Morgunblaðið - 14.08.1956, Page 10

Morgunblaðið - 14.08.1956, Page 10
10 MORGVNBLAÐIÐ f>riðjudagur 14. ágúst 195ð Sigriður Jensdóttir Seyðisfirði — minning ENN er ein mæt merkislcona gengin til feðra sinna. Er það frú Sigríður Jensdóttir, Seyðisfirði. Hún andaðist í Rvík 4. þ. m. Var henni gerð mjðg virðuleg kveðjuathöfn í Dómkirkjunni 9. þ. m. að viðstöddum fjölda Seyð- firðinga, eldri og yngri, auk ýmisra annarra. Sigríður var fædd á Seyðis- firði 9. júní 1881t og því rúmlega 75 ára er hún lézt. Voru foreldrar hennar hjónin Ingibjörg Gísla- aóttir og Jens Halldórsson, gull- smiður á Seyðisfirði. Voru börn þeirra fimm, en til fullorðinsára komust þrjár dælur: frú Guð- leif, tengdamóðir Theódórs Biön- dai, núverandi útbússtjóra Út- vegsbankans á Seyðisfirði, um skeið verzlunarkona þar; frú Jónina, dáin í Rvik fyrir skömmu og svo frú Sigríður, sem um er rætt. Eru allar þær systur fallnar frá og Sigriður siðast, næstyngst þeirra. Það mætti margt i letur færa um frú Sigríði, og þó allt til sæmdar. Á tiltölulega ungum aldri byrjaði hún að nema ljós- myndagerð hjá Eyjólfi Jónssyni á Seyðisfirði, en hann hafði verið myndasmiður og klæðskerameist ari á Seyðisfirði, eftir nám í þeim greinum bæði í Noregi og Kaup- mannahöfn. En Eyjólfur var, sem kunnugt er, aibróðir Stefáns Smásð!aver§ 1. ágúst MEÐALSMÁSÖLUVERÐ ým- issa vörutegunda í nokkrum smásöluverzlunum í Reykjavík reyndist vera 1. þ m. sem hér segir: Rúgmjöl ......... pr. kg. 2.46 Hveiti............ — — 3.14 Haframjöl..........— — 3.68 Hrisgrjón .......— — 5-21 Sagógrjón ....... — — 5.23 Hrísmjöl .........— — 5.10 Kartöflumjöl .... — — 4.85 Baunir ...........— — 5.90 Te Ve lbs. ds......— — 4.78 Kakao Vz lbs. ds. .. — — 10 06 Export ...........— — 21.06 Suðusúkkulaði .. —- — 76 97 Molasykur .......— — 5.49 Strásykur .......— — 3.65 Púðursykur ........— — 3.78 Rúsínur .........— — 22.23 Sveskjur 70/80 . . — — 25.61 Sítrónur ........— — 19.03 Þvottaduft útl. 350 gr....... pr. pk. 7.02 Þvotteduft innl. 250 gr.........— — 3.64 Á kaffi brenndu og möluðu er sama verð í öllum verziunum pr. kg. 44.80. STYKKISHÓI>MI, 10. ágúst: — Ágætis þurrkur hefur verið hér lengi og hefur mjög mikið verið hirt undanfarna daga. Lítur því ágætlega út með heyskapinn. — Árni. Th. Jónssonar, hins merka og mikla athafnamanns á Seyðisfirði á sinum tíma. Eftir byrjunarnám hjá E. J. fór Sigríður til Kaup- | mannahafnar og lauk þar fulln- 1 aðarnámi í Ijósmyndagerð. Árið 1904 var Eyjólfi Jónssyni falin forstaða Útbús íslands- banka á Seyðisíirði, er það var sett á stofn þar. Gegndi hann því starfi í 25 ár, þar til árásin fræga var gerð á íslandsbanka 1929. Árið 1908 missti Eyjólfur fyrri konu sína, Guðnýju Sigmunds- dóttur, en 14. ágúst 1914 kvænt- ist hann Sigríði Jensdóttur, sem þá um árabil hafði annast Ijós- myndastofuna, í önnum hans sem bankastjóra, og margra annarra starfa. Eyjólfur andaðist 30. júní 1944. Eítir að Eyjólfur lét af banka- stjórastörfum ráku þau hjónin verzlun og voru þar um hvort öðru samhent, og, Ijósmyndastoí- an hélt áfram sem áður. Tæpum tveimur árum eftir lát Eyjólfs fluttist Sigríður til Reykjavíkur, enda börn hennar flest komin þangað. Á síðari ár- um bjó hún hjá Hrefnu dóttur sinni, en öll börnin hjálpuðust að, um það að gera henni ævi- kvöldið sem bjartast. Böm þeirra hjóna eru: Hrefna og Heiðrún húsfrevjur í Rvík, Haukur, fulltrúi, Axel verzlunar- maður, og Garðar, ljósmyndari. Stjúpdóttir hennar, Svava, af fyrra hjónabandi Eyjólfs, er bú- sett i Kaupmannahöfn. Frú Sigríður var jafnan í for- ustuliði þeirra ágætu kvenna í Kvenfélagi Seyðisfjarðar, sem gengust fyrir því, að in glæsilega kirkja var reist á Fjarðaröldu, og síðan ræktaður umhverfis hana inn dásamlegi skrúðgaiður, sem vara mun. í þessu mikla máli eiga allar konur í Kvenfélagi Seyðisfjarðar, eldri sem yngri, jafnan heiður skilið. Nöfn þeirra er ekki hægt að greina hér, en þau geymast á tryggum stað. Ég ætla nú ekki að rekja sögu kvenfélaganna á Seyðisfirði. En merkilegur þáttur í starfsemi þeirra er þessi: Kvenfélag 'Seyðis fjarðar gengst fyrir inni glæsi- legu kirkjubyggingu og skrúð- garði í kring, hitt félagið, Kven- félagið ,,Kvik“, gengst fyrir stofnun Eiliheimilisins „Höfn“ á Seyðisfirði. Segi menn svo að seyðfirzkar konur, eldri sem yngri, hafi ekki látið höndur standa fram úr ermum. Þeirra er heiðurinn. Frú Sigríður Jensdóttir mun verða jarðsett á Seyðisfirði á morgun. Þá er hún komin heim. Það mætti svo að orði kvéða, að hún sé komin heim i þrennum skilningi: Hún er komin hesm á fæðingar- stað sinn. Hún er komin heim að hlið sins kæra eiginmaka. Hún er komin heim í eilífðar- vist ins mikla Alföður. — O; fylgja henni hlýjar kveðjur. S. A. Suður í Istanbui komu vegagerðarmenn niffur á merkllegan fornleifafund fyrir nokkru, — feikn- mikiar kúlur úr failstykkjuin. Og við nánari rannsókn kom í Ijós, aff þær voru tilheyrandi fallbyssum soidánsins Mehmet hins ósigrandi, er her hans sótti aff barginni, sem í þá daga hét Constantinopel. Ouðrún Ha!!dórsdóttir—minniRg Fædd 3. desember 1894. l>áin 6. ágúst 1956. KVEÖJA. Skuggar sundrast, sólir rísa, sortna og hverfa í geiminn auða. Skammt er millum skers og báru: skammt er millum lífs og dauða. Hver er sinnar sólar smiður. Sannleiksfegurö kynninganna verður ávallt efni í grunninn undir hallir minninganna. EITT augnablik mannlegs lífs er okkur, öðrum fremur, torskilið. Það er þegar við stöndum and- spænis dauðanum. Ekkert eigum við jafn örugglega víst og að deyja. Þó er eins og við séum alltaf óviðbúin að hcyra lát vinar og kunningja, einkum ef dauðann ber snögglega að. En það er í þessu, sem svo mörgu öðru, sem það óviðráðan- lega skeöur, og við dauðlegir menn fáum ekki að gert. Vísindi og tækni geta að vissu marki lengt Hfið, en „hvenær sem kallið kemur, kaupir sig cnginn frí“. Þegar fréttin berst okkur til eyma, að hún eða hann séu horf- in úr vinahópnum, dregur ský fyrir sól, og skuggar sorgarinnar umlykja okkur. Umkringdar sorg og söknuði birtast okkur myndir liðna timans írá margra ára, stundum margra áratuga samstarfi við hinn liðna vin, og í hreinsunareldi sorgarinnar skeð ur þáð dásamlega, að í ljósi minn- inganna sjáum við aðeins það, sem bezt var og fegurst. Þessar minningar getum við látið eftir okkur að lifa upp aftur og aftur. Oft verður eitt og annað atvik að vekja þær, oft koma þær ó- Siytia Símiims í iimíi í huríws BERLÍN, 10 ágúst: — Borgar stjórinn í Leipzig, sem er á yfir ráffasvæffi kommúnista í Aust ur-Þýzkalandi, hcfir nú látið fjarlægja styttu. af Stalín, er síóð á Karl Marx lorginu. Opinberlega var sú skýring geíin, aff þörf hefði verið að fjarlægja styttuna er vcrið var að grafa grunn fyrir nýju óperu-húsi. ASalmálgagn kommúnista- flokksins „Leipziger Volk- zeitung“, sem nýlega er komið f út, segir, aff cngar ákvarffaniri hafi veriff teknar um aff setja styttuna upp annars staðar i borginni. Fyrir skömmu endurskírði borgarstjórn Leipzigborgar gölu, er áffur var kennd við Síalín og nefndist „Stalin Al!ee“. Nefnisi hún nú „Fried- rich Ludwig Jahn Aliee“, í höfuðið á þýzkum íþróttafröm uffi. Var þess getiff, að götu- nafninu hefð'i veriff breyít „sökum fjölda áskorana frá fimleikamönnum í Leipzig“. sjálfrátt, en oftast framköllum við þær sjálf. í dag kveðjum við Guðiúm.: Halldórsdóttur, er lézt að heim- ili sínu 6. ágúst. Með henni er gengin sú bezta og mikilhæfasta kona, sem ég og mitt vandaíólk höfum átt samleið með síðustu þrjátiu árin, en skilnaðurinn koi,. of fljótt, og bar svo brátt að. Dag inn, sem hún lézt, hafði hó.r ákveðið að heimsækja frænku mína eftir hádegið, en sú ferð var aldrei farin, en í þess stao stigið siðasta sporið, frá því tíma- lega og jarðneska, yfir á svið hins andlega — eilífa. - Skarðið er stórt og vandfvllt, er myndast við fráfall slíkrar ágætiskonu, sem Guðrún var. í fyrsta lagi fyrir þá, sem hún lifði og starfaði fyrir, en eirinig fyrir okkur hin, sem fjær stöndum. Hún var alitaf glöð og hress, og því svo gott að vera í návist hennar. Hún var stór persónu- leiki, sem gott var að leita til er erfiöleikar steðjuðu að, því hún átti þá hjartahlýju, samúð og góðvild, að henni var svo ljúft og tamt að miðla öðrum. í mæðrastyrksnefnd starfaði Guðrún um árabil af miklum dugnaði og ósérplægni. Þar fann hún starf við sitt hæfi, að hjálpa þreyttum og fátækum mæðrum um hina nauðsynlegustu hluti, og ef hægt væri, um dvöl i sveit á hvíldarheimili. Öllu fögru unni Guðiún, hljóm list og fögrum söng, og lestur íagurra kvæða var henni lífs- nautn. Þá hafði hún nærnan og góðan smekk fyrir náttúru- fegurð, enda dvaldi hún lang- dvölum inni á öræfum íslands, og lagði land undir fót um hinar víðáttumiklu óbyggðir. Þar, í hinni djúpu, þöglu kyrrð öræf- anna, í fylgd með góðum vinum, mun hið opna hjarta og hin næma sál liennar hafa orðið fyrir sterk- um áhrifum sem vöktu löngun til að bæta mannlífið og það sýndi hún sannarlega í verki. Okkur, sem þekktum Guðrúnu svo vel, finnst ekki undarlegt, þótt hún yrði í þeim hópi manna, er aðhylltust trúarskoðanir Har- aldar heitins Níelssonar, og yrði þeim trú til dauðadags. Hún varð að leita og finna vissuna fyrir öðru lífi. Þessi vissa lilotnaðist henni, og hún var öruggléga viss um framhaldslíf í öðrum heimi. í dag, er við kveðjum Guðrúnu um stundarsakir, erum við þess fullviss, að hún lifir líkamsdauð- ann og að leiöir eiga eftir að liggja saman á ný. Við, vinir hennar nær og fjær, þökkum henni af hrærðum huga fyrir allt og allt, og biðjuni alföður að taka hana í sinn náðarfaðm, og gefa henni góða heimkomu. Guðrún M^P I nnn! Veriu sæi! hmuinst ueii 4 morgni framhaldslíísins, þai- sem sól eilífðarinnar hnýgur aldrei til viðar. Theodór Gislason. ★ „ALLT hvað þér viljið að menn- irnir gjöri yður, það skuiuð þér og þeim gjöra“. Þessi orð komu mér í huga er ég heyrði andlátsfregn vinkonu minnar, Guðrúnar Halldórsdótt- ur, frá Saemundarhlíð í Reykja- vík, sem svo skjótt var kölluð héðan. Mér fannst Guðrún lifa flest- um betur eftir þessum orðum meistarans. Hún hlaut að vöggugjöf þær náðargáfur, sem við menniinir sizt getum án verið. Góðvild og gjafmildi var hennar lífsnæring, fórnfýsi var hennar heitasta þrá. Lífsorku ásamt iífsgleði átti hún í svo ríkum mæli að af bar, þess vegna bar hún með sér yl og birtu hvar sem hún fór. Skyggnust var hún á það bezta í fari manna, enda fljót til and- svars ef hún heyrði náunga sín- um hallmælt. Varð þvi mörgum leitað til hennar með sín vanda- mál og þori ég að segja aö henni tækist oítast að finna úrræði til lausnar með því næmi og skiln- ingi, sem á uppsprettur sínar i göfugu hjartalagi. Það má segja að hún leitaði uppi þá smáu og hrjáðu til að miðla þeim af fórnarlund sinni. Guðrún kunni líka að gleðjast með glöðum og var þá hrókur alls fagnaðar. En hún fór heldur ekki varhluta af sorg og beizkju mannlífsins, sem og flestir aðrir. Virtist hún vaxa við liverja raun. Ég veit að Guðrúnu var á móti skapi að um hana væri ritað lof, lífs eða liðna. Samt get ég ekki stillt mig um, er við nú kveðjum hana um stundarsakir, að færa henni alúðar þakkir mínar ásamt vinstúlkum okkar og fjölskvldu minni fyrir allt sem hún hefur gjört íyrir okkur. Þær minningar munu lengi ylja hjörtum vorum, þegar „kuldinn leitar inn á hörð- um árum“. S. G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.