Morgunblaðið - 30.03.1955, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 30.03.1955, Blaðsíða 14
14 Miðvikudagur 30. marz 1955 MORGV N BLAÐIÐ DULARFULLA HÚSIÐ EFTIR J. B. PRIESTLEY Framhaldssagan 2 Það var erfitt að láta van- þóknun sína í ljós vegna hávað- ans og myrkursins, en Margaret gerði það, sem hún gat. „Ég mundi sannarlega vera undr- andi“, sagði hún aftur fyrir sig. „Flýttu þér nú áfram, Philip. Opnaðu framrúðuna. Við getum varla orðið blautari en við er- um, og mig langar til að vita, hvort hér eru engin vegaskilti eða bevgjur". „Þú veizt að mér er sama“, kallaði Penderel. „Ekki vil ég fara til Shrewbury. Mig langar eiginlega ekkert. Eithvað gæti skeð hérna, en það skeður ekk- ert í Shrewbury, en hér eru allt- af möguleikar fyrir því, að eitt- hvað geti komið fyrir“. Þegar Philip ók aftur af stað, óskaði hann sér, að hann væri kominn hundrað mílur fram hjá Shrewbury, á aðalgötuna og í áttina til húsaskjóls og öryggis. Vegurinn, sem þau óku nú eft- ir, var heldur betri en slóðin, sem þau höfðu ekið áðan. Hvergi var Ijósglætu að sjá, ekkert nema hellirigningin og skoppandi stein arnir í ljósinu frá bifreiðinni. — Hann hallaði sér varfærnislega áfram, strauk regndropana fram- an úr sér og greip eins fast um stýrið og hann gat. Þessi járn- hringur virtist vera eina öryggið núna, þar sem allt var svart og liallandi og óhugnanlegt og jafn- vel núna hristist það í höndunum á honum. Aðeins heimskuleg mis- tök og þá mundu þau vera stöðv- uð í kvöld eða kannske fyrir fullt og allt. Fyrr um kvöldið hafði honum fundizt það æsandi að þjóta gegnum þetta grimmdar- æði veðurs <5g vinda, en nú var hann þreyttur og kvíðafullur. — Auðvitað hafði Penderel ýkt áð- an, kannske til að hræða Mar- garet. Nei. hann mundi ekki gera það, jafnvel þótt hann vissi, að henni geðjaðist ekki að honum ög hefði verið á móti því, að hún færi á móti þeim frá Ainsley- hjónunum. En það voru skriður eftir miklar rigningar í þessum hluta landsins og það gæti líka orðið flóð. Philip sá þau í anda vera föst í þessum fjallahlíðum í nótt! Og það á hvílíku kvöldi! Það fór hrollur um hann og hann steig ósjálfrátt fastar á benzínið. j Bifreiðin þaut áfram og þótt hann tæki fótinn af benzíninu þegar í stað, minnkaði ferðin ekki, vegna þess að það var allt í einu halli á veginum, og fram- undan skagaði klettur út, og þar var blint horii. Philip hafði að- eins tíma til að stíga á hemlana, þegar hann sá klettinn nálgast. Hann sneri stýrinu í ákafa; í nokkrar sekúndur hall- aðist bifreiðin og á næsta augna- bliki voru þau komin fyrir horn- ið, en fóru þá á hraðri ferð út í ftjót eitt mikið. Vegurinn var horfinn, ekkert var framundan iiema vatnið. Og þangað fóru þau með hávaða og skvettum. Philip greip fastar um stýrið, hann fann, að Margaret greip í vinstri hand- | legg hans og hann heyrði Pend- erel hrópa upp í aftursætinu. — Bifreiðin steyptist fram og hrisst- ist ákaft, hallaðist aftur fram á við og stanzaði. i „Stanzaðu ekki!“ hrópaði Mar- garet í eyra hans. „Ég get ekkert að því gert!“ lirópaði hann. Hvílík heimskuleg athugasemd! Hélt hún, að þau væru í vélbát! En eitthvað varð hann að gera. Vélin var enn í gangi og hrisstist undan fótum lians. Hann skipti í flýti niður í fyrsta gír og steig á benzínið. Ákafur hávaði heyrðist og bif- reiðin virtist hrisstast eins og hundur, og í nokkrar mínútur gerðist ekkert. „Hérna verðum við í nótt, hérna verðum við í nótt“, heyrði Philip sig segja kjánalega. En þá hreyfðist bif- reiðin allt í einu og með erfiðis- munum og nú lagði hún á bratt- ann aftur; hið versta var yfir- stigið og í ljósinu framundan mátti sjá fasta grund. Litla undra véiin hafði unnið. Philip áttaði sig, að minnsta kosti hafði það gengið hingað til, fyrsta beygjan var farin. En hvað kom næst? Enn óku þau upp í móti og nú virtist fjallshlíðin til hægri ekki eins brött og klettótt, en á vinstri hönd var hún enn bratt- ari. Hann gat ekekrt greint nema rigninguna. Margaret var að segja eitthvað og virtist vera að þreifa á vös- unum í hurðunum. Hvað vildi hún fá? Hann gat greint orðið „stanzaðu“ og hann stöðvaði bif- reiðina strax. „Hvað viltu?“ spurði hann. „Ég er að leita að landabréf- inu“, svaraði hún. „Við verðum að komast að, hvar við erum stödd. Við getum ekki haldið svona áfram“. „Góða ferð, Waverton!“ hróp- aði Penderel. „Fáðu þér sígar- ettu“. Þegar Philip sneri sér við, fann hann sígarettupakka rétt við nefið á honum og hann kveikti sér í einni með Penderel. Þá heyrðist allt í einu smellur og bifreiðin var öll uppljómuð. Nátt- myrkrið var horfið, vindurinn, regnið og myrkrið hafði vikið fyrir ljósinu; Margaret hafði fundið vasaljós og hafði sett það í samband. Hún hafði einnig fundið landabréfið og laut nú yfir það með vasaljósið í hend- inni. En regnið hafði eyðilagt pappírinn. Skyndileg þægindatil- j finning hafði gripið Philip, er j hann horfði á hana snúa bréfinu I við og stara á það stórum, grá- j um augum Því næst sá hann hana hrista höfuðið, og hann hugsaði, að hún væri alveg eins og barn. Hann langaði til að segja henni það og þrýsti henni svolítið að sér og reyna síðan að komast í eitthvert skjól og segja henni það, sem honum bjó í brjósti. Hvernig leið henni? Það var ein- kennilegt, að hann skyldi ekki vita það! I „Skoðaðu þetta“, sagði hún og rétti honum landabréfið. „Ég get ekkert séð“. j Hann rýndi í bréfið til að þóknast henni. Vegir* ár og akr- ar, voru ekkert nema bleyta. — „Mér finnst þetta lýsa landslag- inu hérna, því að allt er undir vatni. Þetta er ónothæft, og þar að auki get ég ekki gert mér grein fyrir hvar ég fór frá beygj- unni“. Hann fylgdi veginum með fingrinum, en hann komst aðeins að vatnsbletti. Ef þau hefðu farið þessa leið, mundi allt vera öðru vísi. Kannske voru þau þar. „Ég gefst upp“, sagði hann við hana. Því næst sneri hann sér að Pend- erel. „Vilt þú líta á landabréfið, Penderel? Við getum ekkert séð á því“. Penderel glotti og hristi höfuð- ið. „Ekkert landabréf fyrir mig. Ég held, að við séum ekki á landabréfinu. Aktu áfram og við munum hafna einhvers staðar. En bara það verði ekki í einhverju stöðuvatninu. Við erum nú einu sinni landkrabbar“. Margaret lét í ljós óþolinmæði sína. „Það er hlægilegt að reyna núna að komast á einhvern ákveðinn stað. Við verðum að stanza í fyrsta þorpinu og biðja um húsaskjól. Hvað er þetta?“ Þrumugnýr heyrðist, svo að und- ir tók í fjöllunum. Philip opnaði Jóhann handfasti ENSK SAGA 129 Eftir þessi orð, sem töluð voru með tign og hæversku, gat ég ekki stillt mig lengur. Ég spratt á fætur og hrópaði: „Guð veit að hann segir satt. Ég hefi barizt við hlið hans í síðustu fjögur ár og ég get sagt ykkur það, að hugrekki hans er svo mikið og svo mikill er trúarhiti hans og hollusta við Gröfina helgu og málefni Guðs, að hér er enginn inm, sem er þess verður að fága brynju hans.“ Keisarinn horfði á mig með undrun og drambi, en kon- ungur lert í augu mér og skellihló, því að hann vissi af reynslunni hve ómögulegt ég átti með að halda mér saman eða að halda hnefunum í skefjum þegar búið var að reita mig til reiði. En aðalsmenn, riddarar og aðrir tignarmenn, sem hér voru saman komnir, heilsuðu þessari ósvífnu og óumbeðnu ræðu minni með því að hrópa upp af hrifningu, því að konungur hafði unnið þá alla með hinni prúðu, óttalausu framkomu sinni. Þegar keisarinn sá, að menn hans báru allir velvildar- hug til Ríkharðar konungs, breytti hann jafnskjótt um framkomu, af mannvitsslægð sinni. Hann steig niður úr hásætinu, gekk til konungs með framréttar hendur og hróp- aði með fagnaðarbros á andlitinu: „Konunglegi bróðir. Þessi ungi sveinn yðar hefir á sinn rustalega hátt látið það í ljós, sem við allir berum í hjört- um okkar! Vitið það, að hér eruð þér mitt á meðal vina.“ Svo lagði hann hendur um háls konungi og gaf honum friðarkossinn. Það hefði getað komið dauðum manni til að hlæja að sjá framan í Ríkarð konung þá. Það var engu líkara en að viðbjóður og kátína væru að heyja baráttu í andlitssvip hans. Svo lét hann sér nægja að skella lófanum a bakið á Hinriki keisara svo að hann reikaði við. SKOLI Isaks Jónssonar (S j álf seignar stof nun) Styrktarmenn skólans, sem eiga börn fædd 1949, og hafa ekki látið innrita þau, verða að gera það nú þegar, ef börnin eiga að sækjá skólann næsta vetur. SKÓLASTJÓRI Laxweiðimeim FITJÁ og GLJÚFURÁ verða leigðar út í sumar. — Tilboð óskast send fyrir 30. apríl til Óskars Teits- sonar, Víðidalstungu, sem gefur allar upplýsingar. Símstöð: Víðidalstunga. Mýr Dodge ’54 sendiferðabifreið, til sölu. — Bifreiðin er með yfir- byggðu húsi. BIFREIÐASALAN Njálsgötu 40. — Sími 5852 Verðlækkun á bifreiðum Bifreiðar, módel ’40—’46, hafa lækkað mjög í verði. Greiðsluskilmálar eru við allra hæfi. Útborgun frá krónur 5—10 þúsund. Þeir, sem selja ætla bifreiðar sínar, eru beðnir að skrá þær hjá okkur hið fyrsta. Bifreiðasalan Njálsgötu 40 SÍMI: 5852. Ung stúlka getur fengið atvinnu í vefnaðarvöruverzlun. — Tilboð ásamt uppl. sendist afgr. Mbl. fyrir kl. 5 fimmtudag, merkt: „1. apríl — 840“. Þar eð sorphreinsun Keykiavíkurbæiar hefur lagzt niður að miklu leyti, vegna verkfallsins, eru bæjarbúar enn minntir á, að láta ekki í sorpílát hrein- legan pappír, kassa og annað, sem auðveldlega má geyma um tíma án þess að óþrifnaði valdi. Sorphreinsun Reykjavíkurbæjar. Smásagnasamkeppni Samvinnunnar Ritstjórn Samvinnunnar hefur ákveðið að lengja skilafrest í smásagnasamkeppni blaðsins til 15. maí næstkomandi. Hefur þetta verið ákveðið vegna ástands þess, sem skapazt hefur í póstsamgöngum af völdum verkfallsins. SAMVINNAN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.