þessi viðaði að sér miklu
efni til rannsóknar um skipan
lánsfjármála og annað er varðar
húsnæðismál meðal annarra
þjóða. Skilaði nefndin bráða-
birgðaáliti til ríkisstjórnarinnar
10. okt. s.l. Síðan hefur hún skil-
að áliti, tillögum og uppkasti að
frumvarpi til laga og er uppi-
staða frumvarps þess er nú kem-
ur fram fengið frá nefndinni. —•
1 Framh. á bls. 2