Morgunblaðið - 21.12.1955, Side 13

Morgunblaðið - 21.12.1955, Side 13
Miðvikudagur 21. des, 1955 MORGU N B LAÐIÐ 29 iildar í Kaupnuniiuhöfn - ítalskar kvikmyndadísir i Kaupm.höfn í des. 1955. i VETURINN er nú fyrir alvöru farinn að gera vart við sig í Danmörku, einum mánuði fyrr en venja er til. Hálfum mánuði fyrir jól féll snjór um land allt og olli víða samgöngutöfum. — Síðastliðna daga hefur verið 1—8 stiga frost í Kaupmannahöfn og i surns staðar á .TötlRndi 19 st':rra| nœturfrost. Veðurfræðingarr ir búast við áframhaldandi kulduri, en þora þó ekki að „lofa“ þVí, að snjórinn haldist til jóla. Danir byria snemma að búa sig undir jólin. Frá því í lok nóvember hefur „Strikið" verið í jólaskrúða. Grenivafningar þvert yfir göturnar alla leið frá Páðhústorginu til Kpriesins. Nýjatorgs eru skreyttir óteljandi Ijósum. Meira en mánuði fyrir jól byrjuðu Kauomannahafnar- búar að kaupa jólagjafir. Síðan befur verið ös í verzlunum og j þröng á götunum, sérstaklega ut- an við hina uppljómuðu og skrautlegu sýningarglugga. DANIR KAUPA í SVÍÞJ6ö .... Þótt gnægð sé af öllum vörum í Danmörku, þá fer fiöldi Dana til Svíþjóðar til að kaupa ýmis- legt til jólanna, fyrst og fremst. hnetur, möndlur, leðurvörur, portúgalskar sardínur og niður- soðna rússneska krabba. Þessar vörur eru þar ódýrari en í Dan- mörku. ... OG SVÍAR í DANMÖRKU Svíar koma líka hópum sam- an til Danmerkur. Kaupa þeir þar aðallega matvæli, sem eru ódýrari í Danmörku en í Sví- þjóð. Kjöt er t. d. h. u. b. þriðj- ungi ódýrara. Smjör kostar 7,50 í Svíþjóð en ekki nema 6,47 í Danmörku, sykur 1,14 í Svíþjóð Og 0,77 í Danmörku, allt saman reiknað í sænskum kr. Sænsku húsmæðumar í Eyrarsundsbæj- 'unum, sérstakleea í Helsingja- borg, fara að vísu ailt árið við og við til Danmerkur til að kaupa þgr matvæli, en þær fjöl- menna einkum þangað, þegar jól- in nálgast. Fyrstu vikuna i desember fluttu Eyrarsundsskioin 70.000 farþega milli Kaupmannahafnar annarsvegar og Málmeyjar og Landskróna hinsvegar. Líklega álíka margir fóru yfir sundið milli Helsinginevrar og Hels- ingjaborgar. Búist er við að þessar jólakaupafevðir setji nýtt met í þessum mánuði. Danir fjölmenna líka til Flens- borgar til að kauoa jólavörur. Verzlanirnar em þar opnar á hverium sunnudegi í desember. Danir streyma þá þangað í einkabílum og troðfullum lang- ferðabílum. Sumir koma alla leið frá Fjóni og Norður-Jót- landi. Fyrsta sunnudaffinn í des- ember fóru 12.000 Danir til þessa þýzka landamærabæjar, þar sem þeir fyrst og fremst kaupa leik- föng og áfengi. JÓLASVEINNINN í GRÆNLANDT FÆR BRÉF Nú fyrir jólin á Ferðafélagið danska að venju annríkt með að svara bréfum, sem koma frá börnum víðsvegar um heim og stíluð til jólaSveinsins á Græn- landi. Börnin láta þar í ljós ósk- ir sínar um jólagjafir. Ferða- félagið svarar öllum bréfunum og sendir börnunum ævintýri eftir H. C. Andersen í enskri þýðingu. Búizt er við 12.000 bréfum í þetta sinn. Það er að vísu álit- leg tala, en lítið á móts við það sem var fyrir nokkrum árum, þegar jólasveinninn f ékk bréf frá 120.000 börnum. Flest þeirra hafa vafalaust orðið fyrir von- brigðum, þegar þau fengu eklti annað en lítið ævintýri. ÍTALSKAR. KVIKMYNDA- „STJÖRNUR" Mörgum var forvitni á að sjá Soffíu Loren, þegar hún kom til Kaupmannahafnar í byrjun vekja athygli - Niels litli lékó lög- gjaiann - H. C. Hansen til Moskvu Kaiépm.hafnarbréf frá Páli Jónssyni þessa mánaðar. Það var margt1 nvvnna utan við „World Cinema", þegar þessi „stjarna" kom þang- að til að vera vjðstödd frum- sýningu á ítölsku kvikmyndinni „Horfinn heirnur" („II conti- nente perduto“). Þetta er dásam- lega fögur ferðamynd, sem ítal- inn Leonardo Bonzi og félagar hans hafa tekið í Burma, Thai- landi og Indónesíu. Auk Soffíu komu leikkonurn- ar Silvana Pampanini og Lea Massari til Hafnar og ennfremur hinn ungi kvikmyndaleikari Roberto Risso, nokkrir leikstjór- ar og Cassuto, aðalforstjóri Un- italiafilm. Frá Kaupmannahöfn fór þetta ítalska kvikmyndafólk til Svíþjóðar og Noregs. Tilgang- ur ferðarinnar var að auka áhuga á ítölskum kvikmyndum. FERDAST EKKI SAMAN Það vakti eftirtekt, að Soffía og hinar tvær leikkonurnar urðu ekki samferða, hvorki þegar þær komu til Hafnar eða fóru þaðan. Virtist vera grunnt á því góða með þeim. „En það er sannar- lega ekki mér að kenna“, sagði Soffía. „Eg hef hvað eftir annað bent ljósmyndurunum á þessar tvær meðsystur mínar, en það hefur engan árangur borið. Ljós- myndararnir koma alltaf til mín‘. Upphaflega var búizt við, að Gina Lollobrigida mundi verða þarna með í hópnum, en hún sendi afboð, af því að Soffía var með í ferðinni. Þessar tvter „stjörnur" eru vægast sagt ekai vinkonur. Unitalíiafilm hafði móttöku á Hótel d’Angleterre í Kaup- Niels litli, sem lék á löggjafann. mannahöfn ítölsku „stjömunum“ til heiðurs og bauð þangað leik- urum og blaðamönnum í Höfn. 25 ljósmyndarar stóðu í hálf- hring og tóku myndir af „stjöm- unum“, þegar þær komu inn í salinn. Athyglin beindist fyrst og fremst að Soffíu. Hinum var lítill gaumur gefinn. „SEX-BOMBA" Dönsku blöðin kölluðu Soffiu „sex-bombu“. Þetta stóð með stóru letri í fyrirsögn grein- anna um komu hennar. Yfir- leitt virtist athygli fólks bein- ast meira að útlitsfegurð þess- arar „stjörnu“ en að kvikmynd- unum, sem þarna átti að aug- lýsa. Soffía sagði við blaðamenn m. a. að hún hefði leikið í 25 kvikmyndum síðastliðin þrjú ár- in. Fyrir skömmu hefði hún leik- ið Carmen í kvikmynd, sem tek- in var á Spáni. Þetta væri stærsta hlutverkið, sem hún hefði haft og líklega það hlutverk, sem henni hefði tekizt bezt. ítölsku „stjörnurnar" þrjár, talið Loren og Silvana Pampanini. VILL GIFTAST OG EIGA BÖRN Hún var spurð að því, hvort hún væri trúlofuð. „Nei“, sagði hún, „en heitasta ósk mín er að giftast og eignast börn. Eg er þó ef til vill ennþá of ung til þess. Eg er ekki nema 21 árs.“ Aðspurð um Ginu Lollobrigida, svaraði Soffía. „Amerískur blaðamaður skrifaði, að ég hefði sagt óhróður um þessa leikkonu. Þetta var misskilningur, sem staf- aði af því, að blaðamaðurinn átti erfitt með að skilja ítölsku. En ég held að bezt sé að tala ekki meira um þetta.“ LEIKLIST EDA FORNMENJAFRÆÐI Silvana Pampanini og Lea Massari voru sagnafáar við blaðamenn. Siivana hefur verið fegurðardrottning ítala. Hún hefur leikið í 50 kvikmyndum síðan 1947. Lea er yngst og minnst þekkt af þessum þremur leikkonum. Hún er einstaklega látlaus og viðkunnanieg. Hún hefur aðeins leikið í einni kvik- mynd en hlaut mikið lof fyrir það. Lea sagðist vera að hugsa um að snúa bakinu að leiklistinni og stunda fornmenjafræðinám. NÍELS LITLI KOM RÓTI Á RÁBHERRANN I 11 ára drengur í Slagelse, Niels að nafni, hefur komið því til leiðar, að Ström félagsmála- ráðherra ætlar að leggja fyrir Þjóðþingið tillögu um breytingu ó vinnuverndarlögunum. Frá því á siðastliðnu sumri hefur verið bannað með lögum að nota börn eða unglinga, sem ekki eru 18 ára að aldri, til að bera út brauð eða aðrar vofur á sunnudögum. Síðastliðna mánuði hefur fólk því ekki getað fengið morgun- brauð á sunnudögum nema með því að sækja það 1 brauðsölu- búðirnar. Margir kunnu þessu illa. En svo datt Niels gott ráð i í hug. Þótt brauðsalarnir mættu ekki nota hann til að bera brauð út til neytendanna, þá var ekk- ert því til fyrirstöðu, að neytend- urnir létu hann sækja brauðið. Niels fór því til nágrannanna á hverjum laugardegi og spurði, hvers konar morgunbrauð hann ætti að kaupa fyrir þá næsta I morgun. Og svo kom Niels með opinberri heimsókn í Rússlandi. Erlander forsætisráðherra Svla fer til Rússlands um næstkom- andi páska. Dönsk landbúnaðar- sendinefnd með Smörum land- búnaðarráðherra í broddi fylk- ingar hefur heimsótt Rússa, og danskri þingmannasendinefnd hefur verið boðið til Moskvu á komandi vori. En ekkert heyrð- ist um heimboð til H. C. Hansen. Nú um miðjan desember hefur sovjetstjórnin þó loksins boðið honum til Moskvu. Hefur hann þegið boðið og gerir ráð fyrir að heimsækja valdhafana 1 Kreml í marz. RÆTT UM VIBSKIPTASAMNING Ennþá hefur ekkert nánar verið ákveðið um ferðina. Hafn- arblöðin gera ráð fyrir, að H. C- Hansen tali við Rússa m. a. um möguleikana fyrir viðskipta- samningi milli Dana og Rússa. Viðræður þeirra á milli um við- skiptasamning fóru sem kunnugt er út um þúfur fyrir hálfu öðru ári, þegar Rússar kröfðust þess, að Danir smíðuðu 2 olíuflutn- ingaskip fyrir þá. Sovjetstjómln vissi þó vel, að aðilar Atlants- hafsbandalagsins hafa skuld- bundið sig til að selia Rússumi- ekki þess konar skip. Danir neit- uðu að verða við þessari rúss- oesku kröfu. sem H. C. Hansen. taldi fram komna í pólitískum tileangi. Síðan hefur enginn við- skiptasamningur verið milll Danmerkur og Rússlands. Hafnarblöðin búast við, að H. C. Hansen noti tækifærið, þegar frá vinstri: Lea Massari, Sophia hann kemur til Moskvu. til að , , gera sovjetstjórninni ljóst, að I Danir ætla ekki að breyta um stefnu í utanríkismálunum. Þeir brauð til nágrannanna á hverj- telja þátttöku í varnarsamtökum um sunnudagsmorgni. j vestrænna þjóða nauðsynlega. LÖGUNUM BREYTT Félagsmálaráðherranum var bent á þetta í spurnartíma í Þjóðþinginu. Hann ráðgaðist við flokksformennina um málið og ákvað svo að leggja fvrir þingið lagafrumvarp um afnám á þessu banni við notkun unglinga til að bera út sunnudagsmorgun- brauðið. Brauðsölunum þykir vitanlega vænt um þetta. Bakameistari í Kaupmannahöfn ætlar að senda Niels 200 kr. fyrir jólin. Það á að vera jólagjöf og vottur um þakklæti fyrir það sem Niels hefur gert í þessu máli. H. C. HANSEN LOKS BOÐED Danir furðuðu sig lengi á því, að H. C. Hansen forsætis- og utanríkisráðherra var ekki boðið til Moskvu. Gerhardsen forsæt- isráðherra Norðmanna er sem kunnugt nýkominn heim úr SA’vthELDNI vestrænna , ÞJÓÐA | í ræðu á afmæiishátíð blaða- mannafélagsins í Höfn minnt-1 ist H. C. Hansen á hina fyrir-1 hueuðu Mosk^mferð. Hann sagð- ist vona, að viðræður við sovjet- valdhafana yrðu gagnlegar. Þær geti bó ekki breytt grundvallar- afstöðu Dana til sovjetríkjanna, en ef til vill skapað betri skiln- ing og meiri samvinnu milli Dana og Rússa. Forsætisráðherrann sagði enn- fremur, að margir hefðu verið allt of bjartsýnir um horfurnar í heimsmálunum eftir Genfar- fundinn á siðastliðnu sumri. Ráð- herrann sagðist þó vona, að á- framhaldandi viðræður um lausn vandamálanna yrðu mögulegar. En hað gæti haft örlagahrungnar aflpiðinp'-jí’, ef samheldni vest- rænna þjóða veiktist. PáU Jónsson. Vokkur orð um Skorradalsveg SÚ VAR TÍÐIN, að vegurinn! yfir Geldingadraga, eða Drag-1 háls, eins og hann er stundum kallaður, var eina akfæra leiðin milli Suður- og Norðurlands. Þá var veginum sómi sýndur, eftir því sem tök voru á. Síðan kom þjóðleiðin fyrir framan Hafnar- I fjall og ýmsir erfiðleikar sem í fylgdu veginum yfir Dragann, | sem er hálfgildings fjallvegur og liggur um þrönga dali, voru úr sögunni. En þótt tækist að finna betra vegarstæði og öruggan vetrar- veg, var ekki svo að skilja að hin leiðin leggðist niður með öllu. Áætlunarferðir stórra bif- reiða fluttust að vísu á Hafnar- fjallsleiðina, en ýmsir lögðu leið sína einkum að sumarlagi, um Dragann, á sínum eigin bifreið- um. En að haust og vetrarlagi eru það bændurnir í sveitunum umhverfis, sem þurfa vegarins við, m. a. til Ajólkurflutninga og auk þess eiga nokkrir þeirra nú vélknúin ökutæki. Hin síðari ár hefir ástand veg- arins verið næsta hörmulegt og t. d. má nefna það að s. 1. sum- ar, sem var að vísu mikið rign- ingasumar, var það daglegur við- burður að bifreiðar, sem fóru þenna veg urðu að fá aðstoð, meiri eða minni, er þær sátu fastar í djúpu vatni á leið, sem þó á að heita þjóðvegur, Aðalorsök þessa vandræða- ástands er að því er bezt verður séð, kæruleysi. Vegna Andakíls- árvirkjunarinnar, sem hefur líf- æð sína úr Skorradalsvatni var ós vatnsins stíflaður að nokkru og allt rennsli úr vatninu tak- markað með straumlokum, þannig að hægt er að hafa vald á yfirborði vatnsflatarins með því að taka úr og setja i svo og svo margar lokur eftir því sem vatnsmagnið eykst og fjarar út. Þegar vatnavextir eru verður þvi að fylgjast mei5 því °g taka lok- ur úr jafnharðan og vatnsborðið hækkar. En vegna þess hve herfi- Frh. á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.