Morgunblaðið - 15.01.1957, Blaðsíða 8
8
MORGVNBLAÐ1Ð
ÞriSjuctagur 15. Janðar 1957
wðntiMitfelfe
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavik
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónssun.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjamason frá Vigur.
Einar Ásmundsson.
Lesbók: Ámi Óla, sími 3045.
Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 1600
Áskriftargjaid kr. 25.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 1.50 eintakið.
Er það stefna ríkisstjórnar-
innar allrar? .
EINAR OLGEIRSSON, formaður
stærsta stjórnmálaflokksins, sem
styður núverandi ríkisstjórn, rit-
aði s. 1. laugardag grein í „Þjóð-
viljann", þar sem hann gerði
utanríkismál og afstöðu íslands
til alþjóðamála að umtalsefni.
Komst hann þar að tveimur meg-
in-niðurstöðum.
Hin fyrri þeirra var sú að „alþýðu
stéttir og sósíalismi hafi völdin í
þriðjungi veraldar, þar sem auð-
valdi og aðli hefur verið steypt
af stóli. Og jafnframt þessu styð-
ur svo sterk verkalýðshreyfing
'auðvaldslandanna í Evrópu þjóð-
frelsisbaráttuna við auðvald
heimalandsins".
Þetta segir formaður kommún-
istaflokksins á íslandi, sem nú
er formaður stærsta stjórnar-
flokksins í landinu og einn af
forsetum Alþingis.
Eftir þessi ummæli þarf eng-
inn að fara í neinar grafgötur um
afstöðu kommúnista á fslandi til
þeirra atburða, sem verið hafa
að gerast í þeim löndum, sem
hinn alþjóðlegi kommúnismi hef-
ur svipt sjálfstæði. Einar Olgeirs-
son segir fullum fetum, að „al-
þýðustéttir og sósíalismi“ hafi
völdin í „þriðjungi veraldar“.
Þrátt fyrir allt heldur þessi
harðsoðni einræðissinni sér við
Moskvulínuna. Hann heldur
því enn fram við íslendinga
að barátta kommúnista sé
„þjóðfrelsisbarátta“. Og hann
játar hreinskilnislega að verka
lýðshreyfingu Vestur-Evrópu
sé beitt í þessari baráttu.
Yfirlýsing Krúsjeffs um glæpi
Stalins, uppreisnin í Póllandi og
blóðbaðið í Ungverjalandi hafa
engin áhrif haft á Einar Olgeirs-
son. Hann telur baráttu kommún-
ista, einnig í Ungverjalandi og
Póllandi, eftir sem áður „þjóð-
frelsisbaráttu“!!
Það er mjög gagnlegt að ís-
lenzkur almenningur skuli hafa
séð þessa yfirlýsingu frá for-
manni kommúnistaflokksins hér
á landi. Leiðtogar hans fylgja
Moskvulínunni. Þeir telja Kadar
hinn ungverska heyja „þjóð-
frelsisbaráttu“ með rússneskum
skriðdrekum og stórskotaliði, sem
beitt er gegn verkamönnum og
menntamönnum, alþýðu manna í
Búdapest og öðrum ungverskum
borgum og byggðum.
Atlantshafsbandalagið
á að leysa upp
Þegar formaður íslenzka komm
únistaflokksins hefur lokið við að
lýsa „þjóðfrelsisbaráttu“ komm-
únista í Austur-Evrópu og víðar
snýr hann sér að innanlandsmál-
unum.
„En hvað getum við íslending-
ar gert í þessum rnálurn?" spyr
Einar Olgeirsson.
Svar hans er á þessa leið:
„ísland á að beita sér fyrir
upplausn Atlantshafsbandalags-
ins“. Og enn segir hann:
„ísland á að taka upp sína
fornu hlutleysisstefnu og hvetja
aðrar Evrópuþjóðir til að gera
það líka“.
Þetta er þá stefna stærsta
stjórnarflokksins á íslandi í
dag.
ísland á að beita sér fyrir
upplausn Atlantshafsbanda-
lagsins og taka upp sína „fornu
hlutleysisstefnu“.
Hvað segja
samstarfsflokkarnir?
Af þessu tilefni er nauðsyn-
legt að beina þeirri fyrirspurn
til Framsóknarflokksins og Al-
þýðuflokksins, sem sitja í ríkis-
stjórn með kommúnistum, hvort
þeir séu sammála þessari yfir-
lýsingu formanns kommúnista-
flokksins. Er þetta stefna ríkis-
stjórnarinnar í heild?
Undanfarna mánuði hafa blöð
og leiðtogar þessara flokka lagt
sérstakt kapp á að lýsa yfir holl-
ustu sinni við varnarsamtök vest-
rænna þjóða. Þeir hafa hvað eftir
annað lýst því yfir, að ríkisstjórn-
in vildi hafa sem nánasta og
bezta samvinnu við þessi sam-
tök.
Nú kemur formaður stærsta
stjórnarflokksins og lýsir því
yfir að hann leggi það til, að
Atlantshafsbandalagið verði
lagt niður.
Það er mjög æskilegt, að
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn svari því, sem
fyrst, hver afstaða þeirra sé
til þessarar tillögu kommún-
istaflokksins, sem þeir eiga nú
náið stjórnarsamstarf við.
Jafnvægið í byggð
landsins
Á s. 1. vori meðan Framsóknar-
flokkurinn var ennþá í ríkisstjórn
með Sjálfstæðisflokknum urðu
Framsóknarmenn til þess að írv.
um jafnvægissjóð og ráðstafanir
til þess að auka jafnvægi í byggð
landsins dagaði uppi á Alþingi.
Höfðu þeir það helzt á móti þessu
frv. að stjórn jafnvægissjóðs
skyldi kosin af Alþingi og að
kommúnistar fengju þá fulltrúa
í stjórn hans.
F.ftir kosning ir tóku Framsókn
armenn svo kommúnista með sér
í sjálfa ríkisstjórn landsins.
Af þessu verður ekki annað
séð en að Framsókn hafi bein-
línis verið mótfallin ráðstöfunum
til þess að auka jafnvægi byggð-
arinnar og þess vegna hindrað
"ramgang jafnvægisfrv. á s. 1.
^ori, sem að vísu náði miklu
skemmra en Sjálfstæðismenn
vildu.
Það situr því illa á Tímanum
nú, að ætla sér að teljs, fólki trú
um, að Framsóknarflokkurinr.
hafi miktu aírekað í þessum þýð-
ingarmikluxmálum, eða að mikið
traust sé á hann setjandi vegna
forystu um jafnvægisráðstafanir.
mcirxiMzu
L
ari verið í „sérstæðum skóm".
„Þeir voru allt of stórir — breitt
gap var á milli öklans og skó-
brúnarinnar, sem á að falla að
hælnum........ Undarlegt ....
geta þetta hafa verið skór hertog-
ans af Edinborg?“ Blaðamaður-
inn fékk skömmu síðar orðsend-
ingu þess efnis, að þetta hefðu
verið veiðiskór drottningar.
E nglendingar hafa mjög
nákvæmar gætur á ríkiserfingj-
anum, Charles prins, og hika yfir-
leitt ekki við að gagnrýna drottn-
ingu og mann hennar harðlega,
ef þeim þykir eitthvað ábóta-
vant hvað viðvíkur uppeldi
Charless, sem nú er 8 ára. f
haust tilkynnti maður drottning-
arinnar, Philip, hertoginn af
Edenborg, að Charles yrði ekki
kennt meira í hnefaleikum en
hann hefði þegar kennt honum
sjálfur. í skóla mundi Charles
hins vegar leggja stund á knatt-
spyrnu í stað hnefaleika. Ekki
alls fyrir löngu tók prinsinn svo
þátt í fyrsta knattspyrnuleikn-
um — og lék hann með skólafélög
um sínum, jafnöldrum, sem eru
31. Knattspyrnuþjálfari leiðbeindi
piltunum — og á mýndunum má
sjá, að líf hefur verið í tuskun-
um.
T il þessa fyrsta knatt-
spyrnuleiks kom Charles akandi
í stórri svartri bifreið — og var
í fylgd með honum leynilögreglu-
maður. Stóðu bæði bifreiðastjór-
inn og leynilögreglumaðurinn
álengdar á meðan prinsinn var
í leiknum, og fylgdust þeir ná-
kvæmlega með öllum hreyfing-
um hans. Að leiknum loknum
héldu þremenningarnir þegar
heimleiðis í svörtu bifreiðinni, en
knattspyrnuþjálfari og 31 8 ára
drengir stóðu á leikvellinum og
horfðu á eftir bifreiðinni þar til
hún hvarf: Þeir höfðu leikið við
prinsinn.
E nda þótt segja megi,
að töluverðrar óánægju hafi
gætt, er tilkynnt var, að prins-
inum yrðu ekki kenndir hnefa-
leikar — þá var það ekki sam-
bærilegt við hina almennu
óánægju, er atvik nokkurt olli á
dögunum. Þannig er mál með
vexti, að nokkrum sinnum á ári
fer Elísabeth í smáveiðiför, sem
að sjálfsögðu er ekki í fíásögu
færandi, því að slíkt má frekar
telja hefð en beina veiðilöngun.
En hvað um það. Fyrir skömmu
fór drottningin í eina slíka veiði-
ferð, og leyfði hún Charles syni
sínum með.
Þá var það, að félag eitt, er
vinnur gegn iðkun „ósæmilegra“
eða „grimmdarfullra“ íþrótta,
skaut á skyndifundi og gerði svo-
hljóðandi ályktun, sem var send
drottningu þegar í stað: Mikill
hluti þjóðarinnar finnur til mikils
sársauka vegna þess, að drottn-
ingin — sem móðir — skuli efla
hina grimmúðugu með því að
gera það opinbert, að hún álítur
slíka skemmtan hæfa áhrifa-
gjörnu barni.
E n það var ekki nóg
með að hinar fínu ensku taugar
særðust vegna þeirrar ónærgætni,
er drottningin sýndi þjóð sinni
með því að leyfa prinsinum að
horfa á fugla drepna, því að síð-
ar var veitzt að henni með háði í
einu Lundúnablaðanna, „London
Daily Express“. Þar var sagt, að
drottningin hefði í veiðiför þess-
Uin öra fólksfjölgun í
Kína veldur kommúnistastjórn-
inni vaxandi áhyggjum. Nú fæð-
ast um 12 milljónir Kínverja ár-
lega umfram þá, sem látast. Ef
slíku heldur áfram, verða Kín-
verjar orðnir 1 billjón að tölu
árið 1980.
Kommúnistastjórnin státar
mjög af því, að uppbyggingin hafi
gengið vel, en samt sem áður
viðurkennir hún, að heldur dragi
sundur en saman með matvæla-
framliðsluaukningunni og fjölg-
un landsmanna. Fæðuskorturinn
fer því vaxandi. Fyrir alllöngu
heyrðist það, að stjórnin hefði
í hyggju að takmarka barneignir,
en þar var bara sá ljóður á, að
Marxisminn gerir ráð fyrir því,
að hægt sé að metta alla munna
án þess að til slíkra aðgerða
þurfi að grípa. Þess vegna var
ákveðið að láta þá, sem ekki
gátu aflað sér matar, frekar falla
úr hor en að brjóta boðorð hins
heilaga Marx. Nú er þó svo kom-
ið, að kommúnistastjórnin hefur
ekki getað setið lengur auðum
höndum. Kínverskur talsmaður
skýrði frá því fyrir skömmu, að
ákveðið væri að hefja takmörkun
barneigna. Stefnt yrði að því, að
þjóðin stæði í stað. Fæðingar
yrðu árlega jafnmargar dauðs-
föllum.
Járnbraufarsamgöngur
BÚDAPEST, 9. jan. — Það var
tilkynnt í dag að járnbrautarsam-
göngur við Belgrad hæfust á
morgun og við Vínarborg á mánu
daginn. —Reuter.
Sameining Kóreu
NEW YORK, 11. jan. — Alls-
herjarþing Sameinuðu þjóðanna
samþykkti í dag með 57 atkvæð-
um gegn 8 atkv. kommúnista-
landanna að stefna bæri að því
að sameina alla Kóreu.
Til þess að nú því takmarki að
sameina landið vilja S. Þ. að
haldnar verði leynilegar lýðræðis
legar kosningar í allri Kóreu und
ir eftirliti fulltrúa S. Þ. —Reuter.
Aldrei verður Charles landsliðsmaður, enda þótt hann nái með
timanum leikni í knattspyrnunni. Þjálfarinn er til vinstri — og
einn leikbræðranna að baki.
í skemmtilegum leik getur gáski hlaupið í prinsa sem aðra. Charles
til vinstri.