Morgunblaðið - 21.12.1955, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 21.12.1955, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 21. des. 1955 MORGUNBLAÐIÐ 31 Friðrik Eiríksson: Hugleiðingar um jói og vináftu Skrifað í Bandaríkjunum í fyrstu viku desember- mánaðar 1955. EIN HELZTA hátíð hinnar kristnu kirkju, um allan heim, eru jólin. I>au eru gleði- og fagnaðarhátíð, sem hefur • mikla þýðingu fyrir sérhvert okkar, en fyrst og fremst eru þau hátíð barnanna. Löngu fyrirfram fóru þau að hlakka til þeirra; hvað þau muni fá í jólagjöf, hvort þau fái jólatré o. s frv. NOKKUR mismunur er á helgi- siðum jólanna át um heim. Flest- ar enskumælandi þjóðir halda aðeins jóladag heilagan, svo er og hér í Bandaríkjunum, en und- • irbúningur hefst 5—6 vikum fyrirfram. Verzlanir og fyrirtæki ■öll, stór og smá, keppast við að skreyta borg og bæ. Gríðarstór jólatré eru reist á torgum og gatnamótum og þau svo fagur- lega skreytt og lýst að undrun , sætir. Rauð klæddir jólasveinar, með geysisíð skegg, aka um götur stórborganna og syngja jóla- söngva. Menn keppast við að kaupa jólagjafir handa vinum og vandamönnum sumir af heil- um hug, aðrir til þess að sýnast. JÓLIN efla hvarvetna vináttu manná ’ á meðal. Jólabamið, meistarinn frá Nazaret var vinur alls mannkynsins og hann kom í heiminn til þess að vér yrðum vinir — vinir Guðs. Heil vinátta hefur mikið að segja fyrir manninn. „Góðar eru gjafir þínar, en betri þykir mér vinátta þín,“ sagði glæsimennið á Hlíðarenda, forðum, við spek- inginn á Bergþórshvoli. Hebrear töldu vináttu góðs og göfugs manns öllum jarðneskum gæð- um æðri. f siðfræði Aristoteles- ar, hins gríska spekings, skipar vináttan öndvegissess. Rómverskí málsnillingurinn Cicero ritaði bók um vináttuna og höfundi Hávamála verður skrafdrjúgt um vini og vinfengi. TAKMARKANIR og vandkvæði mannlegrar vináttu eru margar, en vináttusamfélag kristinna manna við eilífan lausnara þeirra er heillaríkt og auðugt að bless- un, svo að þessi vandkvæði verða því ekki eins þungbær og erfið. Fjarlægðir, breytt kjör og viðfangsefni skapa raunveruleg- ár hindranir milli vina, svo að erfitt verður um framkall vin- — Lundúnabréf > Frh. af bls. 25. velta sem nú. A síðasta ári eyddi þjóðin 94 milljónum sterlings- punda af sparifé sínu á þrem vikum fyrir jólin, og útlit er fyr- ir að sú upphæð verði enn hærri í ár. Englandsbanki varð að senda 33 milljónir punda af seðlum í umferð, aukreitis, í síðustu viku. Einkum virðist matvöruverzlunin hafa vaxið fyrir þessi jól, á kjöt- markaðínum í Smithfield er meiri velta en nokkru sinni fyrr. E.t.v. sýnir'það betur en nokkuð annað að þótt dýrtíð hafi nokkuð aukizt, þá er velmegun almenn- ari en nokkru sinni fyrr. ★ ★ ★ Öldungurinn frá Blenheim, Sir Winston Churchill, er nýlega kominn heim úr langri heilsu- bótardvöl suður við Miðjarðar- haf. Þegar eftir heimkomuna hélt hann fund í kjördæmi sínu og var hinn skeleggasti. Síðan tók hann sætý á þingi, senj þver -app-. ar nýsveinn á afturbokkjum. Sú fregn kom á kreik skömmu síðar, að hann væri að búa sig undir að taka við er Eden léti af störfum fyrir aldurs saku. London, 12. desember, áttunnár. Glöp og eftirsjónir manna gera og sitt til að sundra tengslum hryggða og vináttu. Hin mörgu og ólíku tungumál, sem kristnir menn verða að nota, til þess að tjá skoðanir sínar og áform, eru mörgum mönnum fullkomin hindrun á vegum vin- áttu og samskilnings með játend- um kristinnar trúar. En andi Krists gerir allar þessar tak- markanir að engu, því að andi hans og andi kristinna manna geta ræðzt við á hverju því tungumáli sem bezt hentar; þar þarf engan túlk, því að kristin trú er vinátta milli hans og allra þeirra sem trúa á hann og treysta honum. OG nú líður að jólum. Þau munu nú eins og ætíð áður færa yl og hlýju inn á heimili kristinna manna, og einnig munu þau styrkja vináttu manna á meðal um allan heim. Gleðileg jól! — Skorradalsvegur Frh. af bls. 29. lega þetta hefir verið trassað af starfsmönnum Andakílsárvirkj- unarinnar, hefir vegurinn með- fram Skorradalsvatni iðulega legið undir djúpu vatni allt upp í 80 cm. Það mun hafa verið kvartað um þetta af viðkomandi aðilum og jafnvel skorist í odda með þeim. Ekki hefir þó mér vitan- lega fengist úr því skorið hver ber ábyrgð á ófremdar ástandi þessu. Og ekki hefur borið á því að yfirmenn vegamála hafi látið neitt að sér kveða og tekið af skarið í bessum efnum. Fyrir nokkrum dögum átti ég leið, í jeppa, um Dragann og vestur með Skorradalsvatni. Þrátt fyrir þrjár straumharðar fjallaár, byrjuðu erfiðleikarnir fyrst á veginum milli Stóru- og Litludrageyra þar sem vegurinn lá undir vatni sem tók jeppan- um undir bretti, þannig að hjól- in fóru stundum í kaf. Nóttina eftir fraus og mátti heita að þá væri vegurinn ófær með öllu. Hvernig færi nú ef þyrfti að sækja lækni þessa leið í lífs- nauðsyn? Vegurinn engu öku- tæki fær þegar frýs meir, og tæplega hestum heldur. Mundi stöðvarstjórinn við Andakílsár- vrrkjunina vilja velta því fyrir sér? Nú langar mig til að gera fyr- irspum, fyrir hína hönd og ann- arra sem vanræksla þessi bitn- ar á: Hvers vegna er ekki fylgst bet- ur með því að vatnsborðið í Skorradalsvatni standi ekki ó- hæfilega hátt meðan engar ráð- stafanir hafa verið gerðar til að færa veginn af vatnsbotninum? Hér þarf að verða breyting á. Þeir, sem þetta hefur bitnað harð ast á, svo árum skiftir, bænd- urnir sem verða að ösla þenna veg og brjóta sér braut gegn- um klaka og krap, oft í viku, til að koma mjólkurafurðum sínum á maikað, eiga kröfu á því fyrst og fremst auk allra annarra sem um þenna veg þurfa að fara. Sök þeirra ábyrgu aðila sem hér skjóta við skolla eyrum, verður ekki véfengd en furðu- legt má vera ef þeir ekki nenna að firra náungann vandræðum, sem þessum og hvað um yfir- mann allra þjóðvega í landinu — og undirmenn hans. Óskar Þórðarson. _____ÍSCit IÖGGIITUR SKJALAbteANDI • OG DÖMtOlHUR IENSWJ • liummi - suu 81655 AðaKundur Hins ísl. biblíufélags AÐALFUNDUR Hins íslenzka daga 6—8 stiga hiti, og er það Biblíufélags var haldinn í Dóm- kirkjunni miðvikudaginn 30. nóv. Fundur hófst með því, að sung- inn var sálmur, en síðan flutti formaður félagsins, dr. Ásmund- ur Guðmundsson biskup, skýrslu um störf félagsins á árinu.. Skýrði hann ffá þvi, að í sam- rærai við ályktun síðasta aðal- fundar, hefði félagsstjórn leitað tilboða um prentun Nýja testa- mentisins með stóru letri. Samn- ingar tókust .við prentsmiðjuna Leiftur, og er bókin nú fullsett. Var ætlunin, að Nýja testamentið kæmi út fyrir jólin, en það mun dragast nokkuð sökum þess, að verið er að leita eftir að fá leigð myndamót hjá Brezka Biblíufé- laginu, svo að útgáfan verði myndum prýdd. Um þetta eru ekki komin fullnaðarsvör frá fé- laginu, og mun útgáfan af þeim sökum dragast til vors. Þessu næst ræddi biskup um prentun Biblíunnar allrar hér heima. Kvað hann það mál vera í athugun og stæðu yfir samning- ar við Brezka Biblíufélagið, sem allar horfur væru á, að mundu verða okkur hagstæðir. Að lokum þakkaði hann gjafir og annan stuðning manna félag- inu til handa. Þá lagði féhirðir fram reikn- inga félagsins 1954 og voru þeir samþykktir. Næst var rætt um skipulagn- ingu og eflingu félagsstarfsins. Var í því sambandi samþykkt að hækka árgjald félaga í kr. 20.00 og vinna að því að gera félagið fjölmennara. f fundarlok flutti séra Sigur- björn Á. Gíslason erindi, er hann nefndi: Kvnni mín af erlendum Biblíufélögum. Fundi lauk með sálmi og bæn. mn ■f $ Hf r \ FYRIR nokkru færði Slysavarna- félag íslands skólum Reykjavík- ur að gjöf 5000 eintök af bækl- ingnum „Þú ert ekki einn í um- ferðinni“, ‘og eru það leiðbeining- ar fyrir hjólreiðamenn. Þessum bæklingi hefur nú ver- ið útbýtt til 11 og 12 ára barna í barnaskólunum og til nemenda í 1. og 2. bekk gagnfræðastigsins. Undanfarnar vikur hafa íþrótta- kennarar í barna- og gagnfræða- skólum kennt nemendum hjálp í viðlögum og umferðareglur í leik fimitímum, þar eð leikfimi- kennsla hefur ekki farið fram sökum mænuveikifaraldurs. — Áður en þessi kennsla hófst, hafði Jón Oddgeir Jónsson stutt nám- skeið með kennurum, en Þor- steinn Einarsson skipulagði kennsluna. Umferðakennslunni er að mestu lokið, en lögreglumenn heimsækja skólana um þessar | mundir til þess að ræða umferða- málin við nemendur. ! Skólarnir, Slvsavarnafélagið og lögreglan hafa að undanfömu lagt mikla áherzlu á umferða- málin meðal skólanemenda. Nú þurfa vegfarendur einnig að leggia sinn skerf fram. Sá, sem virðir ekki umferðamerki barns eða unglings á reiðhjóli, rífur niður, það sem verið er að byggja upp og stuðlar að aukinni um- ferðahættu. Hafa unglingar látið það í Ijós, að merkjum þeirra væri iðulega ekki sinnt af full- orðnu fólki. Um leið og Slysavarnafélaginu er þakkað fvrir nvtsarhan bækl- ing, og öðrum aðilum kennslu og leiðbeinineastörf, er því beint til foreldra þeirra nemenda, sem bæklinginn hafa fengið, að hvetja þá til þess að rifja óftsinnis upp unxferðareglurnar og varðveita bæklinginn vel. Börn og ungling- ar eiga oft líf sitt og fjör undir því, að allir yngri sem eldri virði umferðareglurnar. Nr. 7 eru snyrtivörur hinna vandlátu Fást í öllum apótekum og sérverzlunum í Reykjavík, Einnig á Akureyri, Keflavík, Siglufirði, ísafirði, Vestmannaeyjum. NÚMER SJÖ SNYRTIVÖRUR eru alveg ágætar — og ekki mjög dýrar. Munið ávallt númer sjo Uppþ vottagrindur Uppþvottamottur Eggjagrindur Diskagrindur Hlífðarmottur Baðkersmottur Boðherbergii- mottur W.C. mottur Gólfmottur Hillumottur Deigmottur Sópskúffur Súpuskúlar o. m. fl. fyfkiíggjontíl- Kokus og sísal gangadreglar Ný sending af hollenzkum Kokusdreglum tekin upp í dag. — 70— 80 — 90— 100 — 117 cm. br. Margir litir. — Mörg mynstur. Sérstaklega fallegir dreglar. Gólfteppagerðin h.f. Bárónsstíg — Skúlagötu. — Sími '/360.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.