Morgunblaðið - 04.01.1957, Side 1

Morgunblaðið - 04.01.1957, Side 1
44. árgangur 2. tbl. — Föstudagur 4. janúar 1957 Prentsmiðja Morgunblaðsins Skipulagsmálin i Sovét-Rússlandi Bretar telja sig enn hafa rétt til íhlutunar við Súez London 3. jan. Kinkaskeyti til Mbl. írá Reuter. TALSMAÐUR brezka utanríkisráðuneytisins hefur lýst því yfii að Bretar áskilji sér enn sem fyrr rétt til að hernema Súez- svæðið, samkvæmt brezk-egypzka samningnum frá s.l. ári. Fyrir nokkru flaug út um heiminn sú frétt að endurskipuleggja ætti allt efnahagskerfi Rússlands, Þá gerði þýzkur teiknari þessa mynd. Á henni segir Pervuchin hinn nýi skipulagsmeistari við rússneska almúgamanninn: — Sjáðu ívan, hvað við höfum fundið upp til að bæta lífskjör þín. Ekki líklegt að stórvelda- f undur yrði árangursríkur Tillögu Bulganins um takr.iarkað eítirlit úr lofti hafnað sem ófullnægjandi Washington, París, London, 3. jan, Frá Reuter. VESTURVELDIN, Bretar, Frakkar og Bandaríkin höfnuðu í dag tillögu Búlganíns forsætisráðherra Rússa um fimmveldaráð- stefnu til að ræða afvopnun. Telja þau, að eins og nú er ástatt sé eðlilegast að afvopnunarmálin séu rædd í afvopnunarnefnd Sam- einuðu þjóðanna. Ólíklegt sé að fundur æðstu manna stórveldanna nú muni leiða til árangurs. Eisenhower forseti og Eden og I Voru svörin mísmunandi að orða Mollet forsætisráðherrar sendu [ lagi, en beindust að því sama. svör sín í bréfum hver í sínu lagi. ★ ÁSTÆÐULAUS ÁRÁS Á FORSETA ÍSLANDS ÞJÓÐVILJINN ræðst í gær heiftarlega á forseta Islands fyrir áramótaræðu hans, talar með stóru letri um „furðulegt nýársávarp Ásgeirs Ásgeirssonar" og segir „her- námsáróður" hans vera „algerlega ósæmilegan“, enda hvíli sú skylda á forsetanum „að koma fram sem embættismaður og aðeins sem embættismaður hvað sem einkaskoðunum liður — en framkoma hans á nýársdag var alvarlegt brot á þeirri skyldu.“ Þessar ásakanir Þjóðviljans eru gersamlega tilefnislausar og kemur úr hörðustu átt, að stjórnarblað flytji þær fram. Ræða forsetans var í fyrsta lagi þörf, skynsamleg og hófsöm hugleiðing um vandamál þjóðarinnar. En í öðru lagi var hún flutt með vitund ríkisstjórnarinnar, og eru þess engin dæmi, að forseti segi nokkuð, sem stjórnin óskar eftir, að niður sé fellt. Það er alveg föst venja, að forsætisráðherra fái slíkar ræður til yfirlestrar áður en þær eru fluttar, og hefur Morg- unblaðið öruggar fregnir af, að þeirri venju var fylgt nú eins og endranær. Ef forsætisráðherra telur eitthvað hæpið í ræðu forseta, hefur haim samband um það við meðráðherra sina, og ber síðan fram ábendingar sinar við forseta. Bæði Tíminn og Alþýðublaðið birta ræðu forseta íslands athugasemdalaust í gær. Bendir það tll þess, að meirihluti ríkisstjórnarinnar telji orð hans hafa verið í tíma íöluð. Því fordæmingarverðara er það, að Þjóðviljinn skuli af þessu tilefni gera persónulega árás á Ásgeir Ásgeirsson, en þegja um hið sanna samhengi málsins. SAMKOMULAG ÓI.ÍKLEGT í orðsendingu Edens segir, að ólíklegt sé eins og nú er ástatt eftir Ungverjalandsmálin að við- ræður æðstu manna stórveldanna geti að sinni leitt til samdrægni og samkomulags. TAKMARKAD EFTIRLIT Svar Bandaríkjanna er fólgið í persónulegu bréfi Eiscnhowers til Búlganins. í því segir m. a.: —Þér lögðuð til í bréfi yðar 17. nóv. s.l. að æðstu menn stór- veldanna kæmu saman á fund til að ræða afvopnunarmálin. Ég Framh. á bls. 2. ÁKVÆÐI SAMNINGSINS Yfirlýsing þessi var gefin vegna frétta frá Kairó um að stjórn Nassers hefði lýst brezk-egypzka samninginn ó- gildan. En samningur þessi var gerður s.l. vor. Þar féllust Bretar á að flytja allt herlið brott frá Súez-skurðinum að áskildum rétti til að flytja þangað herlið aftur, ef eitt- hvert rikjanna í Arababanda- laginu eða Tyrkland yrðu fyr- hernaðarárás. ÞAÐ SEM SÍÐAR GERÐIST Nokkrum mánuðum eftir að samningurinn hafði verið undir- ritaður og Bretar höfðu flutt lið sitt brott þjóðnýttu Egyptar skurðinn og Súez-vandamálið hófst upp. Vegna árásar Breta á Egypta- land hafa Egyptar lýst því yfir- að þeir telji hernaðarástand ríkja milli landanna og einnig að brezk-franski samningurinn sé fallinn úr gildi. EIGA ENN HLUT AÐ MÁLI En talsmaður brezka utanríkis- ráðuneytisins sagði í dag að Eg- yptar hefðu enga heimild til að segja samningnum upp einhliða. Bretar áskildu sér enn sem fyrr fullan rétt til að gæta skurðarins með herliði, ef honum væri hætta búin. Ofsótt fyrir mínútu þögn Beriín, 3. jan. Til Mbl. frá Reuter. EÐAL fólks sem sótt vegna þess, að hún hafði einnar mínútu þögn til að lýsa samúð sinni með frelsisbaráttu Ungverja. Þar með eru 16 af 20 nemendum í MEE i dag flyði til V estur-Berlínar voru tveir mennta- skólanemar úr bekkjardeild þeirri í Austur-Berlín, sem hefur verið of- bekk þessum flúnir til Vestur-Berlínar. — Ráðstafanir hafa verið gerðar til að unglingar þessir geti haldið áfram námi í menntaskóla í Frankfurt am Main. Ástandið í nál. Austur- löndum mjög hættulegt Eiseiihower ílytur þingi tillögur á laugardag Washington, 3. jan. Einkaskeyti frá NTB. EISENHOWER forseti mun væntanlega koma fram fyr- Indónesasljórn að sundrasf Djakarta, 3. jan. Einkaskeyti til Mbl. frá NTB. STJÓRNARKREPPAN í Indónesíu harðnaði í dag. Verður því nú ekki lengiri' leynt, að uppreisnarmenn hafa alla Súmatra á valdi sínu, en hún er stærst og auðugust eyja í Indónesíu. • í dag virtist ekkert benda f* til að málarniðlun tækist milli stjórnmálaforingjanna í Dja- karta, heldur hótaði Múhameðs- trúarflokkurinn Majumi að láta 5 ráðherra sína segja sig úr stjórn, en einmitt sá flokkur hefur öfl- ugast fylgi á Súmatra. Krefjast Majumi-menn að Sastromidjojo forsætisráðherra beiðist lausnar fyrir stjórn sína. • Ef Majumi-flokkurinn fer úr stjórn er þess að vænta að bæði kaþólski flokkurinn og mót- mælendatrúarflokkurinn fylgi fordæmi hans, en hvor þeirra hefur tvo ráðherra í stjórninni. • Sastromidjojo sem er for- ingi Þjóðernissinna-flokksins virðist hins vegar ófús á að segja af sér og getur verið að hann leiti stuðnings kommúnista, ef hinir flokkavnir hætta stuðningi við hann. Nenni endursendir Stalin-verÓlaunin. Hvað gerir íslenzka skáldið ? Þær fréttir berast frá Ítalíu, að' Pietro Nenni, foringi vinstri-sinnaðra sósíalista hafi nú um áramótin endur- sent Stalin-verðlaunaskjalið, sem hann hlawt fyrir nokkr- um árum. Gerir hann þetta til að mótmæla þjóðarmorð- inu á Ungverjum. Jafnframt ákvað hann að verja peninga- upphæð þeirri, sem haim hlaut í verðlaun og geymdi enn, til velgerðarstarfsemi. Finnst íslenzka verðlauna- skáldinu, sem eitt sinn fékk sams konar r.ustræn verðlaun, ekki kominn tími til að gera slíkt hið sama. ir báðar deildir Bandaríkja- þings á laugardag kl. 17,30 eftir íslenzkum tíma og birta þar tillögur sínar um hina nýju stefnu Banda- ríkjanna til að forða vax- andi áhrifum Rússa í nálæg- um Austurlöndum. 85. þing Bandaríkjanna var sett hátíðlega í dag. Fyrsta ályktunin, sem Fulltrúadeildin samþykkti’ var að bjóða Eisenhower að koma fram í deildinni og gera grein fyrir tillögum stjórnar sinnar í málum nálægra Asíulanda. Á- lyktun þessi mun á morgun ganga til Öldungadeildarinnar, þar sem hún hlýtur væntanlega samþykki. Síðan munu báðar deildir koma á sameiginlegan fund og hlýða á ræðu forsetans. Ekki hefur enn verið skýr.t frá smáatriðum í tillögum stjórnar- innar, en það er ljóst orðið, að í þeim óskar Eisenhower eftir um- boði, til að mega beita banda- rísku herliði í nálægum Austur- löndum, ef eitthvert smáríkjanna óskar eftir aðstoð vegna rússn- eskrar hernaðarárásar. Dulles utanríkisráðherra ræddi í dag við þingmenn úr báðum þingflokkum um hina nýju stefnu. Hann sagði m.a.: Hin nýja stefna er byggð á því grund- vallarsj ónarmiði, að ástandið í nálægum Austurlöndum sé orðið mjög hættulegt, og geti illa farið þar, ef Bandaríkin beita ekki á- hrifum sínum til að hindra aukin áhrif Rússa á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.