Morgunblaðið - 15.01.1957, Page 10

Morgunblaðið - 15.01.1957, Page 10
w Moncinvnr aoið ÍTÍSjudagur 15 janúar 1957 „Sem betur fer eru gestirnir byrjaðir að kvarta“ Halldór, að menn snæði hann sér til ánægju. Einn fær hann mánaðarlega sem meðal við brjóstsviða, annar borðar hann regluiega sér til hægðarbóta, og Þórbergur kemur alltaf öðru hverju og fær bita, en ekki veit ég hvort hann snæðir hákarl- eru útlendingar hrifnari en há- karli og brennivíni, og þá undr- ast þeir okkar matargerð mest, þegar þeim er skýrt frá hvernig hákarlinn sé búinn til matar. Það eru ekki einungis ís- lendingar, sem sækja Naustið, þangað hafa komið menn af öll- um kynþáttum, Kínverjar, Ind- verjar og hvers konar ferða- langar, sem konungurinn og drottningin af Danmörku og okk- ar eigin forsetahjón. Kjörorð Nautsins er: „Alltaf opið“, og því er rækilega framfylgt, aldrei lokað nema á aðfangadags- og Spjallað við Halldór Gröndal torsfjóra í Nausti um hákarl og brennivín, sálfrœði veitingahússins og gömul veiðarfœri JJVERN skyldi hafa grunað, svona að óreyndu að minnsta kosti, að vinsælasti kokteillinn, sem við drekkum heiti þessa stundina því göfuga nafni „asni“ rússneskur „asni“! Já, meira að segja Hann er gerður úr vodka, sítrónusafa og engiferöli, ef einhver skyldi vilja brugga sér hann. Og hvern skyldi gruna, að við íslendingar værum sífellt vaxandi í þjóðlegum mat- arsmekk okkar, þannig að ávallt eru það fleiri og fleiri sem hiðja um hákarl sér til kræsinga og síldin verður vin- sælli réttur með hverju misserinu. jþetta sagði mér Halldór Gröndal veitingamaður, sem veitir forystu Naustinu hér við Vesturgötuna, þar Þetta skiprúm heitir Röst, það næsta Sæhrímnir, svo sem á myndinni sést. 1 Nausti er unnt að borða sem áður voru fiskverkunarhús Geirs Zoéga og Útgerðar fyrir 15—150 krónur, að víninu undanskildu, og velja á milli 60 rétta. Halldór mælir með réttunum hans. Það má segja, að ekki fari illa á því, að í dag séu °*» Þí®nn tendrar hitarann. snæddir síldarréttir, og að með römmum hákarli sé kneifað íslénzkt brennivín í þeim húsakynnum, þar sem áður stóðu línustampar og net hengu úr rjáfri. Enn þann dag í dag er allt stílað upp á sjóinn í þeim gömlu skúrum, að vísu er þaðan ekki lengur aflað fanga úr sjó, heldur má snæða þar sjómeti, fjölbreyttara og ríkulegra en nokkurt annað íslenzkt veitingahús hefir upp á að bjóða. Svífur að hausti og svalviðrið gnýr. Sækið að Nausti og sérhver er hýr! (Höfundur: Árni Snævarr eða Hörður Bjarnason eða Hinrik Sv. Björnsson). ingahúsi við þau, sem þegar störf uðu í Heykjavík. Og flestir bæjarbúar munu hafa verið þeim sammála. Þeir hófust handa og fyrir tveimur árum opnaði Naustið, sem nú er þegar orðið landsþekkt, þótt ekki sé fyrir annað en hákarlinn. inn sér til heilsubótar eða af ánægjunni einskærri! Mjög erfitt reynist að ná í hákarlinn. Lengi vel fékk Halldór hann frá frænda sínum, sem var skútukarl í gamla daga, en nú fær hann hákarlinn frá Helgustöðum í Reyðarfirði, frá bóndanum þar. Hákarlinn er vin- sælasti og um leið sérstæðasti rétturinn okkar, segir Halldór og það væri skaði fyrir þjóðlega matargerð ef ekki yrði unnt að fá hann í framtíðinni. Aí fáu gamlárskvöld. Og eins og áður er sagt er úrvalið allt frá þjóð- legum, gömlum íslenzkum mat, síldin sem alltaf eykst að vin- sældum, hákarl, rækjur og hum- ar, til hinna fjölbreytilegustu frönsku og ítölsku rétta, hátt upp í-það sem í hirðveizlum gerist. Sem betur fer kvarta gestirnir alltaf meira og meira, segir Hall- dór og þegar ég bæti því við, að mér þyki þetta iieldur skrýtin athugasemd frá forstjóra veit- ingahúss, skýrir Halldór það frek ar. Okkar hlutverk er að gera gestina ánægða og þá aðeins er Þangað koma nú árlega um 60.000 manns, eða jafnmargir gestir og allir íbúar höfuðborg- arinnar. Mest er aðsóknin 17. júní, 5—600 manns, en iðulega 150 manns dag hvern. Vafalaust á Naust vinsældir sínar fyrst og fremst að þakka hinu sérkenni- lega andrúmslofti sem yfir veit- ingasölunum hvílir, hinum gamla sjávarsvala sjóbúðarblæ, sem tekizt hefir að skapa innan um hvíta dúka og fóðruð sæti, káetu- luktimar, hákarlaskutlamir, pilkarair á veggjunum, netin, kúlurnar og gömlu fjalimar með ágreyptum skútuheitunum, gera sitt til þess að færa gestinn í huganum aftur á miðja skútuöld, til þeirra tíma, er enn var eng- in bryggja í Reykjavik. Það er glas! Gömul skipsbjalla hangir í bita yfir vínstúkunni. Henni er hringt á miðnætti til merkis um að dagurinn í Nausti sé á enda kominn, veitingum hætt og mál fyrir gesti að týgja sig. er sérstæð um það, að 7 ungir menn, allir saman innan við þrítugt, og flectir enn við skóla- nám, komu sér saman um að ekki veitti af að bæta einu veit- Saga þess hvemig gömlu fiskverkunarskúramir hans Geirs Zoéga breyttust í ný- tízku veitingahús, með fágætu, þjóðlegu sniði, er séistæð. Hún Frá upphafi gerði Naustið sér far um að búa sérstaklega vel að gestum sínum um alla sjávar- fæðu. Þar eru daglega fram- reiddir 60 réttir sem gesturinn getur valið á milli og tekur 2— 20 mínútur að matreiða þá. Og stór hluti þeirra eru sjávar- föng. Naustið er eini veitingastaður- inn á íslandi þar sem unnt er að fá hákarl. Og það væri synd að segja, að menn kynnu ekki að notfæra sér það. Allmargir fá viku- og mánaðarlega hákarls- bita til þess að fara með heim til sín. Aðrir neyta hans að þjóð- legum sið í veitingahúsinu. En það er ekki nóg með það, segir Halldór Gröndal forstjóri Naustsins hefir það sér að tómstundar- gamni að safna gömlum sjóvinnuverkfærum. Hér heldur hann á hákarlsífæru, sem hangir uppi á vegg í Nausti. Þar má sjá margt fleira, hákarlssóknir, skálmar, netakúlur, pilka og skutla svo nokkuð sé nefnt. Allt gefur þetta veitingasalnum fornfánlegan sjóbúðarsvip.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.