Morgunblaðið - 15.01.1957, Page 1

Morgunblaðið - 15.01.1957, Page 1
Breytingar á brezku stjórninni athyglis- verðar, en koma ekki á óvart London, 14. jan.: BREZKA ÚTVARPIÐ skýrði frá því í dag, að skipun Selwyn Lloyds í embaetti utanríkisráðherra hefði vakið nokkra and- stöðu í blöðum stjórnarandstöðunnar, en stjórnarblöðin hefðu fagnað henni. Yfirleitt koma breytingarnar á stjórninni blöðunum ekki á óvart, enda þótt þær séu athyglisverðar. „Times“ segir í leiðara, að menn undrist fremur það, sem Macmillan hefur ekki gert, en það sem hann hefur gert. Þrælarnir sluppu ekki Vínarborg, 14. janúar. Frá Reuter. FERÐAMENN, sem komu til Vínar í dag frá Sofia, sögðu frá því, að í Belene-þrælabúðunum i Búlgaríu hefðu hundruð fanga reynt að brjótast út, en verðirn- ir skutu á þá og komu í veg fyr- ir, að þeim tækist flóttinn. Þessir ferðamenn staðfestu fyrri fregn- ir þess efnis, að einstakir fangar hefðu komizt undan frá þrælabúð unum í Belene og í Varna. Fiskflök og varnir BANDARÍSKA tímaritið „U. S. News & World Report“ segir í frétt frá Washington 4. jan. s. 1., „Ákvörðun Eisenhowers forseta um að takmarka ekki innflutn- ing á fiskflökum er nátengd þeirri endanlegu ákvörfiun ríkis- stjórnar íslands að Ieyfa okkur að hafa áfram herstöðvar á hinu hernaðarlega mikilvæga eylandi“. Tala ráðherra í stjórninni hef- ur verið lækkuð úr 19 í 18. Sex ri-jherrar úr fyrri stjórn hafa látið af störfum fyrir aldurs sakir, en sex nýir komið í þeirra stað. Aðeins einn ráðherra hefur verið látinn fara úr stjórninni, Anthony Head, sem var land- varnaráðherra. Flest af mikil- vægari ráðuneytunum hafa ver- ið fengin í hendur yngri mönn- um. Níu af ráðherrunum úr fyrri stjórn halda áfram í sömu em- bættum, en níu ráðherrastólar fá nýja menn. ÖU blöð í Bretlandi lýsa ánægju sinni yfir tveimur atrið- Framh. á bls. 2 Kovach dregur sig í hlé Búdapest, 14. jan. Frá Reuter. IMRE KOVACH, íoringi ungverska smábændaflokksins, hefur dregið sig í hlé og lýst því yfir, að hann muni ekki taka þátt í stjórnmálum Ungverjalands framvegis. Hann átti sæti í hinni skammlífu stjórn Nagýs, sem mynduð var eftir uppreisnina í októ- ber. Yfirlýsing Kovachs útilokar, að hann hafi nokkurt samstarf við Kadar, en talið var, að Kadar hefði hug á að fá hann í stjórn sina. Banduríkin komo með nýjnr tillögur um nfvopnun New York, 14. jan. Frá Reuter. BANDARÍKIN HAFA lagt fram í stjórnmálanefnd Allsherjar- þingsins áætlun um bann við framleiðslu kjarnorku til ann- arra þarfa en friðsamlegra. Fulltrúi Bandaríkjanna, Henry Cabot STÚDENTAR lentu í allsnörp- um átökum við lögregluna á göt- um Barcelona í dag, þegar fólk T j . , . , ,, .... . , . , neitaði að aka með sporvögnum Lodge, gerði grein fyrir þessan aætlun a fundi nefndarmnar i borgarinnari vegna þess að far_ dag. Sagði hann, að Bandaríkin vildu koma á algeru banni við tilraunum með kjarnorkuvopn í framtíðinni. Ennfremur væri nauð- synlegt að koma á alþjóðlegu eftirliti með geimförum og öðrum tilraunum með fjarstýrð tæki. Lodge lagði áherzlu á, aU Bandaríkin væru reiðubúin til afvopnunar svo fremi raunhæft alþjóðlegt eftirlit væri haft með henni, þannig að möguleikinn á skyndiárásum væri úr sögunni. Hann kvað slíka kröfu ekki vera duttlunga af hálfu Bandaríkj- anna. Því aðeins væri afvopnun framkvæmanleg og friður örugg- ur, að allir tækju þátt í henni undir eftirliti S.Þ. FIMM TILÖGUR Lodge benti á 5 atriði, sem keppa yrði að, þegar umræður um afvopnun hefjast að nýju: Kommúnistor tapn í Pnrís París, 14. janúar. í GÆR fóru fram aukakosn- ingar í Parísar-kjördæminu á vinstri bakka Signu. Úrslit urðu þau, að íhaldsmaðurinn hélt sæti sínu með svipuðu atkvæðamagnl og áður. Hann er eindreginn stuðningsmað- ur stjórnarinnar í Alsír-mál- inu. Jafnaðarmaðurinn hélt einnig sæti sínu, en atkvæða- magn kommúnistans hrapaði úr 29% í síðustu kosningum niður í 20% í kosningunum i gær. 1) Stöðva bæri viðleitnina til að koma sér upp æ auknum Framh. á bls. 2 Róstur á Spani gjold höfðu verið hækkuð. Marg- ir stúdentanna voru handteknir. í einum sporvagni voru allar rúð- ur brotnar fyrir utan háskóla- bvgginguna. Neðanjarðarbrautirn ar störfuðu með svipuðum hætti og áður, en nærri allir sporvagn- ar óku tómir. Sýrlendingar handtöku starfsmenn S.Þ. Það var ekki vitað fyrr en i fyrradag, að Kadar væri staddur í Moskvu. Hefur hann þar tekið þátt í mörgum Ieynifundum mcð Sjú En-Laí, forsætis- og utan- ríkisráðherra Kína, Krúsjeff, Búlganin, Sjepilov og Mikojan, sem haldnir voru í Kreml. Þess- ir fundir virðast vera liður i hin- um víðtæku ráðstefnum komm- únistaleiðtoganna, sem miða að New York, 14. janúar. Frá Reuter. ÞAÐ var opinberlega tilkynnt í dag, að hinn 5. nóv. s. 1. hefði sýrlenzka herlögreglan handtek- ið tvo starfsmenn flóttamanna- stofnunar S. Þ. á skrifstofu hennar í Damaskus. Annar þeirra var yfirmaður skrifstofunnar. Mönnunum var haldið í sex klst. og síðan sleppt með því skilyrði, að þeir færu úr landi þegar í stað. Þessi atburður gerðist skömmu eftir að Sýrlendingar höfðu slitið stjórnmálasambandi við Breta og Frakka. Forstjóri stofnunarinnar Henri Labouisse, hefur lagt fram skýrslu um málið, og segir þar, að lögreglan hafi tekið skó, belti og hálsbindi af tvímenningunum. Voru þeir sakaðir um óhæfilegt framferði. Ásakanir lögreglunnar voru mótsagnakenndar. í einu til- felli var sagt, að annar mann- anna hefði kveikt á • eldspýtu, þegar loftvarnamerki var gefið, en samkvæmt umsögn annars lögreglumanns átti hann að hafa farið niðrandi orðum um sýr- lenzkan stjórnmálamann. Ásak- anirnar voru aldrei sannaðar, og báðir mennirnir neituðu þeim. Bogarf láfinn New York, 14. janúar, Frá Reuter. HINN kunni bandaríski kvik- myndaleikari Humphrey Bogart, lézt á heimili sínu í Hollywood í dag, 56 ára gamall. Gekk hann undir uppskurð við krabba 1 hálsi í marz s. 1., en varð aldrei heill heilsu. Var hann mjög þungt haldinn síðustu vikurnar. Bogart hefur leikið í fjölda kvikmynda, fékk m. a. Oscar-verðlaunin fyr- ir leik sinn í „Afríkudrottning- unni“ og mikla viðurkenningu fyrir leikinn í „Caine-uppreisn- inni“. Hann var kvæntur leik- konunni Laureen Bacall. Aftakaveður í Danmörku Kaupmannahöfn, 14. jan. Frá NTB. GEYSILEGUR stormur gekk yfir Danmörku og Norður- Þýzkaland í nótt, sem leið. Þegar er vitað um 6 Dani, sem létu lífið af völdum hans. í Slésvík var sjógangur svo mikill, að öldurnar brutu niður varnargarðana við Eystra- salt, og víða í Danmörku varð mikið tjón. Af Dönunum sex, sem drukknuðu, voru fimm fiskimenn frá Borgundarhólmi. Tveir bræður, sem voru á leiðinni til hafnar í Nexö, fórust, þegar holskefla reið yfir bátinn. Mörg hundruð manns, sem stóðu á ströndinni, urðu vitni að slysinu, en fengu ekki að gert. Meðal áhorfendanna var bróðir mann- anna, sem fórust. Hann stóð nú einn eftir af fimm bræðrum. Tveir bræður hans drukknuðu fyrir nokkrum árum. Þrír aðrir sjómenn frá Borgundarhólmi drukknuðu, er þeir voru að veiðum nálægt Christiansö. Hinn sjötti þeirra, sem drukknuðu í nótt, var ungur maður frá Óðinsvéum, sem var á sjó í smábáti. því að tryggja samstöðu þeirra og einhug. Sjú En-Laí er nú staddur í Varsjá í þriggja daga opinberri heimsókn, en heldur síðan til Búdapest, þar sem hann mun að líkindum eiga frekari viðræð- ur við Kadar. Spaak í Lundúnum London, 14. janúar. Frá Reuter. SPAAK, utanríkfisráðh. Belgíu, kom til Lundúna i dag til að ra’ða við brezka ráðamenn. í kvöld snæðir hann með Selwyn Lloyd, utanríkisráðherra en hann mun einnig eiga viðræður við Macmillan forsætisráðherra. Er- indi hans er m. a. það að leita fyrir sér hjá Bretum, hvort þeir vilji eiga aðild að áætlun um sameiginlega markaði, sem sex ríki Vestur-Evrópu hafa komið sér saman um. Þessi ríki eru Ítalía, Frakkland, Þýzkaland, Belgía, Holland og Luxemburg. Spaak tjáði fréttamönnum, að hann væri vongóður um árang- ur fararinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.