Morgunblaðið - 10.10.1956, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.10.1956, Blaðsíða 2
2 MORCVKBL4Ð1Ð Miðvikudagur 10. okt. 1956 Atriði úr Paradísarbörnunum. Kvikmyndafélagið Filmía hefur sýningar um helgina Sami sýningartími og verið hefur undanfarin ár K " VIKMYNDAFÉLAGIÐ FILMÍA hefur fjórða starfsár sitt um næstu helgi með því að sýna frönsku myndina „Paradísar- börnin“ (Les Enfants du Paradis). Þau þrjú ár sem Filmía hefur starfað hafa verið sýndar um 50 leiknar kvikmyndir á vegum félagsins, auk fjölda aukamynda. Flestar leiknu myndanna hafa verið bandarískar — hinar hafa verið stuttar Chaplin-myndir. — Flestar langar leikmyndir hafa verið franskar, þá koma brezkar, rússneskar, danskar, sænskar, þýzkar, tvær mexikanskar og ein ítölsk. Þá hafa tvær íslenzkar myndir verið sýndar: Ullarband og Laxaklak. „PARADÍSARBÖRNIN" Mynd sú sem nú verður sýnd er frá árinu 1945 og því 11 ára gömul. Leikstjóri er Marchel Carné en áður hafa fvær aðrar myndir eftir hann verið sýndar hjá Filmiu, „Hotel du Nord“ og „Les Portes de la nuit“. Handrit- ið gerði hinn góðkunni Jacques Prévert og tónlistina samdi Joseph Kosma. Aðalleikendur eru: Arletty, Jean-Jouis Barrault, Pierre Brasseur og Maria Caes- ares. Myndin fjallar um leikhús- líf í Parísarborg á síðustu öld, en er um leið bitur ádeila á hina ríku og þá „sem hafa komizt áfram í þjóðfélaginu“. „HIN VOTA GRÖF“ Næsta mynd þar á eftir ve.-ður brezka myndin „Hin vota gröf“ („In Which We Serve“) eftir Noel Coward. Sú mynd var gerð árið 1942 og leikur Coward aðal- hlutverkið. Hann samdi einnig handritið og tónlistina. Myndin fjallar um brezka sk-ipbrotsmenn í síðustu heimsstyrjöld baráttu þeirra og vonir. Þá verður sýnd franska myndin „Ofsókn“ („Pani- que“) eftir Duvivier, en aðalleik- endur hennar eru Michel Simon og Viviane Romance. Eins og Paradísarbörnin er Ofsókn böl- lýnismynd, rannsókn á ofsókn- araeði múgsins. Þá verður sýnd brezka myndin „Að hika er sama og tapa“ („Thunder Rock“) eftir John Boalting, sem var að at- huga kvikmyndaaðstæður hér á íslandi fyrir tveimur sumrum. Aðalleikandi myndarinnar er Michael Redgrave. Síðasta mynd- in, sem sýnd verður fyrir jól er „Merry Go Round“, þögul mynd eftir meistara Eric von Stroheim. FÉLAGSSKÍRTEINI Mikil aðsókn hefur verið að sýningum Filmíu þau ár sem félagið hefur starfað og færri ur og sýningartími. Verða tvær sýningar á hverri mynd eins og áður, hefst sú fyrri kl. 15 á laug- ardögum en sú síðari kl. 13 á sunnudögum. Stjórn Filmíu skipa Jón Júlíus- son menntaskólakennari, for- maður, Matthías Jóhannessen, blaðamaður, ritari, Magdalena Thoroddsen, blaðamaður, gjald- keri, og Sverrir Lárusson skrif- stofumaður meðstjómandi. End- urskoðandi félagsins er Baldur Tryggvason tryggingafræðingur. Flugvallarstarfs- menn unnu flug- fél.menn í fófbolta KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 9. okt.: — Knattspyrnudeild íþrótta félagsins hér á flugvellinum keppti á sunnudaginn við knatt- spymufélag starfsmanna Flugfél. íslands. Fór leikurinn fram í Reykjavík og sigruðu flugvallar- menn flugmannaliðið með 4 mörk um gegn 0. — Þessum úrslitum hafa „Faxarnir" ekki viljað una, og í búningsklefunum að leikslok um kom strax fram áskorun frá flugfélagsmönnum um annan leik. Skal hann fara fram hér á knattspyrnuvelli flugvallarstarfs manna á sunnudaginn kemur kl. 4 síðd. — B. Afstaða Bandaríkjanna hin sama og NATO JOHN J. MUCCIO, bandaríski ambassadorinn á íslandi, kom hingað í gær eftir för sína til Washington, þar sem hann sat fundi utanríkisráðherra íslands og Bandarikjanna um varnarsamninginn frá 1951. Við komu sína lýsti ambassadorinn yfir því, að hinar hispurslau.su og vinsamlegu viðræður í Washington hefðu verið gagnlegar og gefið báðum aðilum skýrari mynd af þeim viðhorfum sem ríkjandi væru hér og í Washington varðandi varnarmálin. Hann ræddi ekki einstök atriði þessa vandamáis, en sagði að afstaða Bandríkja-stjórnar væri enn sem fyrr byggð á þeirri álitsgerð, sem Atlantshafsráðið lagði fram í ágúst s.l., samkvæmt beiðni fslendinga. í þeirri álitsgerð er m. a. komizt svo að orði undir lokin: „Að lokinni vandlegri athugun á þessu máli frá pólitísku og hernaðarlegu sjónarmiði er það álit ráðsins, að enn sé þörf varnarliðs á íslandi, og nauðsynlegt sé að aðstaða og viðbúnaður sé þar fyrir hendi. Lcggur ráðið eindregið til, að vamarsamningurinn milli íslands og Bandaríkjanna gildi áfram í því formi og með þeirri tilhögun, er tryggi styrk sameiginlegra va'ma.“ Matsveina- og veitinga- þjónaskólinn settur Starfar í þremur deildum Matsveiina- um hans og veitingaþjónaskólinn var settur í húsakynn- um hans i Sjómannaskólanum, miðvikudaginn 3. október, s.l. Tryggvi Þorfinnsson skólastjóri setti skólann með ræðu og ræddi um starf og skipulag hans á komandi vetri. Skólinn starfar í þremur deildum í vetur: a) deild fyrir matreiðslumenn, b) deild fyrir framreiðslumenn og c) deild fyrir þá matsveina er vinnu stunda á flutningaskipum og fiskveiðiskipum. GLÖS AÐ GJÖF Að lokinni setningarræðu skóla stjóra hélt Páll Arnljótsson yfir- framreiðslumaður í Naustinu ræðu, og afhenti skólanum að gjöf 24 glasasett, sem nota skal við kennslu í skólanum, og af- henti Páll Arnljótsson gjöfina fyr ir hönd þeirra framreiðslumanna Handíða- og mynd- listaskólnm UMSÆKJENDUR um nám í rnyndlistar- og teiknikennara- deild Handíða- og myndlista- skólans, sem enr. eigi hafa geng- ið frá innritun sinni, eiga að koma í skólann, Skipholti 1, í dag kl. 2,15 síðd. Þeir, sem sótt hafa um upp- töku í kvöldflokka skólans í teiknun og listmálun, og ekki hafa ákveðið, í hvorum flokkn- um þeir verða, eru beðnir um að hafa samband við skrifstofu skólans (sími 82821) í dag eða á morgun kl. 5—7 síðd. Þá eru stúlkur þær, sem lokið hafa gagnfræðaprófi verknáms- ins og óskað hafa inngöngu í listiðnaðardeild kvenna, svo og aðrar stúlkur, sem hyggja á nám í þeirri deild, beðnar um að koma i skrifstofu skólans hið allra fyrsta, enda mun kennsla I nokkrum aðalgreinum deildar- innar hefjast mjög bráðlega. Hraðkeppnismót í handknattleik: Baióttnn líklega á milli FH, KB og ÍR í karlaílokki HRAÐKEPPNI H.K.R.R. hefst á komizt að en viljað. í fyrra voru! föstudaginn kl. 8 að Hálogalandi. *m 800 manns í félaginu. Gamlir Þátttaka er mjög mikil eða 9 •g nýir áskrifendur geta vitjað karlaflokkar og 6 kvennaflokkar. skírteina sinna í Tjarnarbíó milli Á föstudaginn keppa allir flokk kl. 5 og 7 í dag (miðvikudag), arnir og leika fyrst í kvenna- fimmtudag og föstudag. Verð hef- ur verið óbreytt undanfarin 3 ár eða kr. 75,00 fyrir manninn og gildir árskortið sem aðgöngumiði að 15 sýningum. Verðið verður óbreytt nú, svo og sýningarstað- flokki Valur—Þróttur, síðan Fram—Ármann og SBR—KR. í karlaflokki verða leikimir: 1. Þróttur—FH, 2. Valur—lR, 3. Ármann—Afturelding, 4. Fram —Víkingur, en KR situr hjá. Á laugardag kl. 6.50 fer fram milli-riðill í karlaflokki og verð- ur dregið í hann á föstudags- kvöld, en keppninni lýkur á sunnudagskvöld; hefst keppnin þá kl. 8 og verða leiknir 4 leikir Víkingur vann síðustu tvö árin þessa keppni, en líklegt er að baráttan verði nú milli F. H. annars vegar og KR eða ÍR hins vegar. er sveinsprófi luku 19. sept., 1946 að Hótel Garði, en þá var annað sveinspróf hér á landi í þessum greinum. Er gjöf þessi gefin í tilefni hinna merku tímamóta, en þeir halda um þessar mundir há- tíðlegt 10 ára sveinsafmæli sitt. Skólastjórinn þakkaði þá ræktar- semi er fram kæmi með gjöf þessari. 10 ára iðnsveinar í fyrra gáfu í sama tilefni skólanum hnífa- sett þegar skólinn var vígður 1. nóv. 1955. Fulltrúakjör á þing A.S.Í. IIM s.l. helgi fór fram fulltrúakjör á Alþýðusambandsþing í allmörg um verkalýðsfélögum. Félag blikksmiða kaus fulltrúa sinn á fundi á sunnudag. Kjörinn var Helgi Hannesson og til vara Kjart an Guðmundsson. • Hið íslenzka prentarafélag kaus fulltrúa sína að viðhafðri alls- herjar atkvæðagreiðslu. Úrslitin urðu þau, að listi stjórnar og trúnaðarráðs fékk 173 atk., en listi kommúnista 64 atk. Full- trúar prentara eru: Magnús Ást- marsson, Kjartan Ólafsson og Sig urður Eyjólfsson. Verkakvennafélagið Framsókn kaus á fundi s.l. sunudag. Kjörn- ar voru eftirtaldar konur, eftir uppástungu stjórnar félagsins: Jó hanna Egilsdóttir, Jóna Guðjóns- dóttir, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Guðrún Þorgeirsdóttir, Þórunn Valdemarsdóttir, Guðbjörg Brynj ólfsdóttir, Pálína Þorfinnsdóttir, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Lín- björg Árnadóttir, Anna Guð- mundsdóttir, Jenny Jónsdóttir, Sólborg Einarsdóttir, Sólveig Jó- hannesdóttir. Sigríður nokkur Hannesdóttir flutti hálftíma ræðu og talaði sérstaklega um þá miklu hæfi leika, sem hún hefði sem verka- lýðsleiðtogi og minntist Hanni- bals sérstaklega í ræðu sinni, sem síns bezta bandamanns, en jós aftur á móti skömmum og ill- yrðum yfir verkakonur. En ár- angur ræðunnar varð aðeins sá að Sigríður þessi fékk ekki eitt einasta atkvæði á fundinum, gáf- ust kommar alveg upp að ræðp hennar lokinni. — Ufanríkisráðherra- fundurinn Framh. af bls 1 sæti Belgíu í (jryggisráðinu og Finnlanð sæti Noregs í Fjárhags- og félagsmálaráð- inu. STUÐLA AB INNTÖKU N-AFRÍKU Fundurinn lýsti ánægju sinni yfir því, að í fyrra bættust 16 ný ríki í samtök Sameinuðu þjóð anna. Með þessu er stigið veiga- mikið spor í þá átt að gera Sam- einuðu þjóðirnar að alheimssam- tökum, en þeirri stefnu hafa Norð urlöndin jafnan fylgt. Látin var í ljós sú von, að á komandi Alls- herjarþingi yrði sömu stefnu fylgt, og var samkomulag um að greiða atkvæði með upptöku Marokkós, Súdans og Túnis, enda hefur öryggisráðið þegar mælt með þessum ríkjum. FJÖLGAÐ í ÖRYGGISRÁÐIÐ Rætt var um að fjölgað yrði sætum í stofnunum Sameinuuðu þjóðanna, enda leiðir slíkt af auk inni tölu félagsríkja, og voru menn ásáttir um að stuðla að því, að fjölgað yrði í Öryggisráð- inu um tvö sæti úr hópi þeirra ríkja, sem ekki hafa þar fasta fulltrúa, svo og 1 Fjárhags- og félagsmálaráðinu um þrjú sæti. SAMSTARF NORÐUR- LANDANNA í umræðum um störf innan sérstofnana Sameinuðu þjóðanna var lögð áherzla á það, hversu mikils virði það væri, að Norð- urlöndin hefðu með sér náið sam- starf, einkum við undirbúning funda í stofnunum þessum. ! ! ! Þá voru ennfremur rædd mál, sem varða fund Norðurlandaráðs í Helsingfors í febrúar 1957. ! ! ! Að boði finnsku ríkisstjórnar- innar verður næsti fundur utan- ríkisráðherra Norðurlanda hald- inn í Helsingfors í apríl 1957. Seldi vel TOGARINN Júlí frá Hafnarfirði seldi í Bremerhaven í gær 180 lestir fyrir 145,400 mörk, en það er afbragðssala og sú bezta, sem íslenzkur togari hefir náð á þessu hausti. - „Yilringarnir" Framh. af bls 1 að efnahagsþróunin vestan járntjalds væri miklum mun hægari en þróunin fyrir aust- an, og væri það áhyggjuefni. Hins vegar virtust hin frjálsu lönd Evrópu nú eiga fyrir höndum efnahagslegt blóma- skeið, og væri þróunin þar þegar orðin örari en hún er í Bandaríkjunum. Islendingar laka markað af Dönum BREZKA fiskveiðitímaritið Fish- ing News skýrir frá því að fisk- sölur Dana til Tékkóslóvakíu hafi stórlega minnkað. Árið 1954 nam fisksala Dana þangað 6 milljón d. kr. Árið 1955 var hún helm- ingi hærri, eða 12,4 millj. d. kr. En á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefur danskur fiskur selzt til Tékkóslóvakíu fyrir aðeins 1 milljón d. kr. Á síðustu þremur mánuðum, júlí—september, hef- ur enginn danskur fiskur selzt þangað. í viðskiptasamningum Dana og Tékka, sem undirritaðir voru 1. júní s.l., var ákveðið að Tékkar keyptu fisk af Dönum fyrir 8,6 millj. d. kr. Það er álit danskra fiskkaup- manna, að íslendingar séu að taka markaðinn fra þeim í Tékkó slóvakíu og sé það eina orsök hinnar hrapandi fisksölu Dana til Tékkóslóvakíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.