Morgunblaðið - 12.01.1957, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 12.01.1957, Qupperneq 11
Laugardagur 12. jan. 1957 MORGUNBLAÐIÐ 11 smál af dilkakjöti til viðbótar. Nautakjöt og hrossakjöt þyng- ir mjög kjötmarkaðinn innan- lands. Þann 1. desember 1955 voru til 566 smálestir af nauta- kjöti, og var þá óvenjumikið, sökum óþurrkanna um sumarið. Fyrsta desember 1956 voru birgð- ir af nautakjöti 549 smál., og er það mun meira en búist var við. Af hrossakjöti voru þá til 407 smál., en 406 á sama tíma 1955. Nokkrar vonir eru taldar til, að takast muni að selja eitthvað af nautakjöti til Austur-Þýzka- lands. Uppbsetur úr Framleiðslusjóði, á þær 1364 smálestir af dilka- kjöti, af framleiðslu ársuis 1955, sem út voru fluttar, námu 14,1 millj. króna, en greiða þarf 2,5 'millj. króna í viðbót, svo að rétt verð fáist til bænda. Nemur verðuppbótin þannig rúmlega 12 krónum á kíló. Með auknum útflutningi verður þetta sennilega enn óhagstæðora, nema betra verð fáist fyrir hið útflutta kjöt og er engan vegin vonlaust um að svo verði. JARÐABÆTUR OG FRAM- LÖG TIL ÞEIRRA Búnaðarbankinn veitti 836 (987) lán úr Ræktunarsjóði, að upphæð 34,46 millj. króna (34,12 millj. 1955). Úr Byggingarsjóði voru veitt 150 (174) ný lén, að upphæð 5,84 millj. króna og eldri lán (við- bótarlán) 197 (198), að upphæð 4,68 millj. króna,* (samtals 9,755 millj. króna 1955). Úr veðdeild voru veitt 119 (149) lán, að upphæð 3,859 millj. króna (4,733 millj. króna 1955). Búnaðarbankinn fékk á árinu lán úr Mótvirðissjóði að upphæð 11 millj. króna og úr ríkissjóði 33 millj. króna. Fé þetta rann allt í Ræktunarsjóð, en breytir eigi fjöruborði, svo mikils þarf þar með. Af tilbúnum áburði seldist talið sem hrein efni: 5550 smál. af kö.'nnuarefni (4.835 smál. 1955). 2760 smál. af fosfórsýru (2.480 smál. 1955). 1935 smál. af kali (1838 smál. 1955). Til Frakklands voru fluttar 300 smál. af köfnunarefnisáburði, að útflutningsverðimæti 4,1 millj. króna. Almennt var búist við því er Grænmetisverzlun ríkisins var lögð niður og Grænmetisverzlun landbúnaðarins tók þar við, að Áburðasala ríkisins yrði lögð niður, sem þarflaus er með öllu, og Áburðaverksmiðjan í Gufu- nesi annaðist heildsöludreifingu á tilbúnum áburði. Af þessu varð þó ekki, sem miður fer. Nýbýlastjórn samþykkti stofn- un 45 (65) nýbýla á árinu. Auk þess að byggja upp á 22 (15) eyðijörðum. Ennfremur flutning og endur- byggingu bæjarhúsa á 3 (10) jörðum. Framlag til einstaklinga, til ræktunar á nýbýlum, námu 1,61 millj. króna, en 1,4 millj. króna 1955. Byggðahverfin á vegum Ný- býlastjórnar, sem verið er að vinna í eru nú 14. Sums staðar eru vegagerðar- og framræslu- framkvæmdir að hefjast, en ann- ars staðar er þeim langt komið. Nýbýlahverfin og tala býla, sem ráð er gert fyrir að byggja á hverjum stað: 1. Þinganes, í Hornaíirði, 9 býli. 2. Hvolsvöllur, Rangárvallas., 5 býli. 3. í Ölfusi, 8 býli. 4. í Álftaneshreppi, Mýrar- sýslu, 8—10 býli. 5. Reykhólar, Barðastrandar- sýslu, 3 býli. 6. Kaldrananes, í Strandasýslu. 7. Skinnastaðir í Húnavatns- sýslu, 4 býli. 8. Auðkúla í Húnavatnssýslu, 3 býli. 9. Víðimýri, í Skagaflrði, 4 býli. 10. f Tungusveit, í Skagafirði, 2 býli. 11. í Svartárdal, í Skagafirði, 10 býli. 12. í Köldukinn, S.-Þingeyjar- sýslu, 5—6 býli. 13. Ketilsstaðir á Völlum, 3 býli. 14. f Hjaltastaðaþinghá, 6 býli. Að sjálfsögðu verður þetta ekki alit fjölgun býla, þar eð víða er um að ræða jarðir, sem áður voru í byggð en skiptast nú í margbýli svo sem tölurnar greina Um nýræktina 1956 eru enn eigi til tölur fremur en vanalega, en þeir sem til þekkja telja að hún muni reynast svipuð og 1955. — Endanlegar tölur um nýrækt á því ári eru: Nýrækt 2.425 ha. Túnasléttur 754 — Alls 3.179 ha. Þess ber að geta, þó eigi skipti miklu máli, en villir þó oft frá- sögn, að nýrækt sú á nýbýlum i byggðahverfum, sem framkvæmd er á vegum Nýbýlastjórnar, 5 ha. á býli, er aldrei talin með þegar Búnaðaríélag íslands skýrir frá urn hina árlegu nýræktarfram- kvæmdir og þegar um þær er rætt yfirleitt. Svo er um fleiri framkvæmdir & vegum Nýbýla- stjórnar, Grasfræsala á árinu, sem vitað er um, var 113 smálestir, en það svarar til þess að sáð hafi verið í 2825 ha. Hins vegar má ekki byggja mikið á slíkum útreikn- ingi, sáðmagn er misjafnt og gras fræ er geymt frá ári til árs. Samband ísl. samvinnufélaga- fékk á þessu ári til umráða land á söndunum á Rangárvöllum, í landi Sandgræðslu íslands, til fræræktar og lagði þar upp með vísi að þeirri starfsemi og fram- leiðslu. Skurðgröfur voru að verki, 34 sem Vélasjóður á, 10 sem rækt- unarsamböndin eiga og 4 sem Nýbýlastjórn á, en af þeim síð- astnefndu unnu aðeins 2 að fram- ræslu í nýbýlahverfunum, en hinar unnu fyrir bændur og byggðalög. í byggðahverfunum í Hjaltastaðþinghá og í Álftanes- hreppi á Mýrum voru grafnir um 60 km af skurðum, sem eru um 267.000 rúmm. Áætlað er að framræsla með skurðgröfum Vélasjóðs og rækt- unarsambandanna o. fl á árinu sé um 870 km og 3,5 millj. rúmm., og að kostnaðurinn sé alls um 13 millj. króna. Af því kemur 65% í hluta ríkissjóðs, tða nær 8,5 millj. króna. Ef þessi áætlun reynist rétt hefir kostnaður á rúmmetra orðið um kr. 3.70. Fullnaðarskýrslur um fram- ræsluna 1955 sýna að þá voru grafnir 851 km af skurðum sem mældust 2.992.127 rúmm. Kostn- aður varð kr. 3.32 á rúmm., eða alls kr. 9.944.832,00. Framiag rík- isins nam kr. 6.464.141,00. Af þessu var grafið með gröf- um ræktunarsambandanna 159. 848 lengdarm., 622 863 rúmm. Við þetta bætist það sem grafið var í byggðahverfum, og sem greitt er þannig að fullu úr ríkis- sjóði, 22.720 lengdarm , 111.712 rúmm. Tölur þessar sýna hve afar- mikil fjárfesting á sér stað í framræslunni einni, hvað þá i ný- ræktinni allri þegar öll kurl koma til grafar. Framlag til annarra jarðabóta en framræslu greitt 1956 rr.un nema, um kr. 10.682.000,00, en var kr. 8.484,219,48 1955. Helztu framkvæmdir, nýjar, á vegum Sandgræðslunnar: Girtur Landeyjasandur, 40 km girðing úr Hólsá að vestan, austur í Mark arfljót,Sandsvæðið 10—12 þús. ha. Á Hólssandi í N.-Þingeyjar- sýslu voru settar upp timbur- garðar að lengd um 35 km og sáð meðfram þeim. í Mýrdal var girt úr Dyrhólaey vestur í Haf- ursá, 8 km, sandsvæði um 16 fer- km. Við Reykjahlíð í Mývatns- sveit var girt landsvæði, er nefn- Ist Randir, með 12 km girðingu. Á Sólheimasandi voru girtir 60 ha lands til ræktunar og sáð gras- fræi í 18 ha af því, en á Skóga- sandi var sáð í 100 ha, til viðbót- ar þeim 100 ha, sem sáð var í 1955. Alls eru þar girtir 10 þús. (ha. Á þá 100 ha, sem girtir voru 1955 var í sumar beitt um 500 ám með lömbum, eða um 1300 fjár á tímabilinu 1. júní til 15. ágúst. Græðslan virðist fara vel að 38 bændur standa að þessari ræktun. Síðastliðið sumar vann Kan- adamaðurinn Campell frá FAO hér á vegum Sandgræðs unnar, að gróðurrannsóknum og sand- græðslumáliun, í framhaldi af at- hugunum sínum 1954. Með hon- um vann um hríð ísl stúdent fra Manítobaháskóla, Björn Sigur- björnsosn, við góða samvinnu við fræðimenn Búnaðardeildar at- vinnudeildar háskólans o. fl. Er vonandi með þessu lagður grund völlur að nokkuð fræðilegri at- höfnum á vegum Sandgræðslu ís- iards. en verið hefur, meðal ann- ars varðandi beitarþol lands og nýtingu haglendis. RÆKTUNARSAMBÖND OG VÉLAKAUP Á ræktunarsamböndunum varð nokkur breyting á árinu. f Borgarfirði liðaðist sundur það fyrirkomulag, sem þar hefir ríkt síðan ræktunarsamböndin tóku fyrst til starfa, að ein rækt- unarsamþykkt og ein fram- kvæmd gilti fyrir báðar sýslur, Borgarfjarðarsýslu og Mýrasýslu. Voru í þess stað stofnuð 4 ný ræktunarsambönd. Er hér stefnt í öfuga átt við það sem æskilegt hefir þótt, en vera má að nauður hafi rekið til þess. í Austur- Barðastrandasýslu voru 2 rækt- unarsamhönd sameinuð í eitt og í Vestur-Barðastrandasýslu 3 eklri sambönd í eitt. Við innan- vert ísafjarðardjúp er einnig um sameiningu að ræða og nýtt starf á þeim grundvelli þó ekki sé komið lögform á það að öllu leyti. Vélakaup ræktunarsamband- anna voru ekki mikil á árinu, ef reiknað er út frá því hvaða fram- lög voru greidd úr ríkissjóði til kaupanna, eins og ég hefi gert undanfarið og sem er það helzta til að halda sér við. Greitt var framlag til kaupa á eftirtöldum vélum: 4 beltatraktorar með ýtu. 9 Skerpiplógar. 6 plógherfi. 1 diskaherfi. 4 vagnar. Framlag ríkissjóðs alls kr. 965.363,0«. Þessar tölur eru þó mjög mis- vísandi, vélakaupin eru miklu meiri en þær sýna. Fjárveiting 1956 til vélakaup- anna var 2 millj. króna. Mikið af þeirri upphæð var notuð fyrir- fram á árinu 1955. Slík fyrir- fram notkun væntanlegrar fjár- veitingar 1957 var ekki leyfð 1956, og rak þvi mörg ræktunar- sambönd upp á sker með að greiða keyptar vélar, síðari hluta árs 1956. Kom þetta meðal ann- ars fram á þann hátt, að 2. janúar 1957 fengu 15 ræktunarsambönd greidd framlög til vélakaupa, samtals kr. 1.190.926,00. Er það vitanlega til að greiða vélar sem kevptar voru 1956, sumar all- snemma á því ári. Þetta er fé sem ræktunarsamböndin voru að bíða eftir. Vélasjóður bætti við sig 3 skurðgröfum á árinu, af gerðinni Priestman Wolf, Einstakir bændur keyptu enn mikið af búvélum á árinu. Mest fer fyrir kaupum á hjólatraktor- um, af þeim munu hafa verið keyptir um 470, og að sjálfsögðu sláttuvélar með mörgum þeirra. Af múgavéilum voru keyptar yf- ir 500 og af áburðardreyfum um 300 o. s. frv. Af vélanýungum, sem um munar, er helzt að nefna allmikið aukin kaup og not blásara til að blása heyi í hlöðu. Vélvögurnar náðu einnig nokk- uð aukinni útbreiðslu. Úthlutunarnefnd jeppabifreiða úthlutaði 200 jeppum og er talið að um 170 þeirra hafi farið til bænda og annarra búnaðarnota. Eftirspurnin eftir þeim er enn ómettuð. SKÓLAR OG FRÆÐSLA Á Hólum eru 24 nemendur í vetur, 12 í hvorri deild, en 15 nemendur útskrifuðust vorið 1956. Á Hvanneyri eru nú 44 nem- endur, 12 í yngri deild, 22 í eldri deild og 10 í framhaldsdeild. 21 nemandi útskrifaðist vorið 1956. í Garðyrkjuskóla ríkisins á Reykjum eru 11 nemendur við bóklegt nám. í bændaskólum í Noregi voru 10 piltar við nám á árinu á veg- um félagsins ísland—Noregur. Einn lauk námi vorið 1956 og tveir í árslok 1956. Til Bandaríkjanna fóru 14 pilt- ar á vegum Búnaðarfélags ís- lands, en í boði Bandaríkjastjórn- ar til þess að læra viðgerðir á bávélum. Þetta var 3 mánaða ferðalag og farið víða yfir. Munu piltarnir hafa séð margt fróðlegt og víkkað mjög sjóndeildarhring sinn. Hin sérstaka búnaðarfræðsla á vegum Búnaðarfélags íslands og starf ráðunauta, er ferðast um sveitirnar, og sem undanfarin 2 ár var haldið uppi að nokkru með framlagi frá Bandaríkjun- um, hélt áfram á árinu, en þó í minni mæli, einn ráðunautur var á férð, vegna sýnisreita o. fl. Útgáfu fræðslurita var einnig haldið áfram fullum fetum. Prófessor Þórður Þórðarson frá Fargo í Norður-Dakota dvaldi hér á landi lengi sumars, sem sendiráðunautur frá Bandaríkj- unum, en í boði Búnaðarfélags íslands og því til ráðuneytis um fræðslustarfsemi í búnaði, skipu- lagningu búnaðartilrauna, starfs- íþróttir o. fl. Hinn kunni búvísindamaður Knut Breirem, prófessor við bún- aðarháskólann í Ási, kom til landsins snemma í nóvember í boði íslandsdeildar N.J.F. og fé- lagsins Ísland-Noregur, og hélt 2 fyrirlestra í Reykjavík og 1 á Akureyri, um votheysverkun og fóðrun. Er nokkur nýlunda að slíkri heimsókn. Um starfsíþróttirnar var frem- ur hljótt — alltof hljótt — á ár- inu. En þess ber að geta, sem mætti marka timamót til vakn- ingar, að íslenzkur unglingar tóku þátt í Norðurlandamóti, sem haldið var í Svíþjóð. Er það fyrsta þátttaka héðan á slíkum vett- vangi. í vetur starfa 8 (7) húsmæðra- skólar í sveitum. í þeim eru 253 (219) nemendur. Húsmæðra- kennaraskólinn starfar ekki í vet ur, en 13 nemendur luku þar prófi vorið 1956. í héraðsskólunum 8 (8) eru í vetur 724 (660) nemendur. — í Mennt.askólanum á Laugarvatni eru 98, í 4 deildum. Einnig eru þar 7 búfræðingar, sem auka- nemendur í vetur, sem eru að búa sig undir nám í Framhalds- deildina á Hvanneyri. HIÐ NÝJA ÁR Þegar ég er að ljúka við að taka saman þessar sundurleitu upplýsingar hringir síminn, það er lítil nýlunda, en erindið er mikil nýlunda. Beðið er um upp lýsingar um, hvort hægt aé að fá keypt hér á landi, svo um muni af góðri töðu, til flutnings til eins af nágrannalöndunum og notkunar þar. Venjulega hefði bessu verið fljótsvarað neitandi. Nú er málið tekið til athugunar. Þótt ekki sé hægt að vera bjart- sýr.n um jákvæða niðurstöðu, sökum dýrra flutninga og óhag- stæðs verðlags innanlands, sam- anborið við verðlag í öðrum löndum, er þetta ekki ómei kilegt fyrirbæri, því að taðan er til — Mér verður hugsað til fyrstu starfsára minna hér fyrir 35 ár- t’m er ég var hvað eftir annað riðinn við að útvega hingað hey frá Noregi, jafnvel til notkunar á búum ríkisins, og mér verður hugsað til allra þeirra ára á þe rsu tímabili, þegar gripa hefir orðið til óvenjumikilla og dýrra nota á íóðurbæti, sökum heyleysis. Erum vér nú loks að komast svo langt, að yfirvofandi heyleysi sé ekki lengur sú hengingaról, sem | sé íilbúin að herða að hálsi bónd- ans. Erum vér að komast svo langt að alltaf verði einnvers staðar á landinu svo mikill og góður hey- skapur, að hey sé alltaf að fá, ef illa heyjast annars staðar. Slíkt eru stórir hlutir, því að nú leyfir tæknin heyflutninga sveita á milli, langt umfram það sem áð- ur var, þó að eigi megi gleyma þvi að slíkur flutningur getur orðið dýr, t.d. í aftaka árum, þegar land er hulið jökli fram á vor. Þetta smádæmi, sem ég hefi nefnt, er svo sem ekkert fyrir- heit um það, að nú sé senn öllum vanda úr vegi rutt í búskapnum, það eru tölurnar um Mjólkurbú Flóamanna ekki heldur, en mikla sögu hafa þær að segja um breytta búnaðarhagi, og um það hvað af búskap drýpur í góð- sveitum landsins. Bændan 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 bíða enn mörg vandamál, til at taka á með bjartsýni. Stærsta, en um leið gleðilegasta vandamálið, feví vandamál geta svo sem verið gleðiefni, er hin stóraukna fram- leiðsla, sem ekki sér fyrir endan á, sem betur fer. Vandinn er að framleiða rétt og hagkvæmlega. Of mikil mjólk og of mikið kjöt, er hér nú fyrir dyrum? Það er sagt, og það af ráðamönnum, að vel megi við'una, ef bændur fram leiða kjöt, sem ekki þarf að verð- bæta meira en til jafns við fisk til útflutnings. Er mikið til í því, þegar þess er minnzt, að sá fiskur er dreginn úr sjó á beztu fiskimiðum veraldar. Samt er þessi huggun engín þjóðhagsleg lausn, hér er því vanda við að glíma, að afla betri markaðs fyrir kindakjötið á einhvern hátt, það er engan veginn vonlaust. Svo er spurningin: er hægt að framléiða kjötið ódýrara? Og þá vaknar önnur spurning: eru fjárbúm of lítil og of mörg? Margt bendir til þess að svo sé. Eigi er minna athugunarefni hvað mikið má fjölga sauðfénu og hvernig án þess að ofbjóða beitarþoli lands- ins? Hér kemur margt til, meiri framræsla mýrlendis, og rækt- un haga á annan hátt, betra skipulag á notkun afrétta, haust- beit á ræktuðu landi o. s. frv. í nautgriparæktinni og mjólk- urframleiðslunni eru eigi minni viðfangsefni. Tvennt er mest um vert: Að draga úr hinum gengd- arlausa iinflutningi og notkun fóðurbætis, sem nú á sér stað, beinlínis til þess, að einum þræði, að framleiða mjólk, sem betur borgar sig að hella í Ölfusá (eða aðrar ár) heldur en að gera að markaðsvöru á þann hátt, sem nú mun verða að gera að nokkru leyti. Þannig er í raun og veru á- statt um hluta af undanrennu, sem fyrir hendi er í sumum mjólk urbúunum. Breytt fóðrun naut- gripa, þannig að meira af fóðrinu sé heimafengið, er framfaraspor sem vel er hægt að stíga og verð- ur að stíga. Hið sama er að segja um kynbætur nautpeningsins. Undanfarna áratugi hefir ráðið sú skaðræðisstefna að kynbæta kýrnar nær einhliða eftir nyt og getu til að mjólka. Árangurinn er lélega vaxnir gripir og ó- hraustir. „f hverju spori er eins og þær stígi á stein“, segir Davíð skáld Stefánsson um mjólkur- kýrnar í lofkvæði sínu um kým- ar. Með þessum orðum hefir skáld- ið og bóndasonurinn sagt naut- griparæktí’rsérfræðingunum og bændum öllum meiri og alvar- legri sannindi, heldur en hann íklega hefir hugmynd um. Það er víst, að bændur væru betur settir með nokkuð minni meðal- nyt mjólkurkúnna, samfara meiri hreysti, og um leið minni að- keyptan fóðurbæti. Bændur í mjólkurframleiðslu- héruðunum hafa blátt áfram ver- ið blekktir, og þeir hafa blekkt sig sjálfir með einhliða lofræðu- skvaldri um aukna meðalnyt kúnna. Samanburður við liðna tímann hefir verið gerður án réttra raka, án þess að taka til- lit til tugmilljóna fóðurbætis- gjafar, sem áður var eigi fyrir hendi, og án þess að minnast á

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.