Morgunblaðið - 08.09.1955, Side 1
16 síður
42. árgangur
203. tbl. — Fimmtudagur 8. september 1955
PrentsmiSJa Morgunblaðsina
Horfur versna við austanvert lifliðjarðarhaf
Sundrung Tyrkja og Grikkja
Jopiter í ísnum.
KAUPMANNAHÖFN, 7. sept. — Skyggni er svo slæmt, að björg-
Norska hvalveiðaskipið Tottan unarstarí af hálfu Tottans manna
var síðdegis í dag í 7 sjómílna getur ekki komið til greina, og
fjarlægð frá Álasundsskipinu verður að bíða betra veðurs.
Jopiter, sem verið hefir í hrakn-
ingum í Grænlandsísnum und-
anfarin dægur. Skipið missti
skrúfuna í ísnum fyrir helgina.
Tottan væri þegar komið að
Jopiter, ef þokan tefði ekki sigl-
ingu. —NTB.
Kauphækkunarstríðinu
að Ijúka í Bretlandi
— og vestanvert
Uppreisn
gegn stjórn
Faures
„Innrás"
Þjóðverja
í Moskvu
Bonn, 7. sept.
ANNAR aðalforingi sosial-
demokrata í V-Þýzkalandi,
Carlo Schmid, verður í för
með Adenauer kanslara er
hann fer til Moskvu á morg-
un (fimmtudag).
Utanríkismálanefnd þýzka þings
ins (Bundestag) var kölluð heim
úr sumarleyfi til þess að hlýða á
skýrslu Adenauers kanslara um
hina væntanlegu samninga í
Moskvu og eftir fund nefndarinn-
ar í dag var skýrt frá því að sú
ákvörðun hefði verið tekin að
Kiesinger, formaður nefndarinn-
ar, sem er úr flokki dr. Aden-
auers og Carlo Schmid skyldu vera
með í austurförinni.
Adenauer er væntanlegur til
Moskvu um miðjan dag á morgun.
1 för með honum verður Heinrich
von Brentano, utanrikismálaráð-
herra, Walter Hallstein, Felix von
Eckhardt og von Blanken-Horn,
fulltrúi Þjóðverja í aðalstöðvum
Atlantshafshandalagsins.
Talsmaður utanríkismálanefnd-
ar þýzka þingsins lagði á það
áherzlu í dag, að för dr. Aden-
auers til Moskvu væri gerð til þess
„að leita hófanna" um sameiningu
Þýzkalands, en Þjóðverjar gerðu
sér engar vonir um að ákvarðanir
um þetta efni myndu verða te'kn-
ar að þessu sinni. Allar endanleg-
ar ákvarðanir myndu verða tekn-
ar á ráðstefnu utanríkismálaráð-
herra fjórveldanna, sem haldinn
verður þ. 27. okt.
Þjóðverjar myndu ekki tengjast
neinum böndum í austurvegi sem
stofnað gætu í hættu vináttu
þeirra við vestrænar þjóðir.
Eússar hafa mikinn viðbúnað
undir móttöku dr. Adenauer á
morgun. Búizt cr við að Molotoff
utanríkisráðherra taki á móti
kanslaranum á flugveilinum, en
síðar gangi Þjóðverjarnir á fund
hinna æðstu manna í Kreml.
Samningafundirnir hefjast á
föstudagsmorgun og er gert ráð
fyrir að þeir standi í fimm daga.
Opinberlega er sagt að fundirnir
eigi að f jalla um stjórnmálasamb.
milli sovétríkjanna og V-Þýzka-
lands og ennfremur menningar-
legt og viðskiptalegt samband.
MOSKVA 7. sept. — 65 manna
„sendiráð Þjóðverja á hjólum“,
kom til Moskvu í dag. Sendiráðið
kom í sérstakri 13 vagna járn-
brautarlest og er það fyrsta þýzka
lestin sem kemur til Sovétríkj-
anna frá því að stríðinu lauk.
f lestinni er sérstakur útvarps-
salur, hljóðeinangraður fundasal-
ur og matbúr með þýzkum bjór
og þýzkum bjúgum.
Rússarnir hafa látið sendiráð-
inn í té eitt nýjasta og fullkomn-
asta gistihúsið í Moskvu og hafa
Þjóðverjarnir það til eigin um-
ráða.
Fjöldi þýzkra blaðamanna og
útvarpsmanna eru í föruneyti
kanslarans og hafa sovétsk yfir-
vold heitið því að allar frétta-
Séhdingar til Þýzkalands skuli fá
að vera óháðar ritskoðun.
Southport, 7. sept.
Á ÁRSÞINGI brezku verklýðs-
félaganna í Southport hafa hinir
hyggnari forystumenn í brezk-
um verklýðsmálum náð undir-
tökunum og í gær var felld til-
laga frá sambandi rafvirkja, sem
gekk í þá átt að kauphækkunar-
kröfum skyldi haldið til streitu
og að sambandsstjórnin hefði
ekki heimild til þess að setja
neinar hömlur í þessu efni.
Sambandi rafvirkja er stjórnað
af kommúnistum.
Með því að fella þessa tillögu
hefir sú stefna sigrað að fara
varlega í kauphækkunarkröfur,
Stærsfu árannámur
heims í Svíþjóð!
STOKKHÓLMUR 7. sept. Skammt
frá Örebro ■ Mið-Svíþjóð hafa
fiindizt úran námur, sem sumir
telja hinar mestu í heimi. Efnið
er aðgengilegt, svo að öruggt er
að það borgar sig að vinna það.
Fyrst í stað munu Svíar nota þess-
ar uran námur eingöngu til eigin
þarfa.
Fóm læknisins
MILANO (Reuter): — Luigi Val-
dini, prófessor í borginni Salo við
Garda vatn lét annan handlegginn
á skurðarborðinu á laugardaginn,
en hann hafði fengið krabbamein
í handlegginn við það að hand-
leika röntgengeisla við vísinda-
störf sín. Sams konar slturðaðgerð
var framkvæmd á starfsbróður
hans, Maria Ponzio, prófessor við
háskólann í Turin í júlí síðastliðn-
um.
Þetta eru nýjustu dæmin í gam-
alli sögu um fórn þá er læknar
færa vísindagrein sinni.
þar sem kauphækkanir myndu
aðeins leiða til minnkandi sam-
keppnisgetu Breta, þar af leið-
andi minnkandi útflutnings og
minnkandi atvinnu.
Tillaga rafvirkjasambandsins
var felld með 214 millj. atkv.
meirihluta (af samtals 8 m’illj.
atkv.).
TiIIaga um að dregið skuli úr
eftirvinnu og krafist skuli 40
klst. vinnuviku var felld með
600 þús. atkv. mun.
Tillaga um að fjölgað skuli
þjóðnýttum atvinnugreinum var
felld með milljón atkv. mun.
Hættuleg ökuferð fjögra
ára drengs
VÍNARBORG. — Fjögra ára
drengur stofnaði lífi vegfarenda í
mikla hættu er hann ók bíl föður
síns um götur Vínarborgar.
Ökuferðinni lauk með árekstri
á múrvegg. En áður hafði dreng-
urinn ekið á fullri ferð niður
brekku og um borgarhluta, þar
sem umferð var mikil. Drengurinn
skreið ómeiddur út úr stórlöskuð-
um bílnum.
Vestisvasastríðið
hefst aftur
TAIPEH, Formósu, 7. sept. —
„Vestisvasa“ stríðið á Formósu-
sundi hófst aftur um helgina,
eftir nokkurra mánaða hlé. Fall-
byssur Kínakommúnista hófu að
skjóta á Quemoy eyju og á sunnu
daginn stóð skothríðin til kvölds.
Townsend í London
LONDON 7. sept. — Peter Towns-
end er kominn til London, en hann
hefur eklci komið þangað frá því
í september í fyrra.
Róð Atlantshnfs-
bandalagsins
hvatt ó
skyndifund
LONDON í gærkvöldi.
Á Ð Atlantshaf sbanda-
lagsins hefir verið hvatt
saman til skyndifundar í
París í fyrramálið til þess að
ræða viðhorf sem skapazt hef
ir í sambúð Grikkja og
Tyrkja út af deilum þessara
þjóða um eyna Kýprus.
Fundur þessi var boðaður
eftir að kunnugt varð að þrí-
veldafundur Breta, Grikkja
og Tyrkja um Kýprusmálið
hafði farið út um þúfur í
London.
Óttast er að hin óvæntu enda-
lok Lundúnafundarins kunni að
hafa alvarlegar afleiðingar í för
með sér og vekja nýjar væringar
við austanvert Miðjarðarhaf.
FUNDURINN SPLUNDRAÐIST
EFTIR TÍU DAGA
Fundurinn í London hafði
staðið í 10 daga. Greinilegt var
að Grikkir ætluðu ekki að sætta
sig við annað en að Cyprusey
yrði sameinuð Grikklandi, en
Bretar vildu ekki ganga lengra
í samkomulagsátt lieidur en að
veita eyjaskeggjum sjálfstjórn í
öllum málum öðrum en utan-
ríkis-, varnar- og öryggismálum.
Tyrkir töldu fyrir sitt. leyti að
jafnvel þessi sjálfstjornartillaga
Breta gengi of langt til móts við
Grikki, sem með henni fengju
öll æðstu völd í heimamálum
á eynni.
Úrslitum um það að Lund-
únaráðstefnan fór út um þúf-
ur réðu þó miklar óspektir,
sem urðu í tyrknesku borgun-
um Istanbul og Izimir í fyrra-
kvöld og í gær. Fór æstur
lýður um götur þessara borga
og gerði aðsúg að grískum
borgurum og kveiktu í grísk-
um sölubúðum.
í Izimir réðist lýðurinn að 15
grískum liðsforingjum, sem eru
þar staddir í stöðvum Atlants-
hafsbandalagsins. — Ókyrrðin í
Tyrklandi er svo mikil og and-
úðin á Grikkjum svo rík að setja
hefir orðið herlög í þrem borg-
um undanfarin kvöld, í höt'uð-
borginni Ankara og í Istanbul og
Izimira.
BÁÐAR í ATLANTSHAFS-
BANDALAGINU
Ástand þetta er þeim mun al-
varlegra, sem báðar þjóðirnar,
Grikkir og Tyrkir, eru í Atlants-
hafsbandalaginu og ouk þess eru
Tyrkir og Grikkir í hernaðar-
bandalagi við Júgóslafa.
Grikkir hafa sent Tyrkjum
harorð mótmæli út af árásinni á
grísku liðsforingjana og kært mál
ið til Atlantshafsbandalagsins.
í óspektunum í Izimira eyði-
lögðust eignir brezkra og sænskra
borgara. Hafa bæði Svíar og
Bretar mótmælt aðförum lýðs-
ins.
Tyrkneska stjórnin hefir látið
í ljós hryggð sína yfir atburðun-
um og heitið skaðabótum.
Harðnandi kröfur
M arokkómanna
París, 7. sept.
GEORGE BIDAULT, fyrrum for-
sætisráðherra, og Letourneau,
fyrrum Indó-Kína-málaráð-
herra, báðir úr kaþólska flokkn-
um í Frakklandi, sem stutt hefir
stjórn Edgars Faure, hafa lýst
yfir opinberlcga andúð sinni á
Marokko-tillögum Faures.
Samtímis vaxandi andspyrnu
stuðningsflokka Faures í franska
þinginu gegn Marokko-tillögun-
um, hafa borizt fregnir um harðn
andi afstöðu þjóðernissinna i
Marokko gagnvart hinni fyrir-
huguðu stjórnarbót.
Leiðtogar Istiqual-flokksing
komu í dag saman á fund í Róma-
borg og að loknum fundinura
spurðist það að flokkurinn myndi
nú herða krÖfur sínar og heimta
að Ben Arafa yrði knúinn til þess
að leggja niður soldánsdóm þeg-
ar í stað. Ennfremur heimtar
flQkkurinn nú, að Ben Youssef,
útlegðarsoldáninn á Madagascar,
samþykki af frjálsum vilja, að
sett verði þriggja manna heima-
stjórn í Marokko og að soldán-
inn setji hina nýju stjórnarmenn
sjálfur í embætti, er hann er kom
inn heim úr útlegðinni til dvalar
í Frakklandi. Ennfremur að eng-
ir þeirra manna, sem stutt hafa
Ben Arafa á undanförnum tveim
árum fái embætti í Marokko
framar.
Talið er útilokað að franska
stjórnin geti gengið að þessum
skilmálum, þar sem með þv£
myndi hún kalla yfir sig fjand-
skap allra þeirra manna í Mar-
okko, sem stóðu að útlegðardómi
Ben Youssefs fyrir tveimur ár-
um. —
Flokksstjórnir þriggja hæg-
fara íhaldsflokka sem styðja
stjórn Faures, komu saman á
fund í París í dag, til þess að
taka afstöðu til hins nýja við-
horfs í Marokkomálinu.
Á meðan þessu hefir farið
fram í París og Rómaborg hefir
sérstakur erindreki Faures. Cat-
roux hershöfðingi, sem á sínum
tíma var kunnur úr Indo-Kína-
styrjöldinni, setið á leynifundum
með Ben Youssef á Madagascar.
STOKKHÓLMUR, 7. sept.
Frá fréttaritara NTB
„F U N D U R utanríkisráðherra
Norðurlanda sýndi enn einu
sinni að öll ríkin fjögur standa
saman þegar um er að ræða mik-
ilvæg mál, sem ráðgert er að
rædd verði á allsherjarþingi SÞ
síðar í þessum mánuði,“ sagði
Halvard Lange, utanríkisráð-
herra Norðmanna við fréttarit-
ara vorn í dag.
Tekin var afstaða til alþjóða
samstarfs um hagnýtingu atom-
orkunnar til friðarþarfa og vilja
Norðurlönd að það sé í sem
nánustu sambandi við Samein-
uðu þjóðirnar. Ennfremur að-
hyllast Norðurlönd þá stefnu að
þátttökuþjóðum í SÞ verði fjölg-
að. —