Morgunblaðið - 18.02.1956, Síða 7

Morgunblaðið - 18.02.1956, Síða 7
JLaugardagur 18. febrúar 1956 MORGUNBLAÐIÐ !?, FRÁ SAMBANDI UNGRA SJÁLFSTÆÐISMANNA RITSJÖRI ÞÓR VILHJÁLMSSON Hannes Pétursson: S'i&ari grein Á ALDARÁRTÍÐ HEINES Heine eg Þýzkaland HEINRICH HEINE er fæddur’ árið 1797. Rithöfundarferill hans hefst kringum 1820, þá kom út fyrsta ljóðabók hans. Goethe var þá enn á iífi, rúmlega sjötugur að aldri, en Schiller var látinn. Klassikin, sem birtist í verkum þessara tveggja manna, hafði látið í minni polcann fyrir nýrri skynjun og mati 6 lífinu, róman- tíkinni. Hinu stranga óhaggan- lega formi er varpað tyrir borð; ekki er lengur spurt, hvað sé lyrik í sínu innsta eðii, hvað epik og hvað drama, heldur hræra rómantísku skáldin öllu þessu þrennu saman á nýjan leik, því nú var um að gera að ímynd- unaraflið fengi að leika lausum hala óhindrað, slá í senn á aila strengi mannlegrar reynslu; hreyfingin og hið óskýranlega og óendanlega í öllum hlutum.verð- ur keppikefli allra skálda, og miðpunktur og skapandi allrar tilverunnar er sjálf listamanns- ins, ég-ið. Einn helzti boðberi rómantisku stefnunnar var Fr. Schlegel. Hann setti fram eftir- farandi stefnuskrá: Hin róman- tiska Ijóðlist er framsækin alls- her j arlj óðlist (U niversalpoesie). Hlutverk hennar er ekki aðeins að sameina aftur allar hinar að- skildu greinar ljóðlistarinnar og koma henni í snertingu við j heimspeki og mælskuiist, heldur œtlar hún sér líka ýmist að blanda saman eða bræða í eitt Ijóð og laust mál, snilldarlega listgáfu og gagnrýni, fagurfræði- lega ljó'ðlist (Kunstpoesie) og frumstæða ljóðlist (Naturpoesie), lífga Ijóðagerðina, gera hana að- gengilega og flytja sjálfa ljóð- rænuna inn í lífið og samfélagið, gera fyndnina að skáldskap o. s. frv. Þessa stefnuskrá ber að hafa í huga, þegar metin er ljóða- gerð Heines. Viðfangsefni klass- isku skáldanna var að finna líf- inu varanlegt form í verkum sínum, komast að niðurstöðu. Rómantíkin skellir aftur á móti skollaeyrum við öllum niðurstöð- um, endanlegum skilgreiningum og samþjöppun Hún kýs að leysa úr læðingl frumkraftana í mann- legri sál, gerir draum að veru- leika, veruleika að draum, dreg- ur hvergi markalínur. Högg- myndalistin var ímynd hinnar æðstu listar í augum klassísku skáldanna, rómantíkin lyftir hljómlistinni í þær hæðir. Rómantíkin opnaði allar gáttir andlegs lífs, bókmenntafræði, sagnfræði, listsögu, einkum mið- alda, fylgjendur hennar söfnuðu þjóðkvæðum, þjóðsögum og svo mætti lengi telja. ★ Þeir «em vit hafa á telja Heine síð-rómantískt skáld. En það mundi þýða, að á þeim árum, þegar Heine er í fullu fjöri var mesti eldmóðurinn horfinn úr rómantíkinni sem allsherjar menningarstraumi en eftir var aðdáunin á horfnum tíma, sögu hans og menningu og hæfileik- inn til að skynja þjóðlíf og nátt- úrufegurð á innilegan hátt og oft draumkennt. Frönsku bylting- arnar tvær, 1830 og 1848, sem báðar mistókust, gerðu auk þess sitt til að auka á þau vonbrigði, sem frelsishreyfingin fyrr á öldinni hafði orðið fyrir, en frelsisandinn var eitt höfuðein- kenni rómantísku stefnunnar. Þegar hér er komið sögu var auk þess farið að gæta áhrifa frá heimspeki Hegels, sem fæddi af sér kenningar Marxs og þar með var öllum reitum ruglað. Sé ég ekki ástæðu til að fara nánar út í það. í grein þessari verð- ur að sitja við það eitt, hvað Heine sé í stórum dráttum sem skáld, en ekki hvers vegna hann skrifi fremur svona en ekki hinsegin, sem engum manni er raunar unnt að skýra til fullnustu á hlutlægan hátt, hvorki með til- liti til höfundarins né þjóðfélags- ins, sem hann lifir í. Þetta hvers vegna er hægt að skýra á meira eða minna líklegan hátt, það er allt og sumt. í ritskýringmn er enginn annar grundvöllur til en ritverkin sjálf og hlut- verk þeirra, sem við slíka hluti fást er að segja, hver ein- kenni þessara ritverka séu, en blanda ekki á neinn hátt sínum eigin geðþótta í það mál. Ura. leið og svo er komið, hætta skrif þeirra að vera ritskýringar á vísindalegum grudvelii en breyt- ast í blaðamennsku og játningar. (Þó vil ég taka fram, að grein þessi er ekki ritskýring nema að litlu leyti). ★ Öllum ber saman um, að Heine hafi haft óvenjulega mikil áhrif á öllum sviðum ritmennsku, þar sem hann lét til sín taka fyrir alvöru, þ. e. sem ljóðskáld, rit- höfundur í óbundnu máli, gagn- rýnandi og blaðamaður. Ekki þori ég að gera grein fyr- ir öllum hinum sundurleitu rit- verkum hans, til þess skortir mig alla þekkingu, sem ekki fæst af öðru en langvarandi umgengni við skáldið. Þó langar mig að benda á helztu höfundareinkenni hans eins og þau birtast í þeim verkum, sem ég hef lesið. Um Ijóðlist hans verður að nægja það, sem ég sagði í kaflanum um tengsl Heines við íslenzka ljóða- gerð, þótt það væru fá orð. Freist andi væri að gera miklu nánari grein fyrir henni, ekki sízt Ijóð- um hans í þjóðkvæðastíl, sem skipa stórt rúm í kveðskap hans og hljóta að móta mjög hug- myndir manna um kveðskap Heines i heiid Þar birtist að- dáun rómantísku skáldanna á menningu miðalda á auðljósan hátt, ást þeirra á þjóðsögum og þjóðti'ú, það er engu líkara en Heine langi til að færa sjálfa þjóðarsálina í rím í þessum kvæð um sínum; ímyndun og veru- leiki er samofið, engar línur eru dregnar milli hins náttúrúlega og yfirnáttúrulega. Málið á þeim er einfalt og blátt áfram, eins og á öðrum kvæðum Heines, en stundum skýtur hann inn gömlum orðmyndum til að lokka fram þann tíma, sem um er verið að ræða. En í vitund þýzkra lesenda er Heine annað og meira en söngv- ari ástar og horfins tima, eins og okkur finnst kannski flestum. Hann situr ekki við vegarbrún og leikur á mjóa reyrpípu, tæki hans er heil hljómsveit eins og þær verða stærstar, sem hann ýmist lætur dynja eins og þrumu eða notar strokhljóðfærin ein. Hann er ekki við eina fjöl felld- ur í ritmennsku, liann reynir allt: yrkir kvæði, skrifar ferða- sögur, smásögur, skáldsögur, blaðagreinar, gagnrýni, ádeilur, endurminningar, semur leikrit. Heine samdi tvö leikrit, en hvorugt þeirra hef ég lesið. Skilst méi-, að þar sé ullar að leita í geitarkofa sem þessi tvö verk eru; dettur mér þó ekki í hug að handlanga þá skoðun til næsta manns að órannsökuðu máli. En það sem menn finna að verkum þessum skilst mér, að sé fyrst og fremst ráðaleysi höfundarins frammi fýrir svo ströngu formi, enda lét rómantískum skáldum yfii-leitt ekki vel að semja leik- Heinrich Heine rit; hæfileikinn til að tak- marka frárennslið úr sálinni var ekki sérlega mikils virtur. Meira kvað að Heine sem ferðasagnahöfundi og svo mjög, að hann bylti þar öllu um koll. Með bókinni Die Harzreise og öðrum, sem komu út undir nafn- inu Reisebilder á árunum 1826— 1831 verða þáttaskil í þýzku rit- máli. Eru straumhvörí þessi mjög áþekk hreingerningu Þórbergs Þórðarsonar hér meðal okkar, og svo margt er áþekkt í stíl og framsetningu þessara tveggja manna, að það er blátt áfram lýgilegt, svo ekki sé meira sagt. Ég ætla engan veginn að fara að rekja starf Þórbergs til Heines, heldur minnist ég á þá báða í sömu andránni sem hliðstæður. Þó þætti mér ekki ótrúlegt, að Þórbergur hafi séð í Heine gott fordæmi og væri ómaksins vert að bera nákvæmlega saman það, sem líkt er i fari beggja, og kannski verður það gert af ein- hverjum síðarmeir. Ég ætla að víkja nokkrum orð- um að Harzreisunni; hún er nær- tækasta og glæsilegasta dæmið um laust mál Heines. Allir eigin- leikar og einkenni hans sem rit- höfundar njóta sín þar fullkom- lega. Bók þessi segir frá ferð Heines um Harzfjöll og er skrifuð 1824. Hún lýsir göngu hans um þorp og skóga, kunningskap við fólk, sem hann rekst á, þá er greint frá dvöl hans á Brocken, hæsta tindinum í Harzfjöllum. Inn í ferðasögu þessa er fléttað kveð- skap, draumförum og áthuga- semdum um menn og málefni. Öll er bókin kostulegt samband and- stærða kennda, innilegra náttúru lýsinga og hvassrar, fyndinnar ádeilu um það sem var ofarlega á baugi í menningai’málum sam- tímans. Hugmyndaflugið og gásk- inn er oft dæmalaust. Þýzkri náttúrufegurð og þjóðlífi andar á móti manni af hverri blaðsíðu; en fyndnin og ímyndunaraflið er aldrei marklaust hjal heldur i þjónustu þeirra hugsjóna og hug- mynda, sem lágu Heine þyngst á hjarta. Raunar er bókin upp- gjör við yfirborðsmennsku sam- kvæmislífs og innihaldsieysi, hann flýr upp í fjöll til að leita hins sanna og upprunalega lífs hjá ám og fjöllum og alþýðu- fólki. Þetta segir hann strax i byrjun sögunnar i stuttu kvæði. Síðasta erindið flytur þessa kveðju: Verið bless,- þið gljá- fægðu salarkynni, gljáfægðu herramenn og gljáfægðu frúr; ég ætla að ganga á fjöll og horfa hlæjandi niður á ýkkur. Ennþá hef ég ekki nema lítið eitt sagt um einkenni Harzreis- unnar, en að lýsa henni er að lýsa Heine sjálfum, skáldskap hans og listrænum vinnubrögð- um. Framsetningin er sérstæð, öllu ægir saman, glettni og still- ingu, ljóðrænum myndum og háðglósum um útlit manna, hrósi um gott fólk og meinlegu háði um borgaralegan rembing, sjálfs- öryggi og þó eink m smásmygli og hvernig sumir menn þykjast vita allt og hafa ómótstæðilega löngun til að láta Ijós sitt skína og skrifa stórar bækur um ekki | neitt, þar sem þeir flokka og skipuleggja þetta efni, sem ekk- ert er, eftir kúnstarinnar reglum. Öll hin auðuga hugsun er færð í nýjan og persónuieg'an stíl, Heine talar í fyrstu persónu og lætur vaða á súðum, og einhver kemst svo að orði, að stíllinn á Reisebilder hafi markað nýjan tíma hinnar persónulegu impress sjónistísku frásagnarlistar. Það verk í bókmenntum okk- ar, sem einna helzt kæmi til greina sem hliðstæða Harzreis- unnar, er að mínum dómi íslenzk- ur Aðall, en eigi að fara út í nákvæman samanburð á Heine sem stilista og Þórbergi verður vitaskuld að taka fleiri vei'k beggja með í reikninginn. Höfuð- kennimerkin eru þó þau, að báð- ir skrifa með sjálfan sig sem fast- an miðpunkt (egosentrískir), eru skarpskvggnir á umheiminn, róa að því öllum árum að frelsa mann kindina frá hleypidómum og gera hana frjálsa og eðlilega í hugsun, óháða öllu nema því, sem hún veit sannast í hverju máli. Til þessa beita báðir sömu aðferðum: skoplegri ádeilu, hár- nákvæmri. Eitt mesta afrek Heines er stíllinn á Reisebilder. Telja flest- ir hann grundvöllinn að neðan- málsgreina-stíl seinni tímans (Feuilleton). En það er ekki síð- ur afrek að geta blandað svo öllu saman, að ekki verði úr glund- roði, en það tekst Heine. ★ Heinrich Heine er fæddur árið 1797, eins og áður er getið, í Diisseldorf við Rín. Hann var af gyðingaættum. Hann byrjaði að yrkja með ágætum löngu innan við tvítugt. Sautján ára gamall setti hann saman hið þekkta kvæði um skotliðana tvo. Nitján ára að aldri tók hann að vinna í banka einúm í Hamborg hjá frænda sínum, en það starf var honum ekki að skapi. Hann varð mjög ástfanginn af tveimur frænkum sínum, dætrum þessa Salomons Heine, sem hann vann hjá. Fyrst elskaði hann Amalíu, seinna Teresíu systur hennar, og hafa þær báðar skilið eftir spor í skáldskap hans. Hann fór í há- skóla og stundaði náni í Bonn, Göttingen og Berlín og las lög- fræði. 1825 skírðist hann til kristinnar trúar og hugðist með því tryggja sér borgaralega stöðu að loknu námi, en komst í stað- inn að raun um, að nú var hann „hataður jafnt bæði af gyðingum og kristnum mönnum“, eins og hann komst að orði. — Sagt er, að Heine hafi kynnzt gyðinga- vandamálinu betur en flesth- aðr- ir. í æsku varð hann sjónarvott- ur að því, hvernig gyðingar í Rínárlöndum voru sviptir öllum borgáralegum réttindum, sem þeim höfðu verið veitt í stjórnar- tíð Napoleons mikla, og máttu ekki einu sinni vera viðstaddrr málflutning sem áheyrendur. Hafði þessi meðferð vitaskuM mikil áhrif á Heine. Á uppvaxt irórum Heines lá 9 loftinu fi'elsis og byitingarandi, sem barst frá Frakklandi. Heine komst ekki sízt í snertíngu viö menningarsti aum þennan, þvl eitt höfuðaðsetur Frakka í Þýzka landi á Napoleonstímapum var einmitt fæðingarborg hans. Gcrð- ist hann líka brátt mjög x-óttæk.- ur í skoðunum varðandi andlegt fi'elsi. Ein höfuðhvatning hans var að losa hinn frjálsa anda einstaklingsins undarx þýzku afturhaldi í hvaða mynd, sem það birtist, hann boð- aði sameiningu Evrópu, lýðveldíi og ég veit ekki hvað og hvað- Þetta féll ekki í góðan jarðveg hjá sumum, og varð Heine því að flýja land, en rit hans öll, sem þá höfðu birzt manna sjón- um, voru bannfærð. Hann settist nú að í Pai'ís og bjó þar til dauða- dags. Þetta gerðist árið 1831. Þó svona væri komið fyrir honuns hélt. hann mjög nánu sambandi við heimalandið, og bver minnsta. andleg hræring þar endurspegl- aðist í vei'kum hans. Hann tók að skrifa greinar um Frakkland fyrir þýzka lesendur og greinar um Þýzkaland fyrir Frakka. Þannig jók hann menningarleg tengsl þessara nágrannaþjóða. En einkum lét hann allt til sín taka, sem varðaði þýzka menningu. Samdi hann hvassar áieilur bæðj í bundnu og' óbundnu máli gegn öllu því, sem honum fannst. ómerkilegt og hoi-fa í ranga átt. í Þýzkalandi. Er kvæðaflokkur- inn Deutschland, ein Winter- mai-chen ef til vill frægast aí því tæi. Þar segir frá ferð, sem Héine fór til heimalandáins eftix langa útilegu og stingur hann ó hyerju kýlinu á fætur öðru um leið og hann ekur í vagni sínum heim til Hamborgar. Á snilldar- legan hátt tekst honum að sam- eina dægurmál listinni. Hann varð mjög óvinsæll meðal þorra manna vegna þess- ai’a rita simxa. Héldu ýmsir þv) fram, að hann væri að rægje. Þýzkaland í augum útlendinga. Þeir, sem kunnugir eru verkum Heines í heild sinni, bera mjög: á móti þessari staðhæfingu. 1 skáldskap fárra Þjóðverja finnst þeim koma jafn glöggt fram að- dáun á öllu því, sem bezt er 9 fari þjóðarinnar, náttúru lands- ins og sögu. Aftur á móti gat Heine engan veginn þolað neití það, sem honum fannst standa menningu þjóðar sinnar fyrir þrifum og kasta ó einhvern hátt skugga á hana. Hann réðst á það með þvi hlífðarleysi, sem honum einum var unnt að sýna. Heine segir sjálfur: Ég tek eftir því, a& þeir (þ. e. Þjóðverjar) eru bitrir í minn garð vegna þess beiska háðs, sem stundum ríkir í skrif- um mínum um hluti, sem öðruro eru dýrmætir og eiga að vera dýrmætir. En hugur minn er oi‘ altekinn hinu sanna frelsi og óst mín til Þýzkalands og aðdáun á því, sem þar er bezt, er of mikii til þess að mér geti legið í léttu rúmi heimskulegt þvaður þeirra nánasa, sem eru að sleikja sig upp við þýzka menningu. Off yaknaði innra með mer krampa- kennd löngun til að slíta kröftug lega burt þetta logna dýrlinga- svipmót af hausum á svona fólkí og rífa i húðina á sjálfu ljóninu, af því ég finn asnann leynast þáx undirniðri. Ekki get ég stillt mig um að skjóta því hér inn, að mér finrist íslendingar sama marki brenndli’, þegár sumt. af ritum Laxnéss á f hlut, og þeir Þjóðverjar, sem mest hömuðust gegn Heine á sínutA tíma. Laxness er ekki síður álit- Framh. á bls. 12 ;

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.