Morgunblaðið - 11.08.1955, Síða 11
Fimmtudagur 11. ágúst 1955
MORGVNBLAÐI9
11
Mngnús Ásgeirsson - Fasrawan,n*r
KRAKS VEJVISER'
Frh. af bls. 7. ,
og vögguþula Garcia Lorca, hið
ramma og dulúðga kvaeði, sem
alltaf mun standa eitt sér í ís- |
lenzkum bókmenntum.
í öllum löndum er nú unnið
kappsamlega að því að bæta kjör
mannanna, hækka laun þeirra,
tryggja kaupmátt launanna, og
þó ekki síður hitt, að auðvelda
þeim starfið, láta vélina vinna
erfiðustu verkin. Verkamenn í
þeim skilningi, sem tíðkaðist hér
fyrir hálfri öld, eru nú bráðum '
ekki til. En hafa listamennirnir
ekki orðið útundan i þessari sam- ,
keppni um að létta mannfólkinu
lífið? Jú, mjög áberandi, þótt
ýmislegt hafi líka verið fyrir þá
gert. Flestir, og þar á meðal marg
ir hinna beztu listamanna, eru
tekjulægri en fátækustu verka- j
menn og hlutur listanna yfirleitt
vanmetinn meira en margt það,
sem manneskjunum er þó þýð-
ingarminna. Hér á landi er inn-
lend bókaframleiðsla t.d. enn,
skattlögð mjög verulega til þess
að halda niðri innkaupsverði á
erlendum myndablöðum og kvik- 1
myndarómönum, þeim sem þó
hafa átt mestan þátt í að kippa
fótunum undan þjóðrækni og
heilbrigðu lífsmati æskunnar og ;
hafa minnkað viðnáms- og starfs- j
þrótt hennar meira en tvær
heimsstyrjaldir, og enn er því
jafnvel trúað sumsstaðar á hærri
Stöðum, að listamenn þurfi að
Vera fátækir og jafnvel hungr-
aðir — og þá væntanlega börn
þeirra sömuleiðis — til þess að
þeir geti skapað listaverk, af því
að reynslan sannar að margir
menn úr öllum stéttum falla ár-
lega úr ofáti engu síður en úr
fátækt og áhyggjum, óminnugir
þess að það eru einmitt sömu
mennirnir sem lifa af hungur og
þjáningar og þeir sem hafa nægi-
lega sterk bein til að þola góða
daga. Magnús Ásgeirsson var
einn þeirra listamanna, sem eyddi
of miklum tíma í að verjast
hungri og kulda.
Listamennirnir eru í öllum
löndum þeir, sem framar öðr-
um skapa menningu þjóðanna og
lífsviðhorf. Þó hafa fæstir þeirra
nema eitt vopn og tæki, penna
eða pensil. Slíkur er þrátt fyrir
allt, máttur listarinnar í heimin-
um. Og það eru ekki heldur mikl-
ar líkur til þess að við fáum þeim
að sinni fljótvirkari vinnuvélar.
Verk þeirra verða því aldrei veg-
in á vog eða mæld á kvarða. En
það, sem hefir í sér hinn hvassa
lífsbrodd, er furðu áleitið og
kemst af með fáorðari áróður en
hitt, sem gert er úr gerfiefnum.
Þó eru ný listaverk af skiljan-
legum ástæðum ákaflega oft van-
metin, jafnvel af þeim, sem beita
sig hörðustum aga til þess að fá
skilið samtíð sína. Listamönnum
er þó oft jafn nauðsynlegur skiln-
ingur og samgleði eins og nátt-
úrunni sem fætt heíir af sér nýtt
líf. Sá tómleiki, sem sest að lista-
mönnum er þeir hafa Iokið við
mikil verkefni, líkist oft því að
horfa í opna uppistöðu við afl-
stöð, sem skyndilega hefir verið
tæmd til þess að auka afköst
hennar. Þar stendur fyrir sjónum
áhorfandans grár og tómlegur
lónbotninn og mönnum verður
ósjálfrátt á að spyrja, hvort hér
muni nokkurn tima safnast aftur
nógu margir dropar í svo stórt
haf. Til þess að fylla þetta tóma
hol verður mörgum listamönn-
um á að grípa til ýmissa örþrifa-
ráða til þess að flýta fyrir eðli-
legu aðrennsli.
Fleiri en listamenn einir
þekkja þessa tilfinningu að loknu
erfiðu átaki. Ýmiskonar andleg
störf eru þannig vaxin að óhjá-
kvæmilegt reynist að safna kröft-
um til glímunnar við viðfangs-
efni daglegs lífs, en við eigum
alltaf þann heillandi kost að grípa
til verka listamannanna og láta
þau fylla þetta hræðilega auða
rúm í sálinni, eyða þessum sker-
andi tómleika hugans, sem oft
fær bugað hina hraustustu menn,
sem ekki þekktu hinn endur-
nýjandi kraft, sem listin býr yfir.
Engin meðöl eru manninum eðli-
legri og hollari en góð listaverk
til þess að fá lífsvélina aftur í
gang, auka aðstreymi blóðs og
lífslofts að orkustöðvum sálar-
innar, svo við fáum gengið sæl
og starfsglöð móti nýjum við-
fangsefnum, sem lífið stöðugt
hrindir í veg fyrir okkur. En þá
gleymist okkur alltof mörgum,
að minnast þeirra, sem veittu nýj-
um krafti í æðar okkar og taugar,
og sú viðurkenning, sem þeir fá
í sinn hlut, er grátlega smá, mið-
að við það, sem við hinir berum
úr býtum af starfi þeirra.
Meðal þeirra skáldverka, sem
listelskt fólk grípur oftast til,
munu vera hinar snilldarlegu
þýðingar Magnúsar Ásgeirssonar.
Flestar eru þær magnaðar kyngi-
krafti norræns anda, og þó angar
úr hverri línu ilmgróður fjar-
lægrar ættar.
Magnús var einn stórbrotnasti
persónuleiki, sem ég hefi kynnst.
Allt sem hann snerti á varð stórt
og þýðingarmikið. Hann var
drenglyndur og stórlyndur, og þó
að hann reyndi oft á þolrif vina
sinna, var hann ákaflega trygg-
lyndur. Hann var einarður og
markviss gagnrýnir og skjótráð-
ur og öruggur leiðbeinandi allra,
er til hans leituðu, enda ráðgjafi
margra yngri skálda um listræn
vinnubrögð. í nálægð Magnúsar
hlaut manni oft að finnast að
margt það væri lítið og lágt, sem
lifað var fyrir í þessari yfirborðs-
fáguðu veröld okkar. Leiðir hans
lágu aldrei um alfaraveg. Þó að
hann stigi sjálfur þungt til jarðar
og væri oft gustmikill í fasi, lík-
ast því sem þar færi stórvaxið
fornaldardýr, óvant nýtízku veg-
um, þá kunni hann illa véla-
skrölti og þeirri háværð, sem
fylgir erli fjöldans og vafstri. Það
rúm sem hann skilur eftir á heim-
ili sínu og í hugum vina sinna er
sem heil tóm veröld þar sem
menn eitt sinn ferðuðust um viða-
mikinn og safaríkan gróður.
Ragnar Jónsson.
Framh. af bls. 9
hvammi. Var byrjað á trjáuppeldi
árið 1950 og tekur það nú yfir
2 ha. svæði samtals. Eru þar á
4. hundrað þúsund trjáplöntur í
uppeldi nú
RÓSIR RÆKTAÐAR í 3500 ferm.
Þar sem áður voru ákaflega ó-
frjóir móar og jarðgrunnt, er nú
risið upp stærsta gróðurhúsa-
hverfi á landinu. Ingimar Sig-
urðsson var fyrsti landneminn
á þessu athafnasvæði framtíð-
arinnar. Hann hefur unnið þar af
miklum dugnaði og bjartsýni
brautryðjandans og komið þarna
upp stórri garðyrkjustöð, hvar
hann ræktar rósir í 3500 ferm.
gróðurhúsum, en allskyns græn-
meti, vínber o. fl. í 500 ferm.
Og þessi stöð er einnig snyrti-
legasta garðyrkjustöð á landinu
og þó víðar væri leitað, að því
er kunnugir herma.
Langt er síðan Ingimar Sig-
urðsson seldi grænmeti á bak
við Iðnó og margt er breytt.
Áður var allt unnið með' hand
verkfærum, en nú eru vélar
komnar í þeirra stað. íslenzki
garðyrkjubóndinn sækir á
jafnt og þétt, hann leitar stöð-
ugt aukinnar þekkingar á gróð
urmætti jarðar til aukningar
uppskeru sinnar og gæðameiri
afurða, enda er framleiðsla
hans augljóst vitni þess, að
hér er stefnt í rétta átt. Einnig
tala sínu máli hinar ört vax-
andi gróðurhúsastöðvar, sem í
flestum tilfellum eru reknar
með hinum mesta myndar-
brag. Og að síðustu má geta
þess, að afurðaverð íslenzkra
garðyrkjubænda er fyllilega
sambærilegt við hliðstæðar
afurðir í nágrannalöndum
okkar, þrátt fyrir það, að garð
yrkjubændur hér hafa fengið
lítinn sem engan stunðning frá
því opinbera eða lánastofn-
unum allt til þessa.
—ht.
Stór 5 herbergja
íbúð á hitaveitusvæði í Vesturbæ er til leigu 1. okt.
n.k. Tilboð merkt: „Vesturbær —354“, sendist afgr.
blaðsins fyrir 18. þ. m.
SKRiFSTOFUSTIJLKA
óskast. Þarf að kunna vélritun. Tilboð merkt: Siðprúð
•—358, sendist afgr. Mbl. fyrir 15. ágúst n.k.
SkemiiferfSir frá
BSÍ um næsiu helgi
BIFREIÐASTÖÐ íslands efnir til
nokkurra skemmtiferða um
næstu helgi, eins og að undan-
förnu. Á föstudagskvöld kl. 10
hefst skemmtiferð í Mývatns-
sveit. Verður ekið í svefnvagni
til Akureyrar, en þaðan verður
ekið fyrri hluta laugardags upp
í Mývatnssveit með viðkomu í
Vaglaskógi, við Goðafoss og víð-
ar. Dvalið verður í Mývatns-
sveit allan sunnudaginn og fram
á mánudag, farið í Slútnes,
Dimmuborgir og Námaskarð. —
Heimleiðis verður haldið á mánu
dag og farið frá Akureyri á
mánudagskvöld með svefnvagni.
Þá efnir B.S.Í. til tveggja daga
ferðar um Snæfellsnes og Borg-
arfjörð um næstu helgi. Lagt
verður af stað á laugardags-
morgun kl. 8,00 og ekið vestur að
Arnarstapa með viðkomu að
Búðum og víðar. Þaðan verður
ekið til Stykkishólms og gist þar.
Frá Stykkishólmi verður farið
á sunnudagsmorgun og ekið um
Skógarströnd til Hreðavatns,
þaðan að Reykholti, síðan niður
Bæjarsveit, inn Lundarreykjadal
og yfir Uxahryggi til Þingvalla.
Til Reykjavíkur verður komið á
sunnudagskvöld.
Þá efnir B.S.Í. til hinna venju-
legu sunnudagsferða =inna. Kl.
9,00 hefst Borgarfjarðarferðin,
ekið um Dragháls til Hreðavatns,
þaðan að Reykholti niður Bæj-
arsveit, inn Lundarreykjadal og
yfir Uxahryggi til Reykjavíkur
með viðkomu á Þingvöllum. Að
Gullfossi og Geysi verður einnig
farið kl. 9,00, ekið upD Hreppa
að Gullfossi, þaðan að Geysi og
stuðlað að gosi
Kl. 13,30 verður Krvsuvíkur-
hringferðin farin.Helztu viðkomu
staðir á þeirri leið eru Krýsuvík,
Strandakirkja, Hveragerði, Sogs-
fossar og Þingvellir.
DANSKA VIÐSKIPTASKRÁIN
Fáein eintök fyrirliggjandi.
0. KORNERUP-IIANSEN
Suðurgötu 10 — Sími 2606.
m-O-TILE
PLASTVEGGDUKURINN ;
■
ER KOMINN AFTUR 5
MAN-O-TILE er mjög auðvelt að hreinsa, þolir sápu-
lút og sóda án þess að láta á sjá.
MAN-O-TILE fæst í mörgum litum.
MAN-O-TILE er ódýrt.
MAN-O-TILE er límdur á með gólfdúkalími
IUálning & Járnvörur
LAUGAVEGI 23 — SÍMI 2876.
ATL AS
vatnshelda gólfdúkalímið er komið aftur.
IVtálning & Járnvörur
LAUGAVEGI 23 — SÍMI 2876
Borð-
Stiga-
Veggplötu-
skinnur
(Hálning & Járnvörur
LAUGAVEGI 23 — SÍMI 2876
PLASTIKVÖRUR
Naglaburstar Borðdúkar
Fatapokar Gluggatjaldaefni
Regnslár Konfektskálar
Regnhettur Brauðbakkar
Málbönd Hárburstar, 3 tegundir
Fingurbjargir Blómsturpottahlífar, 3 gerðir
Svuntur Skrautbox o. fl. plastikvórur.
Heildsölubirgðir:
ÍSKENZK-ERLEMDA
VERZLUMARFÉLAGIÐ H.F.
*
í
3
3
■(
■
1
■
i
m
*
5
Garðastræti 2
Sími 5333
2ja herbergja íbúð
óskast fyrir reglusama fjölskyldu.
Upplýsingar í síma 5667.
i