Morgunblaðið - 04.01.1957, Side 13
Föstudagur 4. jan. 1957
MORCUNBLAÐIÐ
13
Fribrik Björnsson:
Andakílsárvirkjunin
í MORGUNBLAÐINU, 9. des. s.l.
er grein um vatnsskortinn í
Andakílsá, og áhyggjur Skordæl-
inga útaf fyrirhugaðri hækkun
Skorradalsvatns um tvo metra.
Skordælingum er sannarlega
ekki láandi, þó þeir spyrni fótum
við því gjörræði, sem í ráði er
að fremja gegn þeim, því það
mundi valda óbætanlegu tjóni á
flestum jörðum dalsins, þar sem
fegursta jörð hans, Fitjar, mundi
sennilega verða einn'a harðast úti,
því allar hinar fögru og frjósömu
engjar jarðarinnar mundu að lík-
indum hverfa í vatnið. Vonandi
bera Skorradalsbændur gæfu til
að standa einhuga á verði gegn
slíku óhappaverki.
En hvað er eiginlega hér á
seyði? I greininni er upplýst, að
í „stöðinni“ sé gert ráð fyrir
fjórum vélasamstæðum, en hins
vegar sé ekki vatn nema fyrir
tvær! Nú er ekki kunnugt um að
vatnsmagn Skorradalsvatns eða
Andakílsár hafi breytzt neitt, síð-
an virkjunarhæfni árinnar var
reiknuð út, og virkjunin ákveðin
samkvæmt þeim útreikningi. Er
þetta svo að skilja, að vatnsorkan
hafi verið rangt áætluð í byrjun,
og að vatnsskorturinn komi þar
af leiðandi á óvænt? Ef svo var
ekki, og full vissa var um það
frá byrjun hver afköst virkjun-
arinnar yrðu, hvaða ástæða er þá
til að æðrast nú þar sem ekkert
hefur skeð um orkumagnið, annað
en það, sem þegar var vitað í
upphafi — að það mundi ekki
fullnægja orkuþörfinni, því það,
að hún mundi brátt aukast, mátti
öllum vera augljóst .
En forustumenn þessa máls
virðast ekki vilja sætta sig við
þó staðreynd, að nægilegt vatn
sé ekki til handa stöðinni. Nú
ganga þeir fram af kappi miklu
um að fá aukið vatnsmagn, jafn-
vel þó að til þess þurfi að hálf
kaffæra heila sveit. í grein Mbl.
er að vísu bent á fleiri leiðir, til
aukningar vatnsorkunni, og er
það í fyrsta lagi, með því að
grafa upp ána frá vatninu niður
að virkjuninni. Á þessum tveimur
stöðum telur greinarhöf. að sé
6 m hallamunur, og að flytja
þyrfti á burt óhemju mikið af
jarðvegi svo að annað vatn gæti
myndazt. Telur hann að þessi að-
ferð sé notuð í Noregi til vatns-
miðlunar við raforkuver.
Ef reynzla er fengin fyrir þess-
ari aðferð í Noregi, og ætla má
að hún dugi hér er auðvitað sjálf-
sagt að fara þá leið, jafnvel þó
að mikinn jarðveg þurfi að færa
til, og mikla vinnu í það að leggja.
Það mundu þó aðeins vera smá-
munir hjá þriðja úrræðinu, sem
höf. bendir á, en það er að veita
Reyðarvatni í Skorradalsvatn.
í greininni segir: „Til er þriðji
möguleikinn, en hann er sá, að
upp af Lundarreykjadal í afrétt-
inum fyrir framan Þverfell er
Reyðarvatn, 6 km langt, 1 km á
breidd, þar sem það er breiðast
og 20—30 m djúpt, þar sem það
er dýpst“.
(Ég vil skjóta því hér inn til
leiðréttingar, að Reyðarvatn er
ekki í afrétti, heldur að öllu leiti
í landareign Þverfells, samkv.
landamerkjabréfi þar um, og sem
mér er ekki kunnugt um að hafi
verið breytt. En það er önnur
saga).
Ég hefi heyrt þessu kastað fram
áður, að veita Reyðarvatni í
Skorradalsvatn, en ég hef satt að ’
segja alltaf litið á það sem eina |
af þessum öfgakenndu og van-
hugsuðu fjarstæðum, sem sumt
fólk hefur gaman af að kasta
fram, án þess að nokkur alvara
fylgdi. En þar sem uppástunga
um þetta er nú samt sem áður
komin opinberlega fram, en ég
hins vegar tel það allt að því
óframkvæmanlegt, og þar af leið-
andi, jafnvel enn þá fjarstæðu-
kenndara en hækkun Skorradals-
vatns um tvo metra, vil ég fara
um það nokkrum orðum.
Ráðagerðin mun vera í stórum
dráttum á þá leið, að flytja af-
rennsli Reyðarvatns frá ósi þess
suður fyrir Þverfell í vík þá er
Selvík heitir, með því að stifla
ósinn og loka þannig fyrir af-
rennsi þess, Grímsá, sem þarna
hefur upptök sín. Úr Selvíkinni
á svo að gera farveg fyrir hina
nýju „á“, og koma henni alla
leið vestur fyrir Vörðufell og út
í Eiríksvatn. En úr því hefur
Fitja-á, aðalrennsli Skorradals-
vatns, fyrstu upptök sín.
Höfundur áðurnefndrar greinar
virðist kannast þarna við aðeins
eitt örnefni, Kamphamrasundið,
sem hann finnur ástæðu til að
minnast á, og að því er virðist
til þess að benda á, að af því
stafi engin hindrun. Kamphamra-
sundið er algert aukaatriði í þessu
máli. Það er aðeins lítið mein-
laust mýrasund á langri leið, enda
alveg óvíst að leiðin komi til með
að liggja um þann mýrarblett.
En það er önnur hindrun, sem
bráðlega kemur í ljós, og talar
sínu þögla máli. „Hingað og ekki
lengra með þetta nýja vatnsfali
ykkar". En það er Tunguá, sem
rennur þvert á leið þess í djúpum
og breiðum gljúfrum, og mundi
ómótstæðilega gleypa hið nýja
vatnsfall og færa sinni aldagömlu
sambýliskonu, Grímsá, það með
beztu skilum, þar sem þær renna
saman hjá Brautartungu, og
Grímsá hefði þannig endurheimt
það, sem búið var að ræna frá
henni.
Þessi vatnsflutningur getur
þannig ekki farið fram í opnum
farvegi, ög getur því aðeins verið
um rörleiðslu að ræða. En hvílíkt
rör. Þar yrði sannarlega ekki um
neitt smásmíði að ræða. Að sjálf-
sögðu er það úti í bláinn að fara
að gizka á stærð þess að órann-
sökuðu máli, en ef maður samt
sem áður vildi reyna það, verður
að miða við vatnsmagn Grímsár
þar sem hún fellur úr Reyðar-
vatni, og hafa þá jafnframt í
huga vatnavexti, sem árlega or-
sakast af leysingum og rigning-
um. Með þetta í huga væri senni-
lega ekki of hátt áætlað, að rör-
ið þyrfti að vera 10—12 metrar
í þvermál, og að sjálfsögðu úr
járnbendri steinsteypu. Þetta
mikla bókn yrði auðvitað að -’era
allt grafið í jörðu, því annars
mundi það loka allri umferð,
bæði manna og dýra, um nokkra
kílómetra, eða alla leið milli
Reyðarvatns og Eiríksvatns, og
meðal annars mundi það loka
veginum yfir Bláskógaheiði (Uxa
hryggjaleið). Þá mundi þurfa að
byggja öfluga brú yfir Tunguór-
gljúfrið undir hið mikla rörbákn,
og þaðan mundi svo leiðin liggja
í gegnum hæðir og dældir suður
fyrir Vörðufell til Eiríksvatns.
Hér er aðeins í stuttu máli
brugðið upp svipmynd af þessu
risafyrirtæki, svo langt sem það
nær. En að sjálfsögðu er mörgu
sleppt, sem aðeins er á færi sér-
fræðinga að lýsa, eftir ýtarlega
rannsókn, svo sem meðal annars
því, hvort ætla megi að verkinu
sé lokið með því að koma vatns-
leiðslunni út á Eiríksvatn.
Ég* geri naumast ráð fyrir að
nokkurntíma verði lagt út í
„ævintýri11 þetta vegna hins gíf-
urlega kostnaðar, og tæknilegu
erfiðleika, sem því yrði samfara.
En þrátt fyrir það, vildi ég láta
þetta koma fram, vegna þess að
svo virðist, sem einhverjir séu
farnir að trúa því, að hér sé
lausnina að finna á vatnsskorti
Andakílsárvirk j unar.
Hins vegar læt ég mér detta i
hug, að fé því, sem varið yrði til
slíkra vafasamra vatnsöflunar-1
leiða, og þar á meðal tel ég einnig
hækkun Skorradalsvatns, væri j
betur varið til smávirkjana, þar
sem stórvirkjana er ekki kostur.
Þær ár, sem til greina koma I
þessu efni, liggja vanalega ein-
angraðar hver í sínum dal, án
þess mögulegt sé að sameina þær
tvær eða fleiri til stórvirkjana.
Þar sem slíkar staðreyndir eru
fyrir hendi, verður ekki hjá því
komist, að kannast við þær, og
að sætta sig við smærri vikjanir,
og fleiri, úr því ekki er bet’.i
kosta völ, þó það vafalaust yrði
á ýmsan hátt kostnaðarsamara.
Ein af þeim ám, sem mjög kemur
til greina í þessu efni er Grímsá,
og gæti ef til vill vatnið úr Reyð-
arvatni orðið þar að meira gagni
heldur en ef farið væri að braska
við að koma því ofaní Skorradals-
vatn.
Tveir staðir í Grímsá þykja
koma til greina til virkjunar.
Skammt fyrir neðan upptök henn
ar, (Reyðarvatnsós, eru nokkrir
fossar, sem ef til vill mætti búa
til úr einn allháan foss með
sprengingum og niðurgreftri far-
vegsins. Hinn staðurinn er Jöína-
brúarfoss fyrir framan Oddsstaði,
og þykir mörgum sá staður væn-
legri til virkjunar, enda er áin
þar orðin miklu vatnsmeiri enu
við upptök sín, búin að bæta viö
sig tveimur allstórum ám, Kalaá
og Lambá, auk fjölda smá-lækja.
Líklegt þykir, að fossinn megi
hækka eftir vild, með stein-
steypu, og jafnframt mynda all-
stórt lón eða uppistöðu fyrir ofan
hann til vatnsmiðlunar. Um þetta
ætti fagleg rannsókn að fara
fram.
F. B.
2ja herbo íbúðarhœB
á hitaveitusvæði í vesturbænum til sölu.
Laus til íbúðar.
Nýja tasteignasalan
Bankastræti 7 — Sími 1518 og kl. 7,30—8,30 e.h. 81546
Atiiiicfið!
Tek enska og íslenzka vélritun í heimavinnu.
Sími 81372 í hádegi og eftir kl. 6.
Geymið auglýsinguna.
I£«ttiidaviiiiiunágiiskeið
Byrja næsta handavinnunámskeið 14. þ.m. Kenni
fjölbreyttan útsaum. Einnig að hekla, orkera, gimba,
prjóna, kúnststoppa o. fl. Áteiknuð verkefni fyrirliggj-
andi. Allar nánari upplýsingar milli kl. 2—7 e.h.
Olína Jónsdóttir, handavinnukennari,
Bjarnastíg 7, sími 3196.
TIL SOLIJ
Vélbáturinn Geir Goði, 38 lestir með 110 hesta
June Munkel vél, er til sölu með eða án veiðarfæra.
Upplýsingar hjá Lofti Loftssyni, Reykjavík,
sími 2343.
TiEhoð óskasf
í biðskýli með ágætu afgreiðsluplássi. Mjög vandað.
Upplýsingar veitir Kristján Guðmundsson í síma
9163 og 9091.
Framkvæmdabanki íslands óskar að ráða
unglingsstúlku
12—14 ára, hálfan daginn til sendiferða og aðstoðar á
skrifstofu. — Upplýsingar á skrifstofu bankans, Klappar-
stíg 26, kl. 4—6.
Alþýðuflokksfélögin
i Kópavogi halda jólatrésskemmtun
fyrir börn næstkomandi sunnudag klukkan 3.
Fólk er beðið að tilkynna þátttöku sína í síma
1455, 6990 og 80478 vegna takmarkana á
húsplássi.
VELSTJORAFELAG ISLANDS heldur
Jólatrésskemmtun
sunnudaginn 6. janúar 1957, kl. 15,30 í Tjarnarcafé. Að-
göngumiðar seldir í skrifstofu félagsins í Fiskhöllinni,
Lofti Ólafssyni, Eskihlíð 23, Kjartani E. Péturssyni,
Hringbraut 98, Sveini Kragh, rafmagnsstöðinni Elliðaá,
og Þorkeli Sigurðssyni, Drápuhlíð 44.
SKEMMTINEFNDIN.
Stór, sólrík
stofa til leigu
strax, á Miklubraut 50,
efstu hæð. Uppl. á staðnum
eftir kl. 7 í kvöld og á morg
un. —•
IBUÐ
Vantar tveggja eða þriggja
herbergja íbúð til leigu. —
Upplýsingar í síma 2741.
Jálafrésskemmfanir
Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verða haldnar í Tjarnarcafé 7. og 8. janúar. Aðgöngumiðasala er í skrifstofu félags-
ins, Vonarstræti 4, sími 5293.