Morgunblaðið - 11.08.1955, Blaðsíða 9
Fimmtudagur ll.'ágúst 1955
MORGVISBLAÐIÐ
9
Gróðurhúsastöðin Fagrihvammur í Hveragerði. Þarna eru 4000 m undir gleri og stöðin mun vera ein sú snyrtilegasta á íslandi og fyllilega sambærileg við sams-
feonar stöðvar á Norðurlöndum. (Ljósm. Har. Teits.)
Hann seldi grænmeti bak v/ð /ðnó fyrir 20 árum
GARÐYRKJUSTÖÐIN Fagrihvammur í Hveragerði á 25 ára af-
mæli um þessar mundir. Stöðina stofnuðu Sigurður Sigurðs-
6on, þáv. búnaðarmálastjóri og sonur hans, Ingimar Sigurðs-
son, en hann á hana nú í félagi við Þráinn Sigurðsson
garðyrkjubónda. Um 4000 m2 eru undir gleri í Fagrahvammi og
eru ræktaðar rósir í 3500 m.2
VORIÐ 1929 reisti ungur mað-
ur tjald sitt á bökkum Varmár
í Ölfusi, rétt þar við, sem nú
er Hveragerði. Hann braut
þar land og setti niður vermi-
reiti og plantaði í þá ýmsum
grænmetisplöntum. Dvaldi
hann þarna um sumarið og
ræktaði grænmeti sitt og flutti
það til Reykjavíkur. Þar seldi
hann það á svæðinu bak við
Iðnó. — f fyrstu bjó hann
einn í tjaldinu og til þess að
halda hita í tjaldinu á köldum
nóttum fyllti hann stálfat með
brennheitu hveravatni í og
velti því síðan inn í tjaldið.
Það var fyrsta hitaveitin í
Hveragerði. Cm vorið hafði
þessi ungi maður byggt fyrsta
gróðurhúsið í hveragerði og
var það 45 ferm. að stærð. Nú
er gróðurhúsaröð þessi orðin
4000 ferm. að stærð, eða nær
100 föld
Þessi dugmikli garðyrkju-
Ibúðarhús Ingimars í Fagrahvammi.
Fyrir 20 árum sfofnaði Sigurður Sigurðs m, fyrv. búnaðarmáiastj., og Ingimar,
sonur hans, gróðurhúsastöðina Fagrahvamm
Myndin hér að ofan er tekin árið 1931 og sést m. a. á henni fyrsta
gróðurhúsið í Fagrahvammi. Það var ekki nema 45 m og er nú
notað sem sundlaug.
Ingimar Sigurðsson, kona hans og Scháfferhundurinn Kalli, á
flötinni fyrir framan íbúðarhúsið.
bundið að hefja gróðurhúsa-
rækt hér á landi í þá tíð. —
Voru þeir erfiðleikar einkum
fólgnir í því, að trú manna á
atvinnuvegi þessum var tak-
mörkuð mjög og lánveitingar
bankanna til gróðurhúsabygg-
inga treglega veittar. Þó tókst
þeim feðgum að yfirstíga erfið
leikana og byggðu 45 ferm.
gróðurhús árið 1930. Ræktuðu
þeir í því gúrkur og tómata.
Síðan hefur stöðin í Fagra-
hvammi stækkað og aukizt
frá ári til árs.
Árið 1934 stofnaði Ingimar
ásamt Rögnu systur sinni
blómabúðina Flóru, en árið
Daglega er farið í gróðurhúsin og rósirnar skornar af stiklunum.
Á myndinni er ung stúlka að skera af rósir.
Sigurður Sigurðsson
fyrv. búnaðarmálastjóri.
maður lieitir Ingimar Sigurðs-
son, sonur Sigurðar heit. Sig-
urðssonar fyrrum búnaðar-
málastjóra. Og stöð hans
Fagrihvammur í Hveragerði á
25 ára afmæli um þessar
mundir.
17 ÁRA GAMALL TIL GARÐ-
YRKJUNÁMS
Ingimar er fæddur á Akureyri
en ólst upp að Hólum í Hjalta-
dal til 14 ára aldurs, en þá var i
faðir hans skipaður búnaðarmála;
stjóri og flutti til Reykjavíkur j
með fjölskyldu sína. Er Ingimar j
var 17 ára gamall fór hann utan
til garðyrkjunáms. Stundaði!
hann nám í Noregi, Danmörku
og Þýzkalandi. Þrem árum síðar i
kom hann heim aftur og fluttist
þá til Hveragerðis. Hafði Mjólk- j
urbú Ölvesinga gefið föður hans j
1 ha. lands þar og hann keypti!
talsvert land að auki og þar hóf
Ingýjaar garðyrkjubúskap sinn.
1948 keypti hann hluta hennar
og rekur hana nú einn. Árið
1948 fær Ingimar Þráinn Sig-
urðsson garðyrkjumann að
meðeiganda sínum í Fagra-
hvammi.
AFURÐIRNAR FLUTTAR
Á HESTVÖGNUM
Fyrstu árin ræktaði Ingimar
bæði grænmeti og blóm og var
það flutt daglega til Reykjavík-
ur. Að vetrarlagi var það oft
erfiðleikum bundið að flytja svo
viðkvæman varning suður í mis-
jöfnum veðrum. Kom iðulega fyr-
ir að flytja varð afurðirnar á
hestsleða. En nú er þetta allt
breytt og erfiðleikarnir við flutn-
inginn ekki teljandi. Hveragerði
liggur annars vel við samgöng-
um og þar er langur sólargangur
og heita vatnið ekki eins dýrt og
t. d. í Mosfellssveitinni. Má at
þessu sjá, að saðurinn var vel
valinn, enda eru nú í Hveragerði
stærstu gróðuþstöðvar á land-
inu.
300 ÞÚS. TRJÁPLÖNTUR
Strax fyrsta árið fékk stöð
þeirra feðganna rafmagn frá
vatnsaflsstöð Mjólkurbús Ölves-
inga. en síðar fi'á Soginu.
Við stöðina starfa venjulega
um 12 manns, en garðyrkjustjóri
er Paul Michelsen, sem unnið
hefur í Fagrahvammi um 20 ára
skeið. Sér hann alveg sérstaklega
um trjáuppeldisstöðina í Fagra-
Framh. á bls. 11
Paul Michelsen sér um trjáuppeldið í Fagrahvammi. Þar eru
á fjórða hundrað plöntur i uppeldi.
nu
FYRSTA
45 ferm.
GRQÐURHUSIÐ
Tvær stúlkur flokka rósirnar og vefja í vöndla til flutnings I
Það var miklum erfiðleikum verzlanir í Reykjavík.