Morgunblaðið - 17.11.1955, Síða 1
16 síður
it árguiffu
263. tbl. — Fimmtudagur 17. uóvember 1955
FrentamlSJa Mergunblaðsina
í Genf er iokið
Ekkert samkomulaa
náðist, hvorki um sam-
einingu Þýzkalands
né afvopnun
Er andúð Rússa á frjálsutn kosningum rétt
lýsing á ástandi í ríkjunt kommúnhmans!
GENFAR-RÁÐSTEFNUNNI lauk í gær. Hefur httn or«ið
mönnuni til mikilla vonbrigða. Þangað kocnu utanríkfe-
ráðherrarnir vongóðir um að sami góði Genfar andinn myndi
ríkja sem á ráðstefnu æðstu manna fjórveldanna í sumar.
Árangur af þessari ráðstefnu varð enginn. Elkkert sam-
komulag varð um untræðuefnin. Er táknrænt að í ráðstefnu-
lok sagði MacMilIan utanríkisráðherra Breta: — Við skulum
vona að Genfar-andinn sé ekki alveg dauður, en þessi ráð-
stefna sýnir að hann liggur lágt.
í lok ráðstefnunnar var gefin út stuttorð tHkynning, sem
segir lítið annað eu hvað unt var rætt. Vekur þar sérstaka
athygli, að ekkert er getið um að annar slíkur fundur skuli
haldinn.
Auk þess gáfu Vesturveldin út sérstaka tilkynmngu, þar
sem þau harma að Rússar skyldu hafna tillögunni urn að
efna til frjálsra kosninga í öllu Þýzkalandi.
W.vnd þessi var tekin í Genf og sýnir utanríkisráffierra Vesturveldanna með utanríkisráðherra Vest- VONSVIKNIR FULLTRÚAR
ur-Þjóðverja von Brentano. Ráðstefnan í Genf hefur orðið Þjóðverjum tii mikilla vonbrigða. Á síðasta fundi ráðstefnunnar
á miðvikudaginn fluttu allir fjór-
Sfórmerkar tillöour Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn
í húsnæðismátunum
Gleði í Marokko í gær
ylir heimkomu Jússefs
A.Ð VORU miklir fagnaðarfundir í Rabat suður, í gær, er Ben
Jússef kom til borgar sinnar og þegna eftir langa útlegð suður
a Madagaskar. Herma fregnir að soldáninn hafi ekið ásamt kvenna-
búri sínu um blómumstráðar götur, syngjandi: ,JÉg er kominn
Sfefni verði að jiví að útrýma herskálunum
á næstu 4—5 árum
Byggðar verði 600 íbúðir af þrenns konar gerSum —
Heiidarkostnaður um 112 milljónir króna
f> ÆJARFULLTRÚAR Sjálfstæðisflokksins hafa að undan-
förnu unnið að því að gera vandlega áætlun um for-
göngu bæjarins að byggingu íbúðarhúsa, sem miðist \ið
það, að hægt sé að útrýma herskálum og bæta úr brýnustu
húsnæðisþörf.
Eru tillögumar sniðnar við aðstöðu og þarfir þeirra, sem
verst eru settir, og fjárhagsgrundvöllur þeirra miðaður við
þá lánsfjármöguleika, sem nú eru fyrir hendi, samhliða
framlögum úr bæjarsjóði og ríkissjóði.
Verða tillögur Sjálfstæðismanna til umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í dag, ög fara tillögumar hér á eftir:
heim í heiðardalinn“. Þúsundir Rabatbúa sem hylltu sinn ástsæla
soldán, tóku undir þann söng.
Er Ben Jússef soldán í Mar-
occó kom heimleiðis til Rabat
eftir tveggja ára útlegð, tók yf-
irhershöfðingi Frakka í Maroccó
á móti honum, bauð hann velkom
inn og óskaði soldáni velfarn-
aðar í embættinu. Tugþúsundir
•manna voru samankomnar til
þess að fagna soldáni og efnt var
til mikilla hátíðahalda í tileíni
komu hans.
Ben Jússef hefur dvalizt í
París undanfarna daga til við-
ræðna við frönsku stjórnina um
framtíðarstöðu Maroccó. Ekki er
enn vitað hversu Ben Jússef hef-
ur orðið ágengt, en búizt er við,
að árangurinn af för hans verði
Ijós innan skamms tíma.
Sameining Þýzkalands hefði
þýtt upplausn austur-þýzku
stjórnarinnar
Bæjarstjórn Reykjavíkur gerir eftirfarandi áætlun um byggingu
íbúðarhúsa í þeim tilgangi, aé' útrýmt verði herskálaíbúðum á
næstu 4—5 árum og að öðru leyti bætt úr húsnæðisþörf þeirra,
sem verst eru settir.
1. Haldið verði áfram byggingu raðhúsa við Bústaðaveg til við-
bótar 108 íbúðum, sem þar eru í byggingu. Verði byggðar þar
alls 170 íbúðir, allar af sömu gerð, 4 herbergi, eldhús og bað,
86 ferm. hver íbúð á tveim hæðum.
Stefnt sé að því að hefja byggingu 36 íbúða til viðbótar í
apríl 1956 og 26 íbúða í apríl 1957. íbúðirnar verði seldar
fokheldar — með tvöföldu gleri í gluggum, útihurðum og hita-
lögn og húsin máluð að utan (eða fullgerðar, eftir nánari
ákvörðun bæjarráðs). Áætlað kostnaðarverð íbúðar „fokheldr-
ar“ er rúmar 120 þiisund kr., en fuigerðrar kringum 220 þús. kr.
2. Bvggðar verði 200 íbúðir í sambyggðum smáhúsum, einnar
hæðar, fyrir austan Skipasund. Stærð íbúðar 50 ferm., tvö
herbergi, bað og geymsla. Bæjarráð ákveð'i nánar um skipulag,
staðsetningu og gerð íbúðanna.
Stefnt sé að því að byggja þessi hús á mjög skömmum tíma,
i •, Framhald á bls. 2.
Þess vegna viðhalda Rússar ranglœtinu
Genf, 16. nóv. Einkaskeyti frá Reuter.
ANRÍKISRÁÐHERRAR Bandarikjanna, Bretiands og
Frakklands gáfu í dag út sameiginlega tilkynningu, þar
sem þeir gera grein fyrir því hve mikla áherzlu þeir hefðu
lagt á að Genfarfundurinn leiddi til sameiningar Þýzka-
lands, en sú áætlun hefði farið út um þúfur vegna stöðugrar
þvewiðar Rússa í málinu.
í tilkynningunni segir m. a. að Rússar hafi neitað að
samþykkja saineiningu Þýzkalands, af því að það þýddi upp-
lausn kommúnistastjórnarinnar í Austur-Þýzkaiandi. Til-
lögur Rússa varðandi Þýzkaland miðuðu að áframhaldandi
skiptingu landsins, en við var bætt að öryggissamtök Vestur-
Evrópu skyldu leyst upp.
— Við erum þess meðvitandi, segja ráðherrarnir, að þessi
endalok ráðstefnunnar eru hræðileg vonbrigði fyrir þýzku
þjoðina. En Vesturveldin munu ekki láta linna viðleitni
sinni til að binda enda á það óréttlæti sera skipting Þýzka-
lands er.
ir utanríkisráðherrarnir ávörp.
Voru þeir allir vonsviknir ög
daufir í dálkinn yfir endalvkt-
um ráðstefnunnar, nema Molotov
utanríkisráðherra Rússa, sem
sagði aðeins almennum orðurn,
að ráðstefnan hefði verið þýð-
ingarmikil.
GENFAR-ANDINN —
HVAÐ LÍÐUR HONUiVI?
MacMillan utanríkisráðherra
Breta sagði: — Það bezta sem
hægt er um ráðstefnuna að segja,
er að hún hafi verið þráskák.
Það versta sem hægt er að segja
um hana, er að hún hafi verið
skref aftur á bak. — Ég ber ann-
ars í sjálfu sér ekki svo miklar
áhyggjur af því, þótt okkur mis-
tækist að ná samkomulagi. En
hitt þykir mér alvarlegast að
Sovétríkin láta eins og þeim
standi alveg á sama þótt allt
mistækist. Þau hafa ekki sýnt
hug á að bæta úr sundurlyndinu.
Við skulum vona, að Genfar-
-andinn sé ekki alveg dauður, en
þessi ráðstefna sýnir að hann
liggur í láginni.
Pinay utanríkisráðherra Frakka
harmaði það, að ekki tókst að
ná neinu samkomulagi á ráð-
stefnunni. Við svo búið mætti
ekki standa. Allir utanríkisráð-
kommúnismans. Ef aastur-
þýzka stjórnin þorir ekki að
leggja mál sín undir dorn
þjóðarinnar, má geta nærri
hvort aðrar kommunista-
stjórnir í Austur-Evrópu þora
það, sagði Dulles.
herramir yrðu að sýna vilja á
að viðhalda Genfar-andanum.
MOLOTOV SEGÍR
RÁÐSTEFNUNA JÁKVÆÐA
Molotov utanrikisráðherra
Rússa sagði að á ráðstefnunni
hefði gefizt tækifæri til að ræða
um ýmis þýðingarrriikil mál. —
Ráðstefnan væri jákvæð af því
að hún stuðlaði að auknu al-
þjóðasamstarfi.
HVf VILJA ÞEIR EKKI
FRJÁLSAR KOSNINGAR?
Dulles utanrikisráðherra Banáa
ríkjanna áfelldi Molotov þung-
lega fyrir þverúð og ósáttfýsi,
einkum í Þýzkalandsmálinu. —
Frh. k bU. 10.