Morgunblaðið - 04.05.1955, Síða 16
Veðurúiii! í dag:
NA-kaldi og bjartviðri.
Almar
skrifar um útvarpið. Sjá bls. 9.
i Þyrilvængia fórst í gær
(k' 'L. J C
tlafði verið leigð til landmælinga
Keflavíkurflugvelli, 3. maí.
ÞYRILVÆNGJA, sem var á leið frá Keflavíkurflugvelli til Reykja-
víkur, hrapaði til jarðar í kvöld í hrauninu milli Hvaleyrar við
Ilafnarfjörð og Straums. Flugmaðurinn var einn í vængjunni, og
var hann fluttur í sjúkrahúsið hér á flugvellinum.
Þyrilvængja þessi var af Bell-
gerð. Hefur verið að því unnið
undanfarið að lagfæra hana og
endurbæta, og var hún í reynslu-
flugi í gær eftir þá gagngerðu
viðgerð.
EIGN BANDARÍSKA
FLUGHERSINS
Þyrilvængjan hefur ásamt 2 öðr
um verið leigð Dönsku landmæl-
ingastofnuninni og íslenzka rík-
inu. Átti hún að aðstoða við þrí-
hyrningsmælingar Dana hér í
sumar, sem skýrt hefur verið frá
í fréttum.
Er slysið varð, stjórnaði henni
Bandaríkjamaður sem ekki er í
varnarliðinu, enda þótt vængjan
hafi verið eign bandaríska flug-
hersins.
MISSTI SKYNDILEGA STJÖRN
Á VÉLINNI
Þyrilvængja þessi var í sam-
floti við hinar tvær þyrilvængj-
urnar, sem vegamálastjórnin og
dönsku landmælingarnar hafa á
leigu, á leið frá Keflavík til
Reykjavikur í ágætu flugveðri
um 7 leytið, þegar flugmaðurinn
skyndilega missti stjórn á vél-
inni af einhverjum ástæðum, sem
enn eru ókunnar, og hrapaði vél-
in til jarðar. Voru vélarnar þá
staddar skammt frá Straumi,
nokkuð fyrir utan veginn. Þyril-
vængjan mun sennilega vera
gjörónýt, en flugmaðurinn marð-
ist illa á fótum, en mun vera
óbrotinn. Hann slasaðist ekki að
öðru leyti.
ÖNNUR ÞYRILVÆNGJA
KOIVI TIL HJÁLPAR
Þegar flugmaður annarrar hinn
ar þyrilvængjunnar sá hvað skeð
hafði, lenti hann vél sinni
skammt frá flakinu og kom hin-
um slasaða flugmanni til hjálpar.
Tók hann manninn upp í sína vél
og flutti á flugvallarsjúkrahúsið.
En þar voru meiðsli mannsins
strax athuguð.
Starfsmenn frá loftferðaeftir-
litinu fór skömmu síðar á slys-
staðinn til þess að kanna verks-
ummerkin. — B. Þ.
Bílslys í Hafnarflrði
HAFNARFIRÐI. — Um hálf-
sjö leytið í gærkvöidi varð
fimm ára telpa fyrir vörubíl
hér á Norðurbrautinni og mun
hafa slasazt nokkuð. í gær-
kvöldi höfðu meiðsl hennar
ekki verið rannsökuð til hlít-
ar. — Telpan á heima á Norð-
urbraut 17. — Mun hún hafa
hlaupið fyrir bílinn G-988, sem
var á leið inn í bæinn. — G.E.
Gold og Fizdale
Frægir amerískir pianisfar
leika saman á fvo flygla
Tónleikar í Austurbæjarbíói a vegum Tón-
listarfélagsins í kvöld og annað kvöld
TVEIR tónleikar vera í Austurbæjarbíói á vegum Tónlistarfélags-
ins, í kvöld og annað kvöld. Tveir frægir amerískir píanistar,
sem leika saman á tvo flygla, koma þá fram. Er mjög langt síðan
að slíkir tónleikar hafa verið hér. Píanistarnir eru Gold og Fizdale,
sem farið hafa sigurför um alla Evrópu og Ameríku og hlotið
svimandi lof hvar sem þeir hafa farið.
Tónlistarfélagið eykur með
hverju árinu fjölbreytni tónleika
sinna og vekur það mikla ánægju
meðal áheyrendanna. Er þetta
einn liður í þeirri viðleitni.
Meðal verka, sem Gold og Fiz-
dale leika, eru Brahms-Haydn- j
tilbrigðin, eitt fegursta verk
Brahms, sem hann samhliða
samdi sjálfur fyrir tvo flygla, en
þetta verk hefir verið leikið hér
af Sinfóníuhljómsveitinni undir
stjórn Hermanns Hildebrandt. —
Ennfremur leika þeir D-dúr són-
ötu eftir Mozart, Saramouchi eft-
ir Milhaus, Sónötu eftir Poulenc
og Souvenir eftir Samuel Barber.
Tvö síðasttöldu verkin eru til-
einkuð listamönnunum.
Eldhúsdagsum-
ræður og þinglok
NÚ ER auðséð á öllu yfir-
bragði þingfunda á Alþingi,
að nálgast þinglok. Er af-
greiðsla málanna nú hraðari
en áður og þingmenn virðast
ekki vilja tefja lengur fyrir
málunum með löngum ræðum.
Þó er eftir ein þrautin, og
eru það eldhúsdagsumræðurn-
ar. Að þessu sinni var ákveðið
að þær yrðu ekki haldnar í
sambandi við afgreiðslu fjár-
laga, heldur yrðu sérstakar
útvarpsumræður um stjórn-
málaviðhorfin almennt.
Eldhúsdagsumræður munu
fara fram mánudag og þriðju-
dag í næstu viku. Síðan verð-
ur þingi væntanlega slitið á
miðvikudag. Ætti eftir því að
ljúka afgrciðslu allra mála í
þessari viku.
! Hekla skemmdíst
llítilsháttar <
í FYRRINÓTT varð m. s. Hekla
Ifyrir lítilsháttar skemmdum aust
ur á Djúpavogi. Var skipið að
fara þaðan áleiðis til Seyðis-
fjarðar, er óhappið vildi til. •—
Af einhverjum ástæðum tók vél
skipsins ekki við sér, og barst
skipið fyrir golunni að boða og
snart hann aðeins, með þeim af-
leiðingum, að leka varð vart. •—
Skipstjórinn ákvað þá að fara
ekki lengra en til Seyðisfjarðar,
en sigla þaðan beint til Reykja-
víkur til viðgerðar. Önnur strand
ferðaskip koma inn í áætlun
skipsins.
Ungur maður fékk
íbúðinaíDAS-
happdrættinu
í GÆR var dregið í 1. flokki í
happdrætti Dvalarheimilis aldr-
aðra sjómanna, en nú var dregið
um glæsilega þriggja herbergja
íbúð að Hamrahlíð 21, sem er
talin 255 þús. kr. virði — Kom
íbúðin á miða nr. 31894, en mið-
ann á Sigurður Guðmundsson,
Öldugötu 16, hér í Reykjavík. —
Hinn ungi maður getur hvenær
sem er flutt inn í þessa nýju
íbúð, sem honum verður afhent
algjörlega kvaðalaust.
Hinn vinningurinn í þessum
flokki var fimm manna bíll,
Morris-Oxford. Kom bíllinn á
miða nr. 18904, sem Ingi Eiríks-
son, Bræðraborgarstíg 35, á, en
hann er bílstjóri á Borgarbíla-
stöðinni.
Myndirnar hér að ofan voru teknar í Austurstræti í gærdag af
strætisvagninum og hjólinu. — Ljósm. Har. Teits).
Barn fyrir bíi og
hjól undan strætisvagni
Tvö slys 1 gærdag
TVÖ slys urðu hér í bænum í gærdag. — í einu úthverfanna
skaddaðist 3 ára drengur á höfði er hann varð fyrir bíl. — í
Bankastræti brotnaði tvöfalt afturhjól undan strætisvagni er hann
ók inn á Lækjartorg. — Maður varð fyrir hjólinu en slapp lítið
meiddur, er það skoppaði eftir Austurstræti.
Fyrstu Fossarnir
sigldu í gærkvöldi
í GÆRKVÖLDI létu fyrstu Foss-
arnir tvéir úr höfn eftir verk-
fallið. Gullfoss, sem fór kl. 10
fullskipaður farþegum til Leith
og Kaupmannahafnar, og Reykja
foss, sem fór klukkan 8 með
sement, áburð og fleira til Hólma
víkur, Dalvíkur, Akureyrar og
Húsavíkur, en þaðan siglir skipið
beint til Antwerpen. f kvöld fer
Fjallfoss beint til Rotterdam og
Tröllafoss til New York. f dag
fer Tungufoss í botnhreinsun í
Slippinn, en á föstudaginn á hann
að fara til hafna hér við Faxa-
flóa og lesta til Noregs og Sví-
þjóðar. Þaðan kemur skipið svo
með fullfermi, m.a. um 1000 lest-
ir af síma- og rafmagnsstaurum.
Eimskip hefur nú tekið alls á
leigu níu skip, sem koma hingað
á næstunni með fullfermi af vör-
um, m.a. tilbúinn áburð.
Skalifrelsi Eimskíp
framlengf
FRAMLENGING á skattfrelsi
Eimskipafélagsins var samþykkt
til eins árs í viðbót. þegar Efri
deild Alþingis samþykkti í gær
endanlega sem lög frumvarp
Ólafs Thors þar að lútandi.
! Framsögumaður fjárhagsnefnd
ar, Bernharð Stefánsson mælti
nokkur orð um frumvarpið. Hann
greindi frá því að Eimskipafélag-
ið hefði verið skattfrjálst um
langan aldur gegn því skilyrði
að greiða ekki nema 4% í arð.
Engar slíkar breytingar hefðu
i orðið á aðstöðu félagsins, að
ástæða væri til að breyta þessu
ákvæði. Nú stæði líka þannig á,
að ekki væri enn búið að ljúka
endurskoðun á skattalögum fyrir
félög og væri því vart hugsandi
að gera félagið skattskylt fyrr en
með þeirri endurskoðun.
Frumvarpið var samþykkt sem
lög með 12 atkv. gegn 2.
Síldarverksm ið j ur
greiði Siglufirði
.kr.
100 þús.
FRUMVARP Einars Ingimundar-
sonar um að síldarverksmiðjur
ríkisins greiði 100 þúsund króna
lágmarksupphæð til Siglufjarðar-
kaupstaðar var afgreitt í gær frá
Efri deild Alþingis sem lög.
Á 10 síldarleysisárum hafa
Síldarverksmiðjurnar greitt að-
eins óverulegt gjald til Siglu-
fjarðarkaupstaðar. Á bæjarsjóð-
ur þar við mikla erfiðleika að
etja vegna fjárskorts. Með til-
liti til þess að síldarverksmiðj-
urnar reka allmikla starfsemi á
Siglufirði, en eru annars útsvars-
frjálsar sem ríkisfyrirtæki, þótti
þetta frumvarp sanngirnismál.
^SÁ EKKI BARNIÐ
Slysið á litla drengnum varð
við húsið Laugarteig 58 um kl.
10 í gærmorgun. — Maður nokk-
ur hafði stöðvað bílinn sinn á
móts við húsið. Þegar hann ók
af stað, taldi hann sig ekki hafa
orðið var við mannaferðir kring-
um bílinn. En er hann ók af stað,
varð hann þess var, að einhver
fyrirstaða var við annað aftur-
hjól bílsins, og rétt í sama mund
heyrði hann barnsgrát.
MEIDDIST Á HÖFÐI
Rétt aftan við bílinn sá hann
hvar Iítill drengur lá i götunni.
Hann heitir Viðar Þórarinsson,
Laugateig 58. Drengurinn var
fluttur strax í Landsspítalann.
Við læknisskoðun þar kom í ljós,
að billinn hafði ílett upp höfuð-
leðrinu á lófastórum bletti. Er
búið hafði verið um meiðslin var
drengurinn fluttur heim til sín.
HJÓLIÐ 1
EFTIR GANGSTÉTTINNI
Það var klukkan rúmlega 12 &
hádegi í gær, sem hjólið fór und-
an strætisvagninum. Var hann
kominn niður Bankastrætið, er
vinstra afturhjólið, sem er tvö-
fallt, stórt og þungt, sennilega
um 200 pund, skondruðu undan
vagninum, með öxulbrotið, og fór
hjólið upp á gangstéttina. Þar var
maður frá Akureyri á gangi, Guð-
ión Njálsson. Hann heyrði skell-
inn, er vagninn skall í götuna, en
tókst ekki að forða sér undan
hjólunum. Þau komu við hann,
skelltu honum í götuna, rifu föt
hans og skemmdu.
RAKST Á GRINDURNAR
En svo vel vildi til, að öxul-
brotið sneri frá manninum. Öðr-
um vegfarendum tókst að forða
sér, en hið þunga hjól nam ekki
staðar fyrr en það rakst á járn-
grindverkið við gatnamót Aust-
urstrætis og Pósthússtrætis. Ekki
sakaði farþega í vagninum. —.
Nokkru síðar var komið með
kranabíl á vettvang, og var vagn-
inn dreginn inn á verkstæði
strætisvagnanna inni í Laugar-
neshverfi.