Morgunblaðið - 09.06.1956, Side 11
Laugardagur 9. júní 1958
MORGLTSBLÁÐIÐ
11
Á f jórða hundrað f élagar í
Verzliél. V.- Skaftfellinga
Björn Runólfsson endurkjörinn formaður
VÖRUVELTA Verzlunarfélags Vestur-Skaftfellinga á s.l. ári var
nær 8 millj. króna. Ragnav Jónsson framkvæmdastjóri félags-
ins dflcýrði frá þessu á aðalfundi félagsins. Félagið hefur reist
bílaverkstæði og endurnýjað bílakost sinn. Hefur það nýlega
fengið stóran flutningabíl með drifi á öllum hjólum, sem verður
notaður í vöruflutnjnga yfir Mýrdalssand að vetrarlagi.
FJÖLSÓTTUR
FUNDUR
Aðalfundur Verzlunarfélags
Vestur-Skaftfellinga var haldinn
í Vík í Mýrdal, laugardaginn 26.
maí s.l.
Formaður félagsins, Björn
Runólfsson, hreppstj. í Holti, setti
fundinn og skipaði fundarstjóra
Bjarna Bjarnason ,hreppstj. í
Hörgsdal. Fundarritarar voru:
Ólafur Jónsson, verzlunarmaður,
Vík, og Eyjólfur Eyjólfsson,
hreppsstjóri, Hnausum.
Fundinn sátu: framkvæmda-
stjóri, stjórn, endurskoðendur,
fulltrúar og almargir gestir.
SKÝRSLA
FÉLAGSSTJÓRNAR
Ragnar Jónsson framkvæmda-
stjóri flutti skýrslu félagsstjórn-
ar.
Vöruvelta varð á s.l. ári tæp-
lega 8 millj. króna og hafði vaxið
um 2 milljónir og 33 þúsund
krónur. Hefur vöruveltan aukizt
um 100% á síðustu fjórum ár-
um.
Skuldir viðskiptamanna jukust
ekki á árinu þrátt fyrir óvenju
miklar framkvæmdir. En inn-
stæður jukust um 430 þúsund kr.
Félagsmönnum fjölgaði,.og eru
nú nokkuð á fjórða hundrað.
Miklir erfiðleikar voru á flutn-
ingum yfir Mýrdalssand í fyrra
vegna hlaupsins úr Mýrdalsjökli,
sem tók af brýrnar á Múlakvísl
og Skálm. Jók þetta flutnings-
kostnaðinn að mun, en flutnings-
gjöldin voru samt ekki hækkuð,
og tók félagið á sig þann kostnað,
sem af því leiddi.
Aðalfundurinn samþykkti að
greiða félagsmönnum 7% arð af
ágóðaskyldri vöruúttekt og var
hann lagður í stofnsjóð.
Félagið hefur reist nýtt bíla-
verkstæði, keypt nokkuð af hús-
um þeim, sem það hafði á leigu
frá Jóni Halldórssyni, og endur-
nýjað bílakost sinn. Á það nú
fjóra stóra Dieselbíla af Volvó-
gerð og hafa þeir reynzt mjög
vel. Nýjasti bíllinn er með drifi
á öllum hjólum, og spili, og á
sérstaklega að nota hann í flutn-
ingana austur yfir Mýrdalssand
að vetrarlagi. En á þeirri leið
eru oft mikil snjóalög.
Úr stjórninni áttu að ganga:
Eyjólfur Eyjólfsson, Hnausum,
Björn Kunóll'sson, Holti, og
Bjarni Bjarnason, Hörgsdal.
Voru þeir allir endurkjörnir.
Endurskoðandi var endurkjör-
inn séra Jónas Gíslason í Vík.
FORUSTA ÞÖKKUÐ
Fundurinn samþykkti tillögu,
þar sem þingmanni kjördæmis-
ins var þakkað fyrir þá forystu,
sem hann hefur haft um að láta
athuga Kötlusvæðið, með það
fyrir augum að draga úr þeirri
hættu, sem er samfara skyndilegu
Kötlugosi. Taldi fundurinn mikla
nauðsyn á að halda þessum rann-
sóknum áfram, ef mögulegt
Þýzkaland aðili
að ICAO
reyndist að afla þeirrar þeklc-
ingar, að hægt væri að aðvara
fólk þegar gos er í aðsigi.
í því sambandi taldi fundurinn
nauðsynlegt að lagfæra Fjalla-
baksleið sem bezt til þess að
hægt væri að nota hana sem
neyðarveg að sumarlagi, ef veg-
urinn yfir Mýrdalssand skyldi
teppast um lengri tíma.
Ennfrémur var samþykkt
tillaga, þar sem Jóni Kjart-
anssyni var þakkað fyrir gott
starf í samgöngumálum hér-
aðsins á síðasta kjörtímabili.
Benti fundurinn á nauðsyn
þess að hleypa upp veginum
yfir Mýrdalssand og hraða
endurbyggingu vegarins yfir
Skaftáreldahraun.
MJÓLKURSALA
Þá var þeirri ósk beint til
stjórnarinnar, að hún athugaði
möguleika á að hefja mjólkur-
sölu af öllu félagssvæðinu svo
fljótt sem hægt er. En líkur
eru til að þetta megi takast
áður en langt líður, þar sem
samgöngurnar fara nú stöðugt
batnandi í héraðinu.
Á fundinum ríkti einhugur
og ánægja með störf félagsins
á liðnum árum.
MONTREAL 6. júní: — Álcveðið
hefur verið að Sambandsríki
Vestur-Þýzkalandsgerðist aðili að
alþjóðlegu flugmálastofjuninni
ICAO. Það er 68. ríkið, sem
gengur í stofnun þessa. Hlýtur
inngangan gildi einum mánuði
eftir að umsókn þar að lútandi
var lögð fram,
Fyrsta sending
Sumarkjólar
GULLFOSS
Aðalstræti.
Þýzkar, síðar *
IMÆRBUXUR
fyrir karlmenn. — Verð kr. 33.00.
Amerískar
IMÆLOIM-SPORTSKYRTUR
Verð kr. 75.00.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
Verzlunarsfarf
Piltur, ekk_ yngri en 17 ára óskast til verzlunar- og
afgreiðslustarfa, nú þegar.
Tilboð með upplýsingum, cendist í pósthólf 903, fyrir
miðvikudag.
Kápur
Hálsklútar
Hanskar
Blússur
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 5
Nýkomið
32 volta perur, 25, 40, 50 og 100 vatta.
Tengisnúrur með kló og bakstykki.
Framlengingarsnúrur — Tengiklær.
Rafveitubúðin
Hvcrfisgötu 29 — Hafnarfirði — Sími 9494.
Nokkrar stúlkur
geta fengið stöðu við flugvélaafgreiðslu flugmálastjórn-
ari-nar á Keflavíkurflugvelli. Umsóknir, er tilgreini
..enntun og fyrri störf, ásamt ljósmynd, sendist skrifstofu
minni á Reykjavíkurflugvelli fyrir 20. þ. m.
Reykjavík, 7. júní 1956.
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed Hansen.
Skrifstofuherbergi
Tvö stór og 1 lítið skrifstofuherbergi til leigu
í Hafnarstræti. — Uppl. í síma 1755.
GUÁINN kemur FYRR
X-V 50S-1MO-3I
NYTT VIM
meb hinu NÝJA freyðandi
VíM
ÖLL FITA HVERFUR
Á AUGABRAGDIi
Sjáið hvemig hið nýja freyðandi VIM
eyðir öllum fituskánum. Jainvel þessi
óhreinj og Ljóti vaskur verður sam-
stundis skínandi fagur. Straið aðeins
örlitlu af hinu nýja VIM á rakan klút
og nuddið rösklega eina imiferð — og
ekki meir. Aöeins lítið eitt nf VIM fyrir
potta, pönnur, baðker flisar og málaða
hluti til að gera allt hreint og skínandi.
VELVIRKT, FLJÓTVIRKT