Morgunblaðið - 30.03.1955, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.03.1955, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 30. marz 1955 Höfum ávallt ullar- oy bómullarteppi gólfmottur, gólfteppafilt og ennfremur hina við- urkenndu íslenzku dregla og gólfteppi frá VEFARINN H.F. Teppabúðin INGOLFSSTRÆTI 3. Brunatryggingar og barátta efiir Stefán Jóh. Stefánsson forstj. Brunabótafélags Islands Vandað hús 3 herbergi og eldhús er TIL SÖLU og brottflutnings. Lóð á góðum stað getur fylgt. — Skipti á nýjum eða nýlegum bíl möguleg. Tilboð sendist Mbl. fynr fimmtu- dagskvöld merkt: „Hagkvæm skipti“ Skrifstofuhúsnœði Til leigu 260 feim. fyrsta flokks skrifstofuhúsnæði við Miðbæinn. Leigist í einstökum herbergjum eða allt í einu. — Lysthafendur leggi nöfn inn á afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld, merkt: „Moderne — 837“. MýSenduvöruverzlun Til sölu er nýlenduvöruverzlun á góðum stað við Mið- bæinn. — Tilboð óskast, er tilgreini útborgun. Leggist inn á afgr. Mbl. fyrir 1. apríl, merkt: „Nýlenduvöru- verzlun — 834“. LAUS STAÐA Akraneskaupstaður óskar eftir að ráða byggingaverk- fræðing til að gegna starfi byggingafulltrúa og ýmsum öðrum störfum í þágu bæjarins. — Umsóknir, ásamt skilríkjum og upplýsingum um fyrri störf, sendist undir- rituðum fyrir 1. maí n. k. Staðan veitist frá 1. júní. Akranesi, 28. marz 1955. Bæjarst.ióri. Bókhald — Uppgjör i Vanur bókhaldari tekur að sér að sjá um bókhald, endurskoðun, uppgjör og framtöl fyrir stærri og smærri fyrirtæki. Vönduð vínna og ábyggileg. — Tilboð sendist blaðinu merkt: „Trúnaður — 835“. Hús til sölu ö Akranesi Húsið Efstibær á Akranesi, járnklætt timburhús á steyptum kjallara, er til sölu og laust til íbúðar 14. maí n. k. — Nánari uppl. veitir Valgarður Kristjánsson, lögfræðingur Akranesi, sími 398. H úsgagnasmiðir óskast. — Upplýsingar í síma 82260 ÍBIJÐ ÓSKAST Sölustjóri hjá góðu heildsölufyrirtæki óskar eftir 1 eða 2 herbergjum og eldhúsi nú þegar eða 14. maí. Þrennt í heimili. Tilboð sendist Mbl. fyrir laugardags- kvöid merkt: „Hagkvæmt“ —850. FRAMKVÆMDASTJORI Sam- vinnutrygginga, hr. Jón Ól- afsson, hefir ritað all langa grein í Tímann 19. þ. m., um bruna- tryggingar húsa utan Reykjavík- ur. Verður framkvæmdastjóran- um þar tíðrætt um Brunabóta- félag íslands og verður ekki hjá því komizt að minnast nokkuð á grein þessa. Hr. Jón Ólafsson kvartar und- an því í upphafi greinar sinnar, að hafðar hefðu verið uppi „dylgjur i garð Samvinnutrygg- inga.“ En svo undarlega ber þó við að þegar að umkvörtunum þessum sleppir, fer í grein fram- kvæmdastjórans að örla eigi all- lítið á dylgjum og ádeilum í garð Brunabótafélags Islands. En það er þó ekki ætlun mín né tilgang- ur með þessum línum að hefja ' deilur og árásir. Samvinnutrygg- ' ingar eru sennilega rösklega rek- ið fyrirtæki, sem sízt hefir sofið nokkrum þyrnirósa svefni, frek- ar gengið berserksgang. Og ekki vil ég heldur mótmæla því að þetta tryggingarfélag muni um það hugsa, að þjónusta þess við þjóðina geti orðið sem hagstæð- ust fyrir hana. En það er þó ekki þar með útilokað, að önnur félög, sem fást við vátryggingar, telji það einnig hlutverk sitt og vinni að því, eftir því sem kostur er i að veita viðskiptavinum og þjóð- arheildinni svo fullkomna þjón- ustu, sem aðstæður frekast leyfa. Og þá er ég kominn að því, sem grein framkvæmdastjóra Sam- vinnutrygginga gaf mér efni til, en það er að draga fram nokkr- ar staðreyndir um starfsemi Brunabótafélags íslands, sem eru talsvert á annan veg en hr. Jón Ólafsson vill vera láta í grein ' sinni. Frá upphafi hefir Brunabóta- félag íslands að því unnið a 3 auka og efla brunavarnir með það fyrir augum að auka öryggi og lækka trygg- ingariðgjöld, og a 3 safna hæfilegum varasjóði til þess að geta mætt skakka- föllum og þar með boðið sem bezt og hagkvæmust trygg- ingarkjör. Það er ekki ofmælt þó sagt sé að brunavarnir utan Reykjavíkur hafa verið stórlega bættar síð- ustu áratugina og raunar þá fyr- ir alvöru fyrst framkvæmdar og að verulegu leyti með atbeina og aðstoð B. í., í samvinnu við Brunavarnaeftirlit ríkisins. 1 þessu skyni hefir B. 1. varið hundruðum þúsunda á ári úr sjóðum sínum bæði til reksturs brunavarnaeftirlits og með út- vegun ódýrra og hentugra slökkvitækja og síðast en ekki sízt með mjög hagstæðum lán- um til bæja- og sveitafélaga. B. f. hefir og tekizt að safna sér hæfi- legum varasjóði, með hagkvæm- um og ódýrum rekstri undanfar- inna áratuga. Þetta allt hefir leitt til þess að byrjað var á því fyrir mörg- um árum síðan að veita 15—20% afslátt á tryggingariðgjöldum víðsvegar í kaupstöðum og kaup- túnum. Og þegar á árinu 1952 hóf B. í. sérsamninga við kaupstaði, er komið höfðu á tiltölulega traustum brunavörnum, að veru- legu leyti með fjárhagsaðstoð B. I. Með þessum sérsamningum lækkuðu brunabótaiðgjöld veru- lega, og komust þá þegar í sum- um áhættuflokkum niður í það, sem nú er lægst boðið. Þannig lækkuðu t. d. tryggingariðgjöld á Akureyri og í Hafnarfirði í fyrsta áhættuflokki niður í 0,60 af þús- undi, fyrir 2—3 árum síðan. En auk þess fengu þessi bæjarfélög 25% á ári af ágóða viðskiptanna. Þessum sérsamningum hefir síð- an verið haldið áfram og flestir kaupstaðir og þorp hafa gert samninga við B. í. með verulega lækkuðum iðgjöldum. Auk þess gaf B. í. 10% almennan afslátt iðgjalda, sem dreginn var frá þeim árgjöldum, er féllu í gjald- daga 15. okt. s. 1. Fyrir fjórum árum hreyfði ég þeirri hugmynd að breyta skipu- lagsháttum B. í. á þann veg, að bæja- og sýslufélög kysu hvert einn mann, er myndaði fulltrúa- ráð félagsins, en það veldi svo aftur sérstaka framkvæmda- stjórnstjórn, er væri í ráðum með forstjóra um rekstur félagsins. Með þessu móti áttu fulltrúar, víðsvegar af landinu, að móta höfuðstefnu félagsins með það fyrir augum að rekstur þess yrði sem hagkvæmastur fyrir þá, er við það skiptu með tryggingar sínar. Þessi skipulagsbreyting hefir nú verið ákvðrðuð með nýjum lögum frá Alþingi. Þegar það þótti sýnilegt á s'ið- asta hausti, að þessi skipulags- breyting yrði lögfest, taldi ég réttara að bíða með allsherjar- ákvörðun um iðgjöld þar til þetta nýja fulltrúaráð gæti komið sam- an, tekið almennar ákvarðanir og valið framkvæmdastjórn. Eins vildi ég ganga út frá því að ið gjöldin yrðu samræmd og ák\^jrð uð hin sömu á sambærilegum stöðum, og þá sérstaklega á höf- uðsvæðunum, kaupstöðum, kaup- túnum og sveitum. — En því ástæðulaus umhyggja og ótti hr. Jóns Ólafssonar um það, að sum- ir kaupstaðir þurfi að greiða miklu hærri iðgjöld „en nágrann- ar þeirra hafa samið um“. En þegar sýnt þótti að ekki væri unnt að bíða eftir áliti full- trúaráðs og framkvæmdastjórn B. I., um ákvörðun iðgjalda, ér falla í gjalddaga 15. okt. 1955, vegna áhuga Samvinnutrygginga um að ná nýjum viðskiptum, varð það að ráði að B. í. hefir boðið og þegar samið um iðgjöld frá 15. okt. n.k. Þykir rétt að birta hér eftir- farandi töflur um iðgjaldaboð B. í. og Samvinnutrygginga, og er hér stuðst við upplýsingar hr. Jóns Ólafssonar, hvað Samvinnu- tryggingar varða: ingar sömdu við, eins og kunn- ' ugt er af yfirlætislausri frétta- tilkynningu þeirra til blaða og útvarps. Og ég vil mega ganga út frá því að ólíklegt sé að þetta kauptún „uni því að láta binda sig á klafa í mörg ár með greiðslu miklu hærri iðgjalda en nágrann- ' ar þeirra hafa samið um“, svo ég noti hin hógværu og látlausu orð hr. Jóns Ólafssonar í grein hans. Og ég þykist þess fullviss að Samvinnutryggingar samræmi iðgjöld sín við síðari lækkuð til- boð. Þetta þarf því ekki að draga í efa, þar sem hr. Jón Ólafsson. hefir lýst yfir því svo fagurlega í grein sinni að „starfsemi Sam- . vinnutrygginga er þjónusta við I þjóðina". Ég hefi alltaf talið að hugsjón samvinnunnar væri göf- ; ug. Og í því sambandi vildi ég benda á að Brunabótafélag ís- | lands er og hefir verið samvinnu | samtök, rekin í samræmi við sér- lög þau, er um félagið gilda. Ég hefi mjög kosið það og tal- ið eðlilegt að losna við að standa í ritdeilum við önnur vátrygg- ingarfélög út af rekstri og starf- semi Brunabótafélags íslands. En í þetta sinn þóttist ég ekki geta | hjá því komizt að bera lítilshátt- ar hönd fyrir höfuð þess félags, sem mér hefir verið trúað fyrir ' að veita forstöðu. Ádeilur sið- ustu tíma á Brunabótafélag Ts- lands virðast að verulegu leyti koma úr einni og sömu átt. Ég vildi mega vænta þess að ég þurfi ekki framvegis að standa í blaða- deilum um þessi efni. Höfuðat- riði í starfrækslu tryggingarfé- laganna, eins og annarra fyrir- tækja, er heilbrigður rekstur og prúðmannleg samskipti, bæði varðandi viðskiptavini og önnur tryggingafélög. Ég er með því móti alls ekki að kvarta undan samkeppni sé henni beitt í sam- ræmi við drengilegar leikreglur. Og mér hefir satt að segja fund- izt, og vildi að svo mætti verða, að Brunabótafélag íslands hefði heilbrigt samstarf við Samvinnu- IÐGJÖLÐ AF SKYLDUTRYGGÐUM FASTEIGNUM í KAUPSTÖÐUM Brunabótafélag íslands 1. flokkur 0.65%. 2. — 1.00%„ 3. — 1.80%o 4. — 2.50%. Samvinnutryggingar 0,64%. 1.04%. 1.88%. 1.80%. IÐGJOLD AF SKYLDUTRYGGÐUM FASTEIGNUM í SVEITUM Brunabótafélag tslands 1. flokkur 0.80%. 2. — 1.25%, 3. — 1.90%. 4. — 1.90%. Þessi iðgjöld verða síðan sam- ræmd um land allt hjá B. í. frá 15. okt. n.k. Mér skilst á hr. Jóni Ólafssyni að hann þakki þessa iðgjalda- lækkun tilkomu Samvinnutrygg- inga inn á þetta vátryggingasvið. Ég get að sjálfsögðu ekki sagt um það með vissu, hvað full- trúaráð og framkvæmdastjórn hefði ákveðið um iðgjöldin nú í vor eða sumar, þó Samvinnu- tryggingar hefðu ekki komið sér- staklega til skjalanna. En ég hefi þó ástæðu til að ætla að ég hefði lagt tillögu fyrir fulltrúaráð og framkvæmdastjórn B. I„ um svipuð iðgjöld eins og nú eru boðin, þó Samvinnutryggingar hefðu ekki verið að verki, og ólíklegt þykir mér að fulltrúa- ráð og framkvæmdastjórn hefði viljað hafa þau hærri. Ég vil einnig benda á það, með mestu hógværð, að Samvinnu- tryggingar hafa samið um hærri iðgjöld við Hvammshrepp (Vík- urkauptún), en það var fyrsti hreppurinn, sem Samvinnutrygg- Samvinnutryggingar 0.80%. 1.30%. 1.90%. 1,90%. tryggingar, eins og önnur trygg- ingarfélög. Stefán Jóh. Stefánsson. Miklar skipakomur til Siglufjarðar SIGLUFIRÐI, 28. marz: — Ó- venjulega miklar skipakomur hafa verið hér um þessa helgi. Á laugardaginn losaði Brúarfoss hér girði til Tunnuverksmiðju ríkisins og Hvassafell kol til Kaupfélagsins. f dag er Katla að losa hér hjallatimbur til Ríkis- verksmiðjunnar. M.s. Troja er hér að lesta fiski- mjöl til útflutnings, Drangur er hér að losa saltfarm til Bæjarút- gerðarinnar, B.v. Hafliði er að losa 130 lestir af ísfiski og 40 lestir af saltfiski og m.s. Sigurð- ur 40 lestir af ísfiski. Allur ís- fiskurinn fer til frystihúss SR og til herzlu. — Guðjón.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.