Morgunblaðið - 16.01.1957, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 16.01.1957, Qupperneq 11
Miðvikudagur 16. janúar 1957 MORGUNBLAÐ1Ð 11 Þorsteinn Þorsteinsson kaupmaður áttrœður Guðmundur Runólfsson járnsmíðameistari IVIinning HVER myndi trúa því, sem ný- lega hefur mætt Þorsteini Þor- steinssyni, kaupmanni, á förnum vegi, að hann ætti áttræðisafmæli í dag, en samt er þetta staðreynd, eftir því sem kirkjubækur og önn ur skilríki kunna frá að greina. En aldur sinn ber hann svo vel, að flestir myndu telja hann 10 árum yngri eða meira, enda hef- ur hann notið óvenjulega góðrar heilsu, tamið sér heilbrigða lífs- hætti og verið sístarfandi. Þorsteinn er Skaftfellingur að ætt, fæddur í Neðradal í Mýr- dal, 16. janúar 1877, sonur hjón- anna Þorsteins Þorsteinssonar, bónda þar, og Margrétar Jónsdótt ur, konu hans. Ólst hann upp í Mýrdalnum og vann þar öll al- geng sveitastörf, sem tíðkuðust á æskuárum hans. Þorsteinn var snemma bók- hneigður og þráði að afla sér menntunar. Fór hann í Flensborg- arskóla og útskrifaðist þaðan árið 1901, en varð síðan barnakenn- ari í Vík á árunum 1901 til 1905. Síðan gerðist hann verzlunar- maður við verzlun J. B. T. Bryde, í Vík, en verzlunarstjóri var þá mágur hans, Gunnar Ólafsson, síð ar konsúll og verzlunarstjóri í Vestmannaeyjum. Árið 1911, varð Þorsteinn verzlunarstjóri við Brydes-verzlun, en keypti síðar verzlunina, er hún var seld 1914, ásamt lóðum og mannvirkjum og rak hana fyrstu árin í félagi við Jón Þorsteinsson, hreppstjóra í Norðurvík, en síðar einn, en 1925 seldi hann Kaupfélagi Skaftfell- inga verzlunina og allar eignir sínar í Vík og fluttist til Reykja- víkur. Hélt hann þar áfram kaup- sýslu og verzlunarstörfum og hef- ur rekið verzlunina Vík á Lauga- vegi 52, síðan 1928. Þorsteinn kvæntist 1902 Helgu Ólafsdóttur frá Sumarliðabæ í Holtum, systur Gunnars Ólafs- sonar. Var frú Helga mikilhæf kona, eins og hún átti kyn til. Hún lézt 28. apríl 1943. Af sex börnum þeirra eru fimm á lífi: Margrét, er stundað hefur verzl- unarstörf, en stendur nú fyrir heimili föður síns. Ólafur, sjúkra- húslæknir í Siglufirði. Baldur, kaupmaður í verzluninni Fram á Klapparstíg, Ása, húsmóðir í Reykjavík og Hrefna, kennari, við kvennaskóla Reykjavíkur. Svipar þeim öllum mjög til foreldra sinna um dugnað og mannkosti. Meðan Þorsteinn átti heim í V.-Skaftafellssýslu, kom hann þar allmikið við sögu, bæði sem barnakennari, verzlunarstjóri og kaupmaður og áhugamaður um framfaramál héraðsins. Hann átti um skeið sæti í hreppsnefnd Hvammshrepps og var lengi gjald keri og forstöðumaður sparisjóðs V.-Skaftfellinga. í Vík var hann mjög virkur þátttakandi í öllum framfaramálum kauptúnsins. Vann hann að því að koma upp vatnsveitu og rafmagnsstöð íyrir kauptúnið, símalagningu, ásamt öðrum áhugamönnum þar á staðn um. Var Víkurkauptún eitt af fyrstu kauptúnum landsins, sem fékk rafmagn frá vatnsaflstöð og sími var lagður þangað tiltölu- lega fljótt. Þorsteinn var ágætur félags- maður, fylginn sér, vel máli far- inn og gleðimaður á öllum mann- fundum og glæsimenni hið mesta. Þótti því sjálfsagt, að Þorsteinn Þorsteinsson væri í fylkingar- brjósti í framfara- og félagsmál- um Víkurkauptúns á þeim árum. Heimili þeirra frú Helgu og Þor steins, í Vík, þótti jafnan 1 fremstu röð heimila þar um slóð- ir, bæði að híbýlaprýði og mynd- arskap öllum. Eftir að Þorsteinn fluttist hingað til Reykjavíkur hélt hann áfram kaupsýslu og hefur farnazt mjög vel. Hann hef- ur alla ævi verið mikill starfsmað ur, hygginn og gætinn kaupsýslu- maður. öll skrifstofustörf hafa farið honum sérstaklega vel úr hendi, sökum reglusemi, smekk- vísi og nákvæmni, og traustur og ábyggilegur hefur hann reynzt > öllum viðskiptum. Hér í Reykja- vík hefur hann gefið sig minna að félagsmálum en áður, en hef- ur þó starfað allmikið að bind- indismálum og félagsmálum templara og verið traustur liðs- maður Reglunnar, enda lítur hann svo á að reglusemi og heil- brigt líf sé öruggastur gæfuvegur hverjum manni. Þorstainn Þorsteinsson er enn ungur í anda og léttur á fót. Hann starfar hvern dag við verzl- un sína og s. 1. sumar tók hann sér ferð á hendur til Bandaríkj- anna, til þess að heimsækja syst- ur sína, sem þar er búsett, og ferðaðist þar víða um og hafði hina mestu ánægju af þeirri ferð. Á þessum tímamótum í ævi Þorsteins Þorstéinssonar munu margir senda honum hlýjar kveðj ur, því þeir eru ekki fáir, sem standa í þakkarskuld við hann LAUGARÁSSBÍÓ sýnir nú franska stórmynd er nefnist „Fávitinn“ og er gerð eftir sam- nefndri skáldsögu hins rússneska skáldsnillings Dostojevskis. — Er þetta stórbrotna skáldverk talið með mestu meistaraverkum heimsbókmenntanna enn þann dag í dag. — Kvikmyndin er einnig frábært listaverk og á allan hátt samboðið hinni miklu skáldsögu, enda afburðavel gerð og snilldarvel leikin. — Fjallar myndin um ungan, rússneskan fursta, Mysijkin, er dvalið hefur á hæli í Sviss, en er nú kominn heim til fæðingarborgar sinnar, þar sem honum er fálega tekið af auðugum og hátt settum ætt- ingjum sínum, sem álíta hann ekki með öllum mjalla. Hann á líka fátt sameiginlegt með þess- um hrokafulla yfirstéttarlýð, sem metur gildi manna einungis eft- ir peningum og metorðum, því að hann á til að bera þann ein- faldleik hjartans og þá djúpu samúð, er gerir menn skyggna á þjáningar mannanna og heyrir neyðaróp þeirra jafnvel í fögnuði og hlátrum samkvæmislífsins. Því tekur hann léttúðarkonuna fram yfir hina ungu hefðarmey, þegar hann á að velja á milli, af því að hann veit að hún þarfn- ast hans meir. En harðýðgi mannanna og miskunnarleysi lífsins, verður þessari viðkvæmu og fíngerðu sál að lokum ofviða Og þá krýpur hann að helgimyndinni og spyr í angist sinni: „Hvers vegna þjást menn- imir svo átakanlega, hvers vegna eru þeir svo fátækir í auðlegð sinni, svo áhyggjufullir í innan- tómri gleði sinni?“ En hann fær ekkert svar og þjáning hans og örvænting ræna hann vitinu. Þetta er alvöruþrungin mynd ®g stórbrotið listaverk, í senn og heimili hans, bæði fyrr og síð- ar. Og um leið og ég sendi Þor- steini beztu árnaðaróskir á þessu merkis afmæli hans, þakka ég honum og fjölskyldu hans fyrir allt gott á liðnum árum. Óskar J. Þorláksson. Vísilala framfærslu- kosfnaðar KAUPLAGSNEFND hefur reikn að út vísitölu framfærslukostn- aðar í Reykjavík hinn 1. janúar s. 1. og reyndist hún vera 186 stig. Frá viðskiptamálaráðun. HÖFN í Hornafirði, 10. jan.: — Þar til í dag, hefur stöðugt rignt hér í Hornafirði. Veðráttan hefur verið hlý en mjög úrkomusöm. í dag hefur snjóað allmikið, logn og kafald. Nokkur bleyta er í snjónum og lítur út fyrir rigningu innan skamms. — Gunnar. heillandi og átakanleg, enda mun hún lengi verða minnisstæð þeim sem sjá hana: Leikur Gér- ards Philippe í hlutverki hins unga fursta er innblásinn og snilldarlegur, enda hlaut hann heimsfrægð fyrir leik sinn í þess- ari mynd. Þá er einnig ógleym- anlegur leikur Edwige Feuillére í hlutverki hinnar fögru, en létt- úðugu Nastasju. Aðrir leikcndur fara einnig ágætlega með hlut- verk sín. Mynd þessi er, að mér finnst, einhver áhrifamesta og bezt gerða mynd sem hér hefur verið sýnd um langt skeið og vil ég eindregið hvetja menn til að sjá hana. Á fundinum var ákveðið, að hefja þegar á næsta vori, bygg- ingu bókhlöðu í Stykkishólmi og verður henni valinn staður þar sem gamla bókhlaðan var á Þing- húshöfðanum. Er gert ráð fyrir, að framkvæmdum öllum verði hraðað svo húsið verði tilbúið hið allra fyrsta. í LEIGUHÚSNÆÐI Þessi staður sem valinn hefur verið, er með fallegustu stöðum í bænum og mjög er víðsýnt þaðan. Að undanförnu hefur bóka HANN andaðist á Landspítalan- um sl. 3. september, og var jarð- sunginn frá Fossvogskapellu af sóknarpresti sínum, séra Garð- ari Svavarssyni, hinn 10. s. m., að viðstöddu fjölmenni. Engan veginn hæfir, að hann „liggi óbættur hjá garði“ þann- ig, að hans sé ekki að nokkru minnzt af samferðamönnunum, því að með honum er horfinn einn þeirra manna, sem mest og bezt koma við sögu hinnar stór- stígu iðnvæðingar, sem átt hefir sér stað með þjóð vorri um 30 ára skeið. S Guðmundur fæddist 30. des. 1899 að „Gunnarsholti" við Bræðraborgarstíg, Reykjavík. Hann var Reykvíkingur að upp- eldi og hugsunarhætti, og átt- hagakær. í Reykjavík átti hann líka því nær alla sína starfsævi. Foreldrar hans voru hjónin Run- ólfur Magnússon, lengi fiskimats- maður, og Guðrún Guðmunds- dóttir frá Gunnarsholti, Rvík. Heimili sitt í Vesturbænum köll- uðu þau Miðhús. Ætt Guðrúnar er ókunn þeim, er þetta ritar. En ætt Runólfs er alkunn. Faðir hans, Magnús Eyjólfsson í Lykkju á Kjalarnesi, var bróðir Eyjólfs á Laugarvatni og Katrín- * ar, móður séra Magnúsar And- réssonar á Gilsbakka. Guðmundur hóf járnsmíðanám 17 ára gamall hjá Kristófer Eg- ilssyni, járnsmið, Vesturgötu 52, Rvík. Komu þá þegar í ljós hjá honum frábær starfsáhugi, at- orka og hagleikur. Til eru í einkaeign smíðisgripir frá þess- um námsárum hans, er þykja bera vott um afbragðs vand- virkni og listræni. Að náminu loknu, árið 1919, sigldi hann til Kaupmannahafnar til að afla sér fyllri þekkingar og reynslu, og vann þar 4% næstu árin hjá Burmeister & Wain (Flydedokk- en). Hann kom heim til íslands árið 1923, og var þá án efa einn hinna færustu manna hér á landi í sinni iðngrein. Gerðist hann þegar yfirsmiður við eldsmíðar i vélsmiðjunni „Hamri“, og stund- aði það starf í 7 ár. Á þeim tíma útskrifaði hann 4 iðnnema, sem síðan hafa flestir eða allir gegnt forustuhlutverkum í iðnlífi höf- uðstaðarins. Árið 1930 tók hann að sér verkstjórn í Landsmiðj- unni. Lagði hann hart að sér, ásamt öðrum mætum mönnum, að byggja upp það fyrirtæki. Er a. m. k. sumum starfsfélögum hans minnisstætt, hve oft hann lagði þá saman daga og nætur í starfinu, án þess þó að sérstök laun kæmu til. Fór hann á þeim árum allmargar ferðir til Norð- urlands (Siglufjarðar og Raufar- hafnar) og stóð fyrir tankasmíð- um. Árið 1939 fór hann á vegum Landsmiðjunnar til Svíþjóðar, var þar í 3 mánuði við „Karl- stads mekaniska verkstáder" og safnið verið á hrakólum og í leiguhúsnæði jafnvel á fleiri en einum stað í bænum. STJÓRNIN Var bókasafnsstjórninni falið að afla nauðsynlegra teikninga og leyfa fyrir byggingunni. For- maður bókasafnsstjórnar er Hin- rik Jónsson, sýslumaður, aðrir í stjórn eru Sig. Ágústsson, þing- maður, séra Sigurður Ó. Lárus- son, prófastur, Ólafur Haukur Árnason, skólastjóri og Árni Ket- ilbjarnarson. — Árni. kynnti sér uppsetningu á túrbín- um. (Nokkrum árum áður var hann um tíma í Englandi og kynnti sér ýmiss konar járniðn- að). Hann var verkstjóri í Land- smiðjunni í 10 ár. Guðmundur stofnaði vélsmiðj- una „Bjarg“ árið 1941, ásamt Einari Guðmundssyni og Gústaf Þórðarsyni, núv. eigendum fyrir- tækisins, en seldi sinn hlut 4 ár- um seinna og sneri sér að öðr- um verkefnum, svo sem tanka- smíði í Hvalfirði og járnsmíði og vélaniðursetningu fyrir „Rúg- brauðsgerðina" í Reykjavík. Á þessum árum reisti hann allstórt og vandað íbúðarhús (Sund.laug- arveg 9), þar sem fjölskyldan hefir búið síðan. Síðustu starfs- árin vann hann að smíði Áburð- arverksmiðjunnar í Gufunesi, og ávann sér þar, eins og jafnan áður, álit samstarfsmanna sinna, erlendra sem innlendra. Var hann þar að störfum, þegar hann í marzmánuði 1955 fékk að- kenningu af heilablæðingu. Heilsubótardvöl í Danmörku þá um sumarið bar ekki árangur, og fór svo, að skammt reyndist til ævilokanna. Mörgum mun þykja, að fráfall hans sé mjög fyrir aldur fram. Æviárin urðu tæplega 57. í rauninni kemur þetta þó engum á óvart, sem man þá vinnu, sem þessi maður hefir afkastað. Guðmundur Runólfsson var nú tímamaður að kunnáttu, stórhug og framfaravilja. En skapgerð hans stóð rótum í fyrri tíð að því leyti, að hann sást ekki fyrir um fórnir erfiðis og tíma við verk sín og áhugamál. Má vera að honum hafi hætt til að ætlast til einhvers slíks af öðrum, En fyrst og fremst gerði hann kröf- urnar til sjálfs sín. Það munu allir kunnugir segja eins, að Guðmundur hefði talið það fyrir neðan ■'•irðingu sína, að raka að sér nokkurt verk með annað í hug en að leysa það af hendi svo sem hann mátti bezt gera. Verkið sjálft var fyrsta sjónarmiðið, launin síður. Öll óráðvendni og óeinlægni var honum andstyggð. Virtist honum án efa, að þessir mannlegu brestir styngju full- víða upp kollinum. Það átti vel við, er séra Garðar — í ágætri kveðjuræðu — lagði út af orð- um Meistarans: „Ekki mun hver sá, er segir .... heldur sá, er gjörir ... . “ Ekki var Guðmundur marglát- ur í dagfari, en gat þó verið glaður, gamansamur og hlýr í sinn hóp, enda velviljaður mað- ur og yfirleitt vinsæll af sam- starfs- og samferðamönnum sín- um. í félagsmálum, sem hann lét til sín taka, var hann ágætur liðsmaður. Hann var einn af að- alstofnendum Verkstjórafélags- ins, lengi formaður þess og jafn- an í stjórn, og um skeið gjald- keri Félags járniðnaðarmanna. Hann var kvæntur Sesselju Friðriksdóttur — dóttur Friðriks Ólafssonar, fyrrum næturvarðar, síðar umsjónarmanns í Útvegs- bankanum í Reykjavík. Voru þau gift í Kaupmannahöfn 9. marz 1921 af sér Hauk Gíslasyni. Lifir hún mann sinn, ásamt 5 upp- komnum og vel gefnum börnum þeirra. Vinur. Kvikmynair: ,,Fávitinn" — frábœr kvikmynd í Laugarássbíó Ego. Hólmarar æila að bytfffja bókhlöðu Héraðsbókasafnið á hrakhólum með húsnæði Stykkishólmi, 14. jan.: OÍÐASTLIÐINN laugardag var haldinn fundur í stjórn héraðs- ^ bókasafnsins í Stykkishólmi. Bókafulltrúi ríkisins, Guðmund- ur G. Hagalín mætti á fundinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.