Morgunblaðið - 09.06.1956, Qupperneq 13
Laugardagur 9. júní 1956
MonnrjKnr.AfíiÐ
13
Anna Pálsdóttir
hástreyja Skaltaielli
ÞANN 28. f.m. andaðist á Lands-
spítalanum í Reykjavík Anna
Pálsdóttir húsfreyja frá Skafta-
íelli í öræfum, 28 ára a3 aldri.
Var hún fædd að Sauðanesi
í Austur-Húnvatnssýslu 24. nóv.
1928. Dóttir hinna kunnu merk-
ishjóna, Sesselíu I>órðardóttir og
Páls Jónssonar, bónda í Sauða-
nesi. Voru börn þeirra hjóna 12
og Anna meðal þeirra yngstu.
Hún fór 3ja ára gömul í fósur
að Húnastöðum á Ásum og ólst
þar upp hjá hjónunum Sigur-
björgu Gísladóttir og Jóni Bene-
diktssyni, er gegnu henni í for-
eldra stað. 17 ára gömul fór hún
í Garðyrkjuskólann á Reykjum
í ölvusi og lauk þar námi. En
það átti eigi fyrir henni að liggja,
að flytja aftur heim á æsku-
stöðvarnar. Dvaldi hún i Reykja-
vík við ýms störf nokkur ár og
flutti þaðan að Skaftafelli í ör-
aefum og giftist þar bóndanum,
Ragnari Stefánssyni í Skaftafelli.
Er það þróttmikill og duglegur
bóndi og af hinni merku Skafta-
fellsætt, sem búið hefir á ættar-
óðalinu í 14 ættliði. Þau hjónin
eignuðust tvö börn, dreng og
stúlku. Misstu þau stúllcuna 1
árs gamla, en drengurinn, Einar,
að nafni, er á lífi, en heilsulítill.
Hann er á 3. ári.
Við, sem þekktum önnu Páls-
dóttur á æskuárum hennar heima
á Húnastöðum, vissum að hún
var mjög efnilegur og þróttmikilí
unglingur. Glaðlynd og vel gefin,
þróttmikil og ágætlega dugleg til
allrar vinnu. Voru miklar vonir
foreldra, fósturforeldra og ann-
arra vandamanna tengdar við
framtíð hennar. Hún var öllum
geðþekk og naut ástúðar allra
sinna nánustu. Hin ágæta kona
Sigurbjörg, fósturmóðir önnu
lét sér mjög ant um hennar hag,
enda var milli þeirra mikið ást-
ríki. En samvistir þeirra urðu
styttri en vonir stóðu til, og hefir
það ef til vill átt sinn þátt í því,
að önnu fór sem ungunum er
fljúga frá hreiðrinu nokkru fyr
en flugfjaðrirnar eru að fullu
vaxnar. Hún fór í fjölmennið eins
og svo margar ungarmeyjar sveit-
anna nú á tímum. En hún undi
sér þar ekki lengi. Hugurinn
stefndi atð sveitafegurðinni, sveita
lifinu og sveitastörfunum í sam-
vinnu við hina lifandi náttúru.
En Anna tók ekki stefnu heim í
sitt fagra ættarhérað, heldur í
annað landshorn í Austur-Skafta-
fellssýslu. Þar virtist og ánægju-
leg framtíð blasa við henni. Mað-
urinn, sem hún tengdist, þrótt-
mikill og vel ættaður bóndi, á
merkilegu höfuðbóli. Hjónin tóku
til starfa með kjarki, dugnaði
og björtum framtíðarvonum.
Örðugleikarnir voru miklir eins
og víða er nú á tímum i sveit-
um okkar lands. En hjónin gengu
á hólm við þá, eins og margir
fieiri, er líkt stendur á um.
Allt virtist í fyrstu á góðri fram-
tíðarleið. En óhamingjan situr
stundum á næsta leiti, þar sem
þó virðist allt leika í lyndi. Svo
fór hér. Hin unga þróttmikla
og glaðlynda kona, bilaðist á
heilsu eftir fá ár, þrótturinn hvarf
og vonirnar bruztu eins og æfin-
lega þegar þannig fer. Nú hefir
sú ógæfa fengið þann endi, sem
allra bíður að lokum.
Hin djarflega og vonbjarta
húsfreyja er horfin fyrir fullt og
allt, úr afskektu sveitinni, þar
sem búizt var við að hún ætti
langa æfi fyrir höndum. 28 ára
gömul, hvarf hún yfir landamær-
Pantið tíma í síma 4772.
Ljósmvndastofan
LOFTUR h.t.
in til fóstru sinnar og foreldra.
Bóndinn og litli drengurinn
horfa harmi lostnir á eftir eigin-
konu og móður. Systkynin mörgu,
aldraður fósturfaðir, uppeldis-
systir og margir aðrir kunningj-
ar og vinir sakna sárt og undr-
ast, að dauðinn skyldi koma svona
fljótt niður á þessum stað.
AUir þessir harma hina geð-
feldu konu, og minnast hennar
með virðingu og þökk.
Jón Páimasor
er komið
Bezti augnaháralitur, sem framleiddur
hefur verið í heiminum til þessa. —
Fæst í 5 litum: Svartur, hrúnn, grár
grænn, blár.
Aðalútsala
MARKAÐURINN
Hafnarstræti 11
MARKAÐURINN
Laugavegi 100
Xngólfsstræti 6.
Hörður Ólafsson
Múlfhitningsskrifstofa.
Smiðjustíg 4. Sími 80332 og 7673
Rnftækiavarahlutir
Raftækjaviðgerðir
Höfum yfirleitt varahluti fyrirliggjandi og önnumst við-
gerðir á eftirióidum tækjum:
Miele þvottávélar og þurrkur
Siemens eldavélar og isskápar
Graetz eldavélaT
Prestcold ísskápar
International Harvester ísskápar
Sternette isskápar
Sunbeam hrærivélar
Braun rakvélar'
Erres bónvélar
Prometheus straujárn
Morphy Rychards straujárn og
brauðristar
Dormeyer hrærivéiar.
Sækjum lieim og sendum öll stærri tæki.
Raftœkja- og Raflagnavinnustofa
Ólafs Haraldssonar
Bankastræti 10.
Afgreiðsia í Véla- og Raftækjaverzlun. Sími 2852.
Hcimasími: 89438.
Tveir vörubílðr til sölu
Öðrum getur fylgt laust hús tii mannflutninga og
varavél, hinum spil og bóma. Hagstætt verð og skil-
málar.
KEILIR H.F.
Símar 6500, 6550, 6551.
Seljum mjólkurís
til heimaneyzlu í vönduðum
plasíílátum
í S B O R G, Austurstræti.
Bílaviðgerðir
Bifvélavirki eða maður vanur bílaviðgerðum, getur
fengið atvinnu strax.
SKODAVERKSTÆÐIÐ
við Kringlumýrarveg
sími 82881
Glæsileg og sérlega vel mc-5 farin
Packard-bifreið
— Ultramatic-Drive — model 1950 er til söiu. Bifreiðin
verður til sýnis í dag kl. 15—17 að Grenimel 31. — Til-
boðum sé skilað I afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir kl. 18
n.k. mánudag merkt: „PACKARD — 2563“.
Stulka oskast
Rösk og ábyggileg stúlka óskast til afgreiðslustarfa.
Upplýsingar á Vesturgötu 53.
Lisfer diesel báfavel
16 hestöfl, til sölu.
Upplýsingar á véiaverkstæði Kristjáns Gíslasonar.
Sími: 81120.