Morgunblaðið - 07.10.1956, Síða 16
16
MORCUNBLAÐIÐ
Surmudagur 7. ofet. 1956
Laugavegi 27 — sími 2303
70 ára í dag
Sigursteinn Steinþórsson
■¥f/uróasat(m
V W'^ SlMAR 7080 & 2678
SJÖTUGUR er í dag Sigursteinn
Steinþórsson verkstjóri á Vinnu-
hælinu að Litla-Hrauni á Eyrar-
bakka.
Sigursteinn er fæddur 7. okt.
1886 á Amarhóli í Gaulverja-
bæjarhreppi, sonur merkishjón-
anna Sigríðar Jónsdóttur og
Steinþórs Eiríkssonar, sem lengi
bjuggu á Arnarhóli myndarlegu
búi.
Sigursteini lærðist fljótt að
gera sér grein fyrir, hvað lífið
hafði að færa — erfiði eða
ölmusu.
Hann valdi fyrri kostinn og
hóf því snemma vinnu, enda
systkinin mörg og við fátækt og
ýmsa örðugleika að stríða.
Hugur hans beindist fljótt að
sjósókn og fiskveiðum, þótt
fæddur væri hann í sveit og upp-
alinn.
Á 13. ári réðist hann upp á
hálfan hlut sem beitustrákur,
eins og það var kallað, til Guð-
mundar Jónssonar rennismiðs,
sem lengi var formaður í Loft-
stcðarsandi.
Síðustu vetrarvertíðina fyrir
fermingu réðist hann svo til
Þórðar Péturssonar í Hólshúsum,
sem einnig var formaður í Lofts-
staðarsandi, en hjá honum réð-
ist hann fyrir heilan hlut.
Það bar því fljótt á stórhug
Sigursteins og dugnaði. ,
Hugur hans leitaði brátt á nýj*
ar slóðir og augu hans kröfðust
víðari sjóndeildarhrings.
Hann ákvað að leita iengra að
heiman, leita nýrra afvintýra,
— kynnast öJ' ’m v- 'Öðvum.
Strax að 1. .iingu réði
hann sig á sk_^iia „Nýensu“,
sem gerð var út frá Reykjavík.
Skipstjóri var Björn Gíslason.
Kaupkjör Sigursteins voru þá
kr. 45.00 yfir vorvertíðina og að
auki allir happadrættir — tros.
Að lokinni vertið lagði svo
Sigursteinn af stað heim til föð-
urhúsanna mjög ánægður með
feng sinn eftir erfiða, en lær-
dómsríka vorvertíð.
Sjómennskan féll honum vel
í geð og stundaði hann sjó á
skútunum þar til þær lögðust
niður og við tóku togarar. Fyrstu
sjórnannsár sín var hann jafn-
an heima á sumrum yfir hey-
annatímann og stundaði heyskap
á búi föður síns.
Sjómennsku Sigursteins lauk
ekki með hvarfi skútunnar, þrátt
fyrir sjóvolk undangenginna ára
og margan lífsháskann.
Nú réði hann sig á togarann
Marz, stórt og glæsilegt skip,
sem klauf hafflötinn með hvít-
fyssandi sjólöðri jafnt í logni
sem vindi.
Skipstjóri var Þórarinn Ol-
geirsson, vel kunnur skipstjóri og
aflamaður, sem nú er búsettur í
Englandi.
Sigursteini fahnst sem hann
værí kominn í annan héim, þeg-
ar hann steig um borð í þetta
glæsilega skip og það brunaði
út úr Reykjavíkurhöfn hljóð-
laust og tígulega án segla eða
áraskvamps.
Hann fann vel að tímar voru
breyttir og ekki var lengur þörf
fyrir lipurð hans í reiðanum, en
oft tók Sigursteinn á sig þá
hættu að klífa reiöann í stórsjó
og stormi úti á rúmsjó, ef segl-
taugar slitnuðu, eða annað færð-
ist úr lagi, því að hann var lipur
og snarráður reiðamaður.
En betur sá Sigursteinn, að
gamli tíminn var að víkja fyrir
þeim nýja, þegar varpan var sett
fyrir borð.
Handfærin voru búin að lifa
sitt glaðasta og urðu að víkja
fyrir stórvirkum veiðarfærum
nútíma tækninnar, sem áttu þó
eftir að stækka og endurbætast.
Á þeirri stundu hugsaði hann
til færis síns og minntist með
söknuði margra ánægjustunda,
sem hann hafði átt við borð-
stokkinn, þegar skútan vaggaði
mjúklega á öldum úthafsins og
marr siglutrjánna var það eina,
sem rauf þögnina með sínu sama
hljóðfalli. Sigursteinn var afla-
maður góður, sídragandi, ef hann
sendi færi, og var því eftirsótt-
ur sjómaður.
Hann var togarasjómaður þar
til hann hætti að stunda sjó og
tók við verkstjóm hjá vegagerð
ríkisins við vegalagningar og var
við það í fjögur ár.
Árið 1931 gerðist hann verk-
stjóri á vinnuhælinu að Litla-
Hrauni og gegnir því starfi enn
þann dag í dag.
Hann hefur því haft verkstjórn
þar á hendi í 25 ár.
Sigursteinn er vel ern og
hraustur. Hann gengur að allri
vinnu með sömu ósérhlífni og
dugnaði sem jafnan einkenndi
hann í störfum fyrri ára jafnt
á sjó og landi.
Hann er vel liðinn af sínu
vinnuliði og reifur í vinahópi.
Mestan áhuga hefur hann haft
á landbúnaði og fi.skveiðum.
Hann á kindúr og hesta, sem
hann annast í frístundum af mik-
illi alúð og segir að jafna megi
saman að ríða góðum gæðingi
og sigla skútu í hagstæðum byr.
Hann hefur gaman af að koma
á hestbak og á góða he6ta, enda
hestamaður.
Nú eru nýafstaðnar fjallferðir
og fór Sigursteinn í lengstu leit,
eins og það er nefnt, en á fjall
hefur hann farið undanfarin ár,
og kemur jafnan ánægður heim
með kærar minningar.
Þegar hann tók fram farangur
sinn til þessarar fjallferðar hým-
aði yfir svip hans og gætti hann
vel að, að ekki gleymdust nauð-
synlegir hlutir.
Aðspurður hvort hann ekki
kviði slíkum feröum nú orðið,
svaraði hann því til broeandi,
að nú væri sumarfríið fyrst að
byrja, en hann hafði nýlokið
sínu sumarfríi frá verkstjórn og
var byrjaður við starf sitt að
nýju.
Ég óska Sigursteini ynnilega til
hamingju með þennan merkis-
dag og ennfremur góðs gengis á
komandi árum með þökk fyrir
liðin ár. Eg veit að allir vinir
Sigursteins og kunningjar hugsa
til hans með hlýhug á þessum
i degi og óska honum hins sama.
Vinur.
♦ Ð ♦
♦ 1>EZT AÐ AUGLÝSA í
♦ ♦
♦ Morgunblaðínu %
Einangrunarkorkur
l-%“ þykkt, fyrirliggjandi. — Korkur
undir gólfdúka fyrirliggjandi.
Símið — Við sendum.
Þ. Þorgrímsson & Co.
Hamarshúsinu — Sími 7385
Framvegis
hættir verzlunin að selja sirz og flúnel,
verða því þær birgðir sem til eru seldar
með lágu verði.
V efnaðoi vöruverzlunin
Týsgötu 1
KR.R.
K. S. í.
Haustmót xneistaratlokks
heldur áfram í dag klukkan 2 e.h. þá keppa VALUR - ÞROTTUR
FRAMI - VÍKIIMGUR
Mótanefndin.
og strax á eftir, eða klukkan 3,45, keppa
Komið og sjáið spennandi leiki.