Morgunblaðið - 15.01.1957, Síða 16
Veðrið
úrkomulaust — frostlaust.
Allhvast suðvestan, skýjað,
11. tbl. — Þriðjudagur 15. janúar 1957
I Nausti
Sjá bls. 10
Brezkur píanósnillingur
hér á vegum Tónlistarfél.
S í Ð A N Sinfóníuhljómsveitin
flutti hér við mikla hrifningu
óperuna II Torvatore, hefur verið
fátt um tónleika hér í bænum. —
En nú er hingað kominn á vegum
Tónlistarfélagsins, brezkur píanó
snillingur, Kendall Taylor. Hann
heldur tvenna tónleika fyrir
styrktarfélaga Tónlistarfélagsins
og verða þeir fyrri í kvöld.
Kendall Taylor er á leið í hljóm
Kendall Taylor.
leikaför um Kanada og Mið-
Ameríku. Mr. Taylor, sem er um
fimmtugt, er víðkunnur píanó-
snillingur — ekki aðeins heima í
Bretlandi því hann hefur víða
haldið tónleika á meginlandinu.
Eru blaðadómar hinna fremstu
dagblaða, mjög lofsamlegir. Eink-
úm þykir hann fara snilldarlega
með verk Beethovens. Mr. Taylor
er píanókennari við Royal Coll-
ege of Music í Lundúnum. Þar
er meðal nemenda hans Kristinn
Gestsson frá Dalvík, sem lauk
burtfararprófi frá Tónlistarskól-
anum hér vorið 1954.
Á hljómleikunum í kvöld mun
Mr. Taylor leika verk eftir Beet-
hoven, sónötu í c-moll op. 111,
sem var síðasta verk hans og er
þetta stærsta viðfangsefni Mr.
Taylors á hljómleikunum. Þá
leikur hann verk eftir Chopin,
Liszt, Bach og Haydn, ennfremur
þjóðdansa eftir M. Tajcevic, sem
er Júgóslafneskt tónskáld og
eins leikur hann preludíu eftir
landa sinn N. Fulton, en verk
eftir þessa tvo síðasttöldu hafa
ekki áður verið leikin hér. Hljóm
leikarnir verða svo endurteknir
annað kvöld, en þeir hefjast kl.
7 bæði kvöldin í Austurbæjarbiói.
Mr. Taylor heldur vestur um
haf um miðja vikuna.
Skip er var við björgun
Coðanessmanna í hœttu
UM hádegisbilið í gær barst um
það skeyti frá færeyska fiski
skipinu Vesturhafið blíða, að
skipið væri ósjálfbjarga hér úti
í Faxalfóa eftir að veiðarfæri
skipsins, línan hefði farið í
skrúfu skipsins.
En á meðan á þessu samtali
stóð við skipið, slitnaði samband-
ið við það. Hér óttuðust menn að
skipið væri í mikilli yfirvofandi
hættu.
Um klukkan 3.30 náðist sam-
band við skipið á ný og var þá
hægt að taka af því miðun. —
Reyndist það vera um 12 mílur
út af Malarrifsvita og var það
þá enn ósjálfbjarga. Skipið rak
þá að landi, en var djúpt undan.
Togarinn Jón forseti hafði far-
ið til veiða fyrrihluta dags í gær
og var hann beðinn að fara hinu
nauðstadda skipi til hjálpai. Sjór
var þungur hér í bugtinni og
sóttist ferðin því seinna. Var Jón
forseti væntanlegur Vesturhaf-
inu blíða til hjálpar milli klukk-
an 8 ög 9 í gærkvöldi. Skipstjór-
inn á hinu færeyska skipi ætlaði
að biðja togarann að draga sig
til Reykjavíkur.
Vesturhafið blíða er um 160
tonna skip. Það kom mjög við
sögu er Goðanes strandaði á dög-
unum við Færeyjar, en skipbrots-
menn voru teknir um borð í
skipið eftir björgunina af flaki
Goðaness.
Verður Hanni-
bal kastað
fyrir borð?
STERKUR orðrómur hefur
gengið um það undanfarið, að
til mála hafi komið innan her.
búða „vinstri stjórnarinnar"
að kasta bráðabirgðalagaráð-
herranum, Hannibal Valdi-
marssyni, fyrir borð og setja
bróður hans, Finnboga Rút, í
ráðherrastól hans.
Ástæða þessara ráðagerða
mun talin sú, að Hannibal hafi
staðið sig hraklega í ráðherra-
embætti sinu. Hann hafi hlaup
ið á sig hvað eftir annað og
m. a. gefið heimskulegar yfir-
Iýsingar á þingi, er varnarmál-
in voru rædd þar.
Ekkert skal um það fullyrt
að sinni, hvað ofan á kann að
verða í þessum efn<um. En vit-
að er, að Hannibal muni þykja
allillt að missa af stól sínum,
jafnvel þó að bróðir hans ætti
að erfa hann.
Tjón af völdum mikils
fárviðris í fyrrinótt
Flateyri, 14. jan.
f 7ESTAN-ROSI geisaði hér í nótt og fram yfir miðjan dag í dag.
Hefur veður þetta valdið talsverðum skemmdum hér.
-<3»
Sæmilegur afli hjá
Sfykkishólmsbáfum
STYKKISHÓLMI, 14. jan. — f
gær var landlega hjá bátunum
og er einnig í dag. Undanfarið
hefur afli verið sæmilegur og allt
upp að 7 lestum. Á laugardaginn
reru bátarnir síðast og voru þá
með um 6 lestir að meðaltali.
Fiskvinnsla er nú hafin í báð-
um frystihúsunum hér. Er at-
vinna því mjög að glæðast.
—Árni.
40 ára hljómleikaafmælis
Páls Isólfssonar minnzt
Æskulýðsráð Reykjavíkur gengsf fyrir sex kirkju-
hljómleikum í tilefni þess
ITILEFNI ÞESS, að dr. Páll ísólfsson, átti 40 ára hljómleika-
afmæli nýlega, gengst Æskulýðsráð Reykjavíkur fyrir sex
kirkjutónleikum. Tveir þeir fyrstu fara fram í Hallgrímskirkju,
miðvikudaginn 16. janúar n.k. kl. 8.30 og í Laugarneskirkju mið-
vikudaginn 23. jan. kl. 8,30. Frú Þuríður Pálsdóttir óperusöng-
kona, mun syngja innlend og erlend lög á hljómleikunum.
Að Vífilsmýrum, en það er tví-
Rúm 40 ár eru nú liðin frá því
að Páll ísólfsson hélt fyrstu org-
antónleika sína. Hélt hann þá 5.
marz, 1916 í Dómkirkjunni í
Reykjavík. Síðan hefur hann
haldið tónleika á eftirtöldum
stöðum: Leipzig, Berlín, Miinch-
en, Teplitz, Köln, Wissen, Kaup-
mannahöfn, Ósló, London, Eton,
Þróttmikil startsemi
FUS Stefnis í Hafnarfirði
Blöðin stöðvuð
UM síðustu helgi var af tollyfir-
völdunum, vegna ráðstafana rík-
isstjórnarinnar, lagt hald á all-
mikinn blaðapóst og tímarita,
sem kom flugleiðis um helgina
til bóksala hér í bænum. Var
þessi póstur enn undir lás og
slá í gærkvöldi.
Þetta stafar af því, að er rík-
isstjórnin setti lög um yfirfærslu
gjaldið, þá var ekki fyrir því
hugsað, hvernig innheimta skyldi
þetta gjald af blöðum og tíma-
ritum Er fyrrnefnd blöð og tíma
rit komu með flugvélum um
helgina, þá vár þetta gjald ekki
greitt og því komu starfsmenn
tollsins til skjalanna og lögðu
hald á þennan póst.
Einsdæmi mun það vera, að
blaðapóstur sé þannig stöðvað-
ur.
Nú mun það vera til athugun-
ar, að bóksalar er annast þennan
innflutning á blöðum og tímarit-
um, greiði í bönkunum jfir-
færslugjaldið um leið og þeir
greiða þar önnur gjöld fyrir
þessi blöð. En ekki var þetta þó
endanlega ákveðið í gær.
STEFNIR, F.U.S. í Hafnarfirði,
er að hefja starfsemi sína á þessu
ári. Hefst hún með því, að félag-
ið gengst að undirlagi stjórnar
S.U.S. fyrir stjórnmálanámskeiði,
sem standa mun yfir í tvo mán-
uði, en þar verður fjallað um
ýmsa þætti bæjar. og landsmál-
anna. Fundir verða haldnir viku-
lega í Sjálfstæðishúsinu í Hafn-
arfirði, og verður hinn fyrsti í
kvöld kl. 20.30. Hefst hann með
því að formaður Stefnis, Magn-
ús Sigurðsson, setur námskeiðið,
en að því loknu mun formaður
S.U.S., Ásgeir Pétursson, flytja
erindi um stefnu og skipulag
Sjálfstæðisflokksins og Guð-
mundur Guðmundsson, framkv.-
stj., um skipulag og starfsemi
Sjálfstæðisflokksins í Hafnar-
firði. Að því loknu verður sýnd
stutt kvikmynd.
Nánari tilhögun námskeiðsins
irnir verða með málfundasniði
verður þannig, að fyrstu fund-
þar sem áherzla verður lögð á
mælskuæfingar og þátttakendur
munu ræða hin ýmsu áhugamál
unga fólksins. Síðar á námskeið-
inu munu sérfróðir menn ílytja
erindi um ýmis efni og ræða við
þátttakendur um bæjar- og
landsmál, einkanlega þau, sem
efst eru á baugi á hverjum tíma.
Á hverjum fundi verður sýnd
stutt kvikmynd, og verður hún
valin með tilliti til þess efnis,
sem fjallað er um hverju sinni.
Stefnir hefur oft áður gengizt
fyrir stjórnmálanámskeiðum fyr-
ir æsku Hafnarfjarðarbæjar og
hafa þau ætíð verið vel sótt og
orðið þótttakendum til mikils
gagns og fræðslu um þjóðfélags-
mál. Er ekki að efa, að námskeið
það, sem nú er að hefjast, verði
vel sótt og geta þeir, sem hugsa
sér að taka þátt í því, snúið sér
til formanns Stefnis, Magnúsar
Sigurðssonar, síma 9372, sem gef-
ur nánari'Upplýsingar.
Óráðin gáta
EINN hinna 9. metra háu ljósa-
staura sem eru við Hringbraut-
ina, á móts við Gróðrarstöðina,
lá í fullri lengd sinni mölbrot-
inn á gangstéttinni síðdegis í gær.
Þetta var steinsteyptur staur.
Blaðið spurðist fyrir um þetta
hjá lögreglunni, en í hennar dag-
bók var ekkert um þetta getið.
Sennilegt er að eitthvert ökutæki
hafi verið að „kljást“ við staur-
inn. En það er sem sé óráðin gáta.
— Ekki töldu menn ástæðu til
þess að setja þetta nokkuð í sam-
bahdi við Úrsus, sem kominn er
aftur heim eftir alllanga útivist
og hygest nú sýna aflraunir.
Oxford, Chicago, Minneapolis,
Winnipeg og auk þess víða hér
á landi.
ORGELVERK ALLT FRÁ
17. ÖLD
í vetur og vor, leikur Páll
ísólfsson á mörg orgel í Reykja-
vík og verða fyrstu tónleikarnir
í Hallgrímskirkju miðvikudaginn
16. þ.m. og síðan í Laugarnes-
kirkju. Aðrir tónleikar verða svo
auglýstir síðar. Viðfangsefnin
verða valin eftir stærð og gerð
orgelanna. Mun Páll leika orgel-
verk allt frá 17. öld og fram á
vora tíma.
FLYTUR SKÝRINGAR
MEÐ VERKUNUM
Þuríður Pálsdóttir, óperusöng-
kona, syngur á öllum tónleikun-
um lög eftir innlenda og erlenda
höfunda. Páll ísólfsson mun
flytja skýringar með orgelverk-
unum. Allir verða tónleikar þess-
ir á vegum Æskulýðsráðs Reykja-
víkur.
býli, fuku hjá öðrum bóndanum,
Kristni Guðmundssyni, tvær
heyhlöður og fjárhús. Einnig
eyðilagðist að mestu fjós sem
áfast var fjárhúsunum. Munu um
100 hestar af töðu hafa fokið er
veðrið svipti hlöðunum burtu.
Hjá hinum bóndanum, Guðjóni
Hálfdanarsyni, fauk einnig hey-
hlaða og talsvert af heyi. Veðrið
mun hafa verið mest á þessum
slóðum.
STAURAR BROTNUÐU
Auk þessa brotnuðu í veður-
ofsanum nokkrir símaStaurar og
verkfærageymsluskúr fauk. Þá
varð verksmiðjan að Sólbakka
fyrir skemmdum, er hluti af þaki
hennar fauk og hér á Flateyri
tók þak af fjárhúsi.
VÖRUBÍLL FAUK
Stór vöruflutningabíll sem
stóð mannlaus á veginum
skammt frá Vífilsmýrum fauk út
af veginum og hvolfdi þá bílnum
og skemmdist. Slys á mönnum
voru ekki teljandi, en þó fékk
Guðmundur Arason bóndi snert
af heilahristing er stormsveipur
svipti honum ofan af heytóft að
Vífilsmýrum, þar sem hann á-
samt fleiri bændum var að bjarga
heyi.
★
Síðdegis í dag var veðrið enn
svo mikið að ekki var hægt að
vinna neitt við lagfæringar á því
sem skemmzt hafði í þessu fár-
viðri.
Mosvallahreppsbændur, en
þar í hreppi eru Vífilsmýrar,
munu hjálpa bændunum þar við
að lagfæra skemmdimar á hús-
um þeirra jafnskjótt og veður
leyfir. — Baldur.
★
Súgandafirði: —• í norðvestan
fárviðrinu hér í nótt sleit mótor-
báturinn Freyja ÍS-364 legufærin
og rak á land norðan við fjörð-
inn. f kvöld er ekki vitað hve
mikið tjón hafi orðið á bótnum
við þetta, en einhver leki hefir
komið að honum, því allmikill
sjór var kominn í hann um miðj-
an dag í dag.
r
Agæt sala
HAFNARFIRÐI — Ágúst seldi
í Bremerhaven í gær 175 lestir
fyrir 115 þúsund mörk. Röðull
kom frá Englandi á sunnudag-
inn og fer nú á saltfiskveiðar.
Bátarnir hafa ekki getað róið
síðan fyrir helgi sökum ógæfta.
Nokkrir bátar munu hefja netja-
veiðar héðan á næstunni.
Iðjufélagar,
félagsskírteini ykkar
sem fyrst
ANÆSTUNNI mun fara fram stjórnarkjör í Iðju félagi
verksmiðjufólks í Reykjavík og hefir verið ákveðið að
allsherjaratkvæðagreiðsla verði viðhöfð.
í haust er kosning til Alþýðusambandsþings fór fram i
félaginu voru þeir Iðjufélagar sviptir kosningarétti, sem ekki
höfðu undirritað inntökubeiðni í félagið og fengið félags-
skírteini þótt þeir jafnvel um langt árabil hafi greitt full
félagsgjöld.
Er því fastlega skorað á Iðjufélaga að tryggja sér full fé-
lagsréttindi nú þegar og sækja félagsskírteini sin á skrif-
stofu Iðju á Þórsgötu 1, en skrifstofan er daglega opin kl.
4—6 e.h.
Lýðræðissinnar í Iðju.