Morgunblaðið - 09.08.1955, Síða 6

Morgunblaðið - 09.08.1955, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 9. ágúst 1955 Fyrirliggjandi Natrium Benzoate (benzosúrt natron) Verðið mjög hagstætt. Kemikalía h,f. Austurstræti 14 — sími 6230. úsnæði Ca. 100 ferm. óinnréttað húsnæði, í kjallara eða á fyrstu hæð, óskast strax. Tilboð leggist inn á afgr. Morgunblaðsins, merkt: Bóka-afgreiðsla —313. ................■■■■■■>■>■• ............................ Einbýlishús — Lóð Einbýlishús óskast til kaups í vesturbænum, Seltjarn- ■ arnesi, Skerjafirði eða Kópavogi, einnig kemur lóð til greina. — Tilboð merkt: „Mikil útborgun“ —311, sendist í blaðinu fyrir 15. þ. m. ! ....................................... WMMKMSKmmm mmmmmmmm..............B<aMaaaaa' HAFNARFJÖRÐUR Vantar 3—4 herbergi 1. október eða fyrr. — Fyrirframgreiðsla eftir sam- komulagi. — Tilboð sendist í pósthólf 4, Hafnarfirði. Ungir menn, athugið! Þeir, sem hafa hug á að gerast meðlimir í nýstofnuðu hlutafélagi, sem auðveldar ungu fólki að eiga sínar eigin íbúðir, leggi nöfn sín, ásamt nánari upplýsingum um atvinnu og fleira, sem fyrst inn á afgreiðslu blaðsins. Nánari upplýsingar gefnar síðar, merkt: „Framtak —300“. Skrifstofur Flugmálastjórnarinnar Reykjavíkurflugvelli verða lok- aðar þriðjudag óg miðvikudag 9. og 10. ágúst vegna viðgerða. í B 17 Ð 3—4 herbergja íbúð óskast nú þegar eða 1. otóber n. k. Egill Gestsson, Símar 6047 og 7700. Athugið Nýjar og fullkomnar fatahreinsunarvéJar ásamt • vönum fagmönnum. ■ ■ Tryggið yður góða vinnu. ; ■ Stuttur afgreiðslutími. ■ ■ ■ Fatapressan Perla, Hverfisgötu 78 ■ Snorri Stefdnsson frd Hlíðnrhdsnm sextugur SNORRI kann mér vafalaust engar þakkir fyrir að „fara með það í blöðin", að hann átti sextugsafmæli þ. 6. þ. m. Þeir, sem þekkja hann vita, að áber- andi einkenni í fari hans eru hlé- drægni og hófsemi. ■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■• En einhverntíma kemur að því, þegar saga íslenzks síldar- iðnaðar verður skráð, að minnzt verður Snorra með þakklæti fyr- ir hugkvæmni hans og uppfinn- ingar í þágu þessa iðnaðar. Saga síldveiða og síldariðnað- ar hér við land er orðin alllöng og viðburðarík og hvergi í at- vinnusögu þjóðarinnar hefir skipzt á sólskin og skúrir eins og hér og valda því hinar miklu aflasveiflur. Það dylzt engum, sem um mál þessi vill fjalla af skilningi og sanngirni, að fyrir atbeina fram- sýnna og stórhuga útgerðar- manna og sjómanna, hefir tekizt, t.d. með stofnun síldarverk- smiðja ríkisins, að færa þjóðar- búinu miklar tekjur af þessum stopula atvinnuvegi Hafa undan- gengin síldarleysisár orðið þess valdandi, að þessum mönn- um hefir ekki verið þakkað sem skyldi. Á árum nýsköpunarinnar voru afköst síldarverksmiðja stóraukin og mundu þessi afköst vera of lítil í dag, ef síldveiði hefði ekki brugðist. Margt bend- ir til þess, að öldudalnum sé náð á holskefluárum síldarleysisins og kann þá ef til vill að fara svo, að þfessi afköst reyndust of lítil á næstu árum. ★ ★ ★ í sérlega fróðlegu erindi, sem stjórnarformaður síldarverk- smiðja ríkisins flutti nýlega á Siglufirði, gat hann þess, að frændur vorir Norðmenn urðu fyrstir til að byggja hér síldar- verksmiðju og kenna fslending- um síldveiði með herpinót, en þessa veiðiaðferð lærðu þeir af Ameríkumönnum. Á þennan hátt hafa íslendingar numið veiðiaðferðir af sér vin veittum þjóðum en á margan hátt hafa þeir endurbætt þessi veiðitæki og rutt nýjar brautir á sviði verksmiðjutækni fiskiðn- aðarins. Einn hinna fremstu í hópi þess- ara manna er Snorri Stefánsson. Árin 1944—46, þegar umrædd stækkun á afköstum verksmiðj- anna fór fram á Norðurlandi, smíða vélaverksmiðjan Héðinn í Reykjavík síldarpressur samkv. teikningum og útreikningi Snorra. Var til þess ætlast, að af- köst þessara mikilvirku véla yrðu sem næst 4000 mál síldar á sólarhring og var hér raunveru- lega um heimsmet að ræða með því að aldrei áður höfðu verið byggðar svo stórar síldarpressur. Voru margir vanrúaðir á, að tak- ast mundi að ná þessu meti, en engir urðu fyrir vonbrigðum nema hrakspármennirnir. Síldar- pressurnar skiluðu þeim afköst- um, sem vonir hinna bjartsýn- ustu stóðu til og munu samskoh- ar pressur hafa verið settar upp í verksmiðjum er síðar voru byggðar. Margar aðrar vélar, sem notað ar eru í síldar- og fiskimjölsverk- smiðjum, hefir Snorri með hug- vitssemi sinni endurbætt og full- komnað. Sú var tíðin, að svokall- aðir „þróarkarlar“ skófluðu síld- inni úr þró í lyftu og var það hættulegt starf, sem olli mörgum slysum. Snorri fann upp nýjan útbúnað, sem sparar vinnuafl og veitir verkamönnum aukið ör- yggi. Er nú með öllu hættulaust að vinna þetta starf, Snorri Stefánsson er meðlimur í hinum ágaeta félagsskap Rotary International. Hann er drengur hinn bezti, innan og utan þess félagsskapar, ekki aðeins í orði heldur einnig á borði, þ. e. í dag- legri umgengni við samborgara sína og með ríka þjónustulund í þágu lands og þjóðar og krist- innar kirkju. Margir sendu honum og hinni ágætu konu hans, frú Sigríði Jónsdóttur, hlýjar kveðjur á afmælisdeginum heim að Hlíðar- húsum. A. S. TIT0 HALLAST Á NÝ AÐ RÚSSUM NEW YORK, 2. ágúst: — Tító marskálkur hefir lýst yfir því, að Bandaríkin geti alveg eins stöðvað hernaðariega hjáip sína til Júgóslafa eins og að gera kröfu til þess að mega hafa eftir- lit með því hvernig þessari hjálp sé varið. Yfirleitt virðist Titó leggja minna upp úr vinfengi vest urveldanna nú heldur en áður, en vera þeim mun inniiegri í um- tali um sovétríkin. Þegar Bulganin og Krutsehev voru í Belgrad fyrir skömmu, lagði Titó áherzlu á það, að samn- ingar Rússa og Júgóslafa snerust eingöngu um málefni ríkjanna Júgóslafíu og Rússlands. Síðustu vikurnar virðist svo sem að tekin hafi verið upp að nýju fyrri sam- skifti milli kommúnistaflokka beggja ríkjanna. Þessum sam- skiptum hefir Titó fram til þessa afneitað. EFTIRGJÖF Rússar gáfu Júgóslöfum fyrir skömmu eftir skuld, sem nemur sem svarar tæpum hálfum öðrum milljarð ísl. króna. Til þessarar skuldar var stoínað eftir stríðið, er Rússar veittu Júgóslöfum hern aðarlega og efnahagslega hjálp, til ársins 1948. Nú talar Titó um „skilning" sovétríkjanna á mál- efnum Júgóslafa og bendir um leið á andstæðuna, þar sem eru sifeldar innheimtur af hálfu vest urveldanna á skuldum, sem Júgó- slafar hafa stofnað hjá þeim. Sérstaklega hefir vakið nokkra furðu meðal stjórnmálamanna vesturveldinna að Titó hefir ein- mitt nú, eftir Genfarfundinn, séð ástæðu til þess að endurnýja kröfu Júgóslafa um sem svarar rúmlega miljarð íslenzkra króna stríðsskaðabætur á hendur Ves- ur Þjóðverjum. Þykir tíminn und arlega valinn til þess að setja fram slíka kröfu einmitt nú. Titó hefir svarað þeirri full- yrðingu, að Júgóslafar hafi snúið aftur í stöðvar kommúnista með því að segja: „Við eru kommún- istar, en vér erum ekki í neinum stöðvum". TRtJLOFUNARHRINGIR 14 karata og 18 karata. Anglýsingor sem birtast eiga í S sunnudagshlaðinu þurfa að hafa borizt íyrir kl. 6 á föstudag j * Er kaupandi að góðum 4ra manna bíl. — Eldra model en 1949 kemur ekki til greina. Tilboð, er greini teg. og verð, sendist afgp1. Mbl. fyrir hádegi á laugardag, merkt: „Bíll — 299“. — TIL ■ ■"■■*! 1 ■ KIQvlJ um 60 ferm. húsnæði, á góð- um stað við Laugaveg. Til- valið fyrir skrifstofu eða léttan iðnað. Fyrirfram- greiðsla nauðsynleg. Tilboð sendist fyrir fimmtudags- kvöld, merkt: „E. J. — 295“. Húsnœði óskast Maður í fastri stöðu óskar eftir 1 stóru herb. og eldhúsi eða eldunarplássi, í Hafnar- firði eða Reykjavík. Mánað- arleiga kr. 1.000,00. Skilvís greiðsla. Reglusemi. Tilboð sendist afgr. Mbl., merkt: „Eglo 1956 — 305“. Járnamenn ! Óska eftir manni, vönum járnalögnum. Gott kaup. — Uppl. hjá undirrituðum, milli kl. 12 og 13 og 19 og 21, næstu daga. JÓN V. JÓNSSON Múrarameistari, Kirkjuteig 5, Keflavík. Sími 402. Bíll Vil kaupa Station Willys, 2 drifa eða 5 manna fólks- bíl. Eldra model en ’47, kem ur ekki til greina. Uppl. um verð, tegund og greiðslu- skilmála, leggist inn á afgr. Mbl., fyrir miðvikudags- kvöld, merkt: „Bíll — 309“. Stýrlmaður í millilandasiglingum óskar eftir 2—4 herbergja íbúð 1. okt., í Reykjavík eða ná- grenni. Mætti einnig vera í Hafnarfirði. Tilboð sendist afgr. Mbl., fyrir 13. ágúst, merkt: „P. S. — 306“. Parket Geri gömlu gólfin yðar sem ný. Talið við mig strax. Ólafur Önundarson Kársnesbraut 27, Kópavogi. Útvarpsvirkinn Hverfisgötu 50. — Sími ÍÍ2674. Fljót afgreiðsla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.