Morgunblaðið - 16.06.1956, Qupperneq 4
4
mORCVNBtlÐlÐ
LaugárdagUr 16. jdní 1956
f dag cr 168. dagur árstns.
Lajigardaguur 16. júní.
Árdegisflæði kl. 12,48.
Síðdrgisflæði kl. 01,00.
Slysavarðsiofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
E. (fyrir vitjanir) er á sama stað
kl. 18—8. — Sími 5030.
Næturvörður er i Lyfjabúðinni
Iðunni, sími 7911. Ennfremur eru
Holts-apótek, Apótek Austurbæj-
ar og Vesturbæjar-apótek opin
daglega til kl. 8, nema á laugar-
dögum til kl. 4. Holts-apótek er op-
ið á sunnudögum milli kl. 1 og 4.
Hafnarf jarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—>16 og helga daga frá kl. 13,00
ta 16,00.
• Messur •
Á MORGUN:
Óháði söfnuðurinn: —- Messa í
Aðventkirkjunni kl. 11 árdegis. —
Emil Björnsson.
Hafnarf jarðarkirkja: — Messað
kl. 10 — Athugið messutímann. —
Garðar Þorsteinsson messar.
Dómkirkjan: — Messað kl. 11
árdegis. Séra Óskar J. Þorláks-
son. —
Kaþólska kirkjan: — Hámessa
og prédikun kl.. 10 ár'degis. Lág-
messa kl. 8,30 árdegis.'
Aðventkirkjan: — Æskulýðs-
samkoma í kvöld kl. 8,30. — Allir
velkomnir.
Fíladelfía: — Guðsþjónusta
laugardag og sunnudag kl. 8,30.
Harald Gústafsson talar.
Hallgrírnskirkja: — Messa kl.
11 f. h. Séra Jakob Jónsson. —
Ræðuefni: „Týnt og fundið föður-
land“.
• Brúðkaup •
Gefin hafa verið saman í hjóna-
band af séra Jakobi Jónssyni
ungfrú Árný Sigurðardóttir, —
Freyjugötu 10A og James M.
Bacos, læknir á Keflavíkurflug-
velli.
í dag verða gefin saman í
hjónaband af séra Guðm. Guð-
mundssyni, Útskálum, ungfrú Ás-
dig Gíslína Ólafsdóttir, Stórhöfða,
Sandgerði og Arthur Guðmanns-
son, sjómaður, Staðarfelli í Sand-
gerði. Heimili ungu hjónanna verð
ur að Staðarfelli.
1 dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Árelíusi Níelssyni,
ungfrú Valdig Valdimarsdóttir og
Birgir Guðmundsson, matsveinn,
M.s. Arnarfelli. Heimili ungu
hjónanna er að Eiríksgötu 37.
Gefin verða saman í hjónaband
í dag af séra Jóni Auðuns, ungfrú
Steinþóra Þorsteinsdóttir og Sig-
urður Amdal, verzlunarmaður.
Heimili þeirra verður að Norður-
braut 33, Hafnarfirði.
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband af sóknarprestinum
séra Jóni Guðjónssyni, ungfr. Guð
munda Runólfsdóttir, Gröf í
Skilmannahreppi og Sigurður
Gunnarsson, Steinsstöðum, Akra-
nesi, þar sem heimili þeirra verð-
ur. —
Ennfremur ungfrú Þórey J.
Þórólfsdóttir frá Akureyri og Æv
ar H. Þórðarson, bifreiðastjóri og
er heimili þeirra á Bjarkargrund
6, Akranesi.
Ennfremur ungfrú Þórunn Þor-
valdsdóttir, hjúkrunarkona frá
Skúmsstöðum í Landeyjum og
Dagbóh —
Ingimundur K. Ingimundarson,
skipstjóri, sem gefin voru saman
í Akraneskirkju. Heimili þeirra
er að Suðurgötu 89, Akranesi.
Ennfremur ungfrú Svava Gunn
arsdóttir og Jón Eyjólfsson, sjó-
maður, bæði frá Akrannesi og er
heimili þeirra Brekkubraut 8.
14. þ.m. opinberuðu trúlofun
sína ungfrú Ingibjörg Kjartans-
dóttir og Pétur Pétursson, loft-
skeytamaður, Veghúsastíg 3.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Edda Konráðsdóttir,
Laugateig 40 og Xrist.ián Hall,
Eskihlíð 6.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína í Gautaborg ungfrú Hafdís
Helgadóttir, Hverfisgötu 92A, —
Reykjavík og Gunnar Guðmunds-
son, sölumaður, Eskihlíð 16.
Draumut dr. Kristins
Já, miklir eru þeir óþokkar úti í löndum,
sem aldrei spara sér hrekki tii næsta dagsins,
en básúna út, að Framsóknarsamþykktin fræga
sé fjandskapur til Atlantsliafsbandalagsins.
En það er blekking, því hérna vill Framsókn hafa
helling af könum og gjafirnar frá þeim og auðinn
og dreymir áfram, að dollaraflóðið streymi
því dollarann elska þeir meira en bóndann og sauðinn.
En Kristinn sá veginn, þó vandi sé að feta hann
og vildi hafa það eins og bóndi einn lúinn,
að geyma sér bæði jólamat sinn og éta hann
og éta mikið, — en þá var draumurinn búinn.
Fyrir nokkrum dögum voru vinningar í happdrætti DAS afhentir.
Chevrolet fólksbifreið, vinnandi á fyrstu myndinni, hlaut Gunnar Pétursson Sólvallagötu 40 og
sést hann ásamt konu sinni Sigrúnu Guðbjarnardóttur og dætrum taka á móti bílnum. Við það
tækifæri afhenti hann Dvalarheimiiinu að gjöf tíuþúsund krónur, og er þeim hjónum þökkuð hin
höfðinglega gjöf.
Fíat fólksbifreiðina, á miðri myndinni, hlaut Þórir Jónsson Miklubraut 40 og sést hann ásamt
konu sinni Sigríði Guðmundsdóttur taka á móti bifreiðinni.
Þriðji vinningurinn var Sex landa sýn, ferðalag fyrir tvo til sex Evrópulanda, þann vinning hlaut
Kristján Kjartansson, Amargötu 15 og sést hann ásamt dóttur sinni, Fjólu Kristjánsdóttur, i skrif-
stofu Orlofs, með Ásbirni Magnússyni forstjóra.
• Utvarpið *
Laugardagur 16. júni:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50 óskalög sjúklinga (þngi-
björg Þorbergs). 19,00 Tómstunda
þáttur bama og unglinga (Jón
Pálsson). 19,30 Tónleikar: Lög
leikin á bíóorgel (plötur). 20,30
Upplestur. 20,55. Tónleikar (pl.).
21,20 Leikrit: „Fjölskyldumynd
frá Viktoríutímabilinu“, gaman-
leikur með söngvum eftir Noel
Coward. — Leikstjóri og þýðandi:
Hildur Kalman. 22,10 Danslög
(plötur). 24,00 Dagskrárlok.
• Flugferðir •
Fiiigfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Gullfaxi fer til
Kaupmannahafnar og Hamborgar
kl. 08,30 í dag. Flugvélin er vænt-
anleg aftur til Reylcjavíkur kl.
17,45 á morgun. Sólfaxi er væntan
legur til Reykjavíkur W. 19,15 í
kvöld frá ICaupmannahöfn og Oslo
Flugvélin fer til Kaupmannahafn
ar kl. 14,00 á morgun.
Innanlandsflug: í dag er ráð-
gert að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), Blönduóss, Egilsstaða, —
Isafjarðar, Sauðárkróks, Siglu-
fjarðar, Skógasands, Vestmanna-
eyja (2 ferðir) og Þórshafnar. —
Á morgun er ráðgert að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða,
ísafjarðar og Vestmannaeyja.
Kvenréttindafél. íslands
Áður auglýstur 19. júni-fagrnað
ur félagsins fellur niður.
Kvenfélag Neskirkju
Hjartans þakklæti til kaffigest»
og allra þeirra sem stuðluðu að því
að kaffiveitingar félagsins á
kirkjudegi sóknarinnar s.l. sunnu
dag, tókust ágætlega. Félagskon-
ur eru vinsamlegast beðnar að
sækja lánuð áhöld í húsnæði fé-
lagsins í Neskirkju,' mánudaginn
kl. 5 til C.
Frá Fjáreigendafélaginu
• Afmæli •
Sjötug verður í dag Unnur Sig-
urðardóttir frá Þórshamri, nú til
heimilis, Túngötu 3, Sandgerði.
Sextugur er í dag Halldór Jóns-
son, Sólvallagötu 5.
Frá Hjálpræðishernum
Sunnudaginn 17. júní kl. 20,30
heldur Hjálpræðiaherinn sérstak-
lega tilkomumikla samkomu, í til-
efni þjóðhátiðardagsins. Samkomu
stjóri og aðalræðumaður verður
majór Svava Gísladóttir. Margt
verður til skemmtunar, svo sem
einsöngur, tvísöngur, upplestur,
horna- og strengjahljómleikar.
Einnig verða góðar veitingar. —
Allir eru hjartanlega velkomnir,
börn í fylgd með fullorðnum eru
einnig velkomin.
Flokkss tj órinn.
Ámesingafélagið
fer skóggræðsluför í land félag3
ins á Þingvöllum. Lagt verður af
stað i dag kl. 2 frá Bunaðarfélags
húsinu við Lækjargötu.
• Skipafiéttir •
Eimskipafélag íslands h.f.:
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss fór frá Leningrad í gærdag
til Kotka. Fjallfoss fór frá Ham-
borg £ gærdag til Antwerpen,
Rotterdam, Hull og Reykjavíkur.
Goðafoss fór frá Reykjavík 11. þ.
m. til New York. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn 15. þ.m. til Leith
og Reykjavíkur. Lagarfoss fór frá
Norðfirði í gærdag til Fáskrúðs-
fjarðar og þaðan til Hamborgar
og Leningrad. Reykjafoss fór frá
Reykjavík í gærkveldi til Hafnar-
fjarðar, Vestmannaeyja og það-
an til Rotterdam og Hamborgar.
Tröllafoss fór frá Akureyri í gær
kveldi til Siglufjarðár og þaðan
til Kaupmannahafnar og Ham-
borgar. Tungufoss fór frá Reykja
vik í gærkveldi til Vestmannaeyja
Seyðisfjarðar, Haugasund og
Flekkefjord.
Skipadeihl S. f. S.:
Hvassafell fer í dag frá Stettin
til Gautaborgar og Norðurlands-
hafna. Arnarfell er í Þorlákshöfn,
fer þaðan til Borgarness, Sauðár-
króks og Akureyrar. Jökulfell er
í Hamborg. Dísarfell fór væntan-
lega frá Skudenes í gær til Aust-
ur-Þýzkalands og Riga. Litlafell
er í olíuflutningum í Faxaflóa.
Helgafell er i Keflavik. Á að fara
þaðan í dag til Reykjavíkur.
Eimskipafélag íslands li.f.:
Katla er í Reykjavik.
Bágstadda konan
Afh. Mbl.: K R kr. 100,00; S S
100,00; D L N 200,00; K og G
100,00; G S 100,00; Á K 50,00.
— Æ, þetta er í fyrsta skipti,
sem ég gleðst yfir falli óvinar
míns, sagði írinn, er hann frétti
að brennivín hefði fallið í verði.
★
Presturinn sagði í lok ræðu sinn
ar: — Samskot fara fram eftir
messu hér £ kirkjunni, en ég vil
taka það fram, að sá er stal geml
ingnum hans Jóns í Dal á dögun-
um, er ekki beðinn að leggja neitt
í samskotabaukinn. Allir gáfu
eitthvað að messu lokinni.
Breiðholtsgirðingin verður smöl
uð í dag kl. 2. Áríðandi er, að allir
sem eiga fé £ girðingunni, mæti
við smölunina, þvi að allt geld-
fé verður tekið úr girðingu og
flutt til fjalls.
Sólheimadrengurinn
Afh. Mbl.: G M krónur 100,00.
Það er á mjög fárra fseri að
gxta hófs í sambandi við áfenga
drykki, þegar til lengdar Isetur.
— Umdæmisstúkan.
Nei, nei, —— ekki þangað. Hundur
kjötsalans gerir grín að mér.
★
Mámcrsunty/irw
FERDINAND
Vani svefngÖnguma5urinn
Allt var að skrælna, því þurrk-
ur hafði gengið lengi. Presturinn
var beðinn að biðja um regn, af
stólnum. — Það skal ég gera,
sagði prestur, en það er ekki til
nokkurs hlutar á meðan hann er
á norðan.
★
Á stjórnmálafundi gerðist einn
ræðumaður dálítið heitur. Hann
sagði:
„Þjóðin er eins og vamarlaust
lamb, sem ríkisstjórnin mjólkar til
siðasta dropa, og hún er siðan
látinn verpa gulleggjum, þangað
til hún gefur upp öndina.
k
— Menntun dóttur minnar kost
aði mig stórfé.
— Já, maður fær ekkert fyrir
peningana nú orðið.