Morgunblaðið - 09.08.1955, Page 9

Morgunblaðið - 09.08.1955, Page 9
Þriðjudagur 9. ágúst 1955 MORGUNBLAÐIÐ 9 Hvað við?, - ÞAÐ er hlutverk blaðanna að flytja almenningi sannar og réttar fréttir og til þess er nauð- synlegt, að menn virði blöðin og bafi góða samvinnu við þau. — Þetta skilur almenningur og veit, enda mæta blaðamenn oftast feurteisi, þegar þeir leita til manna um fréttir og sbiptir ekki iráli, hvaða stöðu viðkomendur gegna í þjóðfélaginu. Stundum kemur þó fyrir, að ruddaskapur og stráksháttur hins óþroskaða mæti blaðantanninum í starfi hans. Og stundmn bætist svo barnaleg stórmennska ofan á allt saman. Blaðamaður við Morg unblaðið varð illilega fyrir barð- inu á hvorttveggja, þegar hann leitaði upplýsinga í gær hjá ein- am virðulegum forstjóra hér í bæ, Hauki Hvannberg, hjá Olíufélag- inu h.f. ★ ★ ★ SVO er mál með vexti, að Bandaríkjamenn á Keflavík- urflugvelli buðu út benzín- og ©líusölu á vellinum. Nú hafði yður i forstjórinn Morgunblaðið frétt, að Olíufélag- ið hefði sent tilboð og fengið olíusöluna. Hringdi því einn blaðamaðurinn til Hauks Hvann- bergs, forstjóra, sagði til sín — og spurði hann, hvort það væri rétí, að félagið hafi fengið einka- Ieyfi á þessari olíusölu. — HVAÐ KEMUR YÐUR ÞAS VIÐ! svar- aði hinn virðulegi forstjóri hins ráðvanda (og væntanlega virðu- lega) félags. — Afsakið ónæðið svaraði blaðamaðurinn og undr- aðist mjög svar „virðingarmanns- ins“ —_ verið þér sælir. Þar með var samtalinu lokið. Morgunblaðið hafði ekki þörf á upplýsingum frá forsxjóranum — og íesendum þess eru enn ókunn málalok olíumálsins á Keflavík- urvelli. ★ ★ ★ EN nú hljóta lesendur að spyrja með Morgunblaðinu. — Hvers vegna svaraði forstjórinn ekki fyrirspurn blaðamannsins? — Oskaplega eru Islena- ingar kurteisir — 170 HEFI komizt að því, að landar mínir eru stórkostlegir JLi menningarmenn og kurteisisfólk, sagði Pétur Hoffmann á silfurmunasýningu sinni í gær. — Þegar húsmæðurnar þekkja aftur gamlar silfurskeiðar og kökuspaða, elskaða og dáða ættar- gripi, sem hafa skyndilcga horfið einn góðan veðurdag, já, þá ffjúka þær ekki til og heimta að ég opni kassann. VILL GLEÐJA FÓLKIÐ — Nei, góði minn. Þær eru kurteisar og skoða hinn horfna grip í rólegheitum og áfergju- laust, og biðja svo mildilegast um að fá blessaðan gripinn keypt an. Og auðvitað er mér ánægja að verða við þeirri bón og gera fólkið aftur glatt og ánægt. — Pétur Hoffmann hefir líka getað gert marga ánægða þessa dagana. NAUST ÁTTI HNÍFAPÖR í einum kassanum á sýning- raini hans í Listamannaskálanum eru eingöngu merktir silfurmun- ir, áletraðir. Þeir eru um 50 tals- ins og þegar hafa allmargir fund- íð þar aftur skeiðar sínar. Veit- ingahúsið Naust -átti hvorki meira né minna en 20 hnífapör, sem Pétur fann, og kom ráð- vandlega til skila — gegn nokkr- um fundarlaunum auðvitað. HVER Á SKEHHNA? Ein eldri kona kom auga á skeið, sem hún hélt sig hafa tap- að, og hafði orð á því við Pétur. En hún hafði tapað skeiðinni 1940 og Pétur sagðist ekki hafa byrjað að safna fyrr en eftir 1940. Ergo: Konan átti ekki skeiðina. Pétur segir að sýningin hafi gengið vonum framar, og allir fara út af henni ánægðir. í gær hafði hálft tólfta hundrað séð hana, en á miðvikudaginn lýkur henni. Þá selur Pétur silfurmun- ina gegn vægu verði, 30% minna en búðarverði, segir hann, og flest er þegar pantað. VIÐA LIGGUR AURINN Ef fólkið endurþekkir gripi sína fyrir víst, fær það þá fram- senda gegn nokkrum fundarlaun- um. Og svo snýr kempan Pétur Hoffmann sér aftur að hópnum kring um silfurkassana og tekur til að svara ótal fyrirspurnum um armböndin, fingurgullin, menin og djásnin, sem þar gefur á að líta og margir vilja eiga. Og sýningin hans Péturs er sannarlega ágætt dæmi um það, hvernig hægt er að verða ríkur á hirðuleysi náungans. Hálíist á mannlausan du os r hann brotinn og branilaður SkemEnáarvargar svaia æii sínu á reynifré Þýzki Iistmálarinn Herbert Dunkel „Vinna við höfnina". hjá einu málverka sinna: (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) l»ýzkur málari opnar málverkasýningu hér OpnuS í dag í Þjéðminjasafninu I DAG verður opnuð í Þjóðminjasafninu málverkasýning Herbert Dunkel, listmálara frá Berlín, á vegum Germaníu. Sýningin verður opnuð kl. 5 og verður opin til föstudagskvölds daglega frá kl. 2—10 síðdegis. Aðgangur að sýningunni verður ókeypis. sviði um þessar mundir. Mynd- irnar eru eftir nemendur úr öll- um bekkjum skólans, 11—18 ára að aldri. Þær eru ekki sérstak- lega valdar, en teltnar úr 500 myndum. HEFUR TEKIÐ ÞATT í MÖRGUM LISTSÝINGUM í ÞÝZKALANDI Herbert Dunkel er frá Berlín, en er búsettur í Austur-Fríslandi frá 1945. Hann hefur tekið þátt í mörgum stórum listsýningum í Þýzkaiandi,-en haft sjálfstæðar sýningar á verkum sínum í Emden, Bremerhaven, ' Norder- ney og Berlín. Ennfremur héfur hann haft sýningar í Amester- dam og Wischoten í Hollandi. —• Hann hefur dvalizt í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Sviss, Aust- urríki og Noregi, til að kynna sér listasköpun þessara landa. Forsetohjónin heimsækjn 12 MALVERK FRA ISLANDl Á sýningunni eru 22 verk, þar af tólf máluð hér á landi. — Af þeim verkum Dunkels, sem mál- uð eru hér, eru fjögur realistisk, en hin öll symbólisk. Myndirnar eru orðnar til á ýmsum ferðum á íslandi og eiga að tjá hin miklu áhrif landsins. MYNDIR NEMENDA DUNKELS Á SÝNINGUNNI Fyrir ári síðan tók H. Dunkel við teiknikennslu í menntaskól- anum í Aurich og eru á sýning- unni um 50 myndir þessara nem- enda hans. Gefa þær nokkra hug- mynd um uppeldi nemenda í æðri skólum í Þýzkalandi á listrænu AÐFARNÓTT sunnudagsins, varl R-5161, grænn Fordbíll sex manna, mjög illa leikinn, þar semj liann stóð á bílaplaninu beint á móti bifreiðaverkstæði Egils Vil- hjálmssonar við Rauðarárstíg. •— Hefur einhver vegfarandi gert eér til gamans að ctórskemma bílinn, brjóta úr honum tvær framrúður og allar hliðarrúður og vinna þar að auki mikil skemmdarverk inni í honum, svo sem að eyðileggja mælaborðið og xnargt fleira, Rannsóknarlögreglan hefur beðið blaðið að beina þeim til- mælum til fólks, er eitthvað get- ur upplýst í málinu, að gefa sig þegar fram við rannsóknarlög- regluna, þar sem enn hefur ekki hafst upp á sökudólgnum. Þá hefur rannósknarlögrelgan einnig skýrt svo frá, að upp í Árbæjarhélmum hafi fáheyrt ó- þokkaverk verið unnið einhvern síðustu daga, og biður fólk einnig liðsinnis í því máli. — Þar hefur veriff ráðist á sitka-grenitré það, er rafmagnsstjóri gróðursetti fyrir fjórum árum síðan í til- efni 30 ára afmælis Ratveitunnar. Var tréð á annan metra á hæð. Hafa verið brotnar af trénu greinarnar, en tréð að öðru leyti géetu veitt í þessu máli, eru vin- unnið einhvem tima síðan 15. júlí, en þá var skógræktarblettur Rafveiíunnar aðgættur og var þá allt í lagi. Aliir þeir, sem upplýsingar ðætu veitt í þessu máh, eru vin- samlegast beðnir að gera rann- sóknarlögreglunni aðvart. VIÐ HÁTÍÐLEGA athöfn á Keflavíkurflugvelli á laugardaginn var tilkynnt um yfirmannaskipti þar. Hutchinson hershöfð- ingi lætur nú af embætti yfirmanns varnarliðsins eftir 16 mánaða starf en við tekur John White hershöfðingi. Viðstaddir athöfnina á laugar- dag voru yfirmenn varnarliðsins, flugvallarstjóri ríkisins, skrif- stofustj óri utanríkisráðuneytisins og fleiri gestir. 1500 manna herlið úr flugher, sjóher og landher hafði fylgt sér sunnan við flug- vélaskýlið stærsta, sem nú er í smíðum. Þjóðsöngvar íslands og Bandaríkjanna voru leiknir af lúðrasveit, en fánar Atlantshafs- ríkjanna allra blöktu. Síðan var lesin tilkynning um yfirmannaskiptin, en hún var gefin út af Twining, yfirmanni bandaríska flughersins. Segir í henni að John White taki við yfirstjórn varnarliðsins frá þeirri stundu, sem Hutchinson hershöfðingi yfirgefi landið. Síðan gekk herliðið fylktu liði fram fyrir hershöfðingjana og gesti og flugvélar flugu yfir í skipulögðum flokkum. Hershöfðingjarnir ræddu um stund við blaðamenn litlu síðar. Kvað John White sér ánægju í því að vera kominn til íslands og kvaðst vona að sambúð manna hans og íslendinga mætti alltaf verða sem bezt. ÁNÆGJULEGT AÐ LÍTA YFIR STARFSTÍMANN HÉR Hutchinson kvað sér ánægju- legt að líta yfir starfstíma sinn hér á landi. Menn hans hefðu lagt sig fram um að komast hjá árekstrum og það hefði tekizt giftusamlega. Uppbyggingu á ' flugvellinum kvað hann hafa ' gengið hægar en æskilegt hefði 1 verið frá hernaðarlegu sjónar- miði, en ástæðan til þess væru að vinnuafl væri takmarkað á ís- landi, og stjórn varnarliðsins skyldi mætavel þá afstöðu ís- lendinga að heimila mönnum ekki vinnu á flugvellinum, ef vinnuafl vantaði til framleiðslu- starfa. Hann lagði áherzlu á að varn- arliðið væri hér á landi vegna Atlantshafsbandalagsins. „Við er- um ekki hér sem Bandaríkja- menn“, sagði hershöfðinginn. „Ef við værum hér sem slíkir, vær- um við löngu farnir heim“. Hutchinson hverfur nú til starfa við varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna, og mun þar vinna að skipulagsstörfum. AKRANESI, 8. ágúst: — For- setinn, herra Ásgeir Ásgeirsson og kona hans, frú Dóra Þórhalls- dóttir, heimsóttu Borgarfjarðar- héraðið um síðastliðna helgi. •—• Nokkrir fyrirmenn úr héraðinu tóku á móti forsetahjónunum við Botnsá. Kl. 3 var komið að Saurbæ og þar messaði prófast- urinn sr. Sigurjón Guðjónsson og kirkjukór Akraness söng und- ir stjórn Bjarna Bjarnasonar. Þá var ekið að Reykholti, þar sem margt fólk var saman komið til þess að fagna forsetahjónun- um. Þar töluðu Þórir Steinþórs- son, skólastjóri, prestsfrúin Anna Bjarnadóttir og Jón Steingríms- son sýslumaður og að lokum for- setinn. Síðan var haldið að Hvanneyri, en um kvöldið í Borgarnes og' gist þar. Á sunnudag eftir há- degi fór fram móttökuathöfn x Skallagrímsgarðinum, þar sem sýslumaður flutti ávarp og forseti ræðu. Einnig söng þar kirkju- kór Borgarness undir stjórn Hall- dórs Sigurðssonar. Á eftir var haldið upp í héraðið og þar heimsóttur húsmæðraskólinn að Varmalandi, en þaðan var farið að Bifröst við Hreðavatn. Var þar fjölmenni fyrir og veizla haldin, sem Jón Steingrímsson, sýlu- maður, stjórnaði. •—Oddur. Fimmtán stúlkur verða í fegurðarsamkeppninni í Tivoli Enn er iekið á móti ábendingum um þáfttakendur ERU síðustu forvörð til þess telur sig enn geta tekið við ábend væntanlega þátttakendur í feg- urðarsamkeppninni í Tívolí, s*m, fram fer um næstu helgi, 13. og 14. ágúst. Undanfarið hefir forráðamönn- um keppninnar borizt mikill fjöldi ábendinga um fallegar stúlkur, sem til greina ættu að koma í samkeppninni, og er ver- ið að vinna úr þeim. Ákveðið hefur verið, að þátttakendur verði 15, enda þótt ábendingar hafi þegar borizt um á annað hundrað stúlkur víða á landinu. Eklxi þykir gerlegt að hafa þátt- takendur fleiri en 15, því að á- horfendur, sem skera úr um sig- urvegarann og þær, sem verða nr. 2 og 3, geta naumast áttað sig, ef íleiri stúlkur taka þátt í keppninni. En þeim mun meira verður vandað til keppninnar, og óhætt er á þessu stigi málsins að fullyrða, að margar gullfall- egar stúlkur koma hér til greina. Nú er tíminn orðinn naumur til stefnu, en undirbúningsnefndin kynnt verði um þátttakendur í dag og í allra síðasta lagi í síma 6610, 6056 eða pósthólf 13, Rvík. Þess má geta nú þegar, að þátt- takendur verða víðsvegar að af landinu, ekki aðeins úr Reykja- vík, heldur og frá Akureyri, úr Skagafirði, Hveragerði, Keflavík og ef til vill víðar. — Vafalaust munu Reykjavíkurstúlkurnar leggja sig fram um að fá að þessu sinni fyrstu verðlaun, en utan- bæjarstúikurnar geta einnig orð- ið skæðir keppinautar eins og bezt kom fram í fyrra. Undirbúningsnefnd keppninn- ar fullyrði, að betur verði vand- að til keppninnar í ár en nokkru sinni, ekki sízt hvað snertir að- búnað allan í Tívolí fyrir áhorf- endur. Keppnin hefst kl. 9,30 á laugardagskvöld, stundvíslega, en forsala verður höfð á miðum til þess að forðast þrengsli og ös við innganginn. Verður nánar tilkynnt um þetta síðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.