Morgunblaðið - 18.02.1956, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 18.02.1956, Qupperneq 9
Laugardagur 18. febrúar 1956 MORGUNBLAÐIÐ 9 Sjötugur í dag: Jón frá Kaldaðarnesi MÖRGUM, mun koma það á óvart að Jón Kaldi sé sjötugur í dag. „Ég trúi því ekki“, veit ég að xnargir segja, „að hann Jón sé orðinn sjötugur“. Sjálfur ætlaði ég ekki áð trúa því, en þar sem skjalfest er að hann hafi fæðst 18. febrúar 1886 verður ekki hjá því komizt að trúa því að það sé rétt. En útlit hans mælir á móti því og þeir sem þekkja hann bezt sjá engin ellimörk á honurn, því að hann er engu elliiegri nú held- ur en hann var fimmtugur og var hann þó ekki ellxlegur þá fyrir sinn aldur. En þannig end- ast heilsuhraustir og skapgóðir menn, sem gera sér ekki rellu út af smámunum og hafa næmt auga fyrir öllum broslegum hliðum lífsins, jafnvel þegar aðrir sjá ekkert annað en þungbúna alvöru eða hátíðlega viðhöfn. Jón Sigurðsson er gæddur þeirri gáfu listamannsins að sjá alla hluti með sínum eigin aug- um jafnframt því sem hann hef- ur orðið að sjá þá gegn um ann- arra augu, og þau oft býsna ólík. og fáir vita betur hve margar hliðar geta verið á einu máli og hve mismunandi sjónarmiðin geta verið, heldur en hann. í 6tarfi sínu sem skrifstofu- stjóri Alþingis hefur hann getið sér þann orðstír, að ekki hefði verið unnt að velja betri mann í það starf, og vitanlegt er, að þótt alþingismenn af ýmsum flokkum séu ósammála um allt og alla, þá hafa þeir ávallt verið sammála um það, að Jón Kaldi væri rétt- ur maður á réttum stað. Gáfur hans, geðprýði, smekkvísi á ís- lenzkt mál og ljúfmennska í garð allra skópu honum snemma vin- sældir, jafnt meðal alþingis- manna sem annara starfsmanna þingsins, og hefur hvorki tíman- um, þótt langur sé orðinn, né pólitískum flokkadráttum, sem ægilegir hafaverið, tekizt að setja nokkurn blett þar á. Þvert á móti hefur virðing hans farið vaxandi eftir þvi sem menn sáu og reyndu hve traustur og mikil- hæfur starfsmaður hann er, hve annt hann iét sér um embætti sitt, og hve gott var að eiga slík- an mann að í hverri raun. Hefur Alþingi líka oft sýnt honum traust sitt með þvi að fela honum hin vandasömustu störf í alþjóð- legum milliþinganefndum og í Norðurlandaráði, þar sem hann hefur verið ritari íslenzku nefnd- arinnar frá upphafi. En auk starfs síns á Alþingi hefur Jón Sigurðsson komið fram fyrir almenning með bókmennta- verk, sem flestum eru kunn. Á yngri árum orti hann mörg kvæði, sem bera þess vott að hann hefði skipað sess meðal höfuðskálda vorra, ef hann hefði helgað líf sitt skáldagyðjunni. En listamannseðlið leitar ut, og ef það hættir að renna í elnum far- végi, þá finnur það sér nýjan. Þýðingar Jóns Sigurðssonar á skáldsögum Hamsuns einkum Pan og Viktoríu. eru sennilega snilldarlegustu þýðingar á ó- bundnu máli, sem birzt hafa á íslenzku. Það þarf mikinn lista- snann til þess að þýða þessar sögur svo að ilmurinn fari ekki af þeim. en þýðing?- Jóns gefa sjálfum Hamsun ekkert eftir. f þessum verkun birtast greini lega tveir eiginleikar Jóns, sem hafa ei ikennt h.*nn s-lla ævi: Annars v*'gar sarrvzku. _*mi sem heimtar hárfína náV.væmni. hins vegar smekkvisi, sein fórnar aldrei listinni f rir nákvaemnina, en gefur sér n.»--;an tima til að leita unz lis - rðurínn finnur formið, sem er ánægður moð. Djúptæk Aking á ís- lenzkri tungu ásamt rammís- lenzkri orðgnótt, sem nú er á fárra manna valdi, hafa átt drjúgan þátt í að meitla það mál, sem Jón Sigurðsson hefur mótað með og málað, svo að það hefur sungið og angað um ást og vor og ævintýr í sögum hans og Hamsuns. Þeir sem bezt þekkja Jón Kalda vita að honum er margt til lista iagt fleira en ritmennsk- Bifreiðastöð Oddeyrar flytur afgreiðslu sína í ný húsakynni á morgun. Hefur í vetur verið unnið að smíði húss skammt vestan við Bifreiðastöðina Stefni s.f., sunnan Strandgötu, fyrir B. S. O. Fyrra aðsetur stöðvarinnar við Ráðhústorg var þröngt og óheppi- legt til reksturs slíkrar stöðvar, og verður aðstaða öil ólik í nýju húsi sm ðuðu með rekstur stöðvarinnar fyrir augum. Húsið er um 70 ferm. að stærð, vel frágengið, en eftir er að mála það utan. Teikningu af hússnu gerði Mikael Jóhannesson en Einar Eggertsson sá um byggingaframkvæmdir. Bifreiðastöð Oddeyrar var stofnuð um 1929. Fyrir þrem árum varð hún hlutafélag þeirra 30 bifeiðastjóra er við hana starfa. Stöðvarstjóri er Sigurgeir Sig- urðsson. Jón Sigurðsson an. Hann er milrill leikari hve- nær sem hann vill gefa sig í það. Erfitt er að fá hann til þess að taka nokkuð hlutverk að sér, eh þeir sem hafa átt þess kost að sjá og heyra hann bregða sér í líki annars manns, hafa séð svo stórkostlega hluti, að sumir hafa verið lengi að jafna sig á eftir vegna þess hve hláturinn hefur ásótt þá. Því að Jón er ekki að- eins mikill húmoristi, heldur húmoristi með mörgum strengj- um á hljóðfæri sínu, svo að gáski hans getur birzt í ýmsum mynd- um, sem oft hafa orðið vinum hans til mikillar skemmtunar. Góðir stofnar standa að Jóni Sigurðssyni í báðar ættir, enda hefur okkur, sem bezt höfum þekkt hann, ávallt fundizt hann vera ísienzkur aðalsmaður. Utvegsmönnum í Eyjum ofviða að greiða sfomönn- um bátagjaEdeyrishluta TilEega Jéhanns Þ. Jésefssonar um að ríkið hlaupi undir hagga með þcim. JÓHANN Þ. JÓSEFSSON, þingmaður Vestmannaeyinga, hefur borið fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um greiðslu bátagjaldeyrishlunninda til sjómanna í Vestmannaeyjum. Til- lagan er á þessa leið: Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að vinna að því á þann hátt, er hún telur hagkvæmast, að gera útvegsmönnum í Vestmannaeyjum fært að inna af hendi greiðslur til sjó- manna vegna vangoldinna bátagjaldeyrishlunninda fyrir árin 1952 og 1953. Brezka sendiráðið sýnir kvikmyndir í D A G, laugardag, efnii brezka sendiráðið til kvikmynda- sýninga í Tjarnarbíói. Er þetta í annað skiptið, sem sendiráðið gefur almenningi kost á að sjá skemmtilegar og fróðlegar myndir. Fyrsta myndin er fra hinni miklu árlegu flugsýningu sem haldin er í Farnborough, ex* þessi mynd frá sýningunni 1954 Þá er kvikmynd, sem sýnir hinn heimsfræga mílu-hlaupara, Roger Bannister setja heimsmet á þess- ari vegalengd í maímánuði 1954. Sýnir myndin hlaupið frá upp- hafi til endaloka. Þá er mynri sem sýnir hvernig flugmenn bjarga sér út úr hinum hrað fleygu brýstiloftsflugvélum, þeg- ar bilun ber skyndilega að hönd um, eða annað óhapp hendir þá Þá er mvnd frá Ermarsundseyj- unum. Þá er enn flugmynd fríx Farnborough flugsýnmgunni ’55. Að lokum er mynd, sem segir frá rannsóknarstarfi fuglafi'æðings- ins brezka, Peter Scott, sem er íslendingum að góðu kunnur.. Eru þar sýndar leiðir þær, er far- fuglaranir fljúga allt norðan frá íslandi, frá varpstöðvunum vii’i Mývatn og stöðvum heiðargæsar- innar við Hofsjökul, suður til sól- landa fegri. Kvikmyndasýningin hefst kl. 2 síðd. Þegar Jón fæddist á Kirkju- bæjarklaustri fyrir 70 árum, var faðir hans, Sigurður Ólafsson, sýslumaður þar, en varð síðar sýslumaður í Árnessýslu með að- setri í Kaldaðarnesi, sem Jón hefur jafnan kennt sig við. Móðir Jóns var Sigríður Jónsdóttir, um- boðsmanns í Vík, systir Halldórs kaupmanns í Vík, sem margir kannast við. Eftir að hafa tekið stúdentspróf 1906 nam Jón nor- ! rænu í Kaupmannahöfn og vann s'ðar á stjórnarskrifstofu íslands þar, unz hann kom heim til ís- lands 1912 og gerðist sýsluritari hjá föður sínum 1 Kaldaðarnesi. Frá 1916 hefur hann starfað í skrifstofu Alþingis og fra 19-. 1 sem skrifstofustjóri þess. Hefur hann því 40 ára starfsferil að baki sér í þjónustu Alþingis. Margmennt mun verða á heim- ili Jóns Kalda í dag og glatt á hjalla eins og ávallt á afmælis- dögum hans. Sjálfur verður hann alira manna reifastur og skemmti legastur, og myndi ókunnugum, sem inn kæmi og vissi að verið væri að heyja sjötugsafmæli, sízt detta í hug að Jón væri aímælis- barr.i Gori év að eldast brnnig, og gc: ‘ þykir linum hans að hu?rsa ! m þGL J bcv hann Gnn lengi svo ’:- gui eridast, konu sinni og börnum til stvrktaf óg gleði og vinum sínum til ánpégju, fróðleiks og skemmtunar. N.D. TILLAGA VID FJÁRLAGA- AFGREIDSLU í greinargerð fyrir tillögunni segir Jóhann Þ. Jósefsson, að við afgreiðslu fjárlaga hafi hann borið fram tillögu um að ráð- herra heimilaðist að lána eða ábyrgjast lán til útvegsmanna til þess að gera þeim fært að greiða bátagjaldeyrishluta til sjómanna. Sú tillaga náði þó ekki samþykki þingsins. En sjómenn í Vestmannaeyjum eiga sinn rétt í þessu máli skv. dómi Hæstaréttar og munu ganga fast eftir að fá honum fullnægt. Telur flutningsmaðurinn sann- gjarnt, að ríkisstjórnin leggi stétt útvegsmanna nokkurt lið í þessu efni. ekki ætlaðar þessar tekjur. Máls- sókn af hálfu sjómanna, vegna áranna 1952 og 1953, er einnig hafin og hafa dómar fyrir undir- rétti einnig fallið sjómönnunum í vil. 3,6 MILLJÓNA KR. SKAKKA- FÖLL Þess vegna segja útgerðarmenn irnir augljóst, að þeir verði að gera upp við sjómenn sína fyrir öll árin 1951—52 og ’53 og af- henda þeim þar með hluta af tekjum, sem ríkissjóður ætlaði útgerðinni einni. Munu þessar greiðslur nema samtals fyrir út- gerðarmenn í Vestmannaeyjum um 3,6 millj. kr. Eim eirni bæjar- brmiinn ENN varð bæjarbruni í fyrrinótt, er íbúðarhúsið að Svarfhóli í Geiradalshreppi í Austur-Barða- strandarsýslu brann. Vaknaði heimilisfólkið um miðja nótt viíl að eldur var í húsinu. Klukkan var um 3, þegar hús- freyjan að Svarfhóli; Svava Þór- hallsdóttir, vaknaði við reyk i svefnherbergi, sem var í rishæð hússins. Heimilisfólk er auk hús- freyjunnar, maður hennar Grím • ur bóndi Grímsson, og eitt barn, tvö börn önnur, sem þau eiga, voru ekki heima. Eldurinn í húsinu breiddist óðfluga út og varð fólkið að hraða sér út, án þess að geta bjargað með sér nema lítilshátt- ar af fötum. Skömmu eftir ail fólkið var komið út úr húsinu, varð rishæðin alelda. Húsið sem var steinsteypt, en gólf og þiljur úr tré, varð brátt al- elda. Ekki barst fólkinu nein hjálp fyrr en klukkan um hálf fimm. Fjós og hlöðu, sem stóðu áföst við íbúðarhúsið, tókst að verja. Fldinn frá bálinu og neista flugið lagði frá þessum húsum. íbúðarhúsið eyðilagðist, þar brann allt, sem brunnið gat ásamt innanstokksmununum, sem voru lágt vátryggðir. Eldsupptök eru talin hafa orðið út frá rafmagni. SÉRÁKVÆDI í SAMNINGI SLÆM AFKOMA Til að sýna að nokkru viðhorf ÚTVEGSINS útvegsmanna eftir að þeim var Því næst er skýrt frá því, að gert að greiða sjómönnum báta- aíkoma útvegsmanna í Vest- gjaldeyrishlutinn, er prentað með mannaeyjum hafi á undanförnum sem fylgiskjal bréf írá Útvegs- árum farið síversnandi vegna bændafélagi Vestmannaeyja. j hækkaðs útgerðarkostnaðar. Þar Þeir segja í bréfinu að til þess að auki áttu þeir í ">ngu verk- hafi verið ætlazt að tekjur af falla á s.l. vertíð eða v 1 18. febr. innflutningsréttindum bátaút- og eftir það urðu útgeröarmet vegsins rynnu óskertar til út- í Vestmannaeyjum, að greiða vegsmanna. | hærra fiskverð en útgerðarmenn En Vestmannaeyingar hafa urn við Faxaflóa og annars staðar . langan aldur haft sérstök ákvæði landinu, og þar að auki að-taka í sínum samningum milli sjó-lá sig kostnað yegna slæginga- manna og útgerðarmanna, þar á fi ’ cn þet.ta gerir það að sem ákveðið er, að sjómennirnir eigi þriðja hvern fisK, sem afl- ast og bað, sem endanlega fyrir hann fæst. Á grundvelli þessara íkvæða ‘ af fiskinum en t lögsóttu sjómenn í Vessnanna-i ars staðar. éyjum titgerðarmennina og kröfð 1 Það er fyrirsj á.mlegt, að útgerð ust síns hluta af tekjunu’n af armenn í Vestmannaeyjum geta vei . i, að útgei öarmenn í Vest mannaeyíutn urJ * t síðustu ver- tíð að greiða til sjómattna um 6 ai .um hæri erð f r kg. rðarmcnn ann innflútningsréttindum bátaút- vegsins óg féll dómur Hæstarétt- ar þeim í vil vegna ársins 1951, þrátt fyrir það, að þeim væru ekl i innt jK-ssar greioslur af hen til sjómamxa, nema með mjög fáum .indantekningum, nema aðstoð komj til. 1. fl. keppni Bridge- félags kvenna NÝLEGA er lokið sveitakeppni í 1. flokki Bridgefélags kvenna. 11 sveitir tóku þátt í keppninni, og varð röð þeirra og stigatala þessi: 1 Dóra Sveinbjörnsdóttir 13 stig, 2. Guðrún Eiríksdóttir 14 stig, 3. Margrét Ásgeirsdóttir 14 stig, 4. Þórúnn Jensdóttir 14 stig, 5. Ingibjörg Þórðardóttir 13 sv'g. 6. Ingibjörg Briem 10 stig, 7. Jón- ína Loftsdóttir 10 stig, 8. Herc’ís Brynjólfsdóttir 8 stig, 9. Þuríður Möller 7 stig, 10. ! llín Hlíðo il 4 s*ig, 11. Guðbjörg Bjarnadóttii 1 stig. í sveit nr. 1 eru auk Dóru: Helga Tboroddsen, Sólveig Egg- erz, Err.a Eggerz, Ása Jómanns- dóttir og Kristín Þórðardóttir. Fjórar efstu sveitiruur ganga upp i meistaraflokk. Nú er að hefjast sveitak:epp< i í meistaraflokki félagsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.