Morgunblaðið - 04.09.1956, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 04.09.1956, Qupperneq 12
12 MORGVNBLAÐIÐ T>riðjudagur 4. september > i ' JT l LOUIS COCHRAN: . SONUR HAMANS fl. ___ __ _____________L' Framhaldsagan 20 vissi allt hið sanna og tal myndi ekki verða til neins gagns Ekki gat hana heldur iðrað þess, að hún skyldi bera í heiminn þá einu mannveru, sem sýnt hafði henni hreina ást og sem bauð heiminum byrginn, svo djarfur og einbeitt- ur. — Og Lije aumkaði hana og unni henni. Hann aumkaði hana vegna þeirra óskapa, sem höfðu hrakið hana úr hlýlegum griðastað til sultarlegs landnemaþorps, til þess að verða þar leiksoppur ban- vænna mosquitoflugna og kven- óðra siðleysingja. Og hann dáði hana og elskaði vegna þess að hún æðraðist aldrei og vegna þess að hún nefndi aldrei mann- inn, sem hafði hrundið henni frá sér og valdið böli hennar. Lije vissi, að ást hennar til þess manns hafði fyrir löngu ver- ið særð og svívirt, unz hún kuln aði út, með öllu og skildi eftir sig einhvers konar daufan ilm, orsakir hvers Lije gat aðeins óljóst rennt grun í. Og þess í stað hafði svo, smátt og smátt, þróazt grófgerðari og klúrari ást til annars manns, — kannske margra manna. Hún hafði sætt grimmilegri og ómannúðlegri meðferð og Lije furðaði sig á því, með biturri undrun, að hún skyldi nú, þegar hún gerðist gömul, lúta svo auð- mjúk og iðrandi, þeim guði, er ávallt hafði sýnt henni tilfinn- ingaleysi og íært henni böl fyrir blessun. Er þau komu í lundinn, sáu þau að löngu trébekkirnir, sem settir höfðu verið upp við jaöar trjánna og náðu þaðan yfir hundrað feta svæði hringmyndað, voru þegar þéttsetnir fólki. Margir hinna síð komnu tóku út vagnsætin og lögðu svo borð á miili þeirra, sem hægt var að sitja á. í endarjóðurs ins var vagn, sem var alveg tóm- ur, að öðru leyti en því, að fest hafði verið í honum ofurlítið borð, þar málti aðeins koma fyrir biblíu og vatnskönnu. Á borðinu stóð einnig Ijósker, sem lýsti eins og ofursmár viti í daufu tungls- skininu, en það yrði látið tii hlið- ar, þegar prédikarinn byrjaði þjónustuna. Fleiri Ijósker héngu í trjánum og sameinuð birta þeirra sveipuðu tóma vagninn fölleitri skímu. Þegar Lije og móðir hans ruddu sér leið að auðu rúmi inni í rjóðr- inu miðju, þyrlúðust rykmekkir upp undan fótum þeirra. „Ég heíði átt að vera berfætt“, hvíslaði gamla konan að syni sín- um. ,,Þá hefði ég eklci atað svona út skóna mína og sokkana'* „O, það gerir hvorki til né frá", — Lije leit forvitnislega í | kringum sig um leið og hann setti hattinn á hné sér. „Hver heldurðu yíirleitt að sjái fæturnar á þér, mamma?“ í fyrstu sá hvorugt þeirra nokkurt kunnugt andlit. Fólk úr margra mílna fjarlægð var sam- an safnað í kringum þau. Kon- ur með kornmylkinga, sem þær lögðu á brjóst sér í allra augsýn, hópur af æstum, opineygum börn uin, sem síðar myndu sofna djúp- um sveíni í örmum foreldranna, á meðan þeir hlustuðu með vax- andi skilningi á orð prédikarans. Meðan Lije litaðist um, beind- ist athygli allra skyndilega í sömu áttina og nú fylgdu augu manna bróður Watkins, þegar hann klifraði léttilega yfir hjól- nöfina og upp í vagninn. Svo sneri hann sér að söfnuðinum. Það var ekkert sem minnti á meinlætamanninn, í útliti bróður Raccoon Watkins. Beinastór og rjóður í kinnum, gnæfði hann full sex fet yfir áheyrendur sína og kringlótt, skærblá augu hans Ijómuðu af ánægju. Um stund stóð hann hreyfingarlaus, hélt höndunum fyrir aftan bak og drakk áfjáður í sig hina þögulu aðdáun hundraðanna fyrir fram- an sig. Er hann hafði virt söfnuð sinn þannig fyrir sér, rétti hann fram | hendurnar, með útglenntum fingr um. „Látum oss krjúpa og biðja“, skipaði hann með sterkri, hljóm- fagurri röddu og við undirspil frá fjölda hnjám, er beygðu sig brak- andi, krupu þau Lije og móðir hans. Eftir þessa inngangsbæn, sem var hávær hvatning til Heilags Anda um að stíga niður og blessa samkomuna, risu allir á fætur og sungu undir stjórn prédikar- ans: — „Lauga mig, lauga mig, lauga mig í lambsins blóði“. Þegar komið var að fjórðu end urtekningunni, söng allur mann- fjöldinn með, utanbókar, eins og einn maður væri, stjórnað af sefj andi hvatning frá manninum, sem bar hæst fyrir framan hóp- inn. — „Nú“, sagði hann, þegar síðasti ómur söngsins barst út í kyrrð- ina og hljóðnaði, en mannfjöld- inn þagði eftirvæntingarfullur. — „Nú langar mig til að biðja ykk- ur um að syngja eftirlætissöng- inn minn. Það er yndislegur sálm ur, vinir mínir, yndislegur sálm- ur. Ég söng hann fyrst, er ég var lítill drengur heima í gömlu Carolinu. Við kunnum hann öll. Allir þeir sem vilja vera kristnir ættu að syngja með, en þeir sem vilja fara til Satans, geta haldið Tilboð Tilboð óskast í eftirfarandi tæki fyrir 5 fjölbýlishús Reykjavikurbæjar við Gnoðarvog: 15 katlar, .10 ferm. hver að stærð. 15 sjálfvirka olíubrennara. 15 rafmagnsknúnar dælur. 15 hitavatnsgeyma, 1100 lítra. 15 blönduloka. Miðstöðvarofna í 120 íbúðír. Lýsingar og teikninga má vitja á teiknistofu minni. Tómasarhaga 31 og verða tilboð opnuð þar 25. þ.m. GÍSLI HALLDÓRSSON, arkilekt. ráxlm fyrir karlmann Reglusamur og lipur maður á aldrinum frá 25 til 40 ára, getur fengið fasta atvinnu við pakkhús — lager — og framleiðslustörf í Laugavegsapóteki. Uppl. á skrifstof- unni á Laugaveg 16. Hið HEIMSFRÆGA Rúgkex Ný scníiing komin til Iandsins. Ileidsöluhirgðir: Þórður Sveinsson & Co. h.f. Viðskiptafræðingur eða maður vanur skrifstofustörf- um, bankaviðskiptum, bókhaldi og innflutningsverziun, getur fengið góða framtíðaratvinnu nú í haust hjá stóru verzlunarfirma hér í bænum. Umsóknir með upplýsing- um, sem farið verður með sem trúnaðarmál, sendist afgr. Mbl. merkt: Skrifstoíuvinna — 4045“. ÞaS er ódýrt að nota. P I C C O L O Fæst í næstu búð í eftir- töldum umbúðum: Gler flöskum Plastic flöskum — dúkkum UTVARPIÐ L BRYNJOLFSSON & KVARAN Þriðjudagur 4. september: Fastir liðir eins og venjulega. — 19.30 Tónleikar: Þjóðlög frá ýms- um löndum (plötur). — 20.30 Erindi: Frá Uppeldismálaþingi í Fontainebleau (Símon Jóh. Ágústson prófessor). — 20.55 Tónleikar (plötur). — 21,20 íþrótt ir (Sigurður Sigurðsson). — 21.40 Frá tónlistarhátíð Alþjóðasam- hands nútímatónskálda í Stokk- hólmi í júní s.l. — 22.00 Fréttir og veðurfregnir. Kvæði kvölds- ins. — 22.10 Haustlcvöld við haf- ið, sögur eftir Jóhann Magnús Bjarnason, I. (Jónas Eggertsson). — 22.30 „Þriðjudagsþátturinn", — óskalög ungs fólks og fleira. Jónas Jónasson og Haukur Mort- hens sjá um þáttinn. — 23.10 Dagskrárlok. 1) Sirrí heíur neitað bónorði Phils og hann gengur brott frá henni heim að tjaldbúðunum. 2) Allt lífið er einskis virði fyrir hann. 3) Þegar hann ætlar að ganga inn í kofann verður honum litið á kassa sem stendur þar hjá. — Alkóhól. 4) Undarlegur glampi kemur i augu Phils.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.