Morgunblaðið - 26.08.1955, Síða 2
MORGVNBLAÐ19
Föstudagur 26. ágúst 1955 j
Myndin var tekin í gær af stjórn Flugmálafélagsins og þýzka flug-
kappanum. Talið frá vinstri: Helgi Filippusson, Jón Pálsson, Wolf
Hirt, Björn Pálsson og Hákon Guðmundsson. — Ljósm. Ól. K. M.
Ffaag sportflugvé! frá snegin-
landiiiia hingað fyrir 15 árum
Þýiki ffugkappinn Wolf Hir! dveist hér
í boði Flugméiafélagsins
FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS hefur boðið hingað til lands þýzka
flugkappanum Wolf Hirt, en árið 1930 flaug hann lítilli sport-
flugvél til íslands frá meginlandinu og lenti á landi fyrstur manna.
Með Hirt í fluginu var þýzkur blaðamaður Weller að nafni.
12 KLST. FLIJG
Flugvél sú er Hirt flaug
hingað til lands og lenti í Kald-
aðanesi 1. ágúst 1930, var lítil
tveggja manna sportflugvél með
aðeins 40 ha. hreyfli. Flugið frá
Shetiandseyjum til íslands tók
rúmlega 12 klst.
Blaðamönnum var í gær boðið
tii kaffidrykkju með Hirt og
stjórn Flugmálafélagsins. Agnar
Kofoed-Ufansen flugmálastjóri
kynnti fíúgkappann fyrir blaða-
fnönnumbg komst hann m. a. svo
að orði um Hjrt og þetta einstæða
flug hans hingað árið 1930:
SKEIKAÐI AÐEINS
25—30 KM
— Þetta flug var mjög merki-
legt, fyrir margra hluta sakir. Til
dæmis þa.ð,að Hirt varð fyrstur
manna trl þéss að lenda á flug-
vél á landi eftir flug til íslands
frá meginlandinu. Flugvél hans
var mjög lítil og ekki knúin afl-
tneiri hreyfli en 40 ha. Hann hafði
engin blindflugstæki — engin
tæki nema hráðamælir og fremur
'títilfjörlegan áttavita, en þegar
flogið er á norðlægum slóðum
eru áttavitanálarnar á sífelldu iði
svo erfitt er að halda réttri
stefnu. En þetta tókst Wolf Hirt
svo ótrúlega vel að ekki skeikaði
nema 25—30 km.
ÆTT..Af)I til u.s.a.
Ákvörðun Wolf Hirt var sú að
fljúga héðan til Bandarikjanna,
en af því gat ekki orðið þar eð
hann gat ekki fengið þær benzín-
birgðir, sem hann nauðsynlega
þurfti á Grænlandi. Tók hann sér
því far méð skipi héðan til Banda
ríkjanna, þar sem hann dvaldist
í 8 mán. og flaug mjög víða þar
þann tíma.
•s#
BRAUTRYÐJANDI
I FLTJGLISTINNI
Wolf Hirt er heimskunnur
flugmaður, bæði sem svifflugs-
Og vélflugsmaður. Hefur hann
tekið þátt í ótalmörgum mótum
um heim allan og ekki ósjaldan
sigrað í keppnum.
Hann hefur verið brautryðj-
andi á ýmsum sviðum fluglistar-
innar. T. d. varð hann fyrstur
manna til þess að nota hitaupp-
streymi og einnig fjallabylgju-
uppstreymi, sem nú er viður-
kennt að vera eitt hið allra þýð-
ingarmesta, ekki aðeins í svif-
flugi, heldur og í vélflugi og
veðurfræði. Hirt hefur haldið
heimsmeti í ýmsum greinum
flugsins.
...... ............. .
Frá lokum síðari heimsstyrj-
aldarinnar hefur Hirt starfað við
verksmiðju sína sem framleiðir
svefnvagna, en nú eftir að leyfð
hefur verið smíði f lugvéla í
Þýzkalandi, hefur hann hafið
smíði svifflugna og vonast til að
geta smíðað hreyfla í flugvélar
innan tíðar.
HELDUR FYRIRLESTUR
í KVÖLD
Flugmálafélaginu þótti tilhlýði
legt að bjóða Wolf Hirt hingað
til lands í tilefni þessa afmælis
flugs hans til íslands. Mun Hirt
flytja fyrirlestur og sýna skugga-
og kvikmyndir á fundi Flugmála-
félagsins í kvöld í Tjarnarkaffi,
uppi. Er öllum heimill ókeypis
aðgangur að fundinum. Hirt mun
flytja fyrirlesturinn á ensku.
HELSINGFORS — Aðalritari
miðstjórnar kommúnistaflokks-
ins í finnska lýðveidinu á Kar-
elska-eiðinu var nýlega „settur
af“. Heitir sá Alexander Egerov,
og flokksblaðið Leninskaja
Pravda, skrifar, að hann hafi
gert sig sekan um mikla van-
rækslu í starfi sínu. Maður að
nefni Leonide Loubennikov tek-
ur við starfi hans.
Alþjóða eftirlil með
friðsamlegri hagnyf-
ingu kjarnorkunnar
GENF, 25. ágúst. — Reuter-NTB.
— Kjarneðlisfræðingar frá sex
löndum hafa síðan á mánudag
rætt i Genf, hversu megi koma á
alþjóða eftirliti með friðsamlegri
hagnýtingu kjarnorkunnar. Eru
þessar viðræður í framhaldi af
alþjóða kjarnorkuráðstefnunni
er lauk í Genf s.l. laugardag.
Hafa þeir orðið sammála um,
hvernig haga beri slíku eftirlits-
kerfi, en ekki upplýst niðurstöð-
ur sínar ennþá. Vísindamennirn-
ir eru 30 — frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Kanada, Frakklandi,
Ráðstjórnarríkjunum og Tékkó-
slóvakíu.
K
Gunnar Kristinsson syngur ein-
söng á miðnæturskemmtun
Stjörnukabarettsins í Austur-
bæjarbíói í kvöld.
OMINN er út 50. árgangur
Búnaðarblaðsins Freys í
einu myndarlegu riti, sem er yfir
300 blaðsíður að stærð. Vegna
hálfrar aldar afmælis blaðsins
hefir ritinu verið valinn annar
búningur en hinni venjulegu út-
gáfu.
Efni ritsins er skipt í þrjá
meginkafla: I. Af heimaslóðum,
II. För íslenzkra bænda til Norð-
urlanda árið 1953 og III. Frá
vettvangi frænda vorra.
Höfundar eru sem hér segir:
Benedikt Grímsson, bóndi Kirkju
bóli, Einar Ólafsson, bóndi Lækj-
arhvammi, Erlingur Guðmunds-
son, Melum, Gísli Kristjánsson,
ritstjóri, Guðmundur Jósafatsson,
bóndi Austurhlíð, Guðmundur
Þorvaldsson, bóndi Litlu-Brekku,
Hafliði Guðmundsson, bóndi
Búð, Halldór Stefánsson, fyrrv.
bóndi og alþm., Hallgrímur Þor-
bergsson, bóndi Halldórsstöðum,
Hjörtur Jónsson, bóndi Reykja-
vík, Hörður Sigurgrímsson, bóndi
Holti, Ingvar Ingvarsson, Hvít-
árbakka, Biskupstungum, Jón
Björnsson, bóndi Miðbæ, Norð-
firði, Jón Jónsson, bóndi Hofi á
Höfðaströnd, Kristinn Sigurjóns-
son, bóndi Brautarhóli, Pálmi
Einarsson, landnámsstjóri, Sig-
steinn Pálsson, bóndi Blikastöð-
um, Steingrímur Steinþórsson,
Sveinn Skúlason, bóndi Bræðra-
tungu, Sæmundur Friðriksson,
framkv.stj., Sæmundur Guð-
jónsson, bóndi Borðeyri, Sören
Bögeskov, bóndi Reykjavík,
Vernharður Sigurgrímsson, bóndi
Holti, Vilhjálmur Þórðarson,
Reykjum, Skeiðum, Þórður Hall-
dórsson, múrari Reykjavík, Þor-
ironstein nð Inrn irnm
úr keppinnutunum
Efstur eftir fimmtu umferð skákmótsins
í Gautaborg
EFTIR fimmtu umferð í alþjóðaskákkeppninni í Gautaborg er
Bronstein nú hæstur að stigatölu og sýnir það örugglega, að
hér er stórmeistari á siglingu. Var m. a. athyglisvert í síðustu um-
ferð, hve hann sigraði Hollendinginn Donner með miklum glæsi-
brag. Virtist Bronstein ekki hafa sérlega mikið fyrir því.
BRONSTEIN EFSTUR
Staða hinna efstu á mótinu
er nú sem hér segir: Bronstein
frá Rússlandi með 3'/j stig og
eina sterka toiðskák, Ilvitsky
og Panno báðir með 314 stig.
Lárus Johnsen efstur
í sínum riðli. Landar
hans nr. 2 og 3 í öðrum
URSLIT eru nú kunn frá Norðurlandaskákmótinu í Oslo. Eins og
kunnugt er urðu þeir efstir jafnir, Friðrik Ólafsson og Bent
Larsen í landsliðsflokki og hefur sá síðarnefndi skorað á Friðrik
til einvígis um meistaratitil Norðurlanda.
í meistaraflokki voru tveir riðlar. í öðrum vann Svíinn Ander-
sen, sem talinn var sigurstranglegastur frá byrjun, en Ingvar Ás-
mundsson varð nr. 2 og fylgdi honum mjög vel á eftir. í hinum
riðlinum varð Lárus Johnsen efstur.
Lokastaðan í Landsliðsflokki
var hér hér segir: Friðrik og
Bent Larsen með 814 stig, Ingi R.
Jóhannsson og Nielsen með 7,
Vestöl 6, Hildebrand og Sterner
5, Guðjón og Martinsen með 414,
Khara 4, Haave 314, Niemela 214.
í Meistaraflokki urðu þessir
efstir:
A-riðilI: Andersen 9, Ingvar
Asmundsson 8, Arinbjörn 6, Nils-
son og Störe 514. í síðustu um-
ferðinni vann Arinbjörn Lönblad.
B-riðilI: Lárus Johnsen 814 v.,
Körling 714, Heilimo, Dinsen og
L. Lund 614 og Jón Pálsson 6.
í síðustu umferðinni vann Lárus
Johnsen Jón Pálsson.
GÓÐ FRAMMISTAÐA
Af þessum úrslitum verður það
Ijóst að íslendingar mega vel við
una úrslitum þessarar keppni. —
Að vísu gerðu menn sér vonfr
um að Friðrik myndi endanlega
vinna. En athyglisvert er, að Ingi
R. Jóhannsson varð þriðji í Lands
liðsflokki, í A-riðli eiga íslend-
ingar annan pg þriðja mann og í
B-riðli fyrsta mann.
Fuderer með 3 stig og eina
biðskák, Gcllcr með 3 stig,
Keres með 214 og eina toið-
skák, Filip og Szabo með 214
stig. Eini Norðurlandamaður-
inn, sem þátt tekur í mótinu,
Stálberg er með eití stig, eina
biðskák og tvær skákir sem
hann á eftir ótefldar úr fyrstu
og annarri umferð.
STALBERG AÐ NÁ SÉR
Á STRIK
Fimmta umferðin var tefld á
mánudaginn. Þá tefldi Stálberg
frá Svíþjóð við Bisguier frá
Band.aríkjunum. Var það mjög
tvísýn skák. Stálberg komst í
tímahrak og missti því góða
möguleika. En þegar skákin fór
í bið átti hann þó sterkari stöðu.
VIRÐULEGAR OG VARKÁRAR
SKÁKIR
Geller og Keres léku hreina og
einfalda skák sem varð jafntefli
og sama varð milli Petrosjan og
Ilivitsky. Einnig varð snemma
jafntefli í skákum milli Panno
og Filip, Pachman og Szabo.
Fram til þessa virðist mót
þetta einkennast af varkárum
leik og er eins og skákmeistarar
þessir allir viðurkenni í aðferð-
um sínum, að keppinautarnir eru
sterkir og hættulegir.
I
kell Helgason, bóndi Reykjavík,
Þorsteinn Guðmundsson, bóndl
Skálpastöðum og Þorsteinn Sig-<
urðsson, bóndi Vatnsleysu.
Ritið er prentað á góðatí
pappír og prýtt íjölda mynda.
Núverandi ritstjóri Freys e0
Gísli Kristjánsson.
i
!Br
BEZT AÐ AUGLtSA
t MORGUNBLAÐINU
F'ramh. af bls. 1
viðræðunum. Kvaðst hann vona,
að gagnkvæm skipti á skoðunumi
yrðu til þess, að fulltrúarnir gætu
komizt að samkomulagi um lausii
Marokkó-málanna.
FuIItrúar Istiqlal-flokksins á«
Iíta lausn deilunnar um so'dán*
ana höíúðskilyrði fyrir því að tak
ast megi að mynda stjórn í Mar*
okkó. Franska stjórnin mun vera
fús til að víkja Ben Arafa Ú0
embætti, en kveðst munu halda
áfram að reyna að uppræta
flokka skæruliða í landinu.
★ ★ ★ r
Óstaðfestar fregnir herma, að
hinn 83 ára gamli soldán Berl
Arafa búi sig undir að stíga nið-
ur úr hásæti sínu og halda til
Tangier, og það kynni því að
fara svo, að Frakkar yrðu vi3
kröfu Marokkó-búa um, að Beri
Jussef fengi að snúa heim aftur.
Hann hefir verið undanfarin tvij
ár í útlegð á Madagascar.
í dag hefir frönskum blöðurnt
orðið mjög tíðrætt um, að Gil-<
bert Grandval, landstjóri Frakkk
í Marokkó, hafi beðizt lausnaB
s.l. fimmtudag, en Faure for*
sætisráðherra, hefir borið þá
fregn til baka. Dagar hans sent
landstjóra eru taldir, annað
hvort verður hann að segja af
sér af frjálsum vilja eða stjórniní
verður að víkja honum úr emb*
ætti, segir eitt blaðið.
★ ★ ★ 't1
Tæki franska stjórnin þeJi9i
skref væri það með tilliti ' it
hægri flokkanna í franska þir/*
inu, sem eru mjög andv' ip
stefnu hans í Marokkó g
franskra landnema í Marokk''
álíta Grandval allt of sáttf:' p
í garð þjóðernissinna. Hefir I..i
andúð á Grandval þegar gr
sýrt nánustu samstarfsmenn 1 -g
i Marokkó. Yfirmaður frar i
hersins í Marokkó, Georges " -
ile Leblanc, hefir sagt af sér. ' r
sem Grandval hafi „ekki r 5
honum frjálsar hendur í vi' -
eigninni við hermdarverkarm vi
í Marokkó"-. f
★ ★ ★
Segja sum frönsku blöði” f
friði verði ekki komið á í
olckó, fyrr en tveir menn, ser ít
bíða átekta hvor í sinni höll :
bat, segi af sér. Þeir Grandvr.I tj
Ben Arafa.
★ ★ ★
Kyrrð ríkir nú í borgum
okkó og Algier, en franskt hr 5
heldur áfram sókn sinni r i
skæruliðum í Atlas-fjöllur-
en þeim er kennt um blóðb'
er varð í héraðinu umhvc ■ ;
Oued Zem s.l. helgi.
Fréttaritari Reuters skrifa- 5
franskir hermenn hafi lagt m -
ur þorp á þessu svæði í ey'" í
hefndarskyni. Þorpsbúar m’ t
hafa skotið skjólshúsi yfir skæ:.u-
liða.
★ ★ ★
Pierre Clostermann, sem -r
einn af fulltrúum Marokkó-! t
í franska þinginu, gekk í dag t
af viðræðufundi lýðveldisflok’ -
ins í mótmælaskyni við ummr i
formannsins, Raymond Schnit '-
ein, en hann styður stefnu stjór -•
arinnar í Marokkó. Lýsti Clostr •-
mann yfir fylgi sínu við stefr.u
Grandvals.
Það var tilkynnt í Washingtc i
í dag, að Arabalöndin hefðu í
sameiningu snúið sér til band. -
rísku stjórnarinanr og skorað á
hana að gera allt sem í hennsr
valdi stæði til að sannfæra
frönsku stjórnina um réttmætl
þeirra krafa, er Marokkó: og
Álgier-búar hafa borið fram. j