Morgunblaðið - 10.12.1955, Side 5

Morgunblaðið - 10.12.1955, Side 5
I Laugardagur 10. des. 1955 HORGUN BLAÐID n | Rauðamö! Athugasemd í TILEFNI AF GREIN í Þjóð viljanum 2. des 1955 er óskað að taka fram: Fyrir skömmu komu fulltrúar frá Vörubílstjórafélaginu Þrótti til borgarstjóra og óskuðu atbeina hans vegna deilu, er risin var milli félagsins anriars vegar og hins vegar hafnfirzkra vörubíl- stjóra og yfirvalda Hafnarfjarð- arbæjar. Orsök deilu þessarar var sú. að félagar I Þrótti höfðu um skeið unnið fyrir Eimskipafélag fs- lands h.f. að því að flytja rauða- möl frá Straumi fyrir snnnan Hafnarfjörð á lóð Eimskipafélags ins við Borgartún. Hafnfirðingar töldu sig eiga forgangsrétt að þessari vinnu og var haft á orði, að þessir flutningar yrðu stöðvað- ir með öllu. Fulltrúar Þróttar óskuðu þá eft ir því, að borgarstjóri hlutaðist til um það, að leyfð yrði efnis- taka í Rauðhólum. Undarifarið hefur sá háttur verið á hafður, að vinnuflokkur frá Reykjavíkur hæ hefur unnið efni í Rauðhól- um um leið og unnið hefur verið að gatnagerð í bænum, þ e. 4—5 mánuði ársins. Á þeim tíma hafa einstaklingar fengið þar efni gegn því, að greiða kostnað við að raoka á bíla þeirra. Á öðrum tíma árs hefur yfirleitt ekki Verið s-tarfað að efnistöku, enda eftir- spurn verið lítil. Hefur þá Rauð- hólum verið „lokað“, enda þá á- stæðulaust að halda uppi eftirliti J^ar eða hafa þar vinnuflokk. Þegar beiðni barst um það frá fulltrúum Þróttar, að Eimskipa- fálagið fengi aðgang að Rauðhól- um með vinnuflokk, er það legði til, þá þótti ekki fært að neita því, þar se mhér var um að ræða töluvert magn af lítt eftirsóttu efni og verulega atvinnu fyrir reykvíska vörubílstjóra. Þess skal sérstaklega getið, að umbeðið levfi var ekki veitt sam- kvæmt beiðni Eimskipafélags ís- lands h. f. Síðar kom í ljós, að ýmsir fleiri höfðu hug á að fá efni í Rauðhól- um og barst fyrir skömmu form- legt erindi til bæjarráðs um levfi til efnistöku og í dag var ákveðið að verða við því, þannig að ein- staklingum skuli heimilt að taka efni í Rauðhólum undir eftirliti verkstjóra bæjarverkfræðings. Þá er rétt að taka fram, að 15. des. 1944 bannaði bæjarráð, að efni yrði tekið úr þeim gigum í Rauðhólum, sem þá voru óskertir. Því banni hefur verið framfylgt, en efni hins vegar verið tekið úr þeim gígum, sem setuliðið hafði tekið efni úr á stríðsárunum. Skrifstofa bæjarverk fræðings. Keima eftir Afríkuför Ég sá aldrei karldýrið Jólnkort Bornnhjólpar S.Þ. KVENSTÚDENTAFÉLAG ÍS- LANDS hefur nú eins og að und- anförnir tekið að sér sölu jóla- korta Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF), og er það í þriðja sinn, sem félagið annazt sölu þessara. korta. Sala kort- anna hefur til þessa gengið vel, t.d. var ísland árið 1953 annað í röðinni með tölu seldra korta í hlutfalli við fólksfjölda. Barnahj álp. Sameinuðu. þjóð- anna, sem hefur starfað síðan 1946, eru stærstu alþjóðasamtök, sem vinna að aukinni heilbrigði og bættum kjörum mæðra og barna. Sjóðum bamahjálparinn- ar er varið til sjúkrahjálpar, bólusetningar gegn farsóttum og kaupa á matvælum, t.d: mjólk, til barna og mæðra, sem liða af næringarskorti. Bamahjálpin hefur þegar hjálpað milljónatugum barna og færir stöðugt út verksvið sitt og nær á hverju ári til fleiri og fleiri barna, en mæður og böm, sem hefur verið hjálpað, hafa af því, varanlegt gagn. Ein aðalfjáröflunarleið stofnun. arinnar er sala korta, og er leitað til almennings með því að hvetja fólk til þess að kaupa þau. Á síð- ustu árum hafa Íslendíngar ekki lagt annað til þessarar starfsemi heldm* en það, sem sala jóla- korta þeirra, sem Kvenstúdenta- félag íslands hefur á boðstólum, gefur af sér. Ættu allir að hafa það að huga, er þeir kaupa kort tjl þess að senda vinum sínitm nú um jólin. Kortin eru teiknuð a£ ágætum listamönnum qg eru mjög falleg, Þau fást bæði eiit .og oítt og einn- ig i smekklegum kossum með 10 stykkjum, og eru í hverjum kassa fimm gerðir af kortum ásamt umslögum. Kortin eru til sölu í bókaverzlunum og hjá Kven- stúdentafélagi íslands. Munið, að með því að kaupa 10 kort hafið þér veitt fimmtíu börn um mjólk í eina viku eða séð fyr- ir því, að fimmtíu börn verði bólusett gegn berklum. Gólfteppi Hiesta urvai í bænusit. Argamaiu tékknesk, 3,66x4 57, 2.74x3.66. Remo Extra 3,00x4,00, 2,50x3,50, 2,00x3,00. Sevilla Hampteppi 1,60x2,30, 1,90x2,90, 2,50x3,50. Xpress 70x1,40, 1,40x2,00. 1,60x2,30, 1,90x2,90, 2,30x2,74. * Lenda 1,90x2,90, 2.74x3.20. Saxonia, þýzk teppi, 2x3, 2,50x3,50, 3x4. Tarus 2x3, 2,50x3,50. TEPPI h.f. á horni Njálsgötu og Snorrabrautar. LANDGRÆÐ8LU SJÓ0UR MUNÍO pakkana meo gr/fnu MERKJUNUM SkrifsfofumaðuiE* getur fengið fast starf á stórri skrifstofu. Umsækjend- ur leggi nöfn sín ásamt upplýsingum um. aldur, menntun og fyrri störf í pósthólf 635, merkt: „Skrif- stofumaður — 810“. INfMRETTIAGAR Nú um helgina tekur til starfa nýtt trésmíðaverk- stæði að Ytri-Grund, Seltjarnarnesi. Þar verða frani- leiddar eldhúsinnréttingar og fleira. Áherzla lögð á vandaða vinnu og sanngjamt verð. Upplýsingar í síma 81079. — (Geymið auglýsinguna). Felix Þorsteinsson. Guölaugur Sigurðsson. Ný sending GULLFOSS Aðalstræti Eftir hreinsun hjá okkur fá fötin sinn upprunalega blæ. Jata, ipreóáan Hverfisgötu 78. P.l Það er vandi að velja sér kjól! Þess vegna er bezt aS hugsa tímanlega um Jólokjólinn Lítið inn hjá Guðrúnu og skoftið úrvalið og þér irnuiuð ekki veriía fyrir vonbrigðum. KaupiÓ kjóBÍKin Hjá GUÐRIJNU Verzlunin GUÐRÚN Rauðarárstíg 1 Örstutt frá næstii strætisvagnastöff. Ágætt bifreiðastæði við búðina. MUNIÐ hornið á Rauðarárstíg og Skúlagötu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.