Morgunblaðið - 14.11.1956, Síða 14
14
MORCVTSBLAÐIÐ
Miðvikudagur 14. nðv. ’56
SKÓLPPIPUR
og pépuhlufar
~-JJ. JJeneJiLtiion hp.
Hafnarhvoll — sími 1228
Vélrifunarsfúlka
óskast
Umsóknir, þar sem tilgreint sé nám og
fyrri störf, sendist fyrir 18. þ.m.
Tryggingastofnun Ríkisins
Laugaveg 114.
* Afgreiðslumaður
Viljum ráða ungan mann til afgreiðslustarfa í bireiða-
verzlun vorri. Æskilegt að viðkomandi hafi nokkra reynslu
í afgreiðslu á varahlutum. Umsækjendur komi til viðtals í
skrifstofu vora kl. 5—6 e.h. fimmtud. 15. þ.m. — Fyrirspurn-
um ekki svarað í síma.
Sveinn Egilsson hf.
Laugavegi 105.
Aðeins fyrir hádegi
Ungur maður vanur ýmiskonar verzlunarstörum óskar
eftir vinnu fyrir hádegi á daginn. Margskonar vinna kemur
til greina. — Tilboðum sé skilað á afgreiðslu blaðsins fyrir
föstudagskvöld 16. þ.m. merkt: „Áhugasamur —3314“.
Hraðsaðukatlnr
(Swan Brand)
í mörgum stærðum fyrirliggjandí
ðlafiir Gíslason & Co. hf.
Sími 81370
Fostofuherbergi
með innbyggðum skápum og aðgangi að baði
óskast til leigu, helzt í austurbænum. Uppl.
í síma 7985.
Verkfæri nýkomin
Topplyklasett, fleiri stærðir. Stjörnulyklar í settum.
Enn fremur lausir. Fastir lyklar í settum og lausir.
Einnig topplyklasett. sérstaklega fyrir „Volkswagen“.
Rörsjtera fyrir stálrör og koparrör. Röskerahjól.
Wise. griptangir. Heflar.
Snitttæki. Borar, færanlegir. Skrúfjárn.
Sagir eru að koma. Múrskeiðar o. s. frv.
Verzl. B. H. Bjarnason
Baldvin Sigmundsson
skipst jéri—kveðjuorð
„Og það var ekki að þínu skapi
að þylja langar harmatölur.
Stýrt mun, þó að stjarna hrapi.
Stefnt í átt, þó titri völur“.
FARMAÐUR, sem í hálfa öld hef-
ur lifað flesta daga á hafi úti,
er í dag kvaddur hinztu kveðju,
er hann leggur út á hafið mikla.
Þeir sem eftir standa og bíða
skipsrúms í sömu för, minnast
hans.
Baldvin var fæddur 20. ágúst
1895 að Ártúni í Hofshreppi í
Skagafirði og ólst þar upp til 14
ára aldurs, er hann fluttist með
foreldrum sínum til Akureyrar.
Föðurættin er skafirzk, en móður
ætt þingeysk. Á æskuárum Bald-
vins var það fyrsta boðorð
unglinga að vinna — og vinna
fyrir sér. Þeir, sem hugðu á
skólagöngu urðu flestir að vinna
til hennar sjálfir. Svo var um
Baldvin. Hann fór til sjós jafn
skjótt og þroski leyfði og var
lengstum með aflasælum skip-
stjóra, Eiði Benediktssyni, á 30
smálesta skútu, er „Róbert“ hét.
Eiður gekk Baldvin í föðurstað
á sjónum.
Rúmlega tvítugur gat Baldvin
loks farið í sjómannaskólann, og
þar lauk hann prófi vorið 1918.
Upp frá því starfaði hann í full
35 ár á togurum, stundum skip-
stjóri, stundum stýrimaður Fyrst
var hann stýrimaður á „April“
hjá Þorsteini í Þórshamri, síðar
á „Kára“, þá skipstjóri á „Þor-
geiri skorargeir". í fyrri styrjöld-
inni var hann um hríð í förum
milli landa á gamla „Goðafossi",
og síðari ófriðarárin var hann
lengst af slcipstjóri á „Baldri“.
Aldrei hlekkist honum á, hvorki
með menn né skip. Síðustu árin,
er heilsu tók að hnigna, gerðist
hann hleðslustjóri hjá Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna. í maí sl.
veiktist hann snögglega um borð
Brúarfossi og var fluttur hel-
sjúkur á Landspítala. En engin
læknislist megnaði að grafa fyrir
rætur sjúkdómsins. Það er til
marks um karlmennsku Bald-
vins, að hann tók upp störf sín
aftur í ágústmánuði og vann,
meðan nokkrir kraítar voru eft-
ir. Aldrei heyrðist hann kvarta
eða mæla æðruorð.
Hinn 4. þ. m. andaðist hann á
Bæjarsjúkrahúsinu.
Baldvin var manna vinsælastur
af samtsarfsmönnum sínum.Hann
hafði lag á því að vera í senn
yfirmaður og félagi. Skipstjórn-
arstörf fóru honum því vel úr
hendi og lipurlega, enda varð
honunf jafnan vel til röskra há-
seta. — Þeir húsbændur voru
hjúasælir kallaðir hér áður, og
þótti þeim búnast veL
Baldvin á fjögur systkini á lífi:
Bræðurnir, Pálmi og Hjálmar,
hafa stundað sjó eins og hann.
Systurnar, Svanhildur og Sigríð-
ur eru húsfrúr, á Hjalteyri og í
Kaupmannahöfn.
Sonur Baldvins, Eiður, er
hann lét heita eftir skipstjóra-
vini sínum, á heima á Akureyri
og starfar hjá Olíuverzlun ís-
lands.
Hinn 30. júní 1927 giftist Bald-
vin eftirlifandi konu sinni, Guð-
rúnu Jóramsdóttur frá Bergvík í
Leiru. Hafa þau jafnan átt heim-
ili í Reykjavík, síðustu 8 árin í
húsi sínu í Stórholti 21. Þau eign-
uðust tvær myndarlegar dætur,
Sigurrósu og Ernu, báðar upp
komnar og giftar .
Hjónaband þeirra Baldvins og
Guðrúnar var jafnan svo gott sem
bezt verður á kosið. Hún var
æðrulaus og híbýlaprúð, hann
léttur í lund og vinnusamur. —
„Ég hefði ekki getað kosið mér
betri lífsförunaut“, hefur Guð-
rún stundum sagt um bónda sinn
og er þar mikið sagt í fáum orð-
um.
Baldvin var maður Ijóðelskur
og lét líka oft fjúka í kviðlingum,
þótt lítt héldi hann þeim til haga.
Einkum hafði hann eftirlæti á
ljóðum Davíðs Stefánssonar. ■— í
kvæðinu um Hallfreð skáld ér
slegið á marga strengi karl-
mennsku, viðkvæmni og lífs-
gleði. Þeir strengir áttu hljóm-
grunn í brjósti Baldvins, og því
vitnaði hann oft í það.
„Það syrtir að, er sumir
kveðja". — Það hefir vissulega
syrt að á heimilinu í Stórholti
21. Þar er mikið autt rúm eftir
hinn milda og ástsæla eigin-
mann, föður og afa. Ég mæli
fyrir margra hönd — bæði nær
og fjær, er ég flyt öllum ást-
vinum Baldvins Sigmundssonar
innilegar samúðarkveðjur.
Jón Eyþórsson.
Aðalfoador Borgfirðmgaíélagsins
sem fyrri kvikmyndir hafa verið
undirbúnar til sýningar. Örnefna
söfnun í sýslunum báðum, Borg-
arfjarðar og Mýra-, er nú lokið
og örnefnaskráin að verða full-
búin.
Fjárhagur félagsins er góður og
skýrði gjaldkeri félagsins, Þórar-
inn Magnússon, reikninga félags-
ins og annarra sjóða, er félagið
hefir stofnað, byggðasafnssjóðs,
húsbyggingasjóðs, Snorrasjóðs,
sem tileinkaður er Reykholts-
skóla og íþróttasjóðs.
BORGFIRÐINGAFELAGIÐ í
Reykjavík hélt aðalfund sinn 24.
okt. s.l.
Formaður félagsins, Eyjólfur
Jóhannsson skýrði frá störfum
félagsins á árinu og þeim verk-
efnum, er framundan eru. Félaga
tala er nú hátt á 7. hundrað. Borg
firðingakórinn hefir starfað und-
anfarið undir stjórn dr. Páls ís-
ólfssonar, formaður hans er Þor-
steinn Sveinsson. Spilakvöld og
kynningarfundir hafa verið haldn
ir einu sinni í mánuði að vetrin-
um auk árshátíðar. Snorrahátíð
var haldin að Reykholti um verzl
unarmannahelgina eins og verið
hefur. Kvikmyndatöku í hérað-
inu heíir verið haldið áfram og
m. a. verið kvikmyndað frá veið-
um á Arnarvatnsheiði, auk þess
Afgreiðslumaður
Vanan afgreiðslumann vantar í bifreiðavarahlutaverzl-
un. — Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur og fyrri
störf sendist blaðinu merkt: „Reglusamur — 3304“.
Húsmæðrafélafj Reykjavíktir
heldur fund í Borgartúni 7, fimmtudaginn 15. nóv. kl. 8
e. h. — Dagskrá: Heímsending mjólkur, fréttir frá K. I.
þinginu (Þ. S.), og réttir frá norrænu húsmæðraþingi.
Ný og skemmtíleg skemmtiatriði. Kaffi.
Allar húsmæður velkomnar.
Stjómin.
Einbýlisbús
Á bezta stað í bænum til sölu. Húseignin Linnetsstíg 6,
Hafnarfirði og meðfylgjandi lóðarréttindi. Tilboð óskast
í eignina. Sendist afgr. Morgunbl. í Reykjavík, fyrir laug-
ardaginn 17. nóvember ’56, merkt: Húseign —3311.
Uppl. í síma 7927.
Ákveðið hefir verið að gefa
klukkur í Hallgrímskirkju í Saur
bæ og gefa hliðgrind í lystigarð
Borgnesinga í Skallagrímsdal.
Auk þess mun íélagið greiða úr
Snorrasjóði nokkra fjárhæð til
byggingar íþróttasvæðis við Reyk
holtsskóla og úr íþróttasjóði til
íþróttavallar Borgfirðinga, þegar
byrjað verður á þeim fram-
kvæmduin.
Formaður félagsins, Eyjólfur
Jóhannsson, sem verið hefir for-
maður frá stofnun þess fyrir
11 árum, baðst eindregið undan
endurkosningu og var Guðmund-
ur Illugason, lögregluþjónn, kos-
inn formaður félagsins næsta
kjörtímabil. Fráfarandi formanni
Eyjólfi Jóhannssyni, var þakkað
ynnilega fyrir alla stjórn sína og
starf á liðnum árum og var á
fundinum kjörinn fyrsti heiðurs-
félagi félagsins.
Aðrir í stjórn félagsins voru
kosnir Guðni Þórðarson, Ragn-
hildur Magnúsdóttir, Sigurður
Halldórsson, Sína Ásbjarnar-
dóttir, Þórarinn Magnússon og
Þorgeir Sveinbjarnarson, auk 7
manna varastjórnar. Stjórnin
hefir síðan skipt með sér verk-
um, þannig að Sína Ásbjarnar-
dóttir er varaformaður, Þorgeir
Sveinbjarnarson ritari og Þórar-
inn Magnússon gjaldkei.
Félagsstjórn hefir ákveðið að
efna til happdrættis til þess að
mæta þeim útgjöldum, sem fram
undan eru og heitir það á alla
félaga sína og velunnara til að-
stoðar.
Það er einn höfuðtilgangur fé-
lagsins að leggja lið, þó í litlu
sé, framfarar- og menningarmál-
um í héraðinu og nú kalla verk-
efnin að meira en nokkru sinni
'•' áður.