Morgunblaðið - 24.09.1955, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 24.09.1955, Blaðsíða 7
UORGVNBLAÐIÐ [ Laugardagur 24. sept. 1955 1! — Sigurjón Jónsson Frh. af bls. 2. |jættir í fari hans, enda var oft þörf á þeim stöðu og starfi. Eigi orkar það tvímælis, að í starfi naut hann mikils styrks eigin- konu og heimilis bæði heima og að heiman, og það, ásamt ár- vekni og umhyggju læknisins í hvívetna, glöggsyggni á smáatr- iðin og þýðingu þeirra, gerði allt Bitt til að treysta árangur starfs- ins. Og þótt skapgerðin gæti vald ið óþægindum í starfi stöku sinn- nm, þá jöfnuðust misfellurnar fljótt og samskiptin urðu traust- ari eftir en áður milli læknisins og heimilanna, er hlut áttu að máli, enda var árangur starfsins aðalatriðið. Þegar á reyndi var alúð og umhyggja allsráðandi og gagnkvæmt gleði yfir fengnum Bigri. Má ég þar vel um mæla, því að líklegt er að við systkini hefðum orðið móðurlaus ung ef dæmafá ástundun læknisins hefði eigi bægt dauða frá dyr- Um, og hliðstæða sögu hafa marg ir aðrir að segja. Um skeið var berklaveiki mjög úrbreidd í læknishéraðinu, en þegar Sigurjón fékk að ráða, komust sjúklingar hans strax til víðeigandi læknismeðferðar, enda taldi Sigurður Magnússon, yfirlæknir á Vífilstöðum, Sigur- jón flestum eða öllum læknum snjallari í því að greina sjúk- dóminn og koma fólki til hælis- vistar á réttum tíma. Það mun mála sannast, að lyf- lækningar hafi verið sterkasta hliðin í starfi hans, en fjarstæða var það, sem sumir töldu, að hon- um væri ósýnt um handlæknis- aðgerðir. Sjálfur var ég nokkr- um sinnum viðstaddur þar sem álvarleg slys hentu og lagði hönd til hjálpar Sigurjóni er hann vann þar vandasöm störf, er gáfu hinn ágætasta árangur, og gilti það jafnt hvort um var að ræða brákaða og húðfletta höfuðkúpu, opið brot á fæti eða barnsburð jbar sem um var að tefla lif, hæði móður og afkvæmis. Handlipurð hans í minni augsýn og ágætur árangur af þessum verkum hans voru mér, og aðstandendum hlutaðeigandi sjúklinga, nóg sönnunargögn til þess að votta hæfni læknisins okkar, einnig á þessu sviði. Eða, hve margir héraðslæknar munu hafa gert brjóstholskurð í heimahúsum og fjarlægt ígerð sjúklings, er nýsendur var heim af sjúkrahúsi úr höndum skurð- læknis, sem ekki réði bót á því meini? Þetta gerði Sigurjón læknir árið 1923 með ágætum árangri við maklegan orðstýr. Því meira sem á reyndi, þeim mun öruggari voru handtök hans. Hitt var svo annað mál, að að- húðin á hinum ýmsu heimilum gat stundum torveldað bata eftir læknisaðgerðir, en um það var ékki við lækni að sakast, þó að svo væri stundurh gert. ★ í menningarlífi sveitarinnar spann Sigurjón læknir marga þætti og trausta. Hann hafði um langt skeið umsjón með bóka- vali og bókasafni lestrarfélags- ins. Almenn heilbrigðis- og hrein lætismál lét hann sig mjög miklu skipta og varð ágætlega ágengt á því sviði, einkum eftrr að al- menn læknisskoðun skólabarna var fyrirskipuð. Þá vann hann kappsamlega að félagslegu fram- taki til útrýmingar berklaveiki. Hollvætti reyndist hann líkams- menningu og öðrum menningar- þáttum, sem rækt voru í uro- dæmi hans og hvatti börn sín til þátttöku í þeim með öðrum unglingum sveitarinnar. Almenn mál sveitarinnar lét Sigurjón sig miklu varða og sinnti þeim eftir því sem timi og starfsgeta leyfði. Hann var hraðmælskur, hafði ákveðnar skoðanir og hélt þeim fast fram og stundum svo, að löng leið Og torsótt gat verið til samkomu- lags þegar mest skarst í odda. f ræðu og riti var hann mála- fylgjumaður mikill og hlífðist stundum lítt við og misskildu þeir hann oft, sem ekki kunnu að greina milli þess er sagt var í gamni og hinu, sem var full alvara. Af samskiptum heimilis for- eldra minna og Árgerðisheimilis- ins, og allnánum persónulegum kynnum af lækninum okkar, er mér gleði að því að geta sagt um þennan horfna embættis- mann sveitar okkar, að þar vildi hann hvergi vamm sitt vita, sem hann var við riðinn mál eða starf, og óskaði að sjá það eflast skjótt sem hann lagði hug eða hönd að. Ég var erlendis þegar Sigur- jón lét af embætti og flutti úr héraði. Var mér þá skrifað að heiman: „Veglegt sæti og vand- skipað er nú autt“. Eftir margra ára fjarvistir hitti ég Sigurjón lækni aftur hér í Reykjavik, ald- urhniginn en sístarfandi að vanda, gjörhugull og gagnrýn- andi. Hann var enn svo ungur í anda, þegar ég heimsótti hann á áttræðisafmælinu árið 1952, að honum voru málefni nútíðar- innar jafn hugleikin umræðuefni eins og minningar frá horfinni tíð, enda vann hann svo Jengi sem sjónin leyfði, og þá var skammt til skapadægurs er hann varð að hætta ritstörfum sökum sjóndepru. Með brottför Sigurjóns læknis úr sveit okkar átti hún á bak að sjá mikilhæfum gáfumanni og mætasta embættismanni og nú er hann horfinn úr sveit ágætis- manna þjóðar okkar. Friður og blessun fylgi minningu hans. Gísli Kristjánsson. e Bnrir«rt. Radióviðgerðarstofan GRJÖTAGÖTU 4 Tekur til viðgerðar allar gerðir viðtækja. Fljót og vel framkvæmd vinna. STEFÁN ÞÓRHALLSSON a Matráðskona Aðstoðarmatráðskonu vantar í Klcppsspítalann nú þegar. Laun samkvæmt launalögum. Upplýsingar um stöðu þessa verða gefnar í skrifstofu ríkisspítalanna, Ing- ólfsstræti 12, sími 1765. Skrifstofa ríkisspítalanua. ALUMHMEUIH PLÖTUR ERU OFAR ÖLLU Alumínium er mikað notað á þök og hliðar hverskonar bygginga íbúðar- húsa, skóla, útihúsa og annarra bygg- inga. — Notendur hafa sannfærst um yfirburði þess umfram ýmiss önnur efni. Algeng sjón í dag er alummum plötur á hverskonar húsum, vegna þess hve meðfærilegar plöturnar eru jafnframt því, sem þær eru sterkar og léttar. Fáanlegar hjá umboðsmonnum ALUMINIUM UNION LIMITED THE AÐELPHI, STRAND Umboðsmenn: o \nt icmr LONDON W. C. 2 lAj'uhtÚ cq síux/ddujf, cmj - him -eh (klijtL* lóú&ahvtAð AA. 89.75 Happdrættisíbúð okkar í Hamrahlíð 21, 3. hæð til vinstri, verður til sýnis í dag og á morgun frá klukkan 2—6, báða dagana. íbúð þessi er vinningur í yfirstandandi flokki og verður ut dregin 3. okt. n. k. en þá verður eínnig drogið um Willysjeppa með stálhúsi Gleymið ekki að endurnýja Happdr? 'tfi ;?vahiirhaimilis Aldraðra Sjómanna Aðalumboð Auúurstræti 1, sími 7757 Skrifstofa, Tjs ' ’rgötu 4, 3. hæð Sl'iÖlJíA óskast í sérverzlun hálfan daginn. Nokkur enskukunnátta nauð- synleg. — Uppl. um menntun og fyrri störf sendist Mbl. merkt: „Sérverzlun — 1215“. Morgunblaðið með morgunkaffinu BEZT AÐ AUGLfSA t MORGVNBLAÐINU fcJLBI JUtA* IJUMJM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.