Morgunblaðið - 12.02.1957, Side 1
20 síður
Þingseta Eggerts Þorsteinssonar ákveðin
þverf ofan í ákvœði stjórnarskrár
Fyrirmælum til yfirkjörstjórnar
um breytingu fyrri synjunar fylgt
eftir með sérstakri töggjöf
Frávísunartill. Sjálfstæð-
ismanna felld
Dularfulli
sjúklingurinn
ÞAÐ vakti talsverð heilabrot
fyrir skömmu, þegar sagt var frá
því í fréttum, að sérstakur blóð-
sjúkdómasérfræðingur hefði ver-
ið kvaddur frá Vestur-Þýzka-
landi til Moskvu til að athuga
„meðlim úr ríkisstj órninni". Var
nafni majmsins haldið leyndu, og
vissi jafnvel ekki læknirinn sjálf-
ur, hver hann var. Nú hefur
komið á daginn, að sjúklingur-
inn var Vyatsjeslav A. Malyt-
sjev, fyrrverandi varaforsætis-
ráðherra og núverandi vélabygg-
ingaráðherra (sic). Malytsjev
fékk Lenin-orðuna á fimmtugs-
afmæli sínu 1952. Hann var hers-
höfðingi í síðari heimsstyrjöld, en
hefur síðan einkum látið sig iðn-
aðarmál skipta. Álitið er, að hann
hafi verið yfirmaður rússnesku
kjamorkunefndarinnar um skeið
eftir dauða Stalrns 1953. Malyt-
sjev hefur gegnt ýmsum ráðherra
embættum á undanförnum árum
og er nú einn af samverkamönn-
um Pervukhins, sem hefur yfir-
umsjón með iðnaðarþróun
Sovétríkjanna.
Vyatsjeslav
Malytsjev
Hammarskjöld ræður frá refsi-
aðgerðum gegn Israel
NEW YORK, 11. febr. — Frá Reuter.
ISKÝRSLU, sem Hammarskjöld framkvæmdastjóri flutti Alls-
herjarþingi S. Þ. í dag, segir, að sameiginlegar refsiaðgerðir
gegn ísraelsmönnum fyrir óhlýðni þeirra við ályktun S. Þ. um
að kalla alla heri sína frá Egyptalandi, kunni að leiða til nýrrar
misklíðar og e. t. v. ófriðar við austanvert Miðjarðarhaf.
Allsherjarþingið kemur samanó
á morgun eða miðvikudag til að
ræða þá yfirlýsingu ísraels-
manna, að þeir hverfi ekki heim
með heri sína, fyrr en fengin sé
trygging fyrir því, að Egyptaf
hefji ekki á ný hermdarverk eða
skæruhernað. Fulltrúar 27 ríkja í
Afríku og Asíu eru nú að bræða
saman ályktun, þar sem lagt
verði fyrir meðlimaríki S. Þ. að
beita efnahagslegum þvingunum
gegn ísraei.
BRÉF FRÁ EBAN
í skýrslu Hammarskjölds seg-
lr m. a., að í gær (sunnudag)
hafi fulltrúi ísraels, Abba Eban,
komið fram með spurninguna um
frjálsar siglingar fyrir skip frá
ísrael um Súez-skurðinn sem eitt
af skilyrðum þess, af ísraels-
menn kalli heim herstyrk sinn
frá Gaza-skikanum og Akaba-
flóanum. Sagði Eben í bréfi til
framkvæmdastjórans, að það
væri ekki sanngjarnt að biðja
fsraelsmenn að skýra frá sjónar-
núðum sínum i þessu máli, ef
þeir fengju ekkl úr því skorið,
hvort stefnt væri að friði eða
nýju stríði.
TVÆR ÁLYKTANIR
Allsherjarþingið samþykkti 3.
Framh. á bls. 3
NASSER
SVIGURMÆLTUR
KAIRÓ, 11. febr.
Frá Reuter.
NASSER, einræðisherra Egypta-
lands, hélt í dag ræðu fyrir sendi
nefnd sýrlenzkra stúdenta, sem
nú er stödd í Kaíró. Nasser lýsti
yfir því, að þjóðernisstefna
Araba væri nú með miklum
blóma allt frá Atlantshafi tii
Persaflóa, þrátt fyrir alla við-
lcitni heimsvaldasinna. Hann
sagði: „Eg prédika hana í ykkar
nafni í Damaskus, Aleppo, Kairó
og Port Said.“
Nenni fær
slæmn utreið
FENEYJUM 11. febr. Frá Reuter.
— PIETRO NENNI, hinn gamli
foringi ítalska sósíalistaflokks-
ins, missti í kvöld að verulegu
leyti völdin í flokknum. Er
talið, að starfsmenn flokksins
eigi mestan þátt í þessari „bylt-
ingu“. Þegar gengið var til kosn-
inga um nýja stjórn sósíalista-
flokksins, fengu stuðningsmcnn
Nennis aðeins 27 sæti af 81. —
Hópur starfsmanna hjá flokkn-
um, sem óttaðist að hann yrði
rekinn frá störfum af foringjan-
um, fékk 30 sæti; annar hópur
undir forustu Lelio Basso, fyrr-
verandi ritara flokksins, fékk 15
sæti, og loks fékk fjórði hópur-
inn undir stjórn Sandro Piertini,
sem lagði til að sósíalistar hættu
öllu samstarfi við kommúnista,
9 sæti.
ÓSAMRÆMI
Þessar kosningar komu öllu á
ringulreið innan flokksins, en
í gærkvöldi hafði þing hans sam-
þykkt að ná úr liöndum komm-
únista verkalýðsíélögunum og
ýmsum vinstri sinnuðum sam-
tökum. í kvöld gaf Nenni út yfir-
lýsingu, þar sem hann bendir á
ósamræmið miili samþykktar
þingsins og úrslita stjórnarkjörs-
ins og segir, að það sé hlutverk
hinnar nýju flokksstjórnar að
greiða úr þeirri flækju. Stjórnin
kemur saman annað hvort á
morgun (þriðjudag) eða fimmtu-
dag.
¥jAÐ VAKTI mikla athygli á Alþingi í gær, að á meðan stóð á
* umræðum um þingsályktunartillögu Hermanns Jónassonar frá
því á laugardag, um að gera Eggert Þorsteinsson að þingmanni,
var útbýtt lagafrv. frá Hermanni, þar sem „skorið er úr“ málinu
með þeim hætti, — sem Hermann hafði boðað á fimmtudag.
Þótti flestum hér kenna full-mikillar ákefðar. Vinnubrögðin
minna helzt á það, þegar menn voru fyrst höggnir en siðan
brenndir til frekari fullvissu. Hér þykir auðsjáanlega mikið við
liggja, enda leyndi sér ekki furnið, er gripið hafði forystu stjórnar-
liða.
í GÆR sam samþykkt á Alþingi
þingsályktunartillaga Hermanns
Jónassonar um að Alþýðuflokkn
um bæri að fá kjörbréf fyrir vara
þingmann í Reykjavík og þar sem
fyrir lægi að þriðji maður list-
ans hefði hafnað rétti varaþing-
manns bæri yfirkjörstjórn að
gefa út kjörbréf til handa Eggerti
Þorsteinssyni.
Umræður urðu allharðar um
málið og töluðu Bjarni Benedikts
son og Magnús Jónsson af hálfu
Sjálfstæðismanna, en Hermann
Jónasson af hálfu stjórnarliðsins.
Einar Olgeirsson, sem hafði talað
gegn samþykkt Eggerts Þorsteins
sonar sem varaþingmanns, mætti
ekki á þessum fundi, en hélt sig
utan gátta við sjálfan þingsalinn
og tók enginn til máls af hálfu
kommúnista.
Bjarni Benediktsson flutti í lok
síðari ræðu sinnar tillögu til rök
studdrar dagskrár svohljóðandi:
„Yfirkjörstjórn hefir þegar
neitað að veita Eggerti G. Þor
steinssyni kjörbréf sem vara-
Norstad: NATO-herinn
má ekki minni vera
LONDON, 11. febr.
NORSTAD hershöfðingi, yfir-
maður herja Atlantshafs-
bandalagsius, er nú staddur í
London og á þar viðræður við
Sandys landvarnaráðherra.
40 brot ú alþjóðasamþykktum
UTANRfKISRÁÐUNEYTI ísraels hefur gefið út yfirlýsingu, þar
sem Egyptar eru sakaðir um nálega 40 brot á alþjóðasamþykkt-
um á síðustu 8 árum. Meðal þessara samþykkta eru nefndar stofn-
skrá S.Þ. og fjölmargar ályktanir Allsherjarþingsins, Súez-sáttmál-
inn, Genfar-sáttmálinn og mannréttindayfirlýsingin. í yfirlýsing-
unni er að því spurt, hvers vegna S.Þ. séu nú að þvinga ísraelsmenn
til að hverfa aftur til óviðunandi hernaðarástands á landamærum
sínum, þar sem þær hafi brugðizt þeirri skyldu sinni að refsa
Egyptum fyrir brot þeirra.
Ræða þeir m. a. þá ætlun
stjórnarinnar að draga úr út-
gjöldum til varna. Norstad er
í London í boði brezku stjórn-
arinnar. Þegar hann kom þang
að í morgun, sagði hann að
landher Atlantshafsbanda-
lagsins mætti undir engum
kringumstæðum vera minni
en hann er nú, ef hann ætti
að gegna hlutverki sínu. Sagði
hann, að landherinn hefði þeg
ar verið minnkaður um helm-
ing fyrir 3 árum, þegar kjarn-
orkuvopn komu til sögunnar,
og slíkar breytingar væri ekki
hægt að gera aftur. Hann
bætti því við, að ef Bretar
minnkuðu framlag sitt til
bandalagsins, þá vonaði hann,
að aðrar þjóðir fetuðu ekki
í fótspor þeirra.
þingmanni Alþýðuflokksins í
Reykjavík, og Alþingi hefur
samkvæmt 46. gr. stjórnar-
skrárinnar fellt að taka hann
gildan sem réttkjörinn vara-
þingmann, enda mundi þing-
seta hans bersýniiega brjóta
gegn 31. gr. stjórnarskrárinn-
ar. Alþingi telur því tillögu
þessa óþinglega og tekur fyrir
næsta mál á dagskrá“.
Tillaga þessi var felld með 27
atkv. gegn 19, en 6 þingmenn
voru fjarverandi. Með tillögunni
greiddu atkvæði allir Sjálfstæð-
ismenn, en móti þeir af stjórnar-
þingmönnum, sem viðstaddir
voru atkvæðagreiðsluna. Stjóm-
arliðið felldi einnig tillögu um
að vísa málinu til nefndar. Til-
laga Hermanns Jónassonar var
samþykkt með sama atkvæða-
mun, 27 með, en 19 á móti.
Fyrri ræða Bjarna Benedikts-
sonar fer hér á eftir í heild:
HERRA FORSETI!
Margt og raunar flest, af þvl
sem hæstv. forsrh. hefur nú sagt
eru atriði sem ég er þegar búinn
að svara í þeim umræðum, sem
um þetta mál urðu hér á dögun-
um, og veit ég því ekki hvort
ég hirði um að eltast við allan
hans rökstuðning.
HERMANN TVÍÁTTA
Um daginn lét hann sér nægja
að senda boð til kjörbréfanefnd-
ar um það, að hann ætlaði að
leggja fram lagafrv., sem að því
er form. n. Gísli Guðmundsson
sagði, að sér skildist, ætti að skera
úr um þetta tiltekna atriði. Nú er
hæstv. ráðh. a. m. k. mjög á báð-
um áttum um það, hvort slíka
löggjöf eigi að setja. Sú till., sem
fram er komin, verður ekki skilin
á annan veg en þann, að hann ætli
að láta Alþingi skera úr málinu
með þál., alveg gagnstætt því sem
hann lét boða hér sl. fimmtudag,
en hafði þá ekki enn þá haft að-
stoðarmenn við hendina til þess
að setja saman þann samsetning,
sem hann nú var að stauta sig
hér fram úr.
Framh. á bls. 2