Morgunblaðið - 02.10.1955, Síða 7
[ Sunnudagur 2. okt. 1955
MORGUISBLAÐIÐ
)
Póll í Fornahvamni fimmtngnr
SIGURÐUR Sigurðsson, búnaðar-
málastjóri, var umsvifamesti bú-
skapar- og ræktunarfrömuður á
fyrri hluta þessarar aldar. Hann
og kona hans, Þóra Sigurðardótt-
ir, voru af þróttmiklu, þingeysku,
bændafólki komin. Börn þessara
merku hjóna hafa öll, hvert á
sínu sviði, haldið uppi merki
ræktunar og brautruðnings. Dugn
aður, hæfileikar og áhugaeldur
þessarar fjölskyldu hefur mótað
bg mótar enn þjóðlíf okkar ís-
íendinga.
Páll Sigurðsson í Fornahvammi
hefur verið þjóðþekktur athafna-
maður í svo marga áratugi. að
mönnum finnst það furðu gegna,
að hann skuli nú aðeins vera
fimmtugur að aldri. Hann ólst
upp á Hólum í Hjaltadal og
menntaðist til starfa og stórræða
hjá föður sínum, skólastjóranum
og brautryðjandanum mikla.
Kornungur að aldri fór hann frá
Hólum með plcg og herfi og jöt-
uneflda verkhesta og pældi og
ræktaði land fyrir skagfirzka
bændur. Blessun og aukin bú-
sæld fylgdi í plógfar Hólasveins-
ins.
Norðlendingar höfðu lengi þráð
betri samgöngur við Suðurland.
Vegirnir voru illfærir, en bifreið-
arnar þegar farnar að mása í ill-
færunum víðs vegar um landið.
Ýmsir hefðu getað hafizt handa í
þessum samgöngumálum, og
ýmislegt var reynt, en ekkert
gerðist að gagni, fyrr en Hóla-
sveinninn kom til skialanna með
þolgæði og þrek plægingamanns-
ins. Páll Sigurðsson varð þannig
brautryðjandi í samgöngumálum
landsins, áður en vegirnir voru
lagðir. Ég hef aldrei vitað nokk-
urn leiðsögumann og ferðastjóra
njóta slíks trausts, sem Páll í
Fornahvammi hefur notið s.l. 25
ár, og hafa þó margir ágætir
drengir getið sér góðan orðstír
á því sviði.
S.l. 10 ár hefur Páll starfrækt
hótelið í Fornahvammi fyrir
Vegamálaskrifstofuna. Þótt að-
stæður séu þar á ýmsan hátt erfið
ar hefur honum tekizt að skapa
staðnum álit og vinsældir. f
Fornahvammi er alltaf hlýtt, og
þangað er alltaf gott að koma, en
þótt ekki sjáist gráðumunur á
hitamælinum, þá er staðurinn
samt hlýjastur, þegar húsbónd-
inn er heima.
Það er svo margt hægt að rita
um störf og afrek Páls Sigurðs-
sonar, að í litilli blaðagrein verð-
ur því engin skil gerð. Páll er
efni í bók og hetjusögu.
Hjálpsemi, greiðvikni og góð-
vild Páls er alþekkt, og hafa
margir notið af því ríkulega. Því
munu menn og konur um gervallt
landið senda honum hlýjan hug
og þakkir á morgun.
Einn er þó þáttur í fari Páls
sterkastur og merkastur. Er það
hestamennskan. Kemur þar fram
í honum hið sterka þjóðlega eðlis-
far. Hann hefur aldrei orðið svo
snortinn af véltækninni, að hann
hafi gleymt að njóta lífsins og
íslenzkrar náttúru í samskiptum
við gæðingana. Og á sviði hesta-
mennskunnar er hann einnig í
fremstu röð eða allra fremstur.
Eitt gegnir furðu og er næsta
óskiljanlegt með mann eins og
Pál í Fornahvammi. Hann virðist
enga óvildarmenn eiga. Og í sam-
bandi við fimmtugsafmælið óska
ég honum fyrst og fremst til
hamingju með þetta. Hann hefur
skapað gæfu sína og' vini sína
sjálfur. Ég hlakka til að sjá hann
næst, og vona að það verði á
morgun í hópi góðra vina, og
vafalaust verða gæðingarnir
heima við, en þeir eru sjaldan
færri en tylftin í einu.
Gunnar Bjarnasen.
Halldér Gttðmgmb-
son i Magnússkógwn
80 ára
Á MORGUN, mánudaginn 3. okt.,
verður sveitarhöfðinginn Halldór
Guðmundsson, bóndi í Magnús-
skógum í Dalasýslu, 80 ára. — Er
hann nú staddur hjá syni sínum,
Snorra, á Gunnarsbraut 42 hér í
bænum.
Halldór er sonur hjónanna
Sigríðar Halldórsdóttur og Guð-
mundar Guðmundssonar, sém
bjuggu í Magnússkógum. Lézt
hann er Halldór var 12 ára og
17 ára gamall tók Halídó'r við
búi móður sinnar, sem átti held-
ur erfitt uppdráttar með börnin
sín fjögur, soninn, sem varð
henni hin mesta hjálparhella og
dæturnar þrjár. Var lagt hart
að henni að flytja vestur um haf,
en hún mátti ekki hejrra það
nefnt.
Árið 1899 kvæntist Halldór
konu sinni, Ingibjörgu Björns-
dóttur og hafa þau búið á Magn-
ússkógum síðan. Eignuðust þau
10 börn, sem komust til fullorð-
ins ára og búa þau í Reykjavík
og vestur í Döluín. Einn sonur
þeirra hefur nú tékið við búinu
í Magnússkógum. En Halldór
hefur samt enn nokkrar skepnur
fyrir sig, sem hann heyjar fyrir
á sumrum. En það kallar hann
nú ekki að búa.
Hann hefur unnið talsvert að
jarðabótum á jörð sinni, og bætt
húsakostinn mikið. Hefur hann
tekið vélamenninguna í þjónustu
eins og aðrir forystubændur
Framh. á bla. 9
Götuijósker
fyrir glóðarþráðarperur. —
Kvikasilfursljós, natrium-
Ijós. —
Steinstólpar h.f.
Höfðatúni 4. Sími 7848.
■
■
■
■
■
■
'ifi
■
■
■
: Laugavegi 18
} Nýkomið mikið úrval af
Gluggafjaldaefnum
■
| Saumum Gluggatjöld
úr efnum sem keypt eru hjá okkur
Gardín ubúðin
Laugavegi 18
NÝJU PLOTURNAR MEO
HAUK MOkTHENS
HÆ MAMBO — HIÐ UNDURSAMLEGA ÆVINTÝR
ÉG ER FARMAÐUR FÆDDUR Á LANDI —
KAUPAKONAN HANS GÍSLA í GRÖF —
CARMEN SÍTA — ELDUR í ÖSKUNNI LEYNIST
Hljómsveit og kór Jörn Grauengaards aðstoðar
METSÖLUPLATAN: ÉG ER KOMINN HEIM
kemur eftir helgina
FÁLKINN H.F. — hljómplötudeild
FLJOTVIRKT
SKAOLAUST
HREINNI 0G
HVÍTAPI ÞVOTTUR
&
UirfcW®"*
VISINDALEGA
FRAMLEITT
MAGNDS KJARAN
mm « wmii