Morgunblaðið - 10.12.1955, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 10.12.1955, Blaðsíða 7
Laugardagur 10. des. 1955 MOKf.f' /V HLAÐIÐ 7 Stúlka óskar eftir léttri VliMMIJ hálfan eða allan daginn. -— Tilboð sendist afgr. blaðsins merkt: nStrax — 823“. Kanarsfuglar tið solii Upplýsingar að Snorrabraut 35, 1. hæð, fm kl. 6-—7 e. h. Station bifreib Opel eða Skoda óskast til kaups. Tilboð sendist Mbl., fyrir mánudagskvöld 12. þ. m., merkt: „Opel—Skoda — 820“. — Er kaupandi að 6 mnnna bifreið gegn mánaðarlegum afborg unum eða greiðslu í vörum. Tilb. til blaðsinns fyrir 14. þ. m., merkt: „öruggt «— 819“. — Stór klœðssskápur fil sölu og kolakyntur ketill, tvegg.ja ferm. Upplýsingar á Flókagötu 12. Sími 6038. íbúð tið leigu 2 herbergi og eldhús til leigu Tilboð sendist á afgr. blaðs- ins fyrir kl. 12 á mánudag, merkt: „822“. Nýkomið Nælonsokkar, krepsokkar, ullarsokkar, bómullarsokkar unglingasokkar, ullarhosur. Svartir nælonsokkar á kr. 18,00. — DÍSAFOSS Grettisgötu 45. Nýkomið Satin, taft, krystlefni og tjull, margir litir. Drengja- ullarpeysur og vesti. Kven- peysur. Dívana- og vegg- teppi. DÍSÁFOSS Grettisgötu 45. Þýzkur Radáófónn sefti nýr, til sölu. Ennfrem- ur, vandaður klæðaskápur (Birki), Bræðraborgarst. 23 Skraufsykur Kókosmjöl H. Benediktsson & Co Ii.f. Hafnarhvol), sími 1228. SendiferðahílK óskast til kaups. — Upplýs- ingar í síma 2861 frá kl. 4 —6. — TIL SÖLIi hjálparvélamótorhjóí Einriig karlmannfthjól. Ti) sýnis Kamp-Knox E-36. Fullorðin kona óskast sem ráðskona á rólegt heim- ili (2 í heimili). Upplýging- ar, Laufásvegi 39. Vórugeymsla ca. 100 ferm. birgðaskeTnma í útjaðri bæjarins, til leign. Tilboð merkt: „100 — 817", sé sent Mbl. fyrir 14. þ.m. I’yzkar poplinblússur >íý sending. Tlzkuftkemman Uaugavegi 34. Tiiftkur Hanszkar Slæðnr Ilmvötn mikið úrval Tízknftkeimntan Laugavegi 34. Tvö góo, samliggjandt HERBERGI { kjallara, 1 stofa á hæð og 1 herb. í risi, til lergu strax fyrir einnhleypa. Reglusemi og góð umgengni áskilin. — Eyrirframgreiðsla. Tilboð merkt: „Góð umgengni“ *— sendist afgr. blaðsinrrs fyrir kl. 12 á hád. á mánudag. Til sölu Pedigree- BARIMAVAGN á háum hjólum. Vei-ð kr. | 700,00. UppT. á Skólavörðu stíg 17C, eftir hádegi i dag. ilt SOI l> nýtt baðker. Verð krónur 1200.00. 150 L hitadunkur, kr. 400,00. 1 ferm., kola- kyntur miðstöðvarketill, kr. 400,00. Sími 81609. ile Soto 1950 einkabifreiS, i sérstaklega góðu lagi, til sölu. BifreiSasalan Bókhlöðustíg 7, sími 82168. Silver-Cross BARIMAVAGIM J vel með farinn, selst ódýrt. t Uppl. Suðurg. 13, Hafnar- { firði, í dag og á sunnudag. Verður Cometun brezku þrutt fyrír ullt slgursæl eti E" ’NSKA þrýstilofts-farþega- vélin Comet flaug sJ. helgi frá Lundúnum til Ástralíu. Flugtíminn var að- eins 24 klst. Með þessu er ekki nóg með það að Comet hafi sett nýtt flagmet á þessari leið. Hún var helmingi skemmri tima í lofti heldnr en gamla metið og þessi atburður þýð- ir hvorki meira ná minna en það, að Bretar hafa aftör tek- ið forustnna í farþegaflngi i sínar hendur, fornstu, sem þcir misstu með hinum mörgu alvarlegu slysum fyrstu Comet-flugvélanna. Nú telja Bretar sig hafa kom- izt fyrir orsök slysanna og jafn- framt eru þeir að hefja fram- leíðslu á staarri og fullkomnari Comet-flugvélum en áður hafa þekkzt. STOLT BRETA OLLI VONBRIGÐUM England er land þrýstilofts- flugvélanna. Það voru Englend- ingar, sem fyrstir smíðuðu þrýsti- loftsflugvélar, sem komu að nokkru gagní í flugorustum í síðustu styrjöld. Síðan urðu Englendingar á undan Banda- ríkjamönnum að gera tilraunir með farþegavélar knúnar þrýsti- loftshreyflum og var Cometan stolt allra Englendinga. Hún fór með 1000 km hraða á klst. og Englendingar sögðu: „Cometan er hraðfleygasta og öruggasta far þegaflugvél í heimi“. Þeim mun meiri var ósigurinn ög hryggðin, þegar fjögm- Comet- slys urðu á skömmum tíma og fjöldi fólks lét lífið í þeim. 35 flugvélar af Comet-tegund, sem þegar höfðu veríð smíðaðar, urðu einskis virði. Það var ekki annað að gera én að brjóta þær og þræða upp að nýju. | ! Við flngslysin miklu tóku Englendingar þrjár ákvarð- anir: f fyrsta lagi að stöðva allt flug með Comet-flugvél- ura og viðnrkenna þannig ó- signrinn fyrir öllum heimin- um. í öðru lagi að Iáta einskis ófreistað til að grafast fyrir orsakif slysanna. Og í þriðja lagi að gera ailt sem attðið væri að vinna aftur forustuna. Vinna aí'íur sigur með nýrri og fullkominni Comet-flugvél. Sá sigur vannst úm síðustu helgi. FJÓRAR HRÖPUDtl — MIKLAR FÓRNIR í maí-byrjun 1953 varð alvar- legt Comet-slys. Flugvélin Steypt ist niður yfir Indlandi. í skjmdi varð þessi glæsilega straumlínu- lagaða flugvél að rjúkandi braki í uppþornuðum árfarvegi 30 km fyrir utan Kalkútta. 4'3 menn léttí lífið. Þetta var mikið áfall fyrir brezk flugmál. Tveimur mánuð- um áður hafði Comet-ílugvél hrapað í Pakistan og 11 manns látið lífið. Það slys hafði ekki valdið miklum ugg, en við annað slysið fóru margir að renna grun íað ekki væri allt sem skyldi. Fleiri slys gætu orðið. Það varð líka í janúar 1954. Cometa hrapaði niður í Miðjarðarhafið milli eyjanna Monte Christo og Elbu. 35 manns fórust og slysið þótti mjög dularfullt. Einni mínútu áðnr en það varð hafði flug- stjórinn sent skeyti: „Allt í lagi um borð“, Nokkrir fiski- menn, sem voru sjónarvottar, sögðu, að vélin hefði sprungið í loftinu. Hafi verið hægt að skýra fyrstu tvö slysin sem óhappatilvik, þá hlaut það hins vegar að vera Ijóst í þessu dæmi, að citthvað alvar- legt hafði gerzt í flugvélinni sjálfri. Talað var um að þetta á mettíma tii Astralíu eftir mikla hrakfallasögu Mynd þessi af Cometunni var tekin þegar hún heimsóíti Island í maí-mánuði 1953. Sktimmu síðar hrapaði þessi flugvél i Miðjarðarhafið'. væri skemmdarverk, en eng- inn rökstnðningar fannst fyr- ir því. FIATGBANN FYRIR FULLT OG ALLT En þá kom fréttin um siðasta Comet-slysið, ennþá yfir Mið- jarðarhafinu og enn varð mikið j manntjón. 21 maður lét lífið, þeg- i ar flugvélin fórst, 9. apríl 1954. Flugbann haíði verið sett á Com- j et-flugvélarnar eftir þriðja slysið. | Því hafði verið létt af aðeins hálfum mánuði áður en síðasta slysið varð. Og þá voru Cometurnar stöðv- aðar, fyrir fulít og allt, að því er sumir töldu. Þeir flugu ekki meira, nema nokkrar reynslufei'ðir, sem enn hafa verið farnar til að rannsaka, hvað slysunum olli. CHURCHILL FYLGDIST MEÖ Þetta var mál, sem brezka stjórnin lét sérstaklega til sín taka. Hér var um heiður alls brezka heimsveldisins að ræða. Ríkisstjórn Churchills lét senda sér stöðugar skýrslur um hverju fram yndi. Risavaxnar fjárhæð- ir voru veittar. Fimm Comet- flugvélanna voru teknar til ná- kvæmrar rannsóknar. FIMM FLUGVÉUTM FÓRNAÐ Einni þeirra, sem kostaði um 100 miUj. ísl kr„ var sökkt í risa- stóran vatnsgeymi, þar sem hægt var að auka þrýstinginn marg- faldlega til að sjá, hvað hefði gerzt. Önnur var sett í þolraun- ir, þar til báðir vængirnir brotn- uðu af. Þriðju flugvélinni flugu fjór'ir sjálfboðaliðar. Reyndir og sér- fróðir flugmenn, sem flugu henni svo að reyndi á þolrifin. Fóru með hana í veltur, hringsnerust í lofinu, steyptu henni og gerðu aðrar flugraunir, sem venjulegar farþegaflugvélar eru aldvei látn- ar þola. Fjölda af mælingatækj- um var komið fyrir í hÖggtrygg- um og brunatryggum kössum, svo að tækin segðu söguna, hvað fyrir hefði komið, ef enginn reynsluflugmannanna lifði af. Tvær flugvélar vorxx gersam- lega skrúfaðar sundur og styrk- leiki hvers hlutar nákvæmlega mældur og reiknaður út af fjöl- mennu liði hinna færustu verk- fræðinga. MÁLMÞREYTA Þá ber þess að geta, að leif- arnar af tveimur flugvélunum sem fórust voru týndar nákvæm- lega upp og raðað niður eins og fornfræðingar raða fomu, brotnu leirkeri, tiV að revna að finna, hvar í vélinni sprengingarnar hefðu orðið, hvernig þær hefðu tætzt. í sundur. Og í október 1954 lá niðurstaða rannsóknanna ioks frammi, Flug- máladómstóll Bretlands skýrði frá árangrinum, en i honum hafði m.a. starfað sá maður, sem talinn er færasti flugfræðingur Breta, Sir Arnold Hall. Hann skýrði frá því að Comet-slysin hefðu atvikazt þannig að umbúnaður við einn giugga á fiugvélinni framar- lega heíði ekki verið nægilega traustur. Á þessum stað mædtii mikill þrýstingnr, þeg- ar flugvélin væri komin á hinn cfsaiega hrað'a. Þrýstingurlnn þreyíti máiminn. Þegar þessi staður biiaði, þá fengi loft- þrýstfagnrinn s vclinni skyndi lega öra útrás í þunnu háloft- inu. Þr-tta hefði verkað líkt og sprenging. Stærsta brotið varð um miðjan flugvélarbúkinn og hreicldist það siðan með ör- skotshraða um alla vélina og brotin féllu í hafið. Allir sem um feerð höfðu verið vora látnir áður en þeir féllu í haf- ið. — HAFA BRETAR BEBIÐ ÓSIGUR Nú voru leystir fyrstu tveir þættir hinnar brezku áætlunar um endurreisn í þessu alvarlega máli. En þriðja atriðið: Að vinna aftur hinn tapaða flugvélamark- að og heiður Comet-flxigvélar- innar. Nú þegar er farið að undirbúa fjöldaframleiðslu á flugvélinni og er hún nú að komast af stað. En þessi mistök höfðu kostað margra ára töf. Eftir flug Comet-flugvélarinn- ar til Ástralíu á dögunum hefur heiður hennar aftur hækkað mjög. Nú þykjast menn öruggir um að fleiri óhöpp verði ekki. ENN ER EKKI ÖLL VON ÚTI Og flugvélin setti nýtt og glæsi legt hraðamet, sem er í anda þessarar aldar þrýstiloftshveyfl- ana. En þessi viðureign heíur orðið á s'ðustu stundu, því að nú eru Bandaríkjamenn að ljúka yið fyrstu þrýstilofts-farþegaílugéél- arnar. Framh. á bls. 12

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.