Morgunblaðið - 24.05.1955, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 24. maí 1955 ]
np m\
lpgu
S A.MEIGINLEGT okkur mönn-
U|m er að eiga minningar. Um-
iæðu- og umhugsunarefnin eru
tengd þeim.
j Við lát vinkonu minnar, Mar-
grétar Jónsdóttur, vakna ljúfar
og.kærar minningar í huga mér.
Mihningar um góða og göfuga
konu, sem af alúð og kærleika
leysti sitt hlutverk Frá fyrstu
hernsku geymist í huga mér
myndin af vökulli móður við
sjúkrabeð ungs sonar. Móður,
sicm af ástúð hjúkrar, hjálpar og
líuggar á þann hátt, sem aðeins
4óð móðir getur gert. Skaftafells-
slurnar, af frásögnum, buðu
ikki upp á allsnægtir í verald-
um skilningi á seinni hluta
uldarinnar, sem leið, en þær
sköpuðu fólk og menningu. Dag-
legt stríð og strit þroskaði og
göfgaði. Úr þessum jarðvegi var
liin látna sprottin.
■ Hún var fædd að Söndum í
Meðallandi V. júní 1865. Foreldr-
aíi hennar voru Jón Jónsson frá
Íangholti í Meðallandi og kona
Ijans, Guðrún Magnúsdóttir
þi'ests í Meðalfellsþingum, Jóns-
sbnar, Magnússonar Ketiissonar
sýslumanns. Móðir Guðrúnar var
Jfannveig Eggertsdóttir, Bjarna-
sonar, Pálssonar landlæknis. Átti
hún til góðra að telja.
Margrét ólst upp við venjuleg
sveitastörf í heimahögum. Starfs-
vilji og frábær dugnaður ein-
kenndu hana. Hún leiðbeindi
ferðamönnum yfir Kúðafljót og
taldi sig allt til efri ára líklega
tit að kunna að „velja vatnið“
þ. e. að leiðbeina í hinum sí-
breytilega vatnaflaumi.
Árið 1891 giftist Margrét
11 ænda sínum og æskufélaga,
Þorsteini Þorsteinssyni, síðar
kaupmanni í Keflavík. Þau hjón
hófu búskap á Eyrarbakka, þar
sem Þorsteinn sál. stundaði jöfn-
mn höndum sjóróðra og verzlun-
asrstörf. Þar eystra dvöldu þau í
12 ár, en fluttu þaðan til Kefla-
v'íkur, þar sem Þorsteinn sál.
starfaði við Duus-verzlun þar til
llann hóf eigin verzlunarrekstur.
Þau hjón eignuðust 6 börn.
Þt jú eru láíin en eftir lifa Guð-
xún og Þórey, báðar búsettar í
Keykjavík og Elías, forstjóri í
Keflavík. Auk þess ólu þau hjón
upp dótturson sinn Martein Jón,
nú kaupmann í Keflavík.
Líf og starf var helgað heim-
ijmu. Heimili þeirra hjóna var
óvenjulegt. Lagt um þjóðbraut
þvera. Þar var komið, dvalið og
iarið eftir eigin valí. Þar var
höfðingjasetur. Gestrisnin frábær
og áreiðanlega fylgja hlýjar hugs
anir marga, sem nutu hennar,
hinni frábæru heiðurskonu nú
við leiðarlokin. Fléimilið var
skóli. Dagleg mál voru rædd af
hupursleysi. Hlutirnir nefndir
réttum nöfnum til skilningsauka
fyrir viðitakendur.
Ég réðist ungur til starfa hjá
þ'eim sjónum. Betra fólki hef ég
ekki mætt. Á Margréti leit ég
sem aðra móðir. Framkoma henn-
ar við mig var dásamleg. Fyrir
allt sem hún gerði mér, konu
jminni og börnum gott, bæði í
orðum og atlæti, þökkum við af
hjarta.
Dugnaður, starfsorka og fram-
ar öllu starfsvilji, var aðalsmerki
hinnar látnu. Ekkert mátti vera
óleyst, sem framkvæma þurfti.
íþin látna fór ekki varhluta af
sjúkdómum. Bæði hún sjálf og
börnin stríddu við sjúkdóma,
sem hefðu verið ofraun hverjum
meðalmanni. Þeim tók hún með
hugprýði og skilningi hins sann-
trúaða manns. Hún var trúkona
mikil, en veifiskati engin.
Eftir að Margrét missti mann
sinn árið 1939 bjó hún áfram við
r^usn og skörungsskap, þar til
Marteinn uppelclisfeonur: hfennar,
og kona hans, Elín Ólafsdóttir,
•tókú* 'vlð" búsforráðúmr ’ DValdi
w-.
WmBSm niVdi'r^.
hún þá með þeim eða dætrum
sínum í Reykjavík öðru hvoru
Síðustu mánuðirnir voru erfið-
ir sjúkdómsdagar, bornir af ró-
semi og hugprýði. Dvaldi hún þá
á heimiii dóttur sinnar, Þóreyjar,
og þar hjálpuðust þær systurnar
og venslaíólkið allt að um að
reyna að létta henni sjúkdóms-
birðarnar.
Nú er hin trúaða kona gengin
á fund feðra sinna. Þar mun hún
uppskera ríkulega að hætti hins
góða sáðmanns.
Blessuð sé minning þín.
Þ. St. E
Þorsfelssí! i. Siprðs-
son kosltsn ism-
dæmisismplar
VORÞING umdæmisstúkunnar
nr. 1 var haldið í Reykjavík dag-
ana 7. og 8. maí 1955.
Þingið sátu 86 fulltrúar úr um-
dæminu.
Miklar umræður urðu á þing-
inu um það ástand, sem nú ríkir
hér á landi hvað snertir áfengis-
neyzlu og vínveitingar.
Meðal þeirra samþykkta, sem
þingið gerði, var áskorun til
framkvæmdanefndar umdæmis-
stúkunnar um að hefja í Ríkisút-
varpinu og víðar öfluga áróðurs-
starfsemi gegn áfengisbölinu og
að leita samstarfs við stórstúku
íslands og áfengisvarnaráð um
auknar áfengisvarnir og boðun
bindindis.
Einnig voru samþykktar svo-
hljóðandi tillögur:
„Vorþing umdæmisstúkunnar
gerir þá kröfu til hlutaðeigandi
aðila, að framfylgt sé til fulln-
ustu því lagaákvæði, að ungling-
um innan 21 árs aldurs sé ekki
veitt vín í veitingahúsum. Telur
þingið nauðsynlegt að allir, sem
vín er veitt á slíkum stöðum,
hafi í höndum aldursvottorð í
vegabréfs formi“.
„Þar sem reynslan hefur sýnt,
að vínveitingar við hina svo-
nefndu bari, leiða til síaukinnar
áfengisneyzlu, skorar vorþing
umdæmisstúkunnar á fram-
kvæmdanefnd stórstúkunnar og
áfengisvarnaráð að beita sér ein-
dregið fyrir banni gegn slíkum
veitingum“.
Framkvæmdanefnd umdæmis-
stúkunnar skipa nú:
Þorsteinn J. Sigurðsson um-
dæmistemplar, Þórður Steindórs-
son umdæmiskanslari, Svanlaug
Einarsdóttir umdæmisvaratempl-
ar, Maríus Olafsson umdæmisrit-
ari, Páll Kolbeins umdæmisgjald-
keri, Jón Kr. Jóhannesson um-
dæmisgæzlumaður unglinga-
starfs, Karl Karlsson umdæmis-
gæzlumaður löggjafarstarfs,
Bjarni Halldórsson umdæmis-
fræðslustjóri, Kristjana Ó. Bene-
diktsdóttir umdæmiskapellán,
Jón Hjörtur Jónsson umdæmis-
fregnritari, og Sigurður Guð-
mundsson íyrrverandi umdæmis-
templar.
Umboðsmaður stórtemplars var
kjörinn Gísli Sigurgeirsson,
vðrkStjóli' í Háfháffirði.'..
Nemeiiíla-
tóiileikar Tónlist-
arskólans annað
kvöld
NEMENDATÓNLEIKAR Tón-
listarskólans verða haldnir ann-
að kvöld í Austurbæjarbíói. Efn-
isskráin er mjög fjölbreytt að
vanda. Fjórir nemendur, sem
allir Ijúka fullnaðarrpófi, tveir,
fiðluleikarar og tveir píanóleik-
arar spila á tónleikunum.
Einar G. Sveinbjörnsson og
Herdís Laxdal leika úr fiðlu-
konsertum eftir Mendelsohn og
Mozart. Kristinn Gestsson og
Ketill Ingólfsson píanóleikarar
spila verk eftir Cecar Franck
og Beethoven (Appasionata). —
Auk þess leika yngri nemendur.
Það þykir alltaf talsverður
viðburður í tónlistarlífi bæjarins
þegar skólinn heldur nemenda-
tónleika á vorin, enda hafa þar
margir beztu hljóðfæraleikarar
okkar, sem stundað hafa nám í
skólanum komið opinberlega
fram í fyrsta sinn. Hafa margir
haft ánægju af að fylgjast með
þróun þeirra, og svo mun enn
verða.
Skólanum verður slitið um
næstu mánaðamót og er hann þá
búinn að starfa í 25 ár. Á þess-
um tíma hafa orðið stórkostiegar
framfarir • tónlistarlífi þjóðar-
innar og á skólinn þar mestan
þátt í. Flestir beztu tónlistar-
menn okkar hafa stundað þar
nám og án skólans væri hér
engin sinfóníuhljómsveit. Ann-
ars skal ekki farið nánar út í
þetta að bessu sinni. 25 ára af-
mælisins verður minnzt á ýms-
an hátt.
þióða Evrópn j
E&ða fír fyrsfu ferSina fil Laxemburg
FLUGFÉLAGIÐ Loftleiðir hefur nú hafið vikulegar flugferðir til
Luxemborgar, með viðkomu í Gautaborg og Hamborg. Flugleið
þessi var vígð um s. 1. helgi með því að flugvélin Edda fór fyrstll
ferðina. Sem farþegi í þessari fyrstu ferð var m. a. flugmálaráð-
herra Ingólfur Jónsson o. fl. Var tekið hátíðlega á móti íslenzkn
flugvélinni í þessari fyrstu ferð.
aukinni samskipta milli íslands
og Luxemborgar. \
Flogið var um Gautaborg og :
Hamborg, en þar var gist um j
nóttina. Sendiherra ísland í !
Þýzkalandi Vilhjálmur Finsen,
tók á móti véiinni á flugstöðinni
í Hamborg.
TIL LUXEMBORGAR
Á sunnuaagsmorgun var hald-
ið til Luxemborgar og lent þar
eftir tæpl. tveggja klst. flug.
— Bankamannafundur
Framh. af bls. 1
Umræður fóru rfam um spari-
fjársöfnun skólabarna, en eftir
þeim upplýsingum er fram komu
hefur starfsemin gengið vel, enda
afráðið af stjórn Landsbankans
að halda henni áfram og auka
hana.
„POSTGIRO" STOFNANIR
Síðasta málið, sem fundurinn
tók til meðferðar var um póst-
greiðslukerfi. Var samþykkt til-
laga um málið þar sem samvinnu
nefndinni var falið að athuga
hvort íslenzkir bankar og spari-
sjóðir geti ekki á hagkvæmari
hátt en póstþjónustan, tekið að
sér samskonar afgreiðslur og
þær, sem „postgiro“-stofnanir
annast erlendis.
FULLTRÚAR Á
LANDSFUNDINUM
Fulltrúar á fundinum voru eft-
irtaldir menn:
Jónas Magnússon Patreksfirði,
Árni Böðvarsson Akranesi,
Kristján Jónsson Akureyri, Ólaf-
ur Böðvarsson Hafnarfirðí, Gunn-
ar Runólfsson Raugárvallasýslu,
Gunnar Grímsson Blönduósi,
Sigurður Pétur Björnsson Húsa-
vík, Magnús Jónsson Borgarnesi,
Tómas Zoéga Norðfirði, séra
Magnús Guðmundsson Ólafsvík,
Snæbjörn Thoroddsen Rauða-
sandshreppi, Barðastr., Valgarð
Blöndal Sauðárkróki, Þorsteinn
Víglundsson Vestmannaeyjum,
Steinn Ágúst Jónsson Flatey,
Breiðafirði, Guðmundur Guð-
mundsson Keflavík, Halldór
Finnsson Grafarnesi, Hörður
Þórðarson Reykjavík, Ásgeir
Magnússon Reykjavík, Sæmund-
ur Guðjónsson Borðeyri og Sig-
urjón Valdimarsson Svalbarðs-
eyri.
Fulltrúar bankanna voru: Árni
Sigurjónsson og dr. Jóhannes
Nordal fyrir Landsbanka íslands,
Gunnlaugur Björnsson, fyrir Út-
vegsbanka íslands, Haukur Þor-
leifsson, Búnaðarbanka íslands,
Jón Sigtryggsson, Iðnaðarbanka
Islahdá'.'.............• ----
Victor Bodsen samgöngumálaráð-
herra Luxemborgar heldur ræðu.
Á flugstöðinni þar Var margt
manna samankomið til að fagna
komu „Eddu“ (flugvélar Loft-
leiða) þangað, í hennar fvrstu
ferð, en áætlað er að fljúga þang-
að vikulega.
Viðstaddir komu „Eddu‘“ voru
m. a. Victor Bodson samgöngu-
málaráðherra, Picrre Hamer
stjórnarfulltrúi, Pétur Benedikts-
son, sendiherra, Fernand Loesch
forseti flugfélags Luxemborgar
og fulltrúar blaða, útvarps o. fl.
Meoal þeirra sem voru með
„Eddu“ í þessari ferð voru Ing-
ólfur Jónsson flugmálaráðherra,
Agnar Kofoed-Hansen, flugmála-
ÁTTA STUNDIR MILLI
IIÖFUBBORGANNA
Fórust honum m. a. svo orð:
Þetta er merkisdagur í sögu auk-
inna samskipta milli þessara
tveggja litlu landa, Luxemborg-
ar og íslands. Á þessum degi hef-
ir sterkur hlekkur bæzt í þá
keðju, er tengja á þessi ríki sam-
an — áætlunarferðin gerir það
að verkum, að það tekur aðeins
átta stundir að komast á milli
höfuðborganna, Reykjavíkur og
Luxemborgar.
Fyrir þrem árum síðan hófust
viðræður um loftferðasamning-
inginn milli ríkjanna. Okkur
grunaði ekki þá, að skipulagning
og framkvæmd áætlunarferð-
anna myndi ganga svo fljótt fyrir,
sig, en loftferðasamningurinn,
sem lagði lagalegan grundvöll að
flugferðunum, var undirritaður,
í Reykjavík 23. okt. 1952.
Er samningurinn var undirrit-
aður hafði ég nokkurt færi á að
dáðst að náttúrufegurð íslands og
þeim miklu möguleikum, er ís-
land hefir til að verða fjölsótt
ferðamannaland. Vonandi verð-
ur þessi nýja flugáætlun snar,
þáttur í auknum íerðalögum
landa í m.illi, en einmitt þetta
skiptir miklu þau tvö lönd, er
hér eiga hlut að máli. ,
LOFTIÐ FRJÁLST j
Einmitt vegna þessa hefir Lux-
emborg alltaf verið eindregið
fylgjandi því, að flugfélög hefðu
frjálsari hendur — fjölmörg lönd
héldu þessu mikið á lofti fyrir
fáeinum árum, en hafa nú horfið
frá þeirri stefnu eingöngu vegna
eigin hagsmuna og algjörlega i
trássi við alþjóða samþykktir.
„Ég vil að lokum óska þess ein-
læglega, að flugáætlunin Reykja-
vík—Luxemborg gangi sem allra
bezt — það mun sanna öllum
heiminum, að smáþjóðirnar eru
fyllilega samkeppnisfærar á sviði
flugsins þrátt fyrir allar þær
tálmanir, sem stöðugt eru lagðár
í veg fyrir þær.“
EIGA MARGT [
SAMEIGINLEGT
Ingólfur Jónsson flugmálaráð-
herra flutti því næst stutt ávarp.
Framh. á bls. 4 |
—----------------- )
Ingólfur Jónsson flugmálaráð-
herra heldur ræða í fiugstöðinni
í Luxemborg.
I
stjóri, Kristján Guðlaugsson for-
maður stjórnar Loftleiða, Alfreð
Elíasson framkvæmdastjóri Loft
leiða og fleiri af ráðamönnum
Loftleiða.
j Virðuleg móttökuathöfn fór
fram í Flugstöðvarhúsinu.
Samgöngumálaráðherra stór-
hertogadæmisins, Victor Bodson,
flutti ræðu í tilefni af opnun flug
áætlunarferðanna milli Luxem-
borgar og íslands. Lýsti hann
ánægju sinni yfir þeim mögu-
relkttm; er fefðir þessar gæftr tíl
Skemmfi- og uræðu
fundur Foreldrafé-
lags Laugðmesskóla
SKEMMTI- og umræðufuncl
heldur Foreldrafélag Laugarnes-
skóla, miðvikudaginn 25. maí kl<
8,30 í Laugarnesskólanum. Dag-
skrá er sem hér segir:
Hljóðfæraleikur, börn úr skól-
anum skemmta. — Loftur Guð-
mundsson rith. ræðir við Skeggj^
Ásbjarnarson kennara um leik-
starfsemi í skólanum. — Börn úfl
skólanum lesa upp. — Hvernig
geta foreldrar_ aðstoðað börn síA
við starfsval: Ólafur Gunnarsson,
sálfræðingur. Frjálsar umræður,
Allir foreldrar og kennarar vel-
komnir. ForeldrafélagsstjórniH
væntir þess að foreldrar fjöl-
menni, þar sem þeim gefst héfl
kostur á að kynnast menningatl
og uppeldisstárfi, sem skólinnj
hefur með höndum utan hinna(
eiginlegu kennslustunda, svo sení
hljóðfæráléik og leik'sfarlsehli. 'J