Morgunblaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 15
Fostudaeiír 4. fan. 1957
MORCTJN fiL 4ÐIÐ
15
— Hœstar'éttardómur
Framhald af bls. 9.
þeir hefðu mátt ugga mjög um
afturfestinguna, eftir að aðrar
festar hefðu bilað og við þær að-
stæður, þar sem ekkert mátti út
af bera.
Hinir dómkvöddu matsmenn
hafa látið í Ijós það álit, að átak
Hvalfells hafi ekki haft áhrif á
átak Linde á aftari legufæri sín.
En þótt við þetta væri miðað, þá
haggar það ekki framangreindri
niðurstöðu um, að þær aðgerðir
Hvalfells, sem áður er lýst, hafi
komið Linde að gagni.
Samkvæmt framansögðu þykir
mega fallast á þá niðurstöðu sjó-
ciómsins, að hjálp sú, sem vs.
Hvalfell veitti vs. Linde hafi ver-
ið björgunarstarf í merkingu
229. gr. siglingalaganna. Með til-
liti til atriða þeirra, sem áhrif
hafa á upphæð björgunarlaun-
anna og lýst er í héraðsdómi,
þykir hæfilegt að ákveða þau kr.
900.000.00 ásamt vöxtum, eins og
krafizt er. Eftir þessum úrslitum
ber aðaláfrýjendum að greiða
gagnáfrýjendum málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti, sem
ákveðst samtals kr. 55.000.00. —
Gagnáfrýjendur eiga sjóveðrétt í
vs. Linde til tryggingar dæmdum
fjárhæðum.
Sératkvæði í dómi þessum skil-
uðu þeir Gizur Bergsteinsson
hrd. og prófessor Magnús Torfa-
son.
Þar segir eftir að aðdraganda
hefur verið lýst og þætti Hval-
fells í málinu:
Þá er litið er til stöðu Lindes
þeirrar er lýst var, verður að
telja, að skipið hafi verið í hættu
statt. Er þá athugamál, hvort bv.
Hvalfell hafi bjargað mt. Linde
úr þessair hættu.
Kunnáttumenn þeir, sem álit
hafa látið uppi í máli þessu, eru
á eitt sáttir um það, að mt. Linde
gat eigi rekið í strand, meðan
festingar þess í stjórnborðsduflið
að aftan héldu og duflið var
kyrrt á sínum stað. Enn eru
kunnáttumennirnir á einu máli
um það, að tog bv. Hvalfells í
framenda mt. Lindes hafi ein-
ungis dregið úr þunga þeim, sem
hvíldi á akkerisfestunum að
framan, en eigi létt á átaki Lind-
es á afturfestingarnar stjórnborðs
megin. Þá segja þeir, að átakið á
afturfestingarnar hefði eigi auk-
izt, heldur minnkað, ef skipið
hefði rekið meira undan vindi að
framan en varð. Loks telja kunn-
áttumennirnir, að mt. Linde hefði
komizt út hjálparlaust, eftir að
veður lægði um morguninn 27.
nóvember. Að þessu athuguðu og
þar sem afturfestingar mt. Lind-
es héldu, unz veður lægði, verður
hjálp bv. Hvalfells til handa mt.
Linde eigi talin björgun í merk-
ingu 229. gr. siglingalaga nr. 56/
1914 heldur einungis aðstoð.
Þá er ákveða skal laun fyrir
aðstoð Hvalfells til handa mt.
Linde, ber að líta á það, að bv.
Hvalfell var mestan hluta hættu-
tímans reiðubúið að veita mt.
Linde alla þá hjálp, sem það
mátti, ef afturfestingar mt. Lind-
es skyldu slitna, og að geysileg
verðmæti voru í húfi. Að öllum
atvikum athuguðum þykja laun
fyrir aðstoðina ásamt kostnaði
hæfilega ákveðin kró 300.000.00.
Aðaláfrýjanda ber að dæma til
þess að greiða gagnáfrýjanda
eiganda Hvalfells, hf. Mjölni,
nefnda fjárhæð ásamt vöxtum,
eins og krafizt er, og svo máls-
kostnað bæði í héraði og fyrir
Hæstarétti, sem ákveðist kr.
35.000.00.
Samkvæmt 4. tl. 236. gr. laga
nr. 56/1914 á gagnáfrýjandi hf.
Mjölnir sjóveðrétt í mt. Linde
til tryggingar hinum dæmdu
fjárhæðum.
— Ingimar Finnbjörnsson
Frh. af bls. 10
Allt þetta má vera Ingimar til
heiðurs og hróss, en ótalinn er
þó sá þátturinn í lífsstarfi hans,
sem ég veit, að honum er kærast-
ur. Hann hefur eignast og alið
upp all-fjölmennan barnahóp.
Kona hans er fríðleiks- og mynd-
arkonan Sigríður Guðmundsdótt-
ir Jónssonar frá Fossum, sem
verið hefur honum samhent í
önn dagsins og umhyggju fyrir
börnunum, en þau eru þessi:
Inga, gift Halldóri Pálssyni Páls-
sonar, eins hinna kunnu Brekku-
bræðra, og var áðiu: heitbundin
Kristjáni sál. bróður manns síns,
og átti með honum eina dóttur
barna, er Ingimar og þau hafa
alið upp — Guðmundur, nú stýri-
maður á Tungufossi, verzlunar-
skólamaður, sem lokið hefur einu
hæsta farmannsprófi frá Stýri-
mannaskólanum, giftur Amþrúði
Guðmundsdóttur skrifstofustúlku
hjá Eimskip, — Hrefna, íþrótta-
KENNSLA
örfáir tímar lausir í ensku
og dönsku. Ódýrt, ef fleiri
eru saman.
Kristín ÓladótUr
Sími 4263.
Félagslíf
fþróttahús 1. B. K.
verður opnað til æfinga að nýju
föstudaginn 4. janúar.
Iþróttabandalag Keykjavíkur.
Jólutrésskemnitun
Glíniufélagsins Ármann
verður haldin í Sjálfstæðishús-
inu þriðjudaginn 8. janúar kl. 3,45
síðdegis. — Kvikmyndasýning. —
Margir jólasveinar. — Jólasveina-
happdrætti. Aðgöngumiðar verða
seldir í skrifstofu félagsins,
íþróttahúsinu, Lindargötu 7, sími
3356 á laugardag 5. janúar kl. 4—
7 og mánudaginn 7. janúar kl. 8—
10,00. — Stjórnin.
Bókurfiegn
Björn J. Blöndal:
VATNANIÐUR
Norðri gaf út. — 191 bls.
B Ó K þessi, sem út kom fyrir
jólin, er hollur skammdegislest-
ur. Hún er að mestu um lax og
silung, sól og sumar, um fallvötn,
sterngi og hylji, hún er innblás-
in af fegurð Borgarfjarðar. —
Þessa mikla héraðs, sem goldið
heíir þess eins, að hafa ekki eign-
azt þjóðskáld eins og Fljótshlíð
og Barmahlíð.
Bók þessi er reist á áratuga
reynslu í veiðiskap, reynslu, sem
mörgum er gjarnt að liggja á og
þegja um sem vendilegast. En
höfundur fer hér ailt aðra leið og
eys af sínum nægtabrunni, hverj-
um, sem hafa vill. Bókin er full
i af merkilegum athugunum um líf
vatnafiska og fjölbreyttar veiði-
aðferðir. Þó dregur hann jafnan
sínar ályktanir með gætni hins
reynda manns og skilur lesand-
anum eftir síðasta orðið. Kit
þetta er þó ekki merkilegt fyrir
efnið eitt, heldur engu síður at-
hyglisvert fyrir hina listrænu
frásögn. Stíllinn er mjúkur og
djarfur og minnir helzt á fallega
bergvatnsá í öllum hennar til-
breytileik. Auk þessa prýða bók-
ina margar fallegar myndir.
Mjög líklegt er, að bók þessi
verði gefin út öðru sinni, og því
skal á það bent, að fella mætti
þá niður þrjá smákafla. tvær er-
lendar veiðisögur og kaflann á
bls, 155—163. Þá yrði bókin í einu
og öllu heilsteypt.
Menn eiga að treina sér þessa
bók og lesa hana hægt. Maður
freistast næstum því til að halda,
að hún hafi sjálf gefið sér þetta
naín, „Vatnaniður“. Sofni maður
út frá henni að lestrinum loknum,
þá heldur hún áfram að syngja
og niða.
En þó er hampahægast að skilj
ast við þessa ágætu bók með
stolnu niðurlagi, sem sjálft gaf
tilefni sinna öriaga. Fyrir meira
en þrem áratugum ritaði sá á-
gæti maður Indriði Einarsson rit
dóm í þetta blað. Sá dómur mun
nú sennilega öllum gleymdur
nema blá-niðurlagið, sem með
fullum sannindum mætti heim-
færa upp á „Vatnanið“ Björns
J. Blöndals: „Þetta er bók sem
margir vilja stela og enginn skil-
ar aftur úr láni“.
kennari, eftirlitskona með bama-
leikvöllum Reykjavikur, gift
Inga Þór Stefánssyni, íþrótta-
kennara, verzlunarstjóra hjá
Kron — Björn Elías, ungur gagn-
fræðingur, nú sjómaður heima í
Hnífsdal á bát föður síns, og
Margrét yngst, 14 ára, nú í Gagn-
fræðaskóla Akureyrar. Jafnaldri
hennar er dótturdóttirin, sem áð-
ur er að vikið — Kristín — nú
við gagnfræðanám í Reykjavík.
Þarna er dýrasta eign Ingimars,
það sem honum er annast um,
og vill leggja mest í sölurnar
fyrir. Og þá afmælisóskina á ég
honum bezta, að börnin og barna-
bömin veiti hornun og þeim hjón-
um því meiri gleði, sem lengra
líður á ævina og vegferðin stytt-
ist að leiðarlokum.
Já, ég get mér þess til, að kátt
yrði nú í dag kring um Ingimar
Finnbjömsson. Sjálfur mun
hann — nú sextugur að aldri •
verða glaðasti og gunnreifasti
ærslabelgurinn, ef ég þekki rétt
til, og enginn mun syngja hjart-
anlegar kvæðið góða og sanna:
„Hin ljúfa sönglist leiðir
á lífið fagran blæ,
hún sorg og ólund eyðir
og elur himinfræ."
— Þetta hlýtur hann svo oft
að hafa fundið. Og þegar á líður
verður „tekið sporið“ og afmælis-
barnið mun ekki láta sér nægja
að dansa „polka og ræla og
valsa“ allra manna fimast, heldur
líka verða aðalmúsíkantinn, eins
og hann var svo lengi á danssam-
komum Hnífsdælinga. En andir
niðri svellur honum enn sem
fyrr alvöru- og dugnaðarmóður-
inn varðandi skyldur lífsins — og
þótt tekið verði að morgna, þeg-
ar gleðskap hættir, efa ég ekki,
að hann verði fyrsti maðurinn til
vinnu í fyrramálið.
Þannig maður er Ingimar
Finnbjömsson, fyrstur í leik og
starfi. Að slíkum verður sjónar-
sviptir, skarð fyrir skildi, þegar
þeir em allir. Ekki einasta með
tilliti til sjálfs hans, vina og
vandamanna, heldur líka Hnífs-
dals og íslenzks þjóðfélags, vona
ég um Ingimar, að langt verði
þangað til, og að afmælisbarns-
ins bíði enn margir bjartir dag-
ar lífs og starfs.
Lifðu heill, frændi!
Baldvin Þ. Kristjánsson.
— Uton úr heimi
Framh. af bls. 8
maður utsmríkismálanefndar
þingsins.
Mr að er talið líklegt, að
Herter verði næsti utanríkisráð-
herra, en hins vegar eru engar
líkur til, að Dulles dragi sig í hlé
fyrst um sinn, nema heilsa hans
knýi hann til þess. En Herter
hefur fengið það vandasama hlut-
verk, að vera erindreki utanrík-
isráðuneytisins á þinginu, við
fréttamenn og við almenmng, en
á þeim vígstöðvum hefur Dulles
ekki þótt sérlega sterkur. Takist
Herter að sannfæra samlanda sína
um mikilvægi þess, að Bandarílc-
in eru nú forusturíki hins frjálsa
heims, með öllum þeim kvöðum
og fórnum, sem því fylgja, hefur
hann gert öllu mannkyni ómet-
anlega greiða. Að öðrum kosti
kynnu þau að snúa aftur til ein-
angrunarstefnunnar, og það
mundi verða enn örlagaríkara nú
en það var fyrir 20—30 árum.
Við þökkum hjartanlega börnum okkar, tengdabörnum,
frændfólki og vinum öllum og félögum, sem heiðruðu
okkur með nærveru sinni, góðum gjöfum, blómum og
skeytum á gullbrúðkaupsdegi okkar 15. des. sl. -—
Guð gefi ykkur gleðilegt nýtt ár.
Ágústa Jónsdóttir, Þorbjörn Klemensson,
Lækjargötu 10, Hafnarfirði.
Hjartans þakkir til allra þeirra er minntust mín á áttræð-
isafmælinu 31. desember.
Louise Símonardóttir,
Njálsgötu 47.
Þakka af alhug góðar gjafir, ljóð, skeyti og heimsóknir
á sjötugsafmæli mínu 27. desember 1956.
Guð gefi ykkur öllum blessunarríkt nýár.
Guðjón Bjarnason
Krosseyrarveg 3, HafnarfirðL
Donsskóli
Sigríðor Ánaann
Kennsla hefst á ný, mánudag
7. janúar. Innritun nýrra
nemenda í síma 80509.
Búðin
DANSLEIKUR
í Búðinni í kvöld klukkan 9
★ Gunnar Ormslev óg hljómsveit
★ Bregðið ykkur í Búðina.
Aðgöngumiðasala frá klukkan 8
- BÚÐIN -
JOHANN SIGURJÓNSSON
bókari, lézt að heimili sínu Hjallaveg 42, 31. desember.
Utförin verður 8. janúar kl. 1,30 e.h. frá Fossvogskirkju.
Athöfninni verður útvarpað. Þeim, sem vildu minnast
hins látna er bent á Barnaspítalasjóð Hringsins.
Vegna aðstandenda.
Guðríður Ámadóttir.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför manns-
ins míns, föður okkar og bróður
GUÐMUNDAR JÓNMUNDSSONAR
Mary, Bryan, Halldór,
Guðrún Jónmundsdóttir Jensen, Halldór Jónmundsson.
Innilega þökkum við öllum fjær og nær fyrir auðsýnda
aðstoð og samúð við fráfall og jarðarför .
GUDLAUGAR MARGRÉTAR GESTSDÓTTUR
Eiginmaður, börn, tengdabörn og barnabörn.
Jarðarför móður minnar
KRISTÍNAR G. JÓNSDÓTTUR
Hraunteig 1, Hafnarfirði fer fram frá Fríkirkjunm laug-
ardaginn 5. janúar klukkan 1,30.
Ragnar H. Jóhannesson.