Morgunblaðið - 24.05.1956, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 24.05.1956, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 24. maí 1956 LÍFINU Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Stjórnmálaritstjóri: Sigurður Bjarnason frá Vigur Lesbók: Árni Óla, sími 3045. Auglýsingar: Árni GaTðar Kristinsson Ritstjórn: Austurstræti 8. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600 Áskriftargjald kr. 20.00 á mánuði innanlands í lausasölu 1 króna eintakið Merkilegt umbótastarf Sjólf- stæðismanna i húsnæðismdlum ÚR DAGLEGA VeJ, ur gátan um jroóhmanninn lei}ót ? brezka m ÞEGAR núverandi ríkisstjórn var mynduð Iögðu Sjálfstæðis- menn höfuðáherzlu á, að tekið skyldi upp í málefnasamning hennar fyrirheit um myndarlegt átak í húsnæðísmálum þjóðar- innar. Til þéss bar brýna nauð- syn. Mikill húsnæðisskortur ríkti í fjölda byggðarlaga. Ungt fólk gat ekki stofnað heimili vegna þess að lívergi var húsnæði að fá. Þúsundir fjölskyldna víðsveg- ar um land bjuggu í lélegu og jafnvel heilsuspillandi húsnæði. Sjálfstæðismenn höfðu á und- anförnum árum beitt sér fyrir ýmsum aðgerðum til umbóta í húsnæðismálum landsmanna. í tíð nýsköpunarstjórnarinnar hafði Pétur heitinn Magnússon forystu um að Byggingasjóður Búnaðarbankans var efldur að miklum mun. Ný löggjöf var sett um starfsemi hans og sjóðnum tryggt aukið fjármagn. Hefur hin aukna starfsemi sjóðsins á síð- ustu árum byggst á þessari lög- gjöf, sem landbúnaðarráðherra Sjálfstæeisflokksins í nýsköpun- arstjórninni beitti sér fyrir. • Hafa síðari ríkisstjórnir tal- ið sér skylt að halda áfram að afla Byggingasjóðnum aukins fjármagns. Fjöldi bænda hef- ur getað ráðist í byggingar á jörðum sínum í skjóli þessarar eflingar sjóðsins. Smáíbúðylánin urðu mörgum að gagni Þá höfðu Sjálfstæðismenn for- ystu um það að hafist var handa um svokölluð smáíbúðalán. Lagði ríkið fram um 20 millj. kr. á þremur árum til þeirrar lána- starfsemi. Voru veitt hátt á ann- að þúsund lán til efnalítilla ein- staklinga, sem voru að berjast í að koma sér upp þaki yfir höfuð- ið. Þessi lán voru ekki há, aðeins 25—30 þús. kr. Engu að síður greiddu þau götu fjölda fólks í baráttu þess fyrir bættu húsnæði. Lánin voru veitt út á annan veðrétt og var að þeim töluverð hjálp, ekki sízt fyrir fólk, sem gat unnið sjálft að byggingu íbúða sinna. En Sjálfstæðismönnum var það ljóst, að þessi lánastarf- semi fól ekki í sér neina fram- búðarlausn í húsnæðismálun- um. Til þess var það f jármagn of lítið, sem til hennar var varið. Núverandi ríkisstjórn beitti séí fyrir því, að ný löggjöf var sett um stuðning við íbúðarbyggingar í landinu. Iiið nýja veðlánakerfi Samkvæmt þessari nýju lög- gjöf, sem sett er í samræmi við þau fyrirheit, sem Sjálfstæðis- menn beittu sér fyrir að gefin væru í málefnasamningi stjórn- arinnar hefur verið sett á laggirn- ar nýtt veðlánakerfi og verulegt fjármagn útvegað til þess að framkvæma það. Lánshámark er nú 70 þús. kr. og stefnt er að því að það geti orðið 100 þús. kr. á íbúð. Húsnæðismálastjórn hefur út- hlutað 36,3 millj. kr. í A-lánum frá því að hún var skipuð í júní 1955 og til 1. apríl s. 1. Á sama tíma hafa B-lán numið 14,5 millj. kr. Auk þess hefur Bygginga- sjóður Búnaðarbankans fengið 12 millj. kr. og til útrýmingar heilsu spillandi húsnæði hefur verið varið 3 millj. kr. Samtals nema þá lánveit- ingar og framlög hins nýja veðlánakerfis um 66 millj. kr. á tæpu einu ári. Verður ekki annað sagt en að það sé vel af stað farið. Því miður hefur ekki verið unnt að fullnægja nærri öllum umsóknum um lán. Kyrrstaða undanfarinna árá í byggingarmál- um hafði skapað svo gífurlega þörf fyrir aukið húsnæði að bygg ingarstarfsemin hefur orðið mjög ör eftir að rýmkvað var um hömlur á íbúðabygingum. Er auðsætt að fjárfestingin hefur af þessum orsökum orðið fullmikil á svo skömmum tíma. En mjög þýðingarmikið er, að hóflegri byggingarstarfsemi sé jafnan haldio uppi í landinu frá ári til árs. Ef kyrrstöðutímabil skapast, skapast húsnæðisvandræði, húsa- leigan hækkar óhóflega og næst þegar byggingar eru svo leyfðar er hætt við að fjárfestingin verði of ör. Hræðslubandalagið mundi stöðva íbúða- bvggingar Allt bendir til þess að Hræðslu- bandalagið, Framsókn og Al- þýðuflokkurinn, sem hin gamla maddama hefur nú innbyrt, myndu stöðva svo að segja allar húsnæðisframkvæmdir í landinu. Þessir flokkar hafa lýst því yfir, að hverskonar höft og bönn séu þeirra stærsta áhugamál. Tíminn, sem annars hefur þakkað Fram- sóknarflokknum allar umbætur í húsnæðismálum hefur haldið uppi þrotlausum rógi um Sjálf- stæðisflokkinn fyrir að fjárfest- ingin hafi verið alltof mikil og að meginhluti allra íbúða, sem verið er að byggja séu „stór- íbúðir". Af þessu má greinilega maVka heilindi Framsóknar í bygging- armálunum. Er öllum ljóst, að hún bíður fyrsta tækifæris til þess að skapa nýtt kyrrstöðu- tímabil á þessu sviði. Allir þeir mörgu einstakl- ingar, sem nú eru að byggja eða hyggja á íbúðabyggingar til þess að skapa sér mann- sæmándi húsnæði vita því, á hverju þeir ættu von, ef Hræðslubandalagið næði völd- im og áhrifum. Framkvæmd- ir þeirra yrðu hindraðar, hús- næðisumbæturnar stöðvaðar. Hófleg bi'ggingarstarf- semi óhjákvæmileg Stefna Sjálfstæðismanna i byggingamálunum er skýrt mörk uð. Þeir telja að óhjákvæmilegt sé að hóflegri byggingastarfsemi sé haldið uppi í landinu frá ári til árs. Kyrrstöðutímabil í bygg- ingamálum feli í sér hinn mesta háslca eins og áður er sagt. Allir þeir, sem vilja heil- brigðar framkvæmdir og fram farir á sviði íbúðarhúsabygg- inga liljóta því að efla Sjálf- stæðisflokkinn í kosningunum í sumar. ^ ----- - . 0 EINS og kunnugt er af frétt- um, hefur mikið verið rætt í Evrópu um hið dularfulla hvarf brezka froskmannsins Crabb. — Spurðist síðast til Crabbs, er hann fór í æfingaför út á höfn- ina í Portsmouth — daginn áður en „Ordsjonokides", rússneska beitiskipið, er flutti Moskvufélag- ana til Bretlands, lagði úr höfn. Hafa brézku blöðin rætt málið mjög mikið, en lítið nýtt hefur komið fram, sem gefið gæti til kynna hver hefðu í rauninni orð- ið afdrif froskmannsins. Sterkur orðrómur hefur verið á kreiki um það, að Crabb hafi verið að njósna um rússneska beitiskipið, en Eden, forsætisráðherra, varð- ist allra frétta, er þíngmenn Verkamannaflokksins kröfðu hann sagna í þinginu á dögunum, eins og öllum er íullkunnugt. ★ ★ ★ 0 Virðist svo sem brezku blöð- in ætli að leggja árar í bát án þess að hafa upplýst mál þetta. Allt til þessa hefur því þó verið haldið vakandi, ef eitthvað kynni að upplýsast. Litlum vafa er bundið, að brezka stjórnin veit gjörla um afdrif Crabbs. Eden kvað það ekki vera í þágu al- menningsheillar, að frekar væri látið uppi um afdrif Crabbs, en forysta Verkamannaflokksins hefur haldið uppi hörðum árás- um á Eden fyrir þessi ummæli. Hefur hún í þessu sambandi kom- ið fram með þær getgátur, að Crabb hafi verið ' sendur til njósna, en Eden tók það skýrt fram, að stjórninni hafi ekki ver- ið fyrirfram, kunnugt um þessa för froskmannsins, til þess að Er Crabb dauður eða gistir hann „austræna sælu“? fyrirbyggja, að stjórnin næri bendluð við þær getgátur. ★ ★ ★ • Það, sem einna helzt styður þá skoðun manna, að stjórnin viti hver afdrif Crabbs hafa orðið, er, að brezka stjórnin sendi rúss- nesku valdhöfunum afsökunar- beiðni á „þessu atviki" — að sögn rússnesku fréttastofwnnar. Einn af nánustu, samstarfsmönn- um Crabbs bauðst til þess að hefja nákvæma leit í höfninni í Portsmouth, ef vera kynni að lík hans fyndist. Eden lagði blátt bann við því — á þeim forsend- um, að Crabb væri þar ekki. Sú ýfirlýsing forsíjtisráðherrans gef- ur ótvírætt tiljíynna, að eitthvþð veit hann. ★ ★ ★ 9 Lundúnablaðið News Chron- icle birti fyrir nokkru athyglis- verSa grein um Crabb-málið. — Kom þar margt í ljós, sem ekki hefur komið fram í fréttum, er birtar hafa verið hérlendis. Telur það nær fullsannað, að Crabb hafi verið að njósna, enda sé slíkt ekkert óvenjulegt. Segir þar, að öruggar heimildir séu fyrir því, að rússneskir froskmenn hafi njósnað rækilega, er brezk herskip voru stödd í Leningrad í fyrra — í opinberri heimsákn. Hefðu Bretarnir komizt að þessu en ekkert hafi verið látið uppi, þrátt fyrir að vera kunni, að Bretar hefðu sent Rússum leyni- leg mótmæli. Segir blaðið, að meðal hermálasérfræSinga beggja landanna sé það ekki tal- ið nema sjálfsagt, að njósna und- ir kringumstæðum sem þessum. Hvort froskmönnunum takist að dyljast — sé annað og miklu þýð- ingarmeira mál. Þetta segir Lundúnablaðið, og það þarf ekki að koma neinum á óvart, þó að leiddar séu get- gátur að því, að njósnað sé á báða bóga. Það vita allir, því að það er ein af meginafleiðingum kalda sti'íðsins. ★ ★ ★ 0 Eitt er það þó, sem mælir í móti því, að Crabb hafi verið að njcsna. Rússar hafa ekki hampað þessu í áróðursskyni, en þeir hafa sannarlega ekki látið á sér standa að grípa slik tækifæri, því að margsinnis hefur það jafnvel komið í ljós, að Rússar hafa bor- ið slíkar sakir á Vesturveldin, sem hafa verið uppspuni frá rót- um. Þessu er vart hægt að and- mæla, bar eð undanfarna daga hefur mikill fjöldi manna í komm únistaríkjunum verið sýknaður af slíkum ákærum, þrátt fyrir að jafnvel hafi verið búið að taka þá af lífi fyrir „drýgða glæpi“. Þá fer að vakna sú spurning —- hvort Crabb hafi sjálfviljugur hlaupizt á brott. Afsökunarbeiðni Breta bendir ekki til slíks, en þögn Rússa gæti aftur á móti gefið það til kynna. ★ ★ ★ • Margir undrast það ef til vill, að Bx-etar geri svo mikið veður út af þessu máli, sem raun ber vitni. Yrði það ljóst, að Crabb hafi hér verið að njósna um rúss- neska beitiskipið veikti það vissu lega málstað Bi-eta meðal frjálsra þjóða. Til eru þó þeir menn. er halda því fram, að útþenslu- stefna kommúnista verði ekki buguð nema að kommúnistar verði sjálfir beittir sínum eigin vopnum. Þessir menn hafa ef til vill mikið til síns máls, en hér skal ekki lagður neinn dómur á raunhæfni þeirra orða. Hins veg- ar má benda á, að ekki einungis lýðræðislegar og heiðarlegar til- hneigingar hafa orðið þess vald- andi, að Crabb-málið hefur sett svip sinn á forsíður málgagna Verkamannaflokksins brezka að undanförnu. — Þar er eingöngu um að ræða stjórnmálalegt vopn, sem beitt er gegn íhaldsmönnum. Þetta er hinn mikli kostur lýð- ræðisskipulagsins, að mál sem þessi er hægt að taka til umræðu á opinberum vettvangi. VelJ ancli óbrije Smábæjarbragurinn gægist fram- GSKRIFAR mér á þessa leið: - „Það dettur svo sem engum í hug að neita því, að Reykja- vík er orðin borg — og það ekki svo lítil borg, með meira en 60 þús. íbúa. Þessi stökkþróun hófuð staðarins úr smábæ í nútímaborg hefur með ýmsum hætti verið dálítið furðuleg og stundum rek- ur maður sig á atvik, sem sýna kátbroslega, smábæjarbraginn, sem alltaf gægist fram öðru hvoru þrátt < fyrir allar 60 þús- undirnar. — Mér datt þetta í hug, er ég átti leið fótgangandi um Miðbæinn á föstudagskvöldið var. Þéttur skari af fólki — flest allt var það unglingar — hafði safnazt saman í Austurstrætinu fyrir framan Harald Árnason og út á Lækjargötu-hornið, svo að venjulegu gangandi fólki var svo að segja bönnuð öll umferð um gangstéttina. Ég hélt fyrst í stað, að eitthvað óvenjulegt væri þarna á ferðum, sem fólkið væri að horfa á, en ég komst brátt að raun um, að svo var ekki. Þessir unglingar virtust ekki eiga þarna neitt erindi annað en að góna fram fyrir sig eða hver á annan hangandi uppi við húsaveggi og inni í skotum og krókum. Það var auðséð, að frídagur var að morgni — og svona fannst víst þessu unga fólki tímanum bezt og skemmtilegast varið. Reyndar sýndist mér ekki deyfðar- og sljóleikasvipurinn á flestum and- litunum bera vott um neina geisl- andi ánægju og lífsgleði — síður en svo. Höfðust ekkert að Lögregluþ.tónar gengu þarna um spakir og rólegir og fannst víst engin ástæða til að hafast neitt að. Mér hefði samt fundizt full ástæða til, að hún hefði skorizt þarna í leikinn og dreift þessari slæpingjabvögu á brott — að minnsta kosti s«o að fólk kæmist ar : hindrunarlaust. — Og helzt þyrfti að afnema þennan leiða vana, sem unglingar og slæp- ingjar hafa gert sér að því að híma þarna tímum saman, veg- farendum oft og tíðum til óhægð- ar og leiðinda. — G.“ Sama sagan! NÚ nálgast óðum sá timi, er straumur innlendra og er- lendra ferðamanna beinist út um byggðir landsins og þeir, sem fást við rekstur gistihúsa og greiða- sölu taka sig saman í andlitinu með hinn margháttaða undirbún- ing, sem sumarstarfsemin hefur í för með sér. — Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Kunningi minn einn, sem leið átti um Borgarfjörðinn nú um hvíta- sunnuna, sagði mér, að ekki hefði ástandið verið sérlega'til fyrir- myndar á einum fjölförnum veitinga- og gististað á leiðinni. Það var sama sagan: vatnslaus salerni og kvotl í vaskafötum í stað handlauga, drasl og skítur í hverju horni. — Skyldi það verða svona í allt sumar, hafði hann hugsað, er hann hélt úr hlaði — og við spyrjum með honum: hvenær skyldi þetta um- kvörtunarefni á hendur íslenzk- um gistihúseigeindum: vatnslaus og óhrein salerni og önnur álíka — úr sögunni?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.