Morgunblaðið - 09.08.1955, Page 16

Morgunblaðið - 09.08.1955, Page 16
Veðurúflif í dag: SV-kaldi. Léttir til. — Vaxandi sunnan átt með kvöldinu. 177. tbl. — Þriðjudagur 9. ágúst 1955. Síldveiiiskýrslan Sjá blaðsíðu 2. Faxasíldin verðra* grei niðnr með tóbakspeningum Allt tóbak hækkar um 1015% FJÁRMÁLARÁIÐUNEYTIÐ tilkynnti í gær, að frá og með þeim degi hækkaði útsöluverð á tóbaksvörum um 10—15%. Tekj- ur af þeirri hækkun verður m. a. varið til að greiða niður út- gerðarkostnað af reknetjaveiðum við Suðurland. Snm skipin nð hætta síldveiðnm VEIÐIVEÐUR var ágaett á síldar- miðunum í gærkvöldi, en samt var flotinn lítiliar sem engrar síldar var. Fregnir höfðn aðeins borizt til Raufarhafnar um fjög- ur skip, sem voru með 100 tunnur hvert. Sumir eru þegar farnir að tala um að hætta, sagði fréttamaður blaðsins á Raufarhöfn í gærkv., og ef ekki veiðist Jjessa viku, má búast við að los komizt á síldarflotann. Veiði er góð hjá norksu rek- netjabátunum fyrir norð-austan land, en þeir náigast nú æ meir íslandsstrendur. Heldur flotinn sig nú mest norð-anstur af Bakka flóa. Eftirtalin skip fengu veiði i gær og fyTrinótt: Goðaborg 200, Pálmar 100, Vonin VE 300. fs leifur 230, Einar Þveræingur 800, Von TH 130, Erlingur V 400; Steinunn gamla 200, Helga 100, Hannes Hafstein 90, Reykjaröst 200, Kap 270, Hafnfirðingur 200, Kristján 200, Páll Þorleifsson 250, Garðar 90, Víðir. Eskifirði 100, Snæfell 100 og Mímir 100. Á sunnudag: Víðir II, Garði 500, Björgvin GK 300, Björgvin, S Dalvík 200, Baldur EA 200, Kári | Sölmundarson 500, Garðar EA ' 500, Reykjaröst 150, Aðalbjörg HÉRAÐSMÓT Sj álfstæðismanna í Vestur-Húnavatnssýslu var 300i Fanney 400, Hannes Hafstein haldið á Laugarbakka s. 1. sunnudag. Mótið var mjög vel sótt _ 100 og Bára 60. úr öllum hreppum sýslunnar og sýndi vaxandi fylgi Sjálfstæðis- manna í héraðinu. Fyrir nokkrum dögum náðist loks samkomulag um saltsíldar- verðið á reknetjaveiðum í Faxa- flóa og við Suðurland. En kostn- aður af útgerð þessari hafði auk- izt svo mjög m. a. vegna hækk- aðra launa, að útilokað var með núverandi markaðsverði síldar- innar, að útgerð þessi gæti borið cig. PAKKINN Á 11 KRÓNUR Svo að hið opinbera hefur orð- ið að hlaupa undir bagga með út- gerðinni og verður nú hluta af ágóða af tóbakssölu varið til að greiða niður síldarverðið. Samkv. þessu munu amerískar sígarett- ur, Camel, Chesterfield og Lucky Strike kost kr. 10,80 og 11 kr. sléttar með skógræktarmerkinu. Er það nákvæmlega krónu hækk- un. Allt annað tóbak hækkar álíka. í þessari hækkun er einnig innifalin nokkur verðhækkun á tóbaki á heimsmarkaðinum. Ffölsótt héraðsmót SjáUstæðismantna í V-Húnavatnssýslu Sigurður Pálmason, kaupm. á Hvammstanga, setti mótið með ávarpi og stjórnaði því, en ræð- wr fluttu: Jónas Rafnar, alþing- ismaður og Jón ísberg fulltrúi. Töluðu þeir um stjórnmálavið- liorfið og var ræðum þeirra vel tekið. Kristinn Hallsson óperusöngv- ari söng einsöng. Undirleik ann skemmtu þeir leikararnir Ævar Kvaran og Árni Tryggvason með upplestri og gamanþáttum. Að síðustu var svo stiginn dans. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hef- ur vaxið mikið í Vestur-Húna- vatnssýslu á síðustu árum og eru Sjálfstæðismenn í mikilli sókn í sýslunni undir ágætri forustu hins unga og ötula frambjóðanda aðist Ragnar Bjömsson. Þá flokksins, Jóns Isbergs. Stigamenn í Kópavogi stöðva bíl og ráðast með barsmíð á bílstjóra IGÆR um hábjartan dag gerðu tveir stigamenn á Nýbýlavegi í Kópavogshreppi árás á bifreiðastjóra, sem um veginn ók og misþyrmdu honum svo að hann er allmikið meiddur. Báðir árásar- mennirnir munu hafa verið undir áhrifum áfengis. RUDDUST I BIFREIÐINA Um 7-leytið í gærkvöldi voru þeir Geir Gunnlaugsson bóndi í Eskihlíð og starfsmaður hans, Arnþór Jónsson frá Möðrudal að keyra suður að Lundi í Foss- vogi og ók Arnþór bif reiðinni. Þegar þeir óku inn Nýbýlaveg mættu þeir tveimur mönnum, eem augsýnilega voru undir áhrifum áfengis. Stöðvuðu ölv- uðu mennirnir bifreiðma með því að ganga þvert íyrir hana og er hún hafði hægt á sér, gátu þeir gengið að bílhúrðinni og aiitið hana upp og ætluðu að ►yðjast upp í hana með valdi. HRINGT Á LÖGREGLU Þá taldi Geir bóndi ?' Eskihlíð, að ekki yrði lengur við þetta unað. Steig hann út úr bifreið- innr og að næsta húsi til að hringja á lögregluna. Var hann nokkum tíma í burtu , ÓFÖGUR AÐKOMA En þegar hann kom aftur höfðu stigamennirnir tveir, sem eru Heiðmundur Ottósson og Ingíbergur K. Sigurgeirsson, gert alvarlega líkamsárás á Arnþór Jónsson. Stóðu þeir yfir honum blóðugum og máttförnum eftir misþyrmingarnar. Enda voru þeir nú fjarlægðir af lögregl- unni, sem innan stundar kom á staðinn. Læknir, sem skoðaði Arnþór, taldi að hann væri handarbrot- inn. Þá var hann mjög marinn og meiddur á andliti og höfði. Hafði hann sennilega fengið snert af heilahristingi, því að hann hafði uppköst. Líðan Arnþórs var þó sæmileg og gat hann farið heim til sín um kvöldið. Norðorlanda- námsstyrkir SÍÐASTA Lögbirtingablað skýrir frá því, að til umsóknar séu sjö námsstyrkir, sem veittir eru af Nordisk Adminastrativ Forbund. Hefir það verið venja undanfarin ár að veita þessa styrki, og veitir þá norræna embættismannasam- bandið til námsdvala embættis- manna í einhverju Norðurland- anna. Styrkirnir eru frá Dan- mörku tvennar 750 krónur dansk- ar, Finnlandi 40.000 finnsk mörk, íslandi 1.500 ísl. kr., Noregi tvenn ar 750 kr. norskar, Svíþjóð 500 sænskar kr. Styrkjunum verður úthlutað í Stokkhólmi 24. sept. Umsóknar- frestur er til 20. ágúst og veitir Baldur Möller stjórnarráðsfull- trúi allar frekari upplýsingar. AKRANESI, 8. ágúst — Togarinn Akurey kom í dag af miðunum við Vestur-Grænland með 300 lestir af karfa. . Á laugardaginn voru níu trillu- bátar á sjó héðan. Trillan, sem aflaði mest fékk 900 kg. Tveir reknetjabátar komu hingað á laugardaginn með síld, Sigurfari með 83 tunnur og Farsæll með 41. Bátarnir fóru ekki út aftur fyrr en í dag. — O. Fjöldi lólks veður- tepptur í Eyjum Flugfélagið flutti yfir 700 ÞAÐ VAR ekki fyrr en í gærmorgun, sem Flugfélag Islands gat aftur hafið flugferðir með Þjóðhátíðargestina frá Vestmanna- eyjum. Ætlunin hafi verið að fljúga allan sunnudaginn aftur til Reykjavíkur, en það brást, þoka og illviðri hindruðu. 7 FERÐIR Reyna átti kl. 3 á aðfaranótt mánudags, en ekki gekk að held- ur. Loftbrúin opnaðist aftur kl. 8 í gærmorgun og um kl. 4 höfðu verið farnar 7 ferðir, þá varð áð hætta að fljúga vegna veðurs. — Átti þá eftir að fara minnst'6 ferðir. 700 MANNS Var búizt við því að skemmti- ferðafólkið muni reyna að ná í skip og báta frá Vestmannaeyj- um í gær, þar sem það átti flest að vera þá komið til vinnu. Alls flutti Flugfélagið 700 manns til Eyja á Þjóðhátíðina. Mynirnar hér að ofan eru frá slyssíaðnum. ’ (Ljósm. H. Teits.) Alvarlegur en dularfull- ur árekstur við Lambhaga STÓR vörubíll merktur K 46, þ. e. ættaður úr Skagafirðinum, gereyðilagðist í gær við Lambhagabrúna í Mosfellssveit, rétt fyrir ofan Reykjavík. Slys þetta er að ýmsu leyti dularfullt. T. d. vissi lögreglan í Reykjavík ekkert um það. Vegfarendur, sera komu þarna að um miðjan dag í gær, sáu bílflakið á vegarbrúii- inni. En enginn maður var nálægt og ekki er vitað til að neinn slasaður maður hafi verið fluttur í sjúkrahús, þótt framrúða bif- reiðarinnar sé brotin og höggið hljóti að hafa verið mikið. Bif- reiðastjórinn hefur ekkert látið af sér heyra um þetta alvarlega atvik. UNDARLEG VERKSUMMERKI Menn með góða leynilögreglu- hæfileika, sem komu á staðinn, kváðust og heldur ekki geta sagt um það með neinni vissu, hvern- ig slysið hefði átt sér stað. En það er Ijóst að vörubíllinn K 46 hefur verið á suðurleið, hlaðinn grófri möl til byggingar. Þegar bíllinn er kominn á suðurenda Lambhagabrúar verður slysið. Skal hér skýrt í stuttu máli frá helztu vegsummerkjum, ef les- endur gætu ráðið gátu þessa. SYÐSTI STÓLPI ÓSKEMMDUR! Hliðarstólpar Lambhagabrúar eru þarna mjög lágir — um 85 cm á hæð, 7 talsins og með rör- um á milli. Tveir þessara stólpa eru brotnir. Það eru annar og þriðji stólpi talið sunnan frá. — En syðsti endastólpinn er al- gerlega óskemmdur! FRAMHJÓLSFELGA ÓSKEMMD?! Þá er að lýsa bílnum sjálfum. Með einhverju móti hafa fram- hjólin bæði með öllu losnað og farið aftur undir bílinn miðjan. Er vinstra framhjólið sprungið, en á felgu þess sér engar skemmd ir. Hægra framhjólið er ó- skemmt. Þá ber þess að geta, að á vinstra afturhjóli er felgan hins- vegar mjög skemmd og skæld eins og eftir þungt högg. GEREYÐILAGÐUR Bíllinn var fullfermdur af grófri sjávarmöl, sem fyrr segic og hefur mölin við höggið kast- ast fram af slíkum þunga að efri hluti bílhússins hefur færst fram og yfirbyggingin öll skekkzt. Virðist bíllinn vera mjög mikið skemmdur, en hann er af tegundinni Fordson. Þrátt fyrir allt er talið að bíl- stjórinn hafi sloppið óskaddaður úr þessum árekstri og farið og jafnað sig, þótt ekki hafi haira tilkynnt lögreglunni um atburð þennan. , u 1 Græidjendingar veðurtepptir hér j I FYRRADAG kom Gullfaxi hing- að til Iieykjavíkur með fólk frá Kaupmannahöfn, sem hann átti að flytja til. Grænlands. Vélin varð að lenda hér sökum illveðurs, og var hún ekki enn farin aftur af stað í gærkvöldi. Með vélinni frá Kaupmannahöfn voru 55 farþeg-i ar, Grænlendingar og Danir. Græh lendingarnir voru flestir. að snúá aftur til fósturjarðar sinnar eftir árlanga dvöl á berklahælum í Dann mörku, en eins og alkunna er geis- ar berklaveiki hvergi eins skæð í heiminum sem á Grænlandi, en þó er þar ekkert hæli. Danimir voru flestir frá fyrir- tæki, sem nefnist Danish Artic Contractors, og annast bygging- ar og flugvallaframkvæmdir fýrir bandaríska herinn á Grænlandi. Ætluðu þeir til vallarins Blui West 1. 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.