Morgunblaðið - 03.11.1955, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 03.11.1955, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. nóv. 1955 Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórl: Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm,) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vignt. Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanland*. 1 lausasölu 1 krónu eintakið. íslenzk blöð fyrr og nú Sjúkdómur hinna gulu fingra færisf nú í vöxf á Islandi Níels Dungal segir frá sfarfi Krabbameinsfélagsins STÚDENTAFÉLAG Reykjavík- ur efndi fyrir nokkru til um- ræðufundar um íslenzka blaða- mennsku. Var þar mikið fjöl- menni saman komið eins og vænta mátti. Hafði félagið feng- ið ágætan fyrirlesara, séra Sig- urð Einarsson skáld í Holti, til þess að hafa framsögu á fund- inum. Frummælandi drap á það snemma í ræðu sinni að oft heyrðist um það talað að íslenzk blöð væru ekki eins vel rituð nú Og í gamla daga. Ræddi hann þessa skoðun sína nokkuð og komst síðan að orði á þessa leið: „Sannleikurinn er sá, að ís- lenzk blöð eru nú skrifuð af meiri skilningi og kunnáttu og meiri víðsýni heldur en nokkurn tíma áður. Þetta er ekki ein- göngu vegna þess að það séu meiri hæfileikamenn við blaða- mennsku í dag, heldur einnig vegna fullkomnari tækni og betri frágangs. Og það er víst að það skortir ekki í dag að blaðamenn fari rökfimlega með mál sitt.“ Það er að sjálfsögðu rétt hjá Sigurði Einarssyni að íslenzk blöð eru í dag gefin út við allt aðrar aðstæður en fyrir t. d. 50 árum. Þá voru engin dagblöð til í landinu, aðeins hálfsmánaðar- eða vikublöð. Margir ágætlega ritfærir blaðamenn voru þá uppi, menn sem vönduðu málfar blaða sinna af hinni mestu kostgæfni og létu virðinguna fyrir þjóð- tungunni ævinlega ráða mestu Um vinnubrögð sín. En hraðinn Og viðbragsflýtirinn setti þá ekki fyrst og fremst svip sinn á Starf blaðamannsins. Blöðin voru eins og áður er sagt hálfsmán- aðar eða vikublöð. Þess vegna gafst blaðamönnunum gott tóm til þess að gæta fyllstu varkárni Og vandvirkni. í dag eru það fyrst og fremst dagblöðin sem setja svip sinn á blaðaútgáfu þjóðarinnar. Þar verður oft að vinna hratt og við erfiðar aðstæður. Flest ef ekki 611' íslenzk dagblöð eru gefin út með miklu minni mannafla en tíðkast meðal annarra þjóða, þar sem fjárhagsleg afkoma blaðanna er allt önnur og betri. Þrátt fyrir þessa sérstöðu ‘ Islenzkra blaða er það ekki ofmælt, sem frummælandinn á stúðentafélagsfundinum sagði, að íslenzk blöð eru nú gefin út og rituð af meiri V kunnáttu og víðsýni en áður. Blöðin eru nú ekki eingöngu rituð um stjórnmái heldur um vel flest málefni, innlend og i erlend sem þjóðina varðar. Mörgu er ábótavant En að sjálfsögðu er fjölmörgu ábótavant um útgáfu íslenzkra blaða í dag. Enda þótt mjög hafi dregið úr hinum þröngsýnu per- sónulegu ádeilum er þó víða pottur brotinn í þeim efnum enn- þá. Einstök blöð telja sér það sæmandi að flytja persónulegan róg og bera rótlausan óhróður á saklaust fólk. Mikið skortir á að stjórnmálabarátta blaðanna sé eins málefnaleg og skyldi. Er það að vísu ekki sök blaðamann- anna einna, heldur stjórnmála- mannanna, sem í forustu eru á stjórnmálasviðinu. En yfirleitt má segja að þróunin gangi í þá átt að hinar persónulegu illdeil- ur skipi minna rúm í íslenzkum blöðum. Mun það í senn spretta af vaxandi þroska blaðamanna- stéttarinnar og góðu samstarfi blaðamannanna innan stéttar- samtaka sinna, Blaðamannafélags Islands. íslenzk dagblöð eru ung að árum, þar sem elzta blaðið er aðeins rúmlega 40 ára gamalt. Með hverju árinu sem líður eykst skilningur blaðamann- anna á því þjónustuhlutverki, sem þeir rækja við almenn- ing. Efni blaðanna verður fjölbreyttara og nær til fleira og fleira fólks í landinu. Margvísleg verkefni íslenzkum blaðamönnum er það ljósara en flestum öðrum að þeir þurfa í framtíðinni að framkvæma margvíslegar um- bætur á blöðum sínum. Þeir þurfa að leggja kapp á að bæta fréttaflutning þeirra og gera hann hlutlausan og áreiðanleg- an. Þeir þurfa ennfremur að rækja betur þá skyldu sína að gefa þjóðinni tækifæri til-þess að fylgjast með því sem gerist í menningarmálum utanlands og innan. Heimsmenningin er í dag sameign allra þjóða í ríkari mæli en nokkru sinni fyrr. Það er hlutverk blaðanna að miðla ávöxtum hennar til fólksins um víða veröld. Það er vissulega engin ástæða til þess að vantreysta því að íslenzk blöð verði hlut- verki sínu vaxin. Fámennið sníður þeim að vísu þrengri stakk en blöðum annarra og stærri þjóða er sniðinn. En íslendingar kunna vel að meta blaðaútgáfu og eru lestrarfús- ir og bókhneigðir. Þess vegna er óhætt að fullyrða að góð og vönduð blaðaútgáfa eigi sér örugga framtíð í landinu. Heimkoma soldáns FREGNIR herma nú, að Ben Jusef, soldán í Marokkó, hafi stigið á land í Frakklandi með kvennabúri sínu. Er það aðeins einn áningarstaður í sigrandi heimkomu hans til Marokkó. Fyrir nokkrum árum ráku Frakkar soldáninn í útlegð fyrir það, að hann var of hlynntur þjóðernishreyfingu Marokkóbúa. Frakkar vildu þá reyna að bæla þá hreyfingu niður með vopna- valdi. Heimkoma soldánsins er mikill sigur fyrir Ben Jusef. Frakkar ætluðu honum ekki afturkvæmt til landsins og reyndu að búa svo um hnútana, að hann hefði ekki meiri áhrif á innanlands- mál Marokkó. Skipuðu þeir nýj- an soldán, sem var „samvinnu- þýðari“, en allar fyrirætlanir þeirra fóru í handaskolum. Það er því sannarlega betur farið, að í stað þess að streitast lengur á móti, hafa Frakkar nú loks viðurkennt sjálfsákvörðunarrétt Marokkóbúa, og landið stefnir óðfluga til sjálfstæðis. Aðgerðir Frakka í Algier nú upp á síðkastið eru hins vegar í sama anda og aðgerðir þeirra í Marokkó fyrir þremur árum. Er undarlegt, hve Frakkar ætla seint að læra af reynslunni. í stað þess að koma strax í byrj- un móti réttlætiskröíum þjóð- ernisminnihlutans, er ekki annað sýnilegt en að þeir ætli að streit- ast á móti og baka sér þannig að óþörfu vaxandi andúð og hat- ur íbúanna. PRÓFESSOR Níels Dungal var nýlega staddur í Kaup- mannahöfn, þar sem hann hélt fyrirlestur á vegum danska krabbameinsfélagsins. í sambandi við þessa för hans átti prófessorinn m.a. tal við Berlingske Tidende, þar sem hann ræðir ýmislegt um heil- brigðismál á íslandi. Fyrst í samtalinu skýrir hann frá því, að íslenzk heilbrigðismál og barátta gegn sjúkdómunum hafi á ýmsan hátt verið frábrugð- in því sem gerist á meginlandi Evrópu. Skýrði hann m.a. frá því hvernig sigrazt var á holdsveik- inni og sullaveikinni. En að lok- um tekur hann að ræða um krabbamein á íslandi. STARF KRABBAMEINS- FÉLAGSINS I — Krabbameinsfélag, segir hann, var stofnað á íslandi 1950. Tilgangur þess er að stuðla að vísindalegum rannsóknum á sjúkdómnum, að dreifa upplýs- ingum um sjúkdóminn, svo að fólk sé betur á verði, og að styrkja krabbameinssjúklinga fjárhagslega. Síðustu tvö ár höfum við einnig skipulagt krabbameins- skrá. sem við væntum okkur ým- issa upplýsinga af og þá ekki sízt vegna þess, að sjúkdómurinn virð ist haga sér nokkuð öðru vísi á íslandi en meðal annarra þjóða. ! MAGAKRABBI Yfirgnæfandi meirihlutinn er mein í maganum. 45% allra til- fella hjá karlmönnum er maga- krabbi og er þessi tala nú stað- fest af nákvæmum skýrslum. — Níels Dungal í Kaupmannahöfn með dr. Einar Meulengracht, sem er formaður danska krabba- meinsfélagsins. uu andi óhripar: Önnu frá Moldnúpi svarað UT AF grein þeirri sem birtist í dálki Velvakanda í Mbl. í gær, langar mig til að fá rúm í blaðinu til að svara fyrir atvik það, sem kom fyrir í mjólkurbúð- inni að Freyjugötu 15, hinn 29. 10. 1955. ) Ég hélt alltaf að Anna skáld- kona frá Moldnúpi væri penna- fær kona, sem hún eflaust er, en það vill koma fyrir meiri menn en hana að rugla staðreyndum, ekki sízt er æsingin og vonzkan nær á þeim tökum. Vil ég nú byrja mál mitt með því, að í fyrsta lagi er nafn mitt ekki Guðný Jónsdóttir, og þykir mér fyrir því að skáldkonan Anna skuli rugla svona saman nöfnum, og finnst mér að Anna ætti að biðja Guðnýju Jónsdótt- jur afsökunar, sem hún eflaust • gerir. 2. Mjólkurbúðum er lokað frá kl. 13,30 til 14,00, og er það vani hjá verzlunum almennt, að hleypa viðskiptavinum ekki inn fyrr en opnunartími er kominn. Enda þótt ég hefði viljað gera undantekningu frá þeirri reglu | með tilliti til fótabúnaðar skáld- konunnar, þá hefði það ekki orð- ið vel séð af þeim viðskiptavinum sem úti biðu, því að öllum hlýtur 1 að vera ljóst, að ekki er heppi- ‘ legt að fylla búðina af viðskipta- 1 mönnum meðan verið er að taka á móti vörum og undirbúa undir afgreiðslu að nýju. i 3. Ég þúaði skáldkonuna Önnu aldrei, en orðrétt sagði ég: „Viljið þér gera svo vel að fara út. Það verður ekki opnað fyrr en klukkan 2“. j Ég hef lagt það í vana minn, enda verið kennt það á heimili foreldra minna, að þéra fólk, og ekki sízt ef ég þekki það ekki. Enda efa ég ekki að- mjólkurbíl- stjórinn getur vottað að ég þér- aði Önnu skáldkonu í umrætt skipti. 4. Anna skáldkona viðurkenn- ir að hún hafi komið inn fyrir kl. 2, og þar sem auglýst hefur verið, að eftir kl. 2 sé mjólk ó- skömmtuð, afgreiddi ég fólkið eftir röð, sem ég hef og leitazt við að gera ávallt áður, enda við- urkennir Anna að telpurnar hafi verið komnar að dyrunum á mjólkurbúðinni áður en hún. Að endingu langar mig til að þakka yður, Anna, fyrir hetjudáð yðar í skrifum yðar, en ætla mér sjálf að láta útrætt um þetta mál að sinni. Með vinsemd og virðingu. Ólafía Magnúsdóttir. ATHS. Mig langar til að geta þess vegna greinar Önnu frá Mol'd- núpi, að ég var ekki í búðinni þennan umrædda tíma, því að ég mætti ekki á vakt fyrr en hálf þrjú. Guðný Jónsdóttir. Draugasögur. UNDANFARIÐ hefir nokkuð verði vikið að sögum, sem lesnar hafa verið í Útvarpið, og deilt á sumar þeirra. Það er áreiðanlega áríðandi að vel sé til slíkra sagna vandað. Enda þó að hægt sé að ná til slíkra sagna á annan hátt, þá ætti Útvarpið að vera vel á verði fyrir miður góð- um sögum. Nú fyrir stuttu var hafinn lestur á nýrri sögu, eftir Loft Guðmundsson rithöfund, sem aðallega er ætluð yngri hlust endunum. Fylgdist ég með þess- um upplestri, og blöskraði mér alveg þegar bílstjóri, sem tók 2 drengi uppí á leið sinni, fór að segja þeim draugasögur, og það svo magnaðar, að draugsi er lát- inn taka ofan hausinn, og vera með hann í hendinni. Að mínum dómi ættu slikar sögur ekki að birtast í útvarpi og helzt hveigi. Ég þykist vita að þetta sé af at- hugaleysi, en ekki illum vilja, og allra sízt ætti að vera að telja unglingum trú um, að draugar séu til. Áður fyrr var draugatrú al- geng, en ætti nú að vera horfin með öllu. S. Merkia, sem klæðir landW Skv. þessu er magakrábbi því verulega algengari á íslandi en í Danmörku. Hann er helmingi algengari hjá körlum en konum og samt er hann algengari hjá konum, en bæði brjóst- og móð- urlífskrabbi til samans. AFLEIÐING SÍGARETTU- REYKINGA — En hvað segið þér þá um lungnakrabbann, spyr fréttamað- urinn og getur þess, hve hann sé algengur í Danmörku. — Það er slæmt með hann, segir prófessorinn. Hann hefur aukizt verulega hin síðustu 10 ár. Og ég er ekki í nokkrum vafa að sígarettureykingarnar eiga sína sök á því. Já, ef til vill alla sökina. Frá 1930—1939 skýra dán- arvottorð frá 11 tilfellum af lungnakrabba. En frá 1940—1949 fundum við 49 tilfelli. REYKINGAR JUKUST EFTIR 1940 — Við íslendingar, segir Níels Dungal, byrjuðum að reykja síg- arettur fyrst að ráði eftir 1940, þegar enskir hermenn gengu á land. Þangað til höfðum við að langmestu leyti notað neftókbak eða skro. Árið 1945 fórum við yfir pund-markið, það er að segja meðalneyzla íslendinga varð pund af tóbaki og eftir 1953 er meðalneyzlan orðin yfir þrjú pund af tóbaki á ári á mann. Árið 1954 fundum við við krufningu 7 tilfelli af lungna- krabba hjá 248 manns, sem krufn ir voru. Frá 1932 til 1950 höfðum við fundið 12 tilfelli hjá 2000 manns, sem krufðir voru. Þetta sýnir stórfellda aukningu sjúk- dómsins. NAUTN OG TILFINNINGALÍF — Þessar upplýsingar hafa leitt til þess, segir Níels Dungal, að allmargir hafa hætt að reykja. En ekki nógu margir. Erfiðast er að fá þær konur til að hætta að reykja, sem tóku þann sið upp eftir 1940. — Hvers vegna það? spyr blaða maðurinn. — Jú, reykingar eru nautn. Of- notkun er löstur og svo virðist sem konurnar láti tilfinningar sínar ráða hér sem á öðrum svið- um. Sumar þeirra segja: — Ég vildi gjarnan hætta, en ég get það ekki. Og þessari yfirlýsingu fylgir venjulega afsakandi handa hreyfing með þreraur gulum fingrum hægrihandar. Framh. af bl*. 1 milli atvinnurekenda og launa- fólks til mikillar óþurftar fyrir báða aðila og efnahagslíf þjóðar- innar í heild. TILLÖGUR UM LÆKKUN Að lokinni þessari rannsókn verði athugað, hvort ekki sé unnt að lækka milliliðakostnað og létta framleiðslunni róðurinn. Mjög nauðsynlegt er, að þess- ari rannsókn verði hraðað eftir föngum. Leggja tillögumenn því til, að henni verði í síðasta lagi lokið fyrir næsta reglulegt Al- þingi. Gæti þá legið fyrir álits- gerð um niðurstöður rannsókn- arinnar. ÁBYRGÐARLEYSI Það er skoðun flutnings- manna, að hér sé um mjög þýðingarmikið mál að ræða. Þjóðin verður að vita sem gerst um einstök atriði efna- hagsmála sinna. Það er víta- vert ábyrgðarleysi að fjölyrða um það ár eftir ár, að milli- liðakostnaðurinn eigi ríkan þátt í hallarekstri framleiðsl- unnar, en láta svo undir höfuð leggjast að framkvæma rann- sókn, sem leiði sannleikann í Ijós og leggi grundvöll að um- bótum í þessu efni. Flutningsmenn vænta því þess, að góð samvinna geti tekizt um samþykkt tillögu þessarar og að upp af þeirri rannsókn, sem hún gerir ráð fyrir, megi spretta auk- in þekking á aðstöðu framleiðsl- unnar og möguleikunum til þess að bæta hana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.