Morgunblaðið - 12.02.1957, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. febr. 1957
GULA
llljl herbergrið
e£tii MARY ROBERTS RINEHART
Framholdssagan 50
hana svei mér ekki. hef aldrei séð
hana. Og aldrei frú Hilliard held-
ur, fyrr en hún kom hingað.
— Já, þér segið það. En hvað
voruð þér að gera heima hjá Joe
Norton í gserkveldi að skoða mun-
ina hennar Lucy ? Hafði hún eitt-
hvað i fórum sínum, sem yður
vantaði?
Dane hló kuldalega. — Ég skal
segja yður það Beinna, sagði hann
þurrlega. — En eitt skal ég segja
yður strax. Frú Hilliard var sleg-
in eða skotin niður á akbrautinni,
eða að minnsta kosti hefur henni
verið dröslað þaðan, þangað sem
ég fann hana. Og ég gerði það
ekki.
— Gott og vel. I>á viljið þér
kannske segja mér, hvers vegna
þér voruð á vakki við Spencer-
húsið um miðja nótt og í' svona
veðri. Carol segir mér, að þér
hafið vitað fyrirfram, hvað þér
mynduð finna.
— Það getið þér líka fengið að
vita, svaraði Dane hvasst. — Ég
var að ganga í verkin yðar, það er
að segja, ég var að vakta Crest-
view. Hér er einhver hættulegur
maður á ferðinni, Floyd. Kannske
fáið þér það inn í yðar ferkant-
aða höfuð einhvern tíma áður en
lýkur, þó að það virðist ætla að
ganga seint.
En Floyd var annars alls ekki
heimskur, og það vissi Dane. Með-
an hann beið eftir híinum, athug-
aði hann það, sem hann þegar
vissi. Elinor hafði ekki verið færð
út úr húsinu með valdi, heldur
farið út í einhverjum erindum,
sem hún ein vissi um og hún
hafði ekki verið fáklædd eins og
myrta stúlkan, heidur alklædd,
jafnvel í þykka skó og svo ljósu
regnkápuna, sem hafði hjálpað
tii þess að finna hana.
— Hvert hafði hún verið að
fara? Til Wards? Sú saga gekk,
UTVARPIÐ
Þriðjudagur 12. febrúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
18,30 Útvarpssaga bamanna: —
„Veröldin hans Áka litla“ eftir
Bertil Malmberg; XI. — sögulok
(Stefán Sigurðsson kennari). —
18,55 Þjóðlög frá ýmsum löndum.
1910 Þingfréttir. 20,30 Veðrið í
janúar o. fl. (Páll Bergþórsson
veðurfi-æðingur). 20,55 Frá sjón-
arhól tónlistarmanna: — Bjöm
Franzson flytur fjórða erindi sitt
með tónleikum. 21,45 Islenzkt mál
(Ásgeir Blöndal Magnússon kand.
mag.). 22,00 Fréttir og veðurfregn
ir. — Kvæði kvöldsins. 22,10
„Þriðjudagsþátturinn“. — Jónas
Jónasson og Haukur Morthens
hafa stjóm hans með höndum. —
23,10 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 13. febrúar:
Fastir liðir eins og venjulega.
12,50—14,00 Við vinnuna: Tón-
leikar af plötum. 18 jiO Bridgeþátt
ur (Eiríkur Baldvinsson). 18,45
Fiskimál; Sigurður Þorkelsson,
verkfræðingur talar um talstöðvar
í skipum. 19,00 Óperulög. — 19,10
Þingfréttir. — Tónleikar. 20,30
Daglegt mál (Arnór Sigurjóns-
son ritstjóri). 20,35 Lestur fom-
rita: Grettis saga; XIII. (Einar
ÓI. Sveinsson prófessor). 21,00
Tónleikar (plötur). 21,45 Hæsta-
réttarmál (Hálcon Guðmundsson
hæstaréttarritari). 22,00 Fréttir
og veðurfregnir. — Kvæði kvölds-
ins. 22,10 „Lögin okkar“. — Högni
Torfason fréttamaður fer með
hljóðnemann £ óskalagaleit. 23,10
Dagskrárlok.
að frú Ward hefði séð bilinn henn
ar með einhverjum karlmanni í,
morðnóttina, og Elinor gat hafa
sett það fyrir sig. En á þessum
tima nætur og í svona veðri?
Hann sleppti því Ward og tók
í staðinn óþekktan aðila, sem
hann kallaði X. Þessi óþekkti X
gat leyst úr dæminu, ef hann að-
eins hefði fleiri gögn í höndum.
Loks fór hann burt, í illu skapi
og þögull. Ennþá rigndi talsvert
og kalt var í veðri. 1 bílnum sagði
hann Alex ekkert annað en það,
að Elinor Hilliard hefði verið
skotin, og Alex þótti þetta heldur
þunnar upplýsingar og var í illu
skapi. Þegar komið var að braut-
inni heim til Spencers, sagði hann
Alex að snúa þangað, en gaf enga
frekari skýringu.
— Þú getur verið héma á hött-
unum, sagði hann. — Ég get ef til
vill tafið þama nokkia stund.
— Og hvað á ég að gera á með-
an? spurði Alex önugur.
— Reyndu að fá þér dúr, sagði
Dane háðslega og steig út er bíll-
inn staðnæmdist.
Húsið var ennþá uppljómað.
Hann fann framdyrnar lokaðar
og hringdi en enginn svaraði. Þá
gekk hann að eldhúsglugganum og
sá inn um hann, að stúlkumar
voru þar inni, allar í hnapp og
sýnilega hræddar. Hann barði í
rúðuna og ein þeirra rak upp vein
af hræðslu.
— Þetta er bara Dane, kallaði
hann inn. —- Ég er að koma úr
sjúkrahúsinu.
Hávaðinn þagnaði og Maggie
opnaði fyrir honum og virtist feg-
in að sjá hann.
— Fyrirgefið þér, majór, en við
höfðum komið okkur saman um að
hleypa engum inn. Hér er morð-
ingi á ferðinni, sem einskis svífst.
— Það er sennilega alveg rétt,.
svaraði hann alvarlega. — Þess
vegna var érr nú hér að flækjast
í nótt. Ég var hræddur um, að eitt
hvað væri á seyði.
Aftur kom hræðslusvipurinn á
stúlkumar en hann reyndi að
hugga þær eftir föngum. Hann
fann, að í bili myndi ekki meira
bera til tíðinda og frú Hilliard
var úr allri hættu. Og þá gæti hún
væntanlega sagt þeim, hver hefði
sýnt henni tilræðið. Það var ekk-
ert dularfullt þó að hún færi út.
Hún gat hafa ætlað að fá sér
ferskt loft og svo hefði verið ráð-
izt á hana á brautinni og hún bor-
in — hann sagði viljandi ekki
dregin — upp í brekkuna.
Maggie gaf honum kaffi, sem
var hennar töframeðal við hvers
kyns mótlæti og sjúkdómum, og
þegar hann hafði drukkið það,
sagði hann, að sig langaði til að
mega líta inn í herbergi frú Hilli-
ard.
— Það getur verið, að þar sé
eitthvað, sem bendi til þess, hvers
vegna hún fór út, sagði hann. —
Fékk frú Hilliard nokkra síma-
hringingu í gærkveldi?
Ekki svo að þær vissu til. Þær
leyfðu honum að fara upp einum,
og eftir stutta athugun, sem bar
engan árangur, fór hann inn í
gula herbergið. Þar var ljósið
slökkt, enda þótt hann myndi ekki
til, að Carol eða hann hefðu slökkt
það, en þegar hann kveikti, varð
hann steinhissa. Herbergið hafði
verið rannsakað í mesta flýti. Ann
ar glugginn var opinn, jaðramir
á gólfábreiðunni voru brotnir upp,
dýnan í breiða rúminu færð úr
stað og laus gólflisti rétt hjá arn-
inum hafði verið spenntur frá.
Dane horfði á þetta nokkra
stund. Þetta hefði getað verið góð
ur felustaður, ef hún hefði notað
hann, hugsaði hann með sér. Og
annað hvort hafði einhver kunn-
ugur vitað af honum eða einhver
með óvenju-góða sjón hafði séð
hann.
Hann rifjaði upp fyrir sér at-
burði næturinnar. Carol kom ekki
til mála. Hún hafði ekki dvalið í
húsinu nema rétt til þess að vekja
Gregory og hringja í lækninn. —
Gregory sjálfur? Nei, hann hafði
komið hlaupandi og haldið að sér
sloppnum á hlaupunum. Og vitan-
lega var hann búirm að hafa
marga daga til þess að leita í hús-
inu í ró og næði. Og þá var eng-
inn eftir nema stúlkuraar. En
svo höfðu Ijósin verið logandi og
það var naesta ótrúl, að nokkur
hefði farið inn í húsið, meðan þau
voru 511 uppi í brekkunni. Og loks
var hann alveg viss um, að glugg-
amir í gula herberginu hefðu
verið lokaðir, þegar þau Carol
fóru þaðan út.
Svo datt, honum £ hug stiginn
hans Alex, og varð gramur við
sjálfan sig. Þar hafði honum orð-
ið á £ messunni. Hann hefði þó
átt að geta séð, að hann var horf-
inn.
Áður en hann fór niður, athug-
aði hann herbergi Gregs. Það
hafði iíklega verið þessu líkt síð-
an Greg var skólastrákur, þarna
voru skólamyndir á veggjum og
þess háttar. En snyrtilega var frá
öllu gengið. Einkennisbúningur
Gregs hékk þarna og skúffurn-i
ar i skrifborðinu voru i röð og
reglu. Skáphurðin var opin og
Dane athugaði ferðatöskuna, sem
var á gólfinu. Hún var lokuð, en
ekki læst. Hann opnaði hana og
fann hermannaskammbyssu. En
ekki hafði nýlega verið skotið úr
henni, svo að hann lét hana á sinn
stað og lokaði töskunni aftur.
heldur áfram
R
IMýtt úrval
KÁPU
frá kr: 395 -
Geri aðr/r betur
MARKAÐURINN
Laugavegi 100
SOLEX
blöndungar
fyrir Standard 8 ha og Standard Vanguard
Stýrienaður
Stýrimann vantar á góðan línubát frá Akranesi.
Upplýsingar í síma 370, Akranesi.
Teakhurðir
Nokkrar útidyrahurðir úr teak-við til sölu. —
Getum bsett við okkur alls konar innréttingum.
Upplýsingar í sima 7253.
MABKÚS Eftir Ed Dodd
THREÉ THOUSAND .'...EXJY,
THAT'S A LOT OF MONSEY... SAV
WHY CAN'T YOLÍ WIN THAT,
JOHNNV. WITH OUEENIE IN
1) — Mikið er gott að fá heit-
an kaffisopa.
2) — Heyrðu Jonni, hvaða aug-
lýsing er þetta sem þú hefur fest
framan á kofann.
— Ha, ég hef ekki fest neina
auglýsingu þar og ég tók ekki
eftir þvi.
3) — Það er sleðakeppni. Hún
á að verða eftir tvo daga.
— Já, þeir festa auglýsinguna
upp út um allt tilað minna á
hana. Og verðlaunin eru 3000
dalii
4) — Þrjú þúsund. Hugsaðu
þér bara. Það eru miklir pening-
ar. Getur þú ekki unnið með
Drottningu sem forustuhund?