Morgunblaðið - 30.03.1955, Qupperneq 9
Miðvikudagur 30. marz 1955
MORGVNBLAÐIÐ
9
dr. Einars Arnórsson- Japanska iisiafóikið á förum
ar
ÞEGAR fundir hófust á Alþingi
í gær, tilk; nntu forsetar beggja
þingdeilda, rð fundir yrðu felld-
ir niður pennan dag vegna and-
láts dr. Einars Arnórssonar fyrr
verandi rá^herra. Á fundi í Sam-
einuðu þir ” kl. 1,30 í dag, mun
forseti Satneinaðs þings minnast
hins látna stjórnmálamanns og
fræðimanrs.
Úfsvar ekks insrfieimf
nm
a i
Á FUNDI bæjarráðs í gær, var
samþykkt að innheimta ekki
útsvör um þessi mánaðamót
af launum þess fólks sem er
á mánaðarkaupi og á í vinnu-
deilum um þessar mundir.
Meðal þess fólks, sem á í verk-
föllum núna eru alimargir,
sem fá greidd mánaðarlaun.
Mun þetta fólk nú um þessi
mánaðamót fá greidd laun
fyrir fyrri hluta marz-mán-
aðar fram til 18. marz, þegar
verkfallið hófst og verður út-
svar samkvæmt ákvörðun bæj
arráðs ckki dregið frá launun-
um að þessu sinni.
Ó laf sfja rðsrbáfur
fer hefm vegna
verkfallsins
ÓLAFSFIRÐI, 28. marz: — Vél-
báturinn ,,Haukur“ kom hingað
í gærkveldi frá Suðurlandi með
40 smálestir af fiski. Varð bátur-
inn að hætta veiðum fyrir sunn-
an vegna verkfallsíns, en þar
hefir hann stundað þorskveiðar
£ net í vetur.
Aflinn, sem báturinn kom með,
verður verkaður í fiskverkunar-
stöð Magnúsar Gamalíelssonar.
Haukur mun nú búa sig á tog-
veiðar hér fyrir Norðurlandi
Héðan hefir lítið verið róið að
undanförnu vegna ógæfta. Enn-
fremur hefir verið hér beituskort
ur þar til í gærkveldi, að loðna
var fengin innan úr Eyjafirði.
í dag er ágætis veður hér og
eru bátarnir því á sjó. — J. Ag.
Akvörðun tekin um réttar*
rannsókn og málshöfðun
O
að endurskoðun lokinni
VEGNA endurtekinna staðhæfinga „Þjóðviljans“ um að ráðgert
sé að láta rettarrannsókn falla niður í máli Ingimars Jónssonar
skólastjóra, hefur Mbl. leitað upplýsinga um málið hjá hlutaðeig-
andi ráðuneyti. Var biaðinu þar skýrt frá því, að unnið sé nú að
endurskoðun fjárreiða Gagnfræðaskóla Austurbæjar og öðrum
þeim opinberum fjárreiðum, sem skólastjórinn hefur haft með
höndum, og að þeirri endurskoðun lokinni verði að sjálfsögðu
tekin ákvörðun um réttarrannsókn og málshöfðun gegn honum.
Er þessi málsmeðferð að öllu leyti í samræmi við íslenzkar réttaiv
farsreglur og venjur.
Kommúnistablaðið hefur því eins og þess er jafnan háttur farið
með fleipur eitt og rakalaus ósannindi um mál þetta.
Japanska listafólkið, sem skemmt hefir gestum Þjóðleikhússins
undanfarna daga er nú á förum héðan. Verður 7. og síðasta sýn-
ingin í kvöld kl. 20. Aðsókn hefur verið mikil að öllum sýningun-
um og fólk látið í ljósi ánægju yfir að eiga þess kost að kynnast
a þennan hátt hinni sérstæðu og okkur framandi austurlenzku
leik- og danslist. Listafólkið fer héðan beint til Þýzkalands en
þaðan liggur leið þess til Suður-Ameríku. Fylgja því héðan þakkir
okkar fyrir komuna og óskir um góða ferð áfram. — Myndin
sýnir stjórnanda flokksins Miho Hanayagui í „sverðdansinum*-.
r
Ohugnanleg velki p<
m í kúm I Skagaffa
Allt að þrem kúm á bæ taka veikina.
j Bær á Höfðaströnd, 29. marz.
SNJÓLAUST hefur verið með öllu hér á láglendi nokkurn tíma,
og eru vegir vel greiðfærir. Er nú vel bílfært að Reykjahóli
í Fljótum, en þar er aftur dálítill kafli sem er ófær, en svo er
aftur bílfært í sjálfum Fljótunum. Skíðafæri hefur verið afburða-
gott í fjöllum.
minnzl
á 150. árflð hans á launardag
UM heim allan verður 150. ártíðar H. C. Andersens minnzt á
margvíslegan hátt. Þetta merkasta ævintýraskáld Dana er
orðið nokkurs konar sameign alls heimsins. Og hér á landi verður
efnt til H. C. Andersens hátíðar í Sjálfstæðishúsinu, í skólum
landsins verður skáldsins minnzt og má segja, að hátíðin hefjist
i kvöld með háskólafyrirlestri um skáldið.
í gærdag áttu blaðamenn stutt' sem því ber. Fá nöfn ber hærra
samtal við sendiherra Dana hér j í bókmennl asögunnni, en nafn H.
á landi frú Bodil Begtrup og C. Andersens, skósmiðssonarins
stjórn Norræna félagsins, um H.
HJALPAR-
BEIÐNI
FRÁ ÞVÍ hefur verið skýrt í
blöðum og útvarpi, að á mánu-
dagsmorgun s.l. brann íbúðar-
braggi í Þóroddsstaðabúðum. —
Fólkið komst nauðulega út úr
brennandi íbúðinni, sem eyð.i-
lagðist að mestu, svo að ekki er
talið, að hún verði aftur gerð
íbúðarhæf. í bragganum bjuggu
hjónin Sigurður Karlsson og
Kristín Helgadóttir með fimm
ungum börnum sínum. Hið elzta
þeirra er 10 ára, en hið yngsta
á 1. ári. Móðir Sigurðar átti einn-
ig þarna heimili.
Átta manna fjölskylda hefur
þannig misst húsnæði sitt og að
mestu búslóð og fatnað, sem allt
var óvátryggt.
Ekki þarf að lýsa því, hvert
áfall fjölskyldan hefur við þetta
hlotið. Væri þess því mikil þörf,
að aðstoð yrði veitt og sem fyrst.
Hafa bæjarbúar oft sýnt lofs-
verðan skilning og brugðizt vel
við með hjálp, þegar líkt hefur á
Staðið.
Með línum þessum vildi ég
vekja athygli á ástæðum þeirra,
sem nú hafa orðið fyrir tilfinnan-
legu fjárhagstjóni. Vonandi verð i
margir til að rétta hjálparhönd
hinu bágstadda, eignalausa fólki.
Morgunblaðið hefur góðfús-
lega lofað að taka á móti gjöf-
um,
Jón Þorvarðsson.
KUADAUÐI
Mikil veikindi hafa átt sér stað
í kúm í héraðinu. Er víða sem
allt upp í þrjár kýr eru veikar
á bæ. Er hér um að ræða óvenju-
legan hjartasjúkdóm, sem að
vísu hefur lítillega orðið vart áð-
ur hér um slóðir, en aldrei gripið inn og hefur hún verið veidd.
j svo gífurlega um sig og nú. Eru ! Fiskur er annars frekar tregur,
j kýrnar veikar nokkurn tíma, og . og enginn göngufiskur kominn.
arins, en tíð frekar óstillt fram
til þessa. Fénu hefur talsvert
verið beitt.
TREGUR AFLI
Sjóróðrar eru nú að hefjast.
Loðna er byrjuð að ganga í fjörð-
drepast flestar að lokum.
FÓÐRI KENNT UM
Leitað hefur verið til dýra-
læknis vegna sjúkdóms þessa og
hefur hann gefið þá skýringu, að
hér sé óhollum fóðrum um að
kenna. Eins og kunnugt er, hrakt
ist hey bænda hér, svo að segja
allt í fyrrasumar, og er það sett
í samband við kúadauðann.
GÓÐ HÖLD Á SAUÐFÉ
Ekki hefur borið á neinni ó-
hreysti i sauðfé í vetur. Beitijörð
hefur verið góð seinnipart vetr-
Verzlanir lokaðar
á fösfudag
VERZLANIR hér í Reykjavík og
Hafnarfirði verða lokaðar föstu-
daginn 1 .april vegna aldaraf-
mælis frjálsrar verðlunar á ís-
landi.
Er tilkynning um þetta í blað-
inu í dag frá Fél. ísl. stórkaup-
manna, Kaupfél. Hafnarfjarðar,
KRON, SÍS, Sambandi smásölu-
verzlana og Verzlunarráði ís-
lands. Skrifstofur þessara aðila
verða einnig lokaðar.
| Þá munu bankarnir einnig
verða lokaðir á föstudaginn.
— Björn.
Jón forseli fyrsli
Rvk.fogarinn, sem
slöðvasf í verkfallinu
C. Andersen hátíðina á laugar-
daginn, á afmælisdeg: skáldsins.
í SJÁLFSTÆDISHÚSINU
Skemmtunin í Sjálfstæðishús-
inu hefst ki. 8,30 um kvöldið, með
því að blásið verður í lúðra. Að
því loknu mun Tómas skáld Guð-
mundsson flytja „Kveðju til
Danmerkur“, frumsamið ljóð. Þá
mun prófessor Einar Ól. Sveins-
son flytja ræðu um H. C. And-
ersen. Þuríður Pálsdóttir óperu-
söngkona mun syngja lög við ljóð
skáldsins, en því næst fer fram
upplestur á verkum Andersens
og lesa þau séra Bjarni Jónsson
vígslubisk”p og Arndís Björns-
dóttir leikkona
★
Sendiherra Dana færði stjórn
Norræna félagsins þakkir fyrir
undirbúning þessarar minningar-
hátíðar, en Vilhj. Þ. Gíslason
þakkaði í nafni stjórnarinnar
hlýleg orð sendiherrans og kvað
félaginu hafa verið mikil ánægja
og heiður að því, að hafa um það
forgöngu að þessa mikla skálds
væri minnzt hér á þessum hátíð-
isdegi, og hefði hátíðin verið
skipulögð í samráði við danska
sendiráðið
í ÚTVARPINU
Útvarpsstjóri upplýsti, að út-
varpið á laugardagskvöldið
myndi verða helgað minningu
og verkum H. C. Andersens með
upplestrum, ræðu og tónlist. •—
Einnig verður í barnatímanum á
sunnudaginn lesið úr ævintýrum
skáldsins.
frá Óðinsvéum, sem aldrei mun
fyrnast meðan menningin heldur
velli.
GunnarThororidsen
heiðraSur I Banda-
ríkjunum
WASHIN GTON, 28. marz: —
Gunnari Thoroddsen borgarstjóra
var sýndur rriargs konar heiður
er hann kom til Washingtonborg-
ar. Samuel Spencer, fylkisstjóri
i Columbia afhenti honum borgar
lykla Washingtonborgar, sem
tákn þess að hann væri heiðurs-
borgari Washington.
í fylgd með borgarstjóranum
þá var Thor Thors sendiherra
Islands vestra og nokkrir starfs-
menn sendiráðsins og Alonzo
Stanford, yfirmaður íslandsmála-
deildar bandaríska forsætisráðu-
neytisins.
Að athöfninni lokinni sat borg-
arstjórinn og aðrir gestir mið-
degisverðarboð Robert Murphy
aðstoðarráðherra. Sátu það boð
margir háttsettir öldungadeildar-
þingmenn o. fl. —
FYRSTI Reykjavíkurtogarinn,
sem stöðvast af völdum verkfalls
ins, er Jón forseti, er kom af
veiðum um sjöleytið í gærkveldi.
Var skipið búið að vera að veið-
um í 18 daga og er með um 190
tonn af saltfiski.
Óskaði útgerð togarans, Alli-
ance h.f., eftir því, að fá olíu,
til þess að halda hita í vélarrúmi
togarans og öðrum leiðslum í
skipinu meðan það liggur hér í *
hofnmm, ef frost gerði, en ef slikt , , , , ’
í SKÓLUM
í skólum landsins verður H. C.
Andersens minnzt með frásögn-
um af honum og upplestri úr
verkum hans. í barnaskólunum
verður efnt til samkeppni í stíla-
kemur fyrír, getur það valdið
stórtjóni, t. d. á miðstöð, svo og
öðrum leiðslum skipsins. Þessari
Norræna félagið hefur haft um
það forgöngu
í menntaskólanum verður ár-
degis á laugardaginn minnzt ár-
bón neitaði verkfallsnefnd og lét tíðar skáldsins
þess einnig getið, að olía yrði Sem fyrr segir, verður skálds
ekki afgreidd í neinn togara í jns minnzt um heim allan þennan
Reykj avíkurhöfn á þessum for- dag og hafa menningarfélög þau
sendum. I sem að minningarhátíðinni standa
Fara nú togararnir að koma til hvert í sínu landi, kostað kapps
hafnar hver af öðrum, eftir því um að svna minningu þessa
sem olia og salt þrýtur hjá þeim. merka skálds allan þann sóma,
Mikinn slnnreyk
lagði yfir Hafnar-
15 sinnum slökkt
; sinubrunum
MIKIÐ var um sinubruna um
helgina. Alls var slökkviliðið
kallað út 15 sinnum á laugardag,
sunnudag og mánudag til að
slökkva elda í sinu, er börn
höfðu kveikt.
Þá voru miklir sinubrunar á
Álftanesi og víðar, en þar höfðu
bændur kveikt í sinu.
Um tíma síðdegis \ gær, lagði
lagði svo mikinn reyk af sinu-
brunanum yfir Hafnarfjarðar-
veginn, að illfært var þar yfir
fyrir bifreiðir. Sneru þó nokkrar
við, er lögðu ekki út í reyk-
hafið. Ljós komu að engu gagni,,
og eina leiðin var að þræða veg-
kantinn.