Morgunblaðið - 22.01.1957, Qupperneq 4
4
MORCVNBLAÐIÐ
f’riðjudagur 21. jan. 1957.
— Dagbók —
Þingkosningar í Póiiandi
Nú þykist Gómúlka ætla að sýna og sanna,
hvað sjálfstæðið blómgist innan leppríkjanna
og alþýðulýðræði alþýðulýðveldanna
sé alheims lýðræðismet.
— En verst er að „systemið“ sjálft er i allan máta
hið sama og meðan Stalin var og hét.
Og þvi er hætt við, að ýmsum finnist það ekki
alveg laust við smávegis brögð og hrekki
en minni dálítið á Sovét-hnefa og hlekki
— en hvað er að taia um formgalla smá.
Krúséff brosir, Gómúlka gengur á kjörstað
og greiðir sér atkvæði hýr á brá.
BRODD-HELGI
I dag er 22. dagur ársins. —•
Þriðjudagur 22. janúar.
Árdegisflæði kl. 9,57.
Síðdegisflæði kl. 22,31.
Siysavarðstofa Reykjavíkur í
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L.
R. (fyrir vitjanir), er á sama
stað kl. 18—8. — Sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur
apóteki, sími 1760. — Ennfremur
eru Holts-apótek, Apótek Austur-
bæjar og Vesturbæjar-apótek opin
daglega til kl. 8, nema á laugar-
dögum til klukkan 4. Holts-apótek
er opið á sunnudögum milli kl. 1
og 4. —
Garðs-apótek, Hólmgarði 34, er
opið daglega kl. 9—20, nema á
laugardögum 9—16 og á sunnu-
dögum 13—16. — Sími 82006.
Hafnarf jarðar- og Keflavíkur-
apótek eru opin alla virka daga
frá kl. 9—19, laugardaga frá kl.
9—16 og helga daga frá kl. 13—16
O EDDA 59571227 — 1 Atkv.
I.O.O.F. Rb 1 s= 1061228% —9. 0.
• Bruðkaup •
Þann 18. þ.m. voru gefin saman
£ hjónaband Dís Atladóttir, Suð-
urgötu 14 og Luther Jónsson,
Drápuhlíð 37. Heimili þeirra er í
Suðurgötu 14.
• Hjónaefni •
S.l. laugardag opinberuðu trú-
lofun sína ungfrú Ljótunn Indriða
dóttir, Stórholti 17 og Rúnar Rand
ver Þórhallsson, Bakkagerði 15,
skipverji á m.s. Dettifossi.
• Skipafréttir •
Eimskipafélag Islands h.f.:
Brúarfoss fór frá Rotterdam
21. þ.m. til Kaupmannahafnar og
Reykjavíkur. Dettifoss fer frá
Reykjavík 22. þ.m. vestur og norð
ur um land til Boulogne og Ham-
borgar. Fjallfoss fór frá Antwerp
en 20. þ.m. til Hull og Rvíkur. —
Goðafoss fer frá Rotterdam í dag
til Hamborgar og Reykjavikur. —
Gullfoss er í Rvík. Lagarfoss er í
New York. Reykjafoss fór frá
Reykjavík í gærkveldi til Isafjarð
ar, Siglufjarðar, Dalvíkur, Akur
eyrar og Húsavíkur. Tröllafoss
fór frá Reykjavík í gærkveldi til
Siglufjarðar, Akureyrar, Seyðis-
fjarðar, Norðfjarðar, Reyðarfjarð
ar, Vestmannaeyja, Hafnarfjarð-
ar, Keflavíkur og Reykjavíkur.
Drangajökull var væntanlegur til
Reykjavíkur í gærdag.
Skipaútgerð ríkisins:
Hekla er í Rvik. Herðubreið er
á Austfjörðum á suðurleið. Skjald
breið er á Húnaflóahöfnum á leið
til Akureyrar. Þyrill er væntanleg
ur til Hamborgar síðdegis í dag
frá Bergen.
• Flugferðir •
Flugfélag íslands h.f.:
Millilandaflug: Gullfaxi fer til
London kl. 08,30 í dag. Væntan-
legur aftur til Reykjavíkur kl.
23,00 í kvöld. Flugvélin fer til
Osló, Kaupmannahafnar og Ham-
borgar kl. 08,00 í fyrramálið. —
Innanlandsflug: 1 dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar (2 ferðir),
Blönduóss, Egilsstaða, Flateyrar,
Sauðárkróks, Vestmannaeyja og
Þingeyrar. — Á morgun er áætl-
að að fljúga til Akureyrar, Isa-
fjarðar, Sands og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.:
Edda er væntanleg kl. 6,00—
8,00 árdegis frá New York, flug-
vélin heldur áfram kl. 9 áleiðis til
Oslóar, Kaupmannahafnar og
Hamborgar.
Pan American-flugvél
kom til Keflavíkur £ morgun frá
New York og hélt áleiðis til Osló-
ar, Stokkhólms og Helsinki. — Til
baka er flugvélin væntanleg annað
kvöld og fer þá til New York.
Námskeið í litafræði
Námsskeið í litafræði byrjar í
Handíða- og myndlistaskólanum í
þessari viku. 1 kennslunni verður
stuðzt við litfræðikerfi það, sem
kennt er við Sverre Johannsson,
kunnan sænskan litafræðing. —
Kennari verður frú Sigrún Jóns-
dóttir, sem numið hefur hjá Sv.
Johannsson.
Kennsla þessi hentar öllum, sem
mikið vinna með liti, t. d. málur-
um, hannyrðakonum, vefnaðar-
konum o. fl.
Umsóknir tilkynnist skrifstofu
skólans mánud., miðvikud. og
föstud. kl. 5—6% síðd. (Sími
82821). —
Árshátíð
Stokkseyringafélagsins verður
föstudaginn 25. janúar, í Sjálfstæð
ishúsinu kl. 20,30.
Nesprestakall
Börn, sem fermast eiga í vor og
að hausti, komi til viðtals x Nes-
kirkju, föstudaginn 25. janúar kl.
5 e.h. — Sóknarprestur.
Orð lífsins:
Sæll er sá maður, er eigi fer að
ráðum óguðlegra, eigi gengur á
vegi syndaranna og eigi situr í
hópi háðgjamra, heldur hefur
■yndi af lögmáli Drottins dag og
nótt. (Sálm. 1, 1—2).
Áfengið er erkióvinur viljans
til þroska og manndóms.
— Umdæmisstúkan.
Strandarkirkja
Afh. Mbl.: K G kr. 20,00; J M
100,00; S og M 50,00; Theodóra
50,00; J A S 15,00; Siggi 50,00;
Milla 50,00; N N 5,00; N N 100,00
G K 35,00; J G 100,00; þakklát
70,00; H G 30,00; ómerkt í bréfi
10,00; ómex-kt í bréfi 10,00; G G E
10,00; K V 50,00; Þórunn 50,00;
Þ G 50,00; Svava 10,00; S S 4,00;
Bína 100,00; gömul kona 100,00;
kona 15,00; G E afh. af séra
Bjarna Jónssyni 50,00; S L 15,00;
R og M h.f., Hafnarfirði 500,00;
Þ K 20,00; í bréfi 40,00; Dúna
50,00; gamalt áheit H 50,00; G G
50,00; 2 áheit A 75,00; ferðafélag-
ar 50,00; N N 500,00; N N 100,00;
A J 100,00; Þ Ú M 100,00; N N
Skagaströnd 150,00; S H 50,00;
E G 25,00; Guðbjörg 20,00; ónefnd
ur 50,00; gömul áheit 150,00; Þor-
björg 5,00; S G 10,00; N N Eyr-
arbakka 30,00; M A 25,00; Lth.
100,00; S H, g. áheit 300,00; g. áh.
G Ó 100,00; G 50,00; Þ Ó 100,00;
ónefndur 100,00; L A 300,00; Ó
H P 100,00; G Ó 10,00; Þ S 200,00
F F 100,00; g. áh. S J 150,00;
sjómaður 100,00; kona 25,00; S J
Heiðabæ 10,00; M Þ og J S 100,00
í H 100,00; N N 50,00; Kristín
100,00; 2 gömul áheit 150,00; áh.
£ bréfi 10,00; G H H 20,00; áheit
65,00; og Kr. Þ 15,00, afh. af séra
Bjarna Jónssyni; M Ó 100,00; g.
áh. 25,00; Á S 25,00; N N 100,00;
áh. í bréfi 100,00; áh. N N 100,00;
áh. F N 100,00; J K 100,00; kona
í Grindavík 50,00; N N 10,00; K
K Akureyri 200,00; S J 15,00.
Kvikmyndir
THEODÓRA
BÆJARBÍÓ í Haínarfirði sýnir
um þessar mundir stórbrotna
ítalska kvikmynd í litum, sem
nefnist „Theodóra“, eftir aðalper-
sónu myndarinnar. Atburðirnir
gerast í Býsanz höfuðborg hins
mikla austur-rómverska menn-
ingaríkis á dögum Justinianusar
keisara á 6. öld e. Kr. Getur þar
að líta glæsilegar byggingar þess-
arar fögru borgar og hið litríka
og ólgandi líf á strætum og torg-
um borgarinnar, þar sem sölu-
menn hrópa upp um ágæti varn-
ings síns og trúðar leika listir
sínar og prúðbúnir yfirstéttar-
menn og öreigar í tötrum setja
svip sinn á hi daglega líf. En
undir yfirborðinu ólga hin póli-
tísku átök, þar sem öfund, ágirnd
og valdagræðgi stjómar orðum
manna og athöfnum, en megin
þráður sögunnar er þó ástir hinn-
ar fögru dansmeyjar, Theodóru
og Justinianusar keisara, er hef-
ur hana til drottningartignar við
hlið sér. Er sá þáttur myndar-
innar áhrifamikill enda borinn
upp af sterkum og ástriðuþrungn
um leik hinnar fögru leikkonu
Gianna Maria Canale, sem er ný
ítölsk „stjarna" á hinu hvíta
tjaldi og sver sig mjög í ætt við
aðrar ágætar kvikmyndaleikkon-
ur ítala og Georges Marchal í
hlutverki keisarans.
Mynd þessi er tvímælalaust
með betri myndum sinnar teg-
undar. Er einkum athyglisvert
hversu ágætlega hún er á svið
sett með sínum fjölbreytíu og
lifandi leikatriðum úti og inni,
svo sem kappreiðunum, sem eru
frábærlega vel sýndar og teknar
og hinum glæstu salarkynnum í
höll keisarans og hinu eðlilega
umhverfi í lcrám og fangelsis-
hvelfingu borgarinnar.
Að öðrum athyglisverðum lellc
endum má nefna Hemi Guisol, er
leikur Johannes af Cappadokiu,
Roger Pigant, er leikur Andrés
og síast, en ekki síst Renato Bald-
ini, er leikur Arcal, gamlan elsk-
huga Theodóru.
Mynd þessi gefur mjög athygl-
isverða hugmynd um daglegt líf
fólksins, siði þess og háttu, í
hinni miklu borg, Býsanz, á um-
ræddum tímum, en hversu rærri
hún fer hinu sannsögulega, skal
ég láta ósagt. — Ego.
PaJS virðist svo sem Reykvíkingar hafi meiri áhuga á Shaw, heldur en í fyrstu leit út fyrir. Aðsóknin
að gamanleikriti hans „Það er aldrei að vita“ hefir vaxið svo mikið á síðustu sýningum að enn verða
fáeinar sýningar, þótt í ráði hafi verið að hætta þeim fyrir afmæli félagsins 11. janúar. Leikritið
er líka bæði létt og bráðskemmtilegt, eins og flest það sem Shaw skrifaði. I kvöld er það sýnt í Iðnó.
Henry Ward Beecher, amerísk-
u. prestur sem uppi var frá 1813
til 1887 og var mjög þekktur fyrir
baráttu gegn þrælahaldi og mjög
snjallar prédikanir, kom einu sinni
á útisamkomu þar sem ungur mað-
ur hafði stigið upp á kassa og hélt
þrumandi ræðu yfir miklum mann-
f jölda.
Þegar ræðumaður hafði lokið
máli sínu, gekk prestur rólega til
hans og sagði:
— Jæja, ungi maður, þér töluð-
uð vel, hvað tók yður annars lang
an tíma að semja þessa ræðu?
— Það tók mig nú ekki nema
einn dag, svaraði ungi maðurinn
hreykinn.
— Þér eruð meiri andans maður
en ég, það verð ég að segja, svar-
aði presturinn, ég verð að viður-
I kenna að það tók mig eina viku.