Morgunblaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.1957, Blaðsíða 6
6 MOPCUNBLAÐIÐ Föstudagur 4. jan. 1957 Sýrland milli Allah og Lenins Kuwatli vi 11 gripa t æ ki f æ r i ð FYRIR um það bil þremur vik- um skrifaði hinn gamli Arabíu- sérfræðingur Glubb-Pascha, sem einu sinni stjórnaði arabisku her- sveitinni í Jórdaníu grein í New York Times, þar sem hann lýsti skapgerð hinna arabisku þjóða. Hann skipti þeim í tvo flokka. Annar flokkurinn væri Bedúínar, sem halda til á hinum miklu arabisku eyðimörkum og hefðu í aldalangri baráttu við náttúruna lært að laga sig eftir aðstæðum og væru ekki uppnæmir fyrir hverjum stjórnmálalegum golu- þyt. Hinn hópurinn væru svo hin- ir svokölluðu Miðjarðarhafs- Arabar, sem ekki þekktu til hinn- ar hörðu lífsbaráttu Bedúínanna og væru þvergirðingslegri og of- stækisfyllri heldur en synir eyði- merkurinnar. Vel má vera að í þessum sam- anburði komi fram velþóknun þessa gamla Bedúína-höfðingja á riddaraliði sínu en þeir, sem til þekkja, telja þó að hér sé nokkur sannleikur fólginn og að ýmis- legt í hinum umbrotasömu stjórn- málum Sýrlands skýrist að nokkru, ef litið er á þennan sam- anburð. í þessu landi búa hlið við hlið Bedúinar og þeir Miðjarðar- hafs-Arabar, sem Glubb-Pascha talar um, og það eru hinir síðar- nefndu, sem sérstaklega láta að sér kveða í stjórnmálunum. En það eru ekki eingöngu þessir tveir hópar, sem þarna er um að ræða í landinu því að af þeim 3,9 millj. manna, sem teljast til Sýr- lendinga, eru í norðu-austur- hluta landsins Kúrdar, einnig all- mikið af Armeníumönnum og loks hinir svonefndu Drúsar, sem búa í hinu ófrjóa fjallalandi, sem kennt er við Djebl el Druz og sem taldir eru óróasamasti aðilinn í hinum sýrlenzku stjórnmálum. Sýrlendingar eru þannig sam- settir af ýmsum allólíkum kyn- þáttum, og kemur það glöggiega fram í þjóðlífi þeirra. ÞÁTTUR FRAKKA Þeir, sem bezt þekkja til Sýi- lands og hafa ferðazt þar um, telja að það sé úr lausu lofti gripið að kenna kommúnistiskum áróðri um þann andblástur, sem er þar í landi gegn Evrópumönn- um. Óviljinn til Evrópumanna á sér þar djúpar rætur og þarf ekki neinar grafgötur um það að fara, að það eru Frakkar, sem eiga þar mikla sök á. í þessu sam- bandi er rétt að líta á sögu Sýr- lendinga síðan um lok fyrri heims styrjaldarinnar. í styrjöldinni höfðu bandamenn lofað því, að Arabar í því landi mættu stofna sjálfstætt konungsríki en það lof- orð var svikið og árið 1918 var stofnað þar eins konar umboðs- ríki Frakka, sem varð þó Frökk- um nokkuð dýrkeypt, því þar í landi munu nú vera um 20 þús. franskar hermannagrafir. Frakk- ar byrjuðu á því árið 1920 að reka frá völdum hinn unga kon- ung Sýrlendinga, Feisaí, sem hafði verið lýstur konungur Sýr- lands. Það voru einnig Frakkar sem áttu upptökin að rikinu Libanon, sem þeir komu á fót vegna „hernaðarástæðna" árið 1920, en það ríki útilokar Sýrland frá beztu höfnunum við Miðjarð- arhaf. Einnig var Tyrkjum af stjórnmálaástæðum árið 1939 fengið svæðið Alexandrette, sem er í eðli sínu sýrlenzkt. Þessi stjórnarstefna, sem gekk út á það að deila og drottna og skipti Sýrlandi, fyrir árið 1939, í ekki minna heldur en 5 smáríki var það, sem gert hefur Sýr- lendingum gramast í geði og er meginástæða þess að Evrópumenn verða nú að horfast þar í augu við mikla andúð og hættu á kommúnistiskum áróðri. GAMLAR AL-ARABISKAR HUGMYNDIR Þegar Rússar taka nú undir kröfur og áhugamál Sýrlendinga í utanríkismálum þeirra, þá má segja að það sé i fyrsta sinn sem þeir fá afdráttarlausan stuðning frá stórveldi. Og þennan stuðn- ing vilja sýrlenzkir stjórnmála- menn nú reyna að nota sér. Stjórn arstefna Sýrlands markast fyrst og fremst af efnahagslegum ástæð um en land þeirra er hið fátæk- asta meðal Arabalanda, þar eru engar auðugar olíulindir, mest allt landið er eyðimörk eða steppa og aðalútflutningsverðmæti Sýr- lands er hveiti en af því er nóg á heimsmarkaðinum. Það eru því engin undur, þó Sýrlendingum hafi fallið mjög vel í geð það tal, sem uppi hefur verið um sam- arabiskt ríki. En sú hugmynd var þar lifandi löngu áður en Nasser kom til valda í Egyptalandi. Nú- verandi forseti Sýrlands, Kuw- atli, er hinn eiginlegi faðir hug- myndarinnar um arabiskt ríkja- samband, sem nái til Sýrlands, Jórdaníu, Libanons og Irak. Mið- punktur þessa sambands á Dama- skus að vera, sem talin er perla hinna arabisku borga, en það var frá þeirri borg, sem Omajadarnir stjórnuðu heimsríki sínu á 7.—8. öld en þegar það stóð í sem mest- um blóma, var það stærra en róm- verska heimsveldið og stóð því að engu leyti að baki að glæsileika. Það eru því bæði sögulegar erfð- ir og efnahagsleg nauðsyn, sem er undirstaðan undir draumum Sýrlendinga, um hið al-arabiska Feitu svörtu strikin sýna hvern- ig olíuleiðslurnar liggja um Sýr- land til Miðjarðarhafsstrandar. eða sam-arabiska ríki. En hug- myndirnar um þetta stóra ríki eiga þó við mikla mótspyrnu að etja og er þá fyrst að telja tilveru ísraels, sem Sýrlendingar hata meira en Egypta, því það er sann- færing þeirra, að það sé einmitt þetta ríki, sem sé helzta hindrun á vegi þess stóra Sýrlands, sem þá dreymir um. önnur hindrunin er veldi Jórdaníu og íraks en sú konungsætt, sem þar situr að völdum, stjórnaði áður Sýrlandi með harðri hendi. Sá mikli óvilji, sem ríkir í Sýrlandi gegn írak, á rætur sínar að verulegu leyti að rekja til gremju út af því að Bretar skyldu stofna konungs- ríkið frak, sem ræður yfir mikl- um auðæfum olíu rétt við sýr- lenzku landamærin. Þegar sýr- lenzkar hersveitir fyrir svo sem mánuði síðan fóru inn í Jórdaníu undir því yfirskini að þar væri um bróðurlega hjálp að ræða gagnvart væntanlegri innrás fsra- elsmanna, þá var um að ræða fyrsta skrefið til þess að Jórdanía og Sýrland sameinuðust í eitt stórt sýrlenzkt ríki. En fyrirætl- anir Sýrlendinga í Jórdaníu eiga sér einnig mikla mótstöðu, því forystuvonir Egypta ná líka til þessa lands, og áhrif Egypta eru mjög sterk í Jórdaníu og þó sér- Staklega meðal hersins þar. Sú hernaðarlega klípa, sem Egypta- land hefur komizt í hefur verið vatn á myllu Sýrlendinga og vilja þeir nú heimta til sín það forystuhlutverk meðal arabiskra ríkja, sem þeir hafa alltaf ætlað sér, en Egyptar höfðu tekið í sín- ar hendur. Til þess að halda þessu hlutverki, hafa Sýrlendingar grip ið til þess ráðs að flytja inn vopn frá Sovét-Rússlandi til þess að bæta her sinn og gera hann hæf- an til þess að verða eins konar broddur hinnar arabisku sóknar. Þetta er ekki litið hýru auga í Egyptalandi. Nasser lítur það illu auga, að Sýrlendingar skuli hafa notað sér neyð hans til þess að styrkja aðstöðu sína meðal hinna arabisku landa. En Sýrlendingar hafa líka sýnt, að þeir eru nokkuð fljótir á sér og æsingasamir eins og Glubb-Pascha bendir á. Þeir gripu í fljótræði til þess að eyði- leggja olíuleiðsluna, sem lá í gegn um land þeirra, og misstu þannig gjaldið, sem greitt var fyrir leiðsl urnar eða leigu af þeim og einnig bönnuðu þeir hveitiútflutning til Frakklands, sem hefur leitt það af sér að verulegur hluti af hveiti- framleiðslu þeirra hefur orðið óseljanlegur. Þegar Egyptar aft- ur ná að styrkjast stjórnmálalega og Súez-deilan fær sína varan- legu og endanlegu lausn má bú- ast við að Egyptar heimti aftur til sín þá forystu, Sem þeir höfðu haft meðal Arabaþjóðanna og að þá komi aftur til átaka milli þeirra og Sýrlendinga. Þó Kuw- atli forseti hafi notað hið heppi- lega augnablik, meðan illa stóð á fyrir Egyptum, er ekki að vita að það komi honum að gagni þegar til lengdar lætur. Kommúnisminn endurskoðaður Die Welt um endurskoðun S-ára áætlunarinnar SKÖMMU íyrir jól ákvað mið- stjórn rússneska kommúnista- shrifar úr daglega lifinu ÞAÐ er næstum daglega, að víð sem skrifum þessa smáleturs- dálka dagblaðanna fáum upp- hringingar eða bréf út af ein- hverju því efni sem lesendum er hugleikið. Frásagnirnar eru marg víslegar og umræðuefnin marg- breytileg. Gildi bréfadáikanna EINN spjallar um ókurteisi starfskvenna Sundhallarinn- ar, annar um kurteisi strætis- vagnabílstjoranna, einn um að" gefa þurfi flóttamönnunum fæði og klæði, annar urn að leyfa skuli hundahald í Revkjavík. Þannig eru þessir dálkar dag- blaðanna einn heilmikill brenni- punktur fyrir heilabrot lesend- anna, áhyggjuefni þeirra og gleðiefni, allt eftir því hvernig sakir standa hverju sinni. Það er efalaust að slíkir bréfa- dálkar sem þessir þar sem óskir og mál lesendanna eru rædd hafa sitt gildi. í fyrsta lagi koma þeir lesend- unum í nánari tengsl við blaðið sitt, og auka samband blaða- manna og lesenda. í öðru lagi hafa skrif hér í dálkunum um að- kallandi efni iðulega ýtt við hlut- aðeigandi aðilum, nýjar tillögur sem hér hafa birzt hafa verið framkvæmdar skömmu seinna. — Þannig eru slíkir dálkar oft nokkurt aðhald, einkum vegna þess, að þar geta þeir sem rang- læti eru beittir, komið umtals- og aðfinnsluefni sínu á franifæri og þegar vel er hjálpar það þeim til þess að fá leiðréttingu mála sinna. Því kann Velvakandi vel að meta öll þau bréf sem hr.'in hefur fengið á árinu sem nú er liðið, öll símtölin og allar orðsending- arnar. Ljóst er að ekki er unnt rúmleysis vegna að drepa á nema sum bréfin, og gera þau að um- talsefni hér. En hin eru ekki síður kærkom- in. Og því vil ég biðja ykkur, les- endur góðir, að halda áíram að ser.da þessum dálkum hugleiðing- ar ykkar í skrifuðu máli, og ég mun reyna að bregðast vel við | eftir því sem unnt er. 1 Og gleymið ekki að láta fullt nafn íylgja. Það er aldrei birt nema hiutaðeigandi óski þess sjálfur. Jólaskórnir komu ÉR bárust fyrir jólin nokkur bréf sem ég hef ekki getað minnzt á fyrr en núna. Kona vill koma á framfæri sérstöku þakk- læti til starfsstúlknanna í Skó- sölunni á Laugavegi 1 fyrir ein- staka greiðvikni. Ekki var til rétt númer á telpuna hennar af jcla- skónum, en stúlkan tók niður nafn og heimilisfang konunnar og hringdi til hennar óumbeðin nokkrum dögum seinna þegar skórnir voru komnir. Þetta er sannarlega mikil fyrirmynd í við- skiptaháttum og mjög lofsvert. Þá hringdi maður einn til Vel- vakanda nýlega og bað rnig að koma þeirri tillögu á framfæri við símayfirvöldin að nú þegar brayting er í aðsigi á símanúmer- um bæjarsímans þá verði númer lögreglu og slökkviliðs aðeins ein tala, og í hæsta lagi tvær. Bendir hann réttilega á að oft getur svo staðið á þegar eldsvoði er á ferð að rafmagnið hafi rofnað eða í- búð sé full af reyk og ekki sjáist á símann. Sé því fjarri lagi að ætla sér að velja fimmstafa tölu í myrkrinu en sjálfsögð varúðar- ráðstöfun að hafa töluna aðeins eina. Þessu kem ég á framfæri við póst- og símamálastjóra og vil taka undir þessa ágætu tillögu. Ekki veit ég, allsendis ótækmfróð ur maðurinn, hvort þetta er unnt af verkf-æðilegum ástæðum, en æskilegt væri það og raunar bráð nauðsynlegt. vera sinni peninga virði. En strax og elspýta hafði verið að þeim borin versnaði málið. Þeir þutu kannski 20 metra upp í loftið og þar með var draumur- inn búinn. Einhver framleiðslu- galli var í þeim slíkur að þeir lágu á litadýrð sinni en sýndu hana alls ekki. Þetta var leitt einkum þar sem um marga slíka var að ræða og ættu verzlunarmenn að athuga betur með innkaup sín fyrir næstu ára- mót. Misskiiningur leiðréttur Velvakanda hefir verið bent á að misskilja mætti, það sem sagt var hér í dálkunum í gær um skemmtanir togarasjómanna og réttaböll er talað var um gaman- þáttinn, sem leikinn var í útvarp. Falskir flugeldar ÞAÐ var ekki lítið litskrúðið inu á gamlárskvöld þegar maður leit upp í him- ininn á gamlaárskvöld og virti fegurð hans fyrir sér. Þar sá mað- ur nær því allt ritófið í einni sam fellu og það ekki dapurlegri. Ég hef þá sögu að segja og víst marg- ir fleiri, sem ég vissi til, að þeir flugeldar sem þeir keyptu voru margir hverjir gallaðir. Þeir litu prýðilega út áður en í þeim var Vegna þess vil ég taka það fram, að ætlunin var ekki að halla á neina ákveðna stétt, heldur sú að benda á þá stað- reynd, að annað hæfir á skemmt- unum fullorðinna manna en í útvarpi á stórhátíðum, þegar ætla má, að böm og unglingar kveikt og virtust fullkomlega séu meðal hlustenda. flokksins, að núverandi fimm- ára áætlun skyldi endurskoðuð og nýjar aðferðir teknar upp í skipu- lagningu efnahagslífsins. Um þessar ákvarðanir birtist nýlega í þýzka blaðinu Die Welt eftir- farandi leiðari: Það er þörf fyrir endurskoðun í Sovétrikjunum. Þessi endur- skoðun á skipulagi kommúnism- ans hefur staðið yfir að undan- förnu og heldur enn áfram, hægt og hikandi en þó óstöðvandi. ★ Tuttugasta flokksþing komm- únistaflokksins í febrúar s. 1. sýndi tilraun tii endurskoðunar á fræðikenningum og hugsjóna- grundvelli flokksins. Fundur mið stjórnar flokksins, sem haldinn var fyrir nokkrum dögum sýndi endurskoðun á efnahagssviðinu. Báðir þessir atburðir birta enda- lok Stalins-tímabilsins og byrjun nýrra tíma með nýjum kröfum og sjónarmiðum í Sovétríkjunum. Það verður að leysa upp, end- urbyggja og höggva af risavaxið ríkisskipulag á efnahagssviðinu, sem hefur verið þungt í vöfum með öllum sínum óteljandi skrif- finnskutálmunum. Þetta bákn hef ur staðið í vegi fyrir eðlilegri nú- tímaþróun rússnesks atvinnulífs og iðnaðar. ★ Sjálfvirk tækni, framleiðni og önnur tækniþróun í iðnaðinum ná ekki tilsettu marki, þegar fram tak og frumkvæði leyfist aðeins í miðstjórninni, en ekki í verk- smiðjunum hjá stjórnum þeirra eða starfsliði. Hin sterka mið- stjórn ríkisins, sem tiðkaðist svo mjög á dögum Stalins hæfir ekki nútíma iðnaðarþjóðfélagi. Svo virðist sem menn eygi nú í Sovétríkjunum aukið frjálsræði. Verið er að skapa iðnaðinum meira olnbogarúm. Sérfræðing- arnir eða „teknokratarnir“ koma nú meira fram á sjónarsviðið og þeir hugsa fremur hagfræðiiega en pólitískt. ★ Og það verður að fá samstarf og stuðning allra vinnufærra manna við þessa endurskoðun. Slíkt fæst ekki með því einu að byggja íbúðarhús og auka fram- leiðslu neyzluvara, heldur er einn meginþáttur endurskoðunarinnar að auka frjálsræði og þjóðræði. Það á að vísu langt í land i Sovétrikýunum að þessu takmarki verði náð, en síðustu ákvarð- anir miðstjórnar flokksins eru að vísu litill áfangi, en þó áfangi á þeirri leið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.