Morgunblaðið - 12.01.1957, Blaðsíða 3
Laugardagur 12. jan. 1957
MORCVTSHLAÐIÐ
3
Leiddist tilbieytingaileysið
„ÉG VILDI ÓSKA, að eitthvað
spennandi gerðist". Þannig skrif-
aði tvítugur enskur liðsforingi
Anthony Moorhouse til föður
síns, verksmiðjueiganda í Leeds.
Anthony var í landgöngusveit-
um Breta í Port Said og þótti
honum lífið heldur tilbreytingar-
laust eftir að vopnahléi hafði ver-
ið komið á.
Bréf hans kotn til Leeds viku
eftir að hann skrifaði það. Faðir
hans þurfti að fara í viðskipta-
erindum til Lundúna. Tók hann
bréfið með sér og las það í leigu-
bílnum á leiðinni. Hann brosti
í kampinn, þegar hann las ung-
gæðisleg orð Anthonys um ævin-
týraþrá.
Faðir hans tók ekkert sérstak-
lega eftir stórletruðum auglýs-
ingum við blaðsöluturna með-
fram leiðinni. Þar voru skráð
stórum stöfum sem aðalfrétt dags
ins þessi orð: Brezkum liðsfor-
ángja rænt í Port Said.
Það var ekki fyrr en eldri Moor
house kom á gisthús sitt í Lundún
um, sem hann fékk að vita hinar
Anthony Moorhouse liðsforingi
ógnþrungnu fréttir. Brezk-i liðs-
foringinn var sonur hans.
★ ★ ★
Síðan þetta gerðist hefur nafn
Moorhouse verið skráð daglega
í h-inum stærstu fyrirsögnum
Skók-keppnin
1. BORÐ
Svart: Akureyri
(Juiíus Bogas. - Jón Ingimarss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Reykjavik
(Ingi R. Jóhannsson)
1«.... Rf€—d«
2. BORÐ
Svart: Reykjavík
(Björn Jóhanness,-Sv. Kristinss.)
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Hvítt: Akureyri
(ingimar Jónss. - Kristinn Jóoss.)
1«. B«4—43
brezkra blaða. Öll brezka þjóðin
hefur fylgzt með leitinni að hon-
um. í hverri fjölskyldu á brezkri
grund, var fyrsta spurningin,
þegar morgunblöðin voru tekin
upp við morgunkaffið: — Er ungi
Moorhouse fundinn?
Gaitskell foringi brezku stjórn-
arandstöðunnar er einmitt þing-
maður fyrir Leeds-kjördæmi.
Hann lagði fast að brezka her-
málaráðuneytinu að finna liðs-
foringjann sem var rænt. Brezka
utanríkisráðuneytið tók málið
einnig í sínar hendur og yfirstjórn
gæzluliðs Sameinuðu þjóðanna
lagði sig einnig í líma við að
finna hver hefðu orðið örlög
piltsins. Á Þorláksmessu gaf her-
stjórn S.Þ. út tilkynningu um
að norskur liðsforingi í gæzlu-
liði S.Þ. hefði séð Anthony Moor-
house. Væri hann á lífi og væri
aðbúað hans góð. Þegar þessar
fréttir bárust ákvað sjálfur for-
sætisráðherra Bretla?ius Ant-
hony Eden að senda skeyti til
Moorhouse fjölskyldunnar. í því
stóð: „Þetta er ykkar bezta jóla-
gjöf, sonur yðar er á lífi“.
★ ★ ★
En jólagjöfin reyndist á mis-
skilningi byggð.
Nú er frá því að segja, að
einn þingmanna brezka íhalds-
flokksins nefnist Cyril Banks.
Hann er gamall persónulegur
vinur Nassers einræðisherra.
Þegar árásin var gerð á Egypta-
land mótmælti hann árásinni með
því að segja sig úr íhaldsflokkn-
um. Nú vildi einnig svo til, að
Cyril Banks var vinur Moorhouse
fjölskyldunnar. Fyrir beiðni henn
ar tók hann á sig ferð til Kairó.
Það var loks á aðfangadag, sem
Banks fékk viðtal við Nasser.
Eina spurningin, sem hann lagði
fyrir egypzka einvaldann var: —
Er Anthony Moórhouse á lífi?
Nasser svaráði: — Hann er lát-
inn.
★ ★ ★
Og nú eru staðreyndir þessa
máls loks orðnar kunnar. Þær
eru á þá leið, að Anthony Moor-
house stjórnaði brezkum her-
flokki, sem fór inn í íbúðarhverfi
Port Said og handtók níu Eg-
ypta fyrir spellvirki. Morguninn
eftir ók hann aftur inn í þetta
sama hverfi aleinn á jeppabifreið
sinni. Bifreiðin fannst mannlaus
í hliðargötu.
Egypzkur drengur upplýsti, að
hann hefði séð hóp Egypta safn-
ast kringum brezka liðsforingj-
ann, þegar hann gekk út úr bíln-
um. Einn Egyptanna greip
skammbyssu hans og stakk henni
í síðu hans. Svo var Bretinn tek-
inn inn í stóra bifreið sem stóð
skammt frá. Sú bifreið fannst
einnig skömmu síðar og í henni
sriaeri, kefli og nokkrir blóðblett-
ir í aftursætinu.
Nasser skýrði Banks frá því,
að þegar Bretar gerðu mikla leit
í Port Said hafi Moorhouse ver-
ið falinn þar í einu húsinu. Þeir
sem höfðu hann í haldi urðu
hræddir vegna hinnar víðtæku
lcitar og lokuðu hann keflaðan
inni í stálskáp. Þegar leitinni var
hætt og Egyptarnir komu aftur
að, var Mooorhouse kafnaður.
Og egypzk blöð bæta við, þeg-
ar þau segja frá þessu. Þetta var
allt Bretum að kenna vegna þess
að þeir hófu leit að liðsforingj-
anum.
Enn er treg veiði
HAFNARFIRf>I. — Nú eru kring
um 10 bátar byrjaðir róðra héð-
an og fleiri munu senn bætast í
hópinn. Afli hefur verið fremur
tregur það sem af er, frá 5 og
upp í 10 skippund á bát.
Eins og getið hefur verið unai
hér í biaðinu, seldi Röðull í
Grimsby núna í vikunni 206
lesttr fyrir 15.068 pund, en það
er afar góð sala miðað við fisk-
magn. Annar stýrimaður, Ás-
geir Gislason, var með Röðul í
þessari ferð og fiskaði einnig i
hann. — Agúst er nú á leið til
Þýzkalands. — G. E.
Mr. Thomas Brittingham jr. ásamt piltunum tveimur sem styrkina
hlutu að þessu sinni, Halldóri Gislasyni (t. h.) og Jóni Friðsteins-
syni (t. v.)
Bandarískur milljónung-
ur veitir íslenzkum
námsmonnum styrki
Nema við háskólann í Madison
IGÆR átti bandarískur milljónungur, Thomas E. Brittingham jr.
að nafni tal við blaðamenn og skýrði þeim frá því að hann
hefði ákveðið að styrkja tvo unga íslenzka námsmenn til fram-
haldSnáms við háskóiann í Madison í Wisconsin. Mun hann árlega
veita íslenzkum námsmönnum ókeypis háskóladvöl í Bandarikj-
unum, hér eftir. Kom hann gagngert hingað til lands til þess að
velja piltana og hlutu þeir Halldór Gíslason og Jón Friðsteinsson
styrkina að þessu sinni.
13 NÁMSSTYRKIR Á ÁRI
Mr. Brittingham er mikill iðju-
höldur frá Wilmington Delaware.
Skýrði hann blaðamönnum frá
því að undanfarin ár hefði hann
styrkt stúdenta og námsmenn frá
allmörgum Evrópulöndum til
náms vestanhafs með sama hætti.
Það var skömmu eftir stríðið að
hann og kona hans voru á ferða-
lagi í Skandinavíu. Fékk hann
þá eftir heimkomuna þá hugmynd
að styðja efnilega námsmenn frá
þessum löndum og öðrum til náms
og hóf þegar athafnir.
Býður hann síðan árlega 13
stúdentum til Bandaríkjanna, og
greiðir þeim allan námskostnað,
vasapeninga og nokkurt fé til
ferðalaga um Bandaríkin. Nemur
styrkurinn alls rúml. 2.000 doll-
urum á stúdent. Næsta skólaár
býður Mr. Brittingham auk ís-
lendinganna tveggja einum Norð-
manni vestur, tveimur Svíum,
þremur Finnum, þremur Þjóð-
verjum og tveimur Hollending-
um.
f hópnum eru fjórar stúlkur.
Hefir Mr. Brittingham ferðazt
ásamt syni sínum og konu til allra
þessara landa og valið námsmenn
ina sjálfur. Við valið hefur hann
auk menntunarárangurs einnig
farið eftir háttum námsmanna og
menningarþroska.
BÁÐIR STÚÐENTAR
Hér á landi hefur fslenzk-
ameríska félagið greitt götu Mr.
Brittinghams og sonar hans sem
hér er á ferð með honum. Kynnti
Gunnar Sigurðsson, gjaldkeri
félagsins þá feðga á blaðamanna-
fundinum í gær. Gat Mr. Britt-
ingham þess að næsta ár mundi
hann koma til íslands sömu
erindagjörða.
Annar pilturinn, sem Mr. Brit-
tingham valdi að þessu sinni, er
Halldór Gíslason, sonur Gísla
Halldórssonar verkfræðings. —
Halldór er tvítugur og lýkur
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um á Akureyri í vor.
Hinn pilturinn er Jón Frið-
steinsson, sonur Friðsteins Jóns-
sonar veitingamanns. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verzlunarskól-
anum í fyrra, og stundar nú við-
skiptafræðinám við Háskólann.
Mun hann halda því námi áfram
í Bandaríkjunum en Halldór
leggja stund á verkfræðinám.
Halda þeir félagar til náms síns í
Vesturheimi í septembermánuði í
haust.
f SÖMU HEIMDI!
Fyrir fjörutíu krónur getið
þér unnið hálfa milljón!
Fjórði hver miði f«r vinn-
Laegsti vinningur ing. Ver8 miða á mánnði:
borgar vinningsnúm- Enginn vinningur er kegri 1/1 46 kr. 1/2 2« kr. 1/4 1» kr.
erió, annað númer i en 1666 krénnr. *
viðbót og dálítið meira! Dregið i 1. flokki Verð mtða á ári: 1/1 486 kr. 1/2 24« kr. 1/4 126 kr.
21. janúar
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS