Morgunblaðið - 22.01.1957, Page 10
MORGVNBLAÐIÐ
I»riðjudagur 21. jan. 1957.
10
ÁRSHÁTÍÐ (þorrablót)
Árshátíð Húnvetningafélagsins í Reykjavík verður
haldin í Tjarnarcafé föstudaginn 25. þ.m. og hefst með
borðhaldi (hlaðborð) kl. 8.
Til skemmtunar verður:
1. Ávarp: Formaður félagsins.
2. Gamanvísur: Karl Guðmundsson.
3. Minni karla: Frú Hólmfríður Jónsdóttir.
4. Minni kvenna: Páll S. Pálsson.
5. Söngur, dúett: Frú Þuríður Pálsdóttir og
Guðmundur Jónsson.
6. Dans. Söngvari: Haukur Morthens.
Dansað til kl. 2. — Aðgöngumiðarnir fást í verzlununvim:
Brynju, Heklu, HF. Rafmagn og við innganginn ef eitt-
hvað verður óselt. Ekki samkvaemisklæðnaður.
Skemmtinefndin.
Kammermúsíkklúbburín
Stofnaður hefur verið Kammermúsíkklúbbur, sem
mun gangast fyrir flutningi kammertónverka. í>ar sem
slík tónverk njóta sín betur í litlum sölum, verður að
takmarka fjölda styrktarmeðlima. Haldnir verða sex
tónleikar á ári, hinn fyrsti miðvikudaginn 30. janúar n.k.
— Ársskírteini sem gilda ag öllum tónleikunum kosta kr.
120.00 verða seld í Bókabúð Braga Brynjólfssonar í dag
og næstu daga. Efnisskrá liggur þar frammi.
HAFNARFJÖRtÐUR! HAFN ARF JÖRiÐUR
þorrablót
verður haldið í G. T.-húsinu laugardaginn 26. janúar og
hefst kl. 7,30 e.h.
D a g s k r á ;
1. Upplestur
2. Leikþáttur
3. Dans.
Þátttaka tilkynnist fyrir fimmtudagskvöld til Guðjóns
Magnússonar, símar 9263 og 9963 og til Stígs Sælands,
simi 9062.
Stúkan Daníelsher nr. 4,
Stúkan Morgunstjarnan nr. 11
VSiálfstæðiskvennafélagið Edda
Kópavogi.
Spilakvöld
í Valhöll, fimmtudag 24. janúar kl. 8,30 e. h.
Ólafur Thors flytur ávarp.
Allt sjálfstæðisfólk í Kópavogi velkomið.
Vegna takmarkaðs húsrýmis er fólk vinsamlegast beðið
að tilkynna þátttöku sína í síðasta lagi á miðvikudag
í sima 5906, 2834 eða 6092.
Séð verður um ferðir fyrir þá, sem þess óska.
Stjórnin.
TILKYNNING
nr. 6/1957.
Innflutningsskrifstofan hefur í dag ákveðið eftirfar-
andi hámarksverð á selda vinnu hjá bifreiðaverkstæðum.
Dagv. Eftirv. Næturv.
Sveinar ...........
Aðstoðarmenn ....
Verkamenn .........
Verkstjórar ........
kr. 38.23 kr. 53.63
— 30.45 — 42.65
— 29.83 — 41.77
— 42.06 — 58.89
Söluskattur og útflutningssjóðsgjald er
kr. 68.82
— 54.82
— 53.71
— 75.71
innifalið í
verðinu.
Reykjavík, 19. jan. 1957.
VEROL.AGSSTJÓRINN.
Geysilctf eítirvæntinty í Monakó
Ríkiserfingi vœntaniegur
ÞÓTT hörð vetrarfrost undan-
farna daga hafi náð allt suður
á Bláströndina býr nú sól og
yiur í hjarta hvers einasta
íbúa smáríkisins Monakó, sem
langast af öldum Miðjarðar-
hafsins á hinni sömu Blá-
strönd. Ferðamenn sem þang-
að koma segja, að aldrei hafi
þeir hitt neina þjóð, sem var
svo almennt í góðu skapi.
RAINIER ITFFTUJK
ÓSK ÞEGNANNA
Orsökin er sú, að drottningin
af Monakó, fyrrum Grace Kelly
kvikmyndaleikkona, mun eignast
barn alveg næstu daga. Monakó-
búar elska þessa drottningu sína,
enda er hún yndislega fögur. Hún
og Rainier III. hafa lifað eins
og konungshjónin í ævintýrun-
um. Þau eiga fagrar rósum
skrýddar hallir og dýrlegar
skemmtisnekkjur, sem þau sigla
í út á hið bláa haf. Brúðkaup
þeirra stóð fyrir rúmum átta
mánuðum og var það einnig lik-
ast ævintýri.
Stærsta ævintýrið fyrir
Monakó-búa er þó að erfingi
skuli strax vera á lciðinni. í
Bemasconi læknir á að taka á
móti barninu. Hann verður alltaf
að vera viðbúinn.
Monakó era engir skattar lagð
ir á. En samkvæmt sérstöknm
milliríkjasamningi við Frakk-
land skal Monakó sameinast
Frakklandi, þegar sú konnngs-
ætt sem rikir þar deyr út. Ef
sú ógæfa skeði yrðu Monokó-
búar skattpíndir eins og aðrir
íbúar Frakklands.
Grace mun eiga barnið á fæð-
ingardeild borgarinnar. Mun hún
flytja þangað tímanlega og búa
um tíma í nokkrum stofum.
21 FALLBYSSUSKOT
Þegar barnið fæðist verður
skotið 21 fallbyssuskoti, jafn
mörgum hvort sem það verður
sveinbarn eða stúlka. Er Grace
svo mikil kvenréttindakona, að
hún þolir ekki að gert sé upp á
milli kynja.
Undanfaraar vikur hefnr
Grace drottning verið að fara
í búðir til að kaupa barna-
fatnað. Hún hefur nú þegar
fyllt nokkra klæðaskápa af
barnasloppom og samfesting-
um og silkibuxum. Auk þess
hefur verið keypt mikið af
bleyjum, en þær era fatnaður,
sem kóngaböra þurfa ekkert
síður en böra almúgans.
Stór og glæsilegur barnavagn
hefur verið keyptur. Þegar Grace
og maðurinn hennar fara út að
aka barninu í þessum vagni mun
fólk segja: Ætli þessi barnavagn
sé af Kádílják-gerð?
GESTKVÆMT f HÚSI
BARNSINS
Forkunnarfagurt barnarúm hef
ur verið búið tU með háum
rekkjutjöldum og mun barnið
hafa fyrir sig heilt þriggja hæða
hús, sem er útbygging úr höll-
inni. f þessu húsi hefur bamið
sérstaka svefnstofu, sérstök
leikherbergi, sérstaka borðstofu
og svo að sjálfsögðu viðhafnar-
sali, þvi að búast má við að gest-
kvæmt verði á heimili þess
og að það þurfi að halda gestum
sínum veizlur. Hinir beztu lista-
menn hafa unnið að því að
skreyta herbergin.
í þessu sama húsi munu einnig
búa gæzlukonur, og hafa nokkrar
þegar verið ráðnar. Yfír-gæzlu-
konan var fengin alla leið frá
Skotlandi.
Foreldrar Grace búa í Phila-
delphiu í Bandaríkjunum. Ný-
lega keypti Rainier Monakó-kon-
ungur stórt hús, sem hann ætlar
tengdaforeldrum sínum að búa í,
er þau dveijast í borginni. Frú
Kelly móðir Grace er nú komin
til Monakó ásamt annarri dóttur
sinni Elísabetu. Hún ætlar að
vera nærstödd þegar barnið fæð-
ist. En Kelly sjálfur má ekki vera
að því að koma. Hann er upp-
tekinn af því að græða dollara
heima.
HVAB Á BARNIB AB HEITA?
Svo er bara aS biða róleg,
Grace drottning kemur út úr
barnafatabúð.
þangað til lögmál náttúrunn-
ar segir til sín. Barnið verður
skírt sex vikum eftir fæðingu.
Ef það verður drengur á hann
að heita Gregoire Georges
Pierre Richard, en ef það verð
ur stúlka á hún að heita
Caroline Louise Marguerite.
Eins og þið sjáið, er vel fyr-
ir öllu séð.
Þegnar Rainiers vora orðnir
bræddir um að hann ætlaði að
pipra. Þetta er myndarlegur
maður, en var kominn nálægt
fertugu, þegar hann loksins
festi ráð sitt. Og þá var hann
ekki lengi að því að uppfylla
heitustu ósk þegnn sinna.
MEIRI LÍKUR Á SVEINBARNI
Monakó-búum er alveg sama,
hvort barnið verður sveinn eða
mær. Grace drottning kvað hafa
sagt eiginmanni sínum, að hún
sé fullviss um að það verði svein-
barn. Og skoðanakönnun, sem
fór fram í ríkinu sýnir að um
60% telja að þetta verði drengur.
Það má geta nærri að mikill
viðbúnaður er hafður til að fagna
komu erfingjans. Charles Bernas-
coni yfirlæknir fæðingardeildar-
innar í Monakó mun taka á móti
barninu, en einnig hefur verið til
kvaddur frægasti fæðingalæknir
Frakklands prófessor Hervet í
Paris. Hann mun um sinn leggja
niður störf sín í París til að geta
verið við hendina, þegar á þarf
að halda.
. k«upa fullan fwtaskáp af baroafe