Morgunblaðið - 14.11.1956, Page 17
Miðvikudagur 14. nðv. ’56
MORCrNBLAÐIP
17
Eifrun fyrir refi í Culi-
bringu- og Kjósarsýslu
BLAÐINU hefir borizt eftir-
farandi athugasemd við
fréttatilkynningu frá Fjáreig
endafélagi Reykjavíkur, frá
Birni Sveinbjörnssyni, sett-
um sýslumanni í Gullbringu-
og Kjósarsýslu:
HINN 3. þ.m. birtist í Morgun-
blaðinu fréttatilkynning frá Fjár-
eigendafélagi Reykjavíkur. Segir
þar m. a., að fyrir atbeina félags-
ins sé hafin stórsókn gegn refum
á öllu svæðinu frá Hvalfjarðar-
botni vestur á Reykjanestá og
austur að Sogi og Ölfusá. Hafi
þetta verið ákveðið fyrir nokkru
á fundi, sem boðað var til af fé-
laginu og er sagt, að allir hrepps-
nefndaroddvitar á fyrrnefndu
svæði hafi komið á fund þennan.
í tilefni af frétt þessari átti ég
8. þ.m. fund með öllum hrepps-
nefndaroddvitum Kjósarsýslu,
þeim Magnúsi Blöndal, Jónasi
Magnússyni, Magnúsi Sveinssyni
og Sigurði Flygenring. Oddvitinn
i Þingvallasveit, Einar Svein-
björnsson, var einnig á fundinum.
Oddvitarnir í Kjósarsýslu létu
í ljós mikla undrun yfir fyrr-
greindri fréttatilkynningu, sem
er í ýmsum atriðum röng og má
skilja þannig, að ekkert hafi ver-
ið gert á undanförnum árum til
eyðingar refum á fyrrgreindu
svæði. Óskuðu þeir eindregið eft-
ir, að fram kæmi hið rétta í þessu
máli.
í sambandi við þetta þykir því
rétt að upplýsa eftirfarandi:
Samkvæmt lögum frá 1949 og
1955 um eyðingu refa og minka
er sýslumönnum falin umsjón
með framkvæmd laganna undir
yfirstjórn landbúnaðarráðherra
og sýslunefndum er falið að sjá
um, að hreppsnefndir annist eyð-
irigu refa og villiminka. Stjórn
Fjáreigendafélags Reykjavíkur
hafði engin samráð við sýslu-
mann eða sýslunefndir Gull-
bringu- og Kjósarsýslu um funda
höld sin og ráðstafanir í sam-
bandi við eitrun fyrir refi, sem
frá er greint í fréttatilkynning-
unni.
Stjórn fjáreigendafélagsins
mun hins vegar hafa boðið öllum
75 ára i dag:
Guðjón Sæmundsson í Vogum
í DAG á 75 ára afmæli Guðjón
Sæmundsson bóndi í Vogum við
Ísaíjarðardjúp. Hann er fæddur
að Galtahrygg í Reykjarfjarðar-
hreppi en fluttist ungur með for-
eldrum sínum að Hö-rgshlíð í
sama hreppi.
Guðjón reyndist snemma hinn
vaskasti maður. Kornungur varð
hann formaður á áraskipum. —
Búskap sinn hóf hann í Hörgs-
hlíð og síðan í Heydal. En lengst-
um hefur hann þúið að Vogum
í ísafirði.
Guðjón Sæmundsson er traust-
ur maður, skapfastur og hrein-
skiptinn. Hann er þess vegna
vel látinn af öllum er kynnast
honum. Hann hefur unnið mikið
starf um dagana sem sjómaður
og bóndi. Guðjón er tvígiftur.
Fyrri kona hans var Ingibjörg
Runólfsdóttir. Áttu þau þrjú
börn, sem öll létust ung.
Síðari kona hans er Salvör
Friðriksdóttir. Eiga þau þrjú
börn. Eru tvö þeirra á lifi, Guð-
björg, sem gift er Gumundi
Lúðvíkssyni skrifstofustjóra á
ísafirði og Friðrik, sem nú býr
með foreldrum sínum í Vogum.
Guðjón og Salvör eru hið
mesta atorku- og dugnaðarfólk.
Vinir þeirra og sveitungar senda
þeim hugheilar kveðjur og árn-
aðaróskir á 75 ára afmælinu.
Vinur.
Bjórdrykkja minnkar
BJÓRDRYKKJAN fer minnkandi
jafnvel í Þýzkalandi, heimalandi
bjórsins, þar sem bezt þekktu
brugghúsin hafa verið starfrækt í
meira en fimm hundruð ár.
Gamla hrifningin af lager-öli virð
ist vera á undanhaldi. Þýzk brugg
hús kenna ameríska setuliðinu
fyrst og fremst um minnkunina,
eftir því sem norður amerískt
þegar fleiri og fleiri vinna sér
meira inn en áður voru dæmi til
í sögunni, er verkamaðurinn ekki
eins hneigður til að sitja í iðju-
leysi yfir bjórglasi. Hann getur
nú eitt tómstundum sínum í svo
margt annað, svo sem bílferðir,
íþróttir, og alls konar heimasmíð-
ar til þess að fegra og bæta
heimili sitt.
(Áfengisv.n. Rvíkur).
hreppsnefndaroddvitum í báðum
sýslunum á fund þar sem ræða
skyldi þessi mál. Á fundinn komu
fulltrúar tveggja eða þriggja odd-
vita úr Gullbringusýslu, en eng-
inn úr Kjósarsýslu. Töldu odd-
vitar Kjósarsýslu sig ekki hafa
umboð til að mæta á þessum
fundi og taka einhverjar ákvarð-
anir, þar sem yfirstjórn og for-
usta þessara mála væri í höndum
sýslumanns og sýslunefndar,
enda væri þeim ekki annað kunn
ugt en gert hefði verið eins mikið
í þessum málum á undanförnum
árum og kostur hefði verið á.
Á undanförnum árum hefur
fyrir forgöngu Guðmundar í.
Guðmundsson, sýslumanns, nú-
verandi utanríkisráðherra, verið
lagt allt kapp á eyðingu refa í
Gullbringu- og Kjósarsýslu. Hef-
ur ár hvert verið unnið markvisst
að þessu bæði með eitrun og
grenjaleit. Á vori hverju hafa
margir menn unnið vikum saman
að því að leita grenja og vinna
þau. Kostnaður af þessu hefur
að vonum orðið mjög mikill og
má til dæmis nefna, að árið, sem
leið, nam hann yfir 35000 krón-
um í Kjósar- Kjalarness- og Mos-
fellshreppum. Kunnugir telja og,
að verulegur árangur hafi náðst
með þessum aðgerðum.
Þess skal loks getið, að eitrun
fyrilr refi að þessu sinni, er
hvergi hafiri í Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Er af mörgum talið
heppilegt að bíða með þær að-
gerðir þar til komið er fram yfir
áramót og harðnar að, en ákvörð-
un um það hefur ekki verið tekin
enn. Þarf og margs að gæta til
að afstýra hættu áður en alls-
herjar eitrun er fyrirskipuð.
Jeppi til sölu
LandbnnaSar-jeppi ’47, í
góðu lagi, með útvarpi og
miðstöð. Upplýsingar í
síma 82431 eftir kl. 5.
Geymsla óskast
Foistof uheibergi á fyrstu
hæð 10—15 ferm. eða þurrt
herbergi í kjallara, óskast
fyrir geym8lu á húsgögnum.
Tilboð sendist Mbl. merkt:
„K. M. — 3325“.
VINNA
Miðaldra maður, sem hefur
nokkur peningaráð, er van-
ur bílstjóri og hefur unnið
við verzlun, óskar eftir ein-
hverju léttu starfi, t.d. við
iðnað. Vildi gjarnan gerast
meðeigandi í góðu fyrirtæki.
Tilb. merkt: „Reglusamur
— 3324“, sendist Mbl.
I
Jólaskreyfingar
fyrir verzlanir
Gróðrastöðin við Miklatorg, sími 82775.
AIR-WICK - AIR-WICK
Lykteyðandi og lofthreinsandi undraefni.
Njótið ferska loftsins innan húss allt árið.
Aðalumboð:
ÓLAFUR GÍSLASON & CO. H. F.
Sími 81370
blað fregnar frá Bonn. Þar er
haldið fram, að amerísku her-
mennirnir auki vinsældir ó-
áfengra drykkja og mjólkur í
Þýzkalandi. Þetta var lagt fram,
sem aðalskýring þess, að baj-
ernsku bjórarnir eins og Lowen-
braeu, Hofbreau og Wagenbreau
eru ekki eins eftirsóttir.
Á Stóra-Bretlandi er þetta svip-
að, þó skýringin sé ekki hin sama.
Kráreigendum á brezku eyjunum
finnst að sjónvarp og aðrir keppi-
nautar um sparifé verkamanna
hafi minnkað neyzlu bjórs og öls,
Bjórneyzlan í Bandaríkjunum
var samkvæmt Brewers Journal
3.000.000 tunnura minni árið 1954
en árið á undan. Stórblaðið Time
gefur eftirfarandi skýringu á
minnkandi neyzla amerísks bjórs.
„Einu sinni var drykkjustofan
„klúbbur*1 verkamannsins, þar
sem hann neytti mikils magns aí
drykk fátæka mannsins, en núna
Við bjóðum ávallt það bezta!
Éum
Þýzkar og danskar
ljósakrónur, ljósaskálar, borð
lampar og vegglampar.
Amerískir og hollenskir
borðlampar.
Verð frá kr. 52.00.